Helgarpósturinn - 15.04.1981, Síða 9

Helgarpósturinn - 15.04.1981, Síða 9
9 hnlrjarpnczfi irinn^iðvikudagur 15. apríl 1981 Créme de (Réttur dagsinsj Það finasta af öllu finu i nú- timanum er sennilega að vera sælkeri og vinþekkjari (sem undirritaður getur þvi miður ekki gert tilkall til að vera, át- vagl og vinsvelgur væri senni- lega nær lagi), og nú er svo sannarlega runnin upp gullöld sælkerans i Reykjavik. Hver matsölustaðurinn á fætur öðrum opnar dyr sinar og sumir breiða jafnvel dýrindis teppi yfir krapið á gangstéttunum, svo að sælkerarnir geti gengið þurrum fótum að árgangsvin- um, sniglum og skötusel. bað er mikil guðsblessun að geta annað slagið gefið soðning- unni heima hjá sér langt nef og fengið sér italska pizzu eða sæt- súrt svin frá Kina eða franska snigla eða vestfirskan hörpu- disk án þess að þurfa að setja sig i hátiðlegar stellingar, panta borð, rifja upp bindishnút og hugsa með skelfingu til /a créme reikningsins, sem var algeng- asta umræðuefnið undir borðum á eldri veitingahúsum borgar- innar: Við hjónin fórum út að borða fyrir sex mánuðum og fengum okkur rauðvin með matnum — hvað heldurðu að það hafi kostað???? Svo giskaði maður og það var alltaf helmingi of lágt og þá sagði maður: „Sussususs, hvar ætli þetta endi,” og fékk sér konjakk með kaffinu. betta endaði náttúrlega á þvi að íslendingar fóru að leggja sér til munns ýmiss konar ómeti sem áður hafði verið fleygt eða notað i refafóður eða beitu eða selt útlendingum. Nú borðar fólk karfa, skötu- sel, smokkfisk og ræðir af áhuga lærðar greinar um sósur, vin og franska matseld eftir þá Sig- mar B. og Jónas Kristjánsson, og ungir kokkar á litlum veitingastöðum um allan bæinn brytja hvitlaukinn i grið og ergi rjóðir i kinnum og með hug- sjónaglóð i augum ljómandi af nýfengnu tjáningarfrelsi. Þessi nýja matargleði sýnir sig á fleiri sviðum, jafnvel islenskir bakarar sem um ára- tugaskeið gerðu það að trúarat- riði hjá sér að þröngva upp á þjóðina einvörðungu fransk-, rúg- og normalbrauði, baka nú gómsæt þriggja korna brauð og bóndabrauð og allskonar góm- sætt bakkelsi, sem áður fyrr sást ekki hér nema litprentað i dönsku blöðunum. Þetta er til fyrirmyndar. Nú er meira að segja oröið hægt aö fá æta hamborgara i Reykjavik. Ég vona að ég móðgi hvorki Sig- mar B. né Jónas Kristjánsson, þótt ég segist hafa vit á ham- borgurunum. Og kóki. Ég viður- kenni fúslega yfirburðarþekk- ingu þeirra á sviði vins og sósu, en vil þó meina að ég sé mark- tækur hamborgarakritiker og bendi á Tommaborgara máli 'minu til stuðnings sem fagra þróun frá þeim brenndu skósól- um með bleikri sósu i uppþorn- uðu brauði sem um langan aldur hefur kastað rýrð á þennan bandariska þjóðarrétt hérlend- is. Og sumstaðar fær maður meira að segja ismola út i kókið og ókeypis tómatsósu! Þessi framsókn islenskrar eldamennsku er nú kannski ekki það sem mestu máli skiptir i þjóðlifinu, þegar menn eru að sligast undan vaxtaaukalánum og visitölu. En það koma þó þau augnablik mitt i dagsins önn, þegar maður tyllir sér niður með hamborgara og iskalt kók og reynir að sjá eitthvað já- kvætt eftir langan og strangan vetur. Annars þykir Islendingum það yfirleitt bera vott um barnaskap, heimsku eða jafnvel geðbilun að vera jákvæður. En það verður þá að hafa það. I þetta sinn. Heimir Pálsson— Hraf n Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — Magnea J. Matthías- dóttir — Páll Heiðar Jónsson — Sigurður A. Magnússon — Þráinn Ðertelsson Hringborðið I dag skrifar Þráinn Bertelsson [j> Einvígi siðustu heimstyrjaldarinnar hafi verið i fyrsta og siðasta skipti sem þau verði nokkurn tim ann not uð i ófriði. Og það er eiiimitt vegna eðlis kjarnorkuvopnanna, eyðileggingarmátfarþeirra og hættunnar samfaia notkun þeirra, sem