Helgarpósturinn - 15.04.1981, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 15.04.1981, Blaðsíða 24
Aio/rprprW; irinn AAiðvikudagur 15. apríl 1981 • Pólski verkalýösleiötoginn Lech Walesa er trúaður maöur. Hann fer á fætur klukkan sex á hverjum morgni og fyrsta verk hans er að krjúpa á kné fyrir framan altarið í hverfiskirkjunni sinni og biðjast fyrir. Á vinstra jakkahorninu ber hann mynd af heilagri guösmóður og uppi á vegg á skrifstofunni hans hjá Solidarnosc hangir mynd af páf- anum landa hans. En undir páfanum hefur hann hengt fána ASt, sem llaukur Már Itaraldsson blaðafulltrúi Alþýðusambandsins afhenti honum þegar hann var á ferð i Póllandi á dögunum. Það er ekki heiglum hent að ná tali af þessum pólska baráttumanni nú um stundir, en Haukur Már gaf sig ekki Hann beið á skrifstofu Solidarnosc frá því klukkan niu um morguninn til þrjú, og tókst þá að hitta Walesa i fimm minútur, sem hann notaði tii að bera honum kveðju ASl, bjóða sendi- nefnd samtakanna, helst með hann f broddi fylkingar, til lslands, og afhenda honum fánann. En meöfylgjandi mynd tók ljósmyndari frá sænska kratablaöinu Arbetet i tiiefni af þvi, að blaðið hefur ákveðið að veita Walesa svonefnd „Lat leva”-verðlaun sem efnt var til i tilefni af 90 ára afmæli blaðsins árið 1977 og hafa hingað til eingöngu verið veitt Svium, m .a. Alva Myrdal. Walesa veitti verðlaunum glaður viðtöku og sagði að þetta væri i fyrsta skipti sem honum hlotnaðist slikur heiður. Verðlaunaféð, sem raunar er ekki mikið að vöxtum. ætlar hann að láta renna til Solidarnosc, og þaö er ákveðið, að hann fer til Malmö i Sviþjóð til að veita verðlaununum viötöku 21. mai i vor. Þaö er hinsvegar ekki Ijóst, hvenær hann kemst til Islands, eöa hvort hann kemst sjálfur, þvi ferð til Islands tekur talsvert lengri Qna en Svfþjóðarferð. Og nú eru framundan miklir annatimar hjá framámönnum Solidarnosc, þvi þeir eru að undirbúa fyrstu kosningar i sögu samtakanna, og ætlunin er m.a. aö kollvarpa rikjandi launakerfi... rNJOTIÐ KOTASÆLA er einstaklega magur fersk- ostur, en afar ríkur af próteini og vítamínum. # Boröið hana beint úr dósinni.# Setjið hana ofan á brauðsneið eða kex með tómat-, papriku-, eða gúrkusneið og kryddið með nýmöluðum pipar. # Blandið þeyttum rjóma saman við hana ásamt brytjuðum ávöxtum og borðið sem ábætisrétt.#Notið hana í baksturinn, t.d. í tertur, lummur eða pönnu- kökur svo eitthvað sé nefnt.#Einnig getið þið bætt út í hana ferskum kryddjurtum s.s. gras- lauk, steinselju eða blaðlauk og notað hana sem ídýfu. r KOTASHLIA fitulítil og fteistandi • Hjörleifur orkumálaráðherra Guttormsson á ekki sjö dagana sæla framundan. Allir muna eftir hvellinum mikla sem hann varð valdur að þegar hann kom fram með gögn sem áttu að sýna mis- ferli svissneska auðhringsins Alusuisse á súrálskaupum t il tsal- verksmiðjunnar hér á landi. A endanum voru þess i gögn send til hlutlauss aðila, breska endur- skoðunarfyrirtækisins Cooper og Lybrand i Lundúnum, til frekari úrvinnslu. Við heyrum að nú sé skýrsla þessa fyrirtækis komin i iðnaðarráðuneytið á nýjan leik og hún geti orðið hið mesta vandræðamál fyrir Hjörleif, þvi að i' skýrslunni sé þvi haldið fram að ásakanir Hjörleifs á hendur Alusuisse séu rangar og meira og minna á misskilningi byggðar..... • Það er viða heitt i kolunum i myndlistinni þessa dagana. Umdeildasta listiðjan hér um