Helgarpósturinn - 06.02.1981, Page 7
7
hpilrjærpncztl irinn Fðstudagur 6. febrúar 1981
er tekiö i rúmri -merkingu, hafa
þrir til fimm menn um tiu til
tuttugu ára bil fengist viö viða-
miklar viðtalslækningar, sem af
mörgum mundi vera kallað
sálkönnun.
Þar sem nokkuö langt er um
liðið siðan Freud setti fram kenn-
ingar sinar og öll þekking manna
og viðhorf hafa tekið miklum
stakkaskiptum, vilja ýmsir halda
þvi fram, að Freud sé úreltur.
Hvað segir Sigurjón um þá full-
yrðingu?
,,Það er enginn fræðimaður
úreltur”, segir hann. 011 fræði sé
þannig, að hver byggir á öðrum.
Freud var langt á undan sinni
samtið, og einmitt vegna þess, að
hann var til, er hægt að breyta
þvi, sem hann setti fram.
„Hann er ekki úteltari en New-
ton, og ég efast um að Einstein
hefði getað sett fram sinarkenn-
ingar, ef Newton hefði ekki verið
til”, segir Sigurjón.
En Freud er úreltur að þvi
leyti, að enginn getur lært hans
kenningar og látið sem ekkert
hafi gerst i millitiðinni. Til þess
að vera trúr kenningum Freuds,
þarf að fylgjast með öllu þvi, sem
er að gerast i kringum mann.
Ekki andstæður
Til þess að gerast sálkönnuður,
er ekki nauðsynlegt að hafa lagt
stund á læknisfræði, þó það sé svo
sums staðar. Menntun i sálar-
fræði, og jafnvel öðrum greinum
hugvisinda, er talin góður grund-
völlur undir nám i sálkönnun.
Helgarpósturinn hafði samband
við Ingvar Kristjánsson geðlækni
og spurði hann hvernig kenningar
Freuds horfðu við geðlæknum.
Blaðburðarbörn
óskast á
eftirtalda staði
STRAX
Borgartún
Skipasund, Efstasund
Hátún, Miðtún,
Samtún
Skúlagata, Hverfis
gata, Skúlatún
Kelduland, Hörða
land, Lágland,
Ljósaland
Bogahlið, Mávahlið
Alþýðublaðið
Helgarpósturinn
SJAIST
með
endurskini
,,Ég held, að það sé misjafnt, ef
ég miða við þá geðlækna, sem ég
hef unnið með, hér og erlendis”,
sagði hann. „Ég vann á stórri
stofnun i Englandi, þar sem við-
gengust allir skólar. Sumir sögðu
að þetta væri bara vitleysa, en
aðrir beittu sér fyrir þessum
kenningum.”
Ingvar var sammála Sigurjóni i
þvi, að kenningar Freuds hafi
haft mikil áhrif á meðferð á geð-
veiku fólki. Það væri svo, að
þegar nýtt meðferðarform, sama
hvað það kallaðist, eða nýtt lyf,
kæmu fram, þá væri i byrjun erf-
itt að segja til um hvaða not væru
af aðferðinni eða lyfinu. En með
gagnrýninni athugun væri hægt
að komast að þvi hvaða gagn eða
skaða þau gerðu, og þá væri fyrst
hægt að meta þau skynsamlega.
„Varðandi vinnubrögð
Freuds”, sagði Ingvar, ,,þá beita
sumir svipaðri tækni, en velja
sjúklingana i ljósi þeirrar þekk-
ingar, sem við hefur bæst siðan
Freud var að prófa sig áfram, og
koma þeim i kenningafræðilegt
kerfi”.
Ingvar sagði, að kenningar
Freuds væru gagnlegar til skiln-
ings á ákaflega mörgum geð-
vandamálum og þar af leiðandi
hefðu geðlæknar mikil not af
þeim.
Um það hvort sálkönnun ætti
betur við i meðferð vissra
sjúkdóma, sagði Ingvar að svo
væri að hans áliti. Hann væri hins
vegar ekkert sannfærður um að
allir væru honum sammála. Hann
sagði, að það væru sjúkdómar úr
ýmsum flokkum, en þó kannski
helst hugsýki (taugaveiklun) og á
sviði afbrigðilegrar skapgerðar.
Ingvar var ekki á þvi, að hægt
væri að lita á sálkönnun og geð-
lækningar sem einhvers konar
andstæð fyrirbæri, geðlæknar
visuðu sjúklingum til sálkönnuða
og öfugt. „En það eru hins vegar
til ofstækissinnar alls staðar, sem
lita á sálkönnun sem timaeyðslu,
en ég er ekki sammála þvi”,
sagði Ingvar Kristjánsson.
Tll ROf)
I Bhb U
Ánægðir kaupendur
Datsun Cherry eru sammála um
að þetta sé draumabíll.
*
HVERS VEGNA?
Bíllinn er fallegur, hannaður
með notagildi að leiðarljósi og
innréttingin er frábær.
Vegna þess hve Cherry
er breiður, er leit að öðrum eins
þægindum í minni gerð bíla.
Datsun Cherry er tæknilega
fullkominn og búinn þeim
kostum sem hagsýnt fólk
kann að meta.
Lægra verksmiðjuverð
Gamalt tollgengi
FRAMHJOLADRIF
STÓR SKUTHURÐ
2JA EOA 4 DYRA
52 HESTAFLA VÉL (DIN)
SJALFSTÆD FJÖÐRUN A
ÖLLUM HJÓLUM
LITAOAR RÚOUR
HALOGEN LJÓS
SPARNEYTNI OG HATT
ENDURSÖLU- VERÐ
Og þegar verðið er tekið með i reikn-
inginn, — þá eru flestir sammála okk-
ur um að DATSUN CHERRY verði
enn einn metsölubillinn frá DATSUN.
DATSUN Cherry
Á GÖMLU
TTTTI-DIYT
V llllllil
ÞÚ SPARAR FLEIRA EINI BENSÍN ÞEGAR ÞÚ KAUPIR CHERRY
Datsun u m boð ið '
INGVAR HELGASON
Vonarlandi vid Sogaveg • Sími 33560