verður til þess að mjög ósennilegt er að þau verði notuð i stórum stil i hernaði. Það er einnig athyglisvert i þessu sambandi, að svo blint treystu Bandarikjamenn á fráfælni kjarnorkusprengjunnar, á ógnar- jafnvægið, að nánast ekki neitt var gert i almannavörnum i Bandarikjunum. Það er þess vegna mjög mikilvægt að vinna að þvi, að kjarnorkuvopnum verði ekki beitt og jafnhliða að fækka þeim, draga úr framleiðslu þeirra, koma i veg fyrir að fleiri þjóðir fái þau og svo framvegis. En i' sambandi við það, að styrjöld geti brotist út fyrir mis- tök eða tilviljun, þá undirstrikar það nauðsyn öf lugra eftirlitskerfa og þ.á.m. eftirlitshlutverk stöðvarinnar hér i Keflavik. Ég held nú að Guðmundur hljóti að tala þvert um hug sér ef hann vill ekki viðurkenna útþenslu- stefnu Ráðstjórnarrikjanna. Hún er öllum augljós. Hann ætti t.d. að ræða það mál örlitið við Afgani og fá þeirra svör.” Guðmimdur: ,,Já, i sambandi við útþenslu Sovétrikjanna. Ég dró það ekkert i efa, að þeir eins og önnur stórveldi væru heims- valdasinnuð. Ég benti hins vegar á að Sovétrikin virtust halda sig innan þess áhrifasvæðis sem þeim var úthlutað á sinum tima, þegar stórþjóðirnar skiptu heiminum upp i áhrifasvæði i lok siðarheimsstvrjaldarinnar. Það má kannski minna á það, að Afganir höfðu varnarsamning við Sovétmenn. Ég geri engan stóran mun a útþenslustefnu Sovétmanna og Bandarikja- manna. Við vitum öll um framferði Bandarikjamanna i allri rómönsku Ameriku. Kjartan getur þar á meðal litið tii E1 Salvador, ef hann vill fara út i einhvern samanburð. Það er þvi misskilningur að ég hafi verið að geramun á stórveldunum i þessu sambandi og i öðru lagi, treysti ég ekki stórveldunum. Ég hef ekki þetta traust og trú á stórveldun- um, eins og Kjartan virðist hafa á Bandarikjunum. Hins vegar held ég að þetta mynstur — þessi skipting heimsins i áhrifasvæði stórveldanna — sé að breytast. 1 þvi liggur að minu mati von mannkynsins.” Nú ætla ég að biðja ykkur um að revna að skilgreina og lýsa þeim hvötum sem liggja að baki málflulningi andstæðinga vkkar. Berast á banaspjótum, Rússaþý og kanadindlar i þessu máli? Guðmundur: ,,Ég vel nú ógjarnan gera mönnum upp einhverjar hvatir og ég verð að játa bað, að ég skil ekki ætið hvað hersiöðvasinnar hugsa. Það er alveg ljóst að þeir blekktu með Rússagrýlunni eins og enn er gert. Herstöðvasinnar tala sifelit um hernaðarlega yfirburði Sovétrikjanna, þótt fráleitt sé að bera saman hernaðarmátt þessara stórvelda, þegar eyðingarmáttur er slikur að hægt erað margeyða öllu lifi á jörðunni með þeim vopnum sem þessi riki hafa yfir að ráða. Það skiptir engu máli hvort andstæðingurinn er drepinn tvivegis eða fjórum sinnum. En blekkingunni um yfirburði Sovétrikjanna halda hei svöðvasinnar að þjóðinni sýknt og heilagt til þess að fá menn til að viðurkenna nauðsyn þess að auka enn á þessa vitfirr- ingu, — vigbúnaðarkapphlaupið. Ef litið er til baka, þegar tsland gekk inn i NATO-samstarfið, þá er ljóst að fisksölu- og efnahags- mál voru rædd þegar gengið var frá NATO- og varnarsamningn- um. Eftir að herinn kom, blasir við að ýmis stórfyrirtæki hafa efnahagslegan ávinning af veru hans hér. Meðal herstöðvasinna risa upp menn sem kenna sig við stefnu Arons og vilja aukið fé frá hernum. Efnahagslegir hags- munir eru greinilega inni i þessu dæmi herstöðvasinna.” Kjartan: ,,Ég vii nú eindregið mótmæla þessari skilgreiningu Guðmundar og fullyröi að 'nvalir þeirra sem vilja að varnir Islands séu tryggðar, voru og eru þjóð- legar og heiðarlegar. Það er erfitt verkefni að skilgreina hvatir eða ástæður þeirra, sem berjast gegn veru tslands i Atlantshafsbanda- laginu og þá aðstöðu sem banda- menn okkar hafa hér til varnar tslandi og til verndunar heims- friði. Það eru margar tegundir