Helgarpósturinn - 15.04.1981, Side 11
11
__h&lciFirnn<=rh irínn Miðvikudagur 15. apríl 1981
Charles Laughton og Flora
Robson í sýningu Old Vic á
Macbeth áriö 1933.
an, sem nornirnar fara með, sé
raunveruleg og nothæf særinga-
þula. Samkvæmt umsögn nornar-
innar má imynda sér aö eitthvað
óhugnanlegt og óútskýranlegt
hafi verið leyst eða leysist úr læð-
ingi þegar „nornasenan” er leik-
in. Ef eitthvað er til i þvi er nátt-
úrlega eina leiðin til að losna við
þennan fjanda að sleppa þessari
særingaþulu þegar verkið er sett
á svið. Enn sem komið er hefur
enginn leikstjóri, svo vitað sé,
lagt i slikt. Old Vic leikhúsiö hefur
ekki farið varhluta af þessum
ósköpum og margsinnis verið
beinn þátttakandi i harmleiknum
jafntinnan leikhússins, sem utan.
Arið 1934 var „Benjamin” settur
á sviö i Old Vic með Malcholm
Keen i aðalhlutverki, en hann var
frilega laus við alla hjátrú varð-
andi leikritið. Þaö bar helst til tið-
inda við þá uppfærslu, að afi hans
og uppáhalds frænka létust á æf-
ingatimabilinu og á frumsýningu
missti hann röddina. Þá var
kvaddur til með hraöi, leikarinn
Alistair Sim, sem náði að leika
eina einustu sýningu og var þá
umsvifalaust lagður inn á sjúkra-
hús með heiftarlega flensu.
Marius Goring, sem fór með
aukahlutverk i sýningunni, bauð
sig fram og lærði hlutverkið á
einni nóttu og lék örfáar
sýningar þar til stórleikarinn
John Laurie mætti til leiks
og tók við hlutverkinu. Fjór-
ir „Benjaminar” á einni viku
er trúlega heimsmet. Strax og
æfingar hófust á „Benjamin” á
Old Vic árið 1937, með Laurence
Olivier i aðalhlutverki dó hundur-
inn hans i bilslysi, frumsýningu
var frestað i þrjá daga vegna þess
að skipt var um leikstjóra af
ókunnum ástæðum, i siöustu æf-
ingavikunni og leikmyndin, ein-
hverra hluta vegna, passaði ekki
á leiksviðið þegar til átti að taka.
Og svona rétt ofan á allt annað
lést Lillian Baylis, leikhússtjóri
Old Vic daginn fyrir frumsýn-
ingu. Siðan liðu sextán ár þar til
nokkur vogaði sér aö sviðsetja
„Benjamin” en það var áriö 1954
með Paul Rogers, og Ann Todd i
titilhlutverkunum. A frumsýn-
ingu gerðist sá atburður inni á
vinstúku leikhússins, að risastórt
málverk af Lillian Baylis sem áð-
ur er nefnd, féll niður af veggnum
með braki og brestum og þeytti
vinglösum og áfengi i allar áttir.
Var'haft á oröi að frúin hafi með
þessu viljað itreka andúð sina á
leikritinu, sem henni hafði aldrei
fallið i geð.
Afdrifarikt leikferðalag
Þegar Old Vic fór i leikferða-
lag, með þessa sömu sýningu til
Dublin létu nornirnar heldur bet-
ur til sin taka. Tvær leikkonur
misstu fóstur og einn leikarinn
reyndi að fremja sjálfsmorð,
framkvæmdastjórinn fótbrotnaði
á báðum i bilslysi og ljósabúnað-
urinn leiddi út á frumsýningu og
hlaut ljósameistarinn alvarleg
brunasár. Þegar leikfélagið hélt
með sýninguna til Suður Afriku,
slasaðist Paul Rogers á fæti og
þrátt fyrir alla hugsanlega
læknisaðstoð, sem honum var lát-
in i té, var hann viðþolslaus af
kvölum allan timann meðan á
sýningum stóð þar syöra, en
batnaði snögglega aö lokinni siö-
ustu sýningunni. Ja, hérna! Þeg-
Fyrri grein
ar leikhópurinn kom til Cape
Town með sýninguna og verið var
að afferma flutningavagninn,
sem geymdi leikmyndina, átti ó-
kunnugur maður leið hjá og
spurði starfsfólkið hvaða leikrit
þeir ætluðu að sýna um kvöldiö.
