Helgarpósturinn - 06.02.1981, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 06.02.1981, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 6. febrúar 1981 halrjr^rpn^fi irínn Nokkrir þeirra sem vasast i aukastörfum og drýgja tekjurnar verulega.... Helgarpósturinn kannar lífsafkomu nokkurra þing- manna og kemst að raun um að með aukastörfum eru laun þeirra vægast sagt misjafnlega mikil Þótt þarna muni rúmum f jögur þúsund krónum á mánuði, þá mun það skoðun landsbyggðar- þingmanna, að þær krónur nái ekki aö brúa þann kostnað sem fylgir þvi aö vera þingmaður fyrir kjördæmi i fjarlægð frá þingstaö. Til viðbótar þessum launum, hafa þingmenn frian sima og er einnig heimilt að taka sér ferð á hendur i innanlandsflugi. Alþingi greiðir 24 slikar ferðir árlega fyrir hvern þingmann. bá má geta þess að 9 þingmenn eru jafnframt ráöherrar (eða öfugt) og þiggja þeir 10.600 krónur mánaðarlega fyrir ráö- herrastörfin og kemur sú upphæð ofan á þingfararkaupið. Þetta þýðir aö ráðherra hefur frá rúmum 23 þúsundum upp i 27 þúsuhd krónur á mánuöi. Misskipting auðs á sér staö meöal hinna 60 alþingismanna okkar eins og milli stétta úti i þjóðfélaginu. Þingmennirnir okkar eru runnir upp úr óliku um- hverfi og hafa það mjög misgott fjárhagslega. Sumir hverjir láta sér nægja þingararkaupið, en aðrir eru með ýmis járn I eldinum, eigin rekstur, fyrirtæki eða með aukastörf á hendi. Þetta þýðir sem sé, að þing- fararkaupið, sem kjaradómur nýlega hækkaði verulega, segir ekki alltaf nærri þvi alla söguna um raunveruleg lifskjör þing- manna. Óhætt er að fullyrða að meira en helmingur þingmanna hefur umtalsverðar tekjur umfram þinglaunin og allflestir hafa einhverjar aukatekjur, þótt óverulegar séu i sumum tilvikum. í eftirfarandi athugun eru raunveruleg lifskjör þingmanna okkar könnuð. Talað er við nokkra þingmenn og jafnframt minnst á nokkra þá, sem vitaö er til þess að hafi fleira á sinni könnu en þingstörfin ein. Til að byrja með skulu þó hin eiginlegu þingfararlaun tiunduð. Þau eru nokkuð mismunandi eftir þvi úr hvaða kjördæmi þingmenn koma og einnig hvar þeir hafi lög- heimili. Ljóst er að þaö eru Reykjavikurþingmennirnir sem samanlagt lægst fá útborgað, en þingmenn kjördæma utan þessara staða fá þykkasta launa- umslagið. Litum á launa- uppgjörið til þessara tveggja hópa þingmanna: Mishátt þingfararkaup Mánaðarlaun Reykjavikur- þingmanna: Ferðakostn. i kjördæmi 650kr. Þingfararkaup 12.000 kr. bankaráði Otvegsbankans og stjórnarformaður Hafskips svo nokkuð sé talið. Jósef H. Þor- geirsson á Akranesi mun hluthafi og var framkvæmdastjóri skipa- smiðastöðvar Þorgeirs og Ellerts og ólafur G. Einarsson var einatt nefndur i tengslum við rekstur Oliumalar. Geir Hallgrimsson er formaöur útgáfustjórnar Arvakurs, sem gefur út Morgunblaðið, hann er einnig m.a. hluthafi i H. Ben. og Siríusi. Þá mun Eyjólfur Konráð Jónsson eiga hlut i laxeldis- stöövum og almenningshluta- félögum. 1 borgarapparatinu starfa þing- menn eins og Guðrún Helgadóttir, Birgir Isleifur Gunnarsson og Al- bert Guðmundsson, svo sem áður er talið. Nokkrir þingmenn stunda kennslu meðfram þing- störfum og má þar nefna, Kjartan Jóhannsson, Ólaf Ragnar Grims- son og Vilmund Gylfason. Loks ber einnig að geta þess að langflestir þingmenn taka laun fyrir störf i hinum og þessum nefndum stjórnkerfisins, þótt öll nefndarstörf á vegum Alþingis séu launalaus. Það þekkist einnig, að þing- menn taki að sér ýmis störf til sjós og lands yfir sumarmánuð- ina, þegar þing liggur niðri. Menn eins oe Karl Steinar Guðnason, Karvel Pálmason og Garðar Sigurðsson hafa stundum farið á sjó i sinu orlofi og aðrir tekið að sér timabundin störf i landi við hitt og annnað tilfallandi. Þaö er ljóst af þessu, aö þing- menn hafa margir hverjir margt i takinu fyrir utan hin eiginlegu þingstörf og ættu þau störf að hækka rauntekjur þeirra sömu manna — mismikið þó eftir eöli aukastarfanna. Hitt skal þó tekið skýrt fram, aö hér að ofan er aöeins hlaupið á nokkrum þingmönnum og þeim aukastörfum sem eru á flestra vitoröi. Hér er enganveginn um tæmandi skrá að ræða, heldur aðeins verið aö gefa hugmyndir um hin margvislegu áhugamál og aukastörf þingmannanna okkar. Ýmis aukastörf Eins og hér var nefnt i upphafi, þá hafa ýmsir þingmenn ýmis aukastörf á hendi samhliða þing- mennsku. Skulu nokkur dæmi nefnd af handahófí. Bændur eru t.a.m. nokkrir i þingliöinu, s.s. Jón Helgason í Seglbúðum, Davið Aðalsteinsson Arnbjragarlæk i Borgarfiröi, Páll Pétursson, Höllustöðum i Húnavatnssýslu, Pálmi Jónsson á Akri, Steinþór Gestsson, Hæli, Egill Jónsson, Selalæk. Þá er Eggert Haukdal einnig bóndi á Bergþórshvoli, en hann er jafnframt stjórnarformaður Framkvæmdastofnunar. Þar er Sverrir Hermannsson einnig for- stjóri, en hann sinnir þó ekki bú- skap heldur er þess i stað hluthafi i útgerðarfelagi. Guömundur Karlsson Vestmannaeyjum fæst einnig við útgerð. Nokkrir þingmenn standa allframarlega i viöskiptalífi margháttuðu. bar má telja, Al- bert Guömundsson sem vinnur viö samnefnda heildverslun. Al- bert kemur þó viðar við, þar sem hann situr i borgarstjórn og i nefndum á vegum borgarinnar. Þá situr hann og sem formaður i Samtals: 12.650 kr. Þingmenn úti á landi og ekki meö lögheimili i Reykjavik né á Reykjanesi: Húsaleiga 1.700 kr. Dagpeningar 875 kr. Ferðakostn. i kjördæmi 2.l65kr. Þingfararkaup 12.000 kr. ...og nokkrir þeirra sem litlareða engar tekjur hafa um fram þing fararkaup.... Samtals: 16.740 kr.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.