sjónarmiða sem liggja að baki þessarar andstöðu. Þaðer náttúr- lega rétt að geta þess fyrst að máiflutningur þessara manna fer algjörlega saman við málflutning Kremlverja i þessum málum. Rök þeirra eru aðmörgu leyti hin sömu. Með þessu er ég þó ekki að segja það, að allir þeir sem eru á móti varnarliðinu séu Rússa- dindlar. Ég álit að i hópi varnar- andstæðinga séu margir gegnir menn, sem eru þar i hópi, annað- hvort vegna skorts á þekkingu og upplýsingum eða vegna þess að þeir skilja ekki þær upplýsingar sem þeir hafa. Við þessu er auðvitað ekkert að segja. Það hlýtur að vera okkar verkefni — þeirra sem styðja varnirnar — að upplýsa þessa menn og beina sjónum þeirra i réttar áttir. Ég er einnig þeirrar skoðunar að i hópi varnarnandstæðinga séu menn, sem hafa þá hugmynda- fræðiafstöðu til alþjóða- stjórnmáia, að þeir hefðu ekkert á mót þvi þótt að áhrif þeirra þjóða, sem eru helstir and- stæðingar Vesturvaldanna ykust á Islandi. f þessu sambandi vii ég benda á að nú er svo komið að Sovétmenn fullyrða að hérá landi séu kjarnorkuvopn og bera i þvi efni fyrir sig innlendar heimiidir. Varnarandstæðingarnir hafa þannig með röngum fullyrðingum sinum um að hér séu kjarnorku- vopn, fært Kremlverjum i hendur vopn i áróðursstriði þeirra gegn vörnum landsins og e.t.v. vopn i enn alvarlegri styrjöld. Þessi starfsemi varnarandstæðinganna er þjóhættuleg og til þess fallin að grafa alvarlega undan öryggi islensku þjóðarinnar. Nú virðist umræðan um her- stöðina og NATO litt hafa breyst i gegnum árin, nánast staðið i stað. Teljið þið að til greina komi að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál og i framhaldi hver myndi verða niðurstaða slikrar atkvæðagreiðslu? Kjartan: ,,Það er að sumu ieyti rétt, að þessar umræður hafa spólað mikið i sama hjólfarinu. Hins vegar virðist mér eins og umræðan hafi tekið nýja og jákvæða stefnu á siðustu miss- erum og aðilar ræði nú þessi mál á raunsæjari hátt en áður gerðist og ekki aðeins út frá tilfinninga- legum sjónarmiðum eins og stundum hefur alltof mikið borið á. 1 sambandi við þjóðarat- kvæðagreiðslu, þá myndi ég i sjálfu sér ekki óttast niðurstöðu slikrar atkvæðagreiðslu. Undir- skriftasöfnun Varins lands sýndi það greinilega hver hugur Islend- inga er i þessu máli, auk þess sem styrkur lýðræðisflokkanna þriggja, sem allir vilja tryggja varnir íslands, er slikur að ljóst er að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vill haga vörnunum á þann hátt sem nú er. Kjörfylgi þessara flokka er yfir 80% og þessirflokkar styðja aðild tslands að NATO og varnir fslands i núverandi formi og ég ætti von á þvi að niðurstaða þjöðaratkvæða- greiðslu yrði mjög á svipaðan veg. Hinsvegar er ég nú ekki þeirrar skoðunar að þjóðarat- kvæðagreiðslur séu endilega heppileg leið til að skera úr mál- um. Ég held að úrskurður i málum eigi að koma i almennum kosningum og siðan eigi þeir, sem fólkið hefur falið valdið i þjóðfélaginu — alþingismenn — að hafa fulla burði til að taka þær ákvarðanir sem taka þarf.” Guðinundur: ,,Má ég skilja þetta þannig, að þú sért á móti þjóðaratkvæðagreiðslu i þessu máli?” Kjartan: ,,Nei, það má ekki skilja mig þannig, að ég sé alfarið á móti þjóðaratkvæðagreiðslu i þessu máli, en enn sem komið er hafa stjórnmálaflokkarnir ekki beinlinis þurft að taka afstöðu til slikrar spurningar.” Guðmundur: ,,En þú hefur ekki tekið slika afstöðu sjálfur?” Kjartan: ,,Nei, það hef ég ekki gert. Ég held að slik þjóðar- atkvæðagreiðsla fari fram i hverjum einustu kosningum.” Guðmundur: ,,Þar er ég enn á ný ekki sammála Kjartani. Ég held að þingmeirihlutinn i þessu máli, endurspegli alls ekki vilja almennings i þessu máli. Það er alveg ljós af þeim skoðanakönn- unum sem fram hafa farið varandi þetta mál, að