Þeldökkur sviðsmaður, sem varð
fyrirsvörum sagði: ;,Benjamin”.
Hann hafði vart sleppt orðinu
þegar spjót sem lá upp á þaki
flutningavagnsins, féll ofan á höf-
uð þess ókunnuga, sem lést sam-
stundis. Að nefna eða vitna i leik-
ritið innan leikhússins eða i ná-
grenni þess hefur nefnilega eins
og áður segir sjaldan haft neitt
gæfulegt i för með sér. Ung stúlka
er starfaði sem sætavisa við New
York leikhúsið, þegar Olivier var
á leikferðalagi þar með „Benja-
min”, vitnaði i leikritið við vinnu
sina og var ráðlagt að gera slikt
aldrei aftur. Hún lét sér ekki segj-
ast og vitnaði enn i verkið. Svo að
segja á sama augnabliki féll leik-
arinn Claude Jones niður á leik-
sviðið, þaðan sem hann var
staddur á göngubrú, i tuttugu
metra hæö upp i leikhústurninum
og lést. Þegar Bankside leikhúsið
var á leikferð með Anthony og
Cleopatra eftir Shakespeare og
sýndi i stóru samkomutjaldi,
komu nokkrir leikaranna sér
saman um að láta reyna á þessa
svo kölluðu „Benjamins-hjátrú”,
með þvi að fara með særingaþulu
nornanna þriggja, fyrir sýningu.
Forvitni þeirra var nokkuð fljót-
lega svalað, þvi skyndilega skall
á mannskaðaveður með þrumum
og eldingum, samkomutjaldið féll
niður og varð að aflýsa sýning-
unni. Leikari nokkur, Harold
Norman, er nefndur til sögunnar.
Hann fór eitt sinn meö hlutverk
„Benjamins” og hafði enga trú á
þessum „þvættingi”, sem hann
kallaði svo og vitnaði sifellt i leik-
ritiö, hjátrúarfullum samleikur-
um sinum til angurs. I lokaatrið-
inu, á einni sýningunni, þar sem
Macduff og „Benjamin” takast á,
stakkst hans eigið sverð á kaf i
magann á honum og lést hann á
sjúkrahúsi skömmu siðar.
„Benjamin” i þágu
réttvisinnar
1 seinni heimsstyrjöldinni var
„Benjamin” skeifir allra glæpa-
manna i Japan, sem dæmdir
höfðu verið til dauða fyrir morð,
njósnir eða landráð. Sá sakfelldi
var látinn læra og æfa hlutverk
„Benjamins” með þekktu at-
vinnuleikhúsiog þegar verkið var
tilbúið til flutnings, var það sýnt á
fjölförnu almenningstorgi til þess
að sem flestir gætu séö leikritið.
Það þarf ekki að orðlengja það
frekar. Aö þegar kom að dauöa
„Benjamins” i lokaatriði leikrits-
ins, var hann drepinn i þeirri
orðsins fyllstu merkingu. Það að
sameina vinsæla skemmtun af-
tiScu glæpamanna, virðist hafa
höfðað sérstaklega vel til aust-
rænna hugmynda um fullnægingu
réttlætis.
Listræn áföll
Oft á tiðum fólust hörmungarn-
ar, tengdar „Benjamin” ekki sið-
ur i listrænum áföllum. Allir voru
t.a.m. sannfærðir um að Charles
Laughton yrði frábær, sem
„