slóðir núna er vafalaust nýlistin svokallaöa og sýnist mönnum sitthvað um þær afurðir sem hún skilar, eins og gengur. Um skeið hefur verið rekin sérstök nýlista- deild i Myndlista- og handiðaskól- anum og hefur veriö mikil ásókn nemenda i hana. Á hinn bóginn hefur mörgum myndlistarmann- inum, sem fæst við hefðbundnari myndlist, litiö til hennar koma og hefur margoft komið til umræðu að leggja ætti þessa deild niður. Við heyrum að nú siðast hafi Einar Hákonarson skólastjóri Myndlista- og handiðaskólans verið búinn að fá sig fullsaddan á deildinni og lýst þvi yfir að annað hvort yrði nýlistadeildin lögð niður eða hann hætti sem skóla- stjóri. Þessi hótun hans mun þó ekki hafa fengið nægilegan hljómgrunn, þvi að nú eru sagðar meiri likur á þvi að Einar hætti en deildin veröi lögð niður. Nema auðvitað Einar endurskoði af- stöðu sina.... • Samningur Reykjavikurborgar og Félags isl. myndlistarmanna um stjórnarfy rirkomul ag Kjarvalsstaða er nú útrunninn. Miklar deilur urðu á sinum tima milli þessara aðila um það hvort listamenn skyldu fá aðild að stjórn Kjarvalsstaða og varð það ofaná eftir töluvert þref. Nú hafa samtök myndlistarmanna sett fram þá kröfu til viðbótar að þeir fái hlutdeild i ákvörðunum um listaverkakaup á vegum Kjar- valsstaða. Þessi krafa situr nú föst i' sumum borgarfulltrúanna, sem hafa með stjörn Kjarvals- staða að gera, svo sem Sjöfn Sigurbjörnssóttir, og getur allt eins komið til nýrrar Kjarvals- staðadeilu á næstunni.... • Stjórn Kjarvalsstaða hafði i hyggju að bjóða islenskum mynd- iistarmönnum að halda sýningu á teikningum, sem sérstök dóm- nefnd átti að velja úr innsendum myndum. Eftir að dómnefndin hafði verið skipuð kom upp sú krafa meðal listamanna, að borgin greiddi gjald fyrir mynd- imar meðan þær væru á sýning- unni. Fordæmið hafa þeir frá Noregi, en þar hafa i mörg ár verið i gildi lög um, að rikið og sveitarfélög greiddu listamönn- um gjald fyrir myndir á sýn- ingum, sem þessir aðilar standa fyrir. Hjá Norðmönnum er þetta gjald núna n„ kr. 62 á mánuði. Stjórn Kjarvalsstaða var ekki reiðubúin að ganga að þessum kröfum listamanna, en lýsti þó áhuga á að ræða málið nánar. Endirinn var sá, að stjórnin ákvað að fresta sýningunni um óákveðinn tíma. Það túlka ýmsir á þann veg að Kjarvalsstaða- st jórnin vilji ekki semja um málið undir þrýstingi frá yfirvofandi sýningu... • Mikil óánægja er meðal hús- eigenda i Grjótaþorpinu með þann drátt sem hefur orðið á skipulagsmálum þorpsins og þvi óhagræði sem eigendurnir hafa orðið fyrir af þeim sökum. Þorkell Y'aldim arsson hefur lengstum verið i fararbroddi hinna óánægðu en nú heyrist að íleiri séu farnir að hugsa sér til hreyfings og hef ja málarekstur á hendur borginni, þeirra á meðal Tryggvi ófeigsson og eigendur Geysishússins.... • Bílafloti lögreglunnar mun haía komið slaklega undan vetri þetta árið. Sjaldan áður hafa lögreglu- bifreiðarnar lent i eins mörgum óhöppum og i vetur og t jóniö mun nema samtals tugmilljónum. Það fylgir ekki sögunni hvort löggu- bflarnir hafi alltaf, verið i rétti i þessum umf es-ðaróhöppum, en lögreglumenn hafa eflaust samið nákvæmarog hlutlausar skýrslur um atburðina.... Ótf ðlegt en satt! Apex fargjöldin til Glasgow eru 1.892 kr. og nú hefur LUXEMBURG bæst við fyrir aðeins 2.055 kr. FLUGLEIÐIR Traust fólkhjá góóu félagi

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.