herstöðva- andstæðinga er að finna i iSlum flokkum. Menn kjósa á þing eftir mjög mörgum málum, þannig að þingstyrkur gefur hér ranga mynd. Vilji þjóðarinnar hefur þar af leiðandi aldrei komið greini- lega fram i þessu máli og skoðanakönnun Varins lands er hreint enginn mælikvarði á af- stöðu fslendinga. Allir þeir sem fylgdust með þeirri undirskriftar- söfnun átta sig vel á að hún er ekki marktæk. Herstöðvaandstæðingar eru stuðningsmenn þess, að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um þessi mál og úrslit hennar óttumst við ekki. Við teljum að öll sú umræða sem þá fari fram myndi verða til þess að stórauka fjölda herstöðvaandstæðinga og leiða til jákvæðrar niðurstöðu fyrir okkar stefnumið.” Kjartan.: ,,Það eru ekki tæk rök að ekki sé kosið um varnar- mál i almennum kosningum. Þetta eru geysimikilvæg mál i augum tslendinga og allir flokkarnir hafa mjög markvissa stefnu i öryggismálum og um þau er jafnan mikið deilt fyrir kosn- ingar. Ég er þess lika fullviss, að herstöðvaandstæðingar munu aldrei þora að fara út i þjóðarat- kvæði um þessi mál. Þeir hafa ailtaf reynt að humma slika at- kvæðagreiðslu fram af sér, a.m.k. sá hlutiþeirra sem er i Al- þýðubandalaginu. Ég veit lika til þess að krafan um þjóðaratkvæði var mjög umdeild á ráðstefnu herstöðvaandstæðinga sem fram fór siðasta haust.” Guðmundur.: Þetta er auðvitað algjör rangfærsla varðandi st ei'nu Samtaka herstöðvaandstæðinga um þjóðaratkvæði. Það hefur verið samþykkt með yfir- gnæfandi meirihluta á landsráðs- stefnum Samtaka herstöðvaand- stæðinga siðustu tvö árin, að berjast fyrir þvi að komið verði á þjóðaratkvæðagreiðslu urn her- málið. Það myndi vekja upp auknar umræður um máliðog það er trú okkar að aukin fræðsia um þessi mál og aukin umræða yrði •okkar málstað til framdráttar Það er þvi okkar einarða skoðun að efna skuli til þjóðaratkvæðis um þessi mál. Kjartan.: Ég er hlynntur þvi að varnarmálin séu rædd og endur- metin á hverjum tima. Ég tel ein- mitt að rétt sé að við íslendingar verðum virkari innan Atlants- hafsbandalagsins, bæði heríræði- lega og stjórnmálalega Ég ber það af mér, að ég sé kyrrstöðu- maður i málinu ” Hvernig verður umhorfs á Miðnesheiðinni árið 2000 og hver verður staðan i þessum málum iillum um næstu aldamót? Kjartan.: „Það er alltaf erfitt að spá og sérstaklega þá um l'ramtiðina. Ég vona þó að kringumstæður verði þannig i framtiðinni að hægt verði að leggja niður varnarsamstörf. varnarviðbúnað og hernaðar bandalög. Það er auðvitað lokamarkm ið mitt og þeirra sem vilja byggja heiminn frjálsum þjóðum Við sjáum þvi miður ekki fram á það i bili. að þetta mark- mið okkar muni nást. Það virðist ennþá langt i land i þessum efnum. Annars vona ég að Miðnes- heiðin verði orðin grónari um næstu aldamót en hún er i dag. Meiri grasrækt þar og gott og fagurt mannlif þar eins og annars staðar á fslandi.” Guíimundur.:Þarna get ég loks tekið undir orð Kjartans. Ég vona að það verði allt gróið á Miðnes- heiðinni árið 2000. þótt ég telji nauðsynlegt að eitthvað verði þarna malbikað, svo hægt sé að halda áfram farþegafiugi og. það eru auðvitað til svartsýnismenn sem eru bölsýnir á framtiðmann- kynsins og telja að það öryggi^ sem heimurinn byggir á i skjóli tortimingarhættu, sé það valt, að það geti jafnvel orðið á næstu árum, sem allt fari þar i bál og brand. Ég er þó ekki sá svart- sýnismaður. Ég held að lslend- ingar guti komið i veg fyrir það með sj .lfstæði sinu og friðarsókn að á Mi„nesheiðinni verði ekki auðn, heldur gróðursæld og gott islenskt mannlif um næstu alda- mót.” (Einvigi þeirra Guðmundar og Kjartans var mun lengra en hér birtist og þvi langt þvi frá að öll sjónarmið þeirra i málinu sjái hér ljós.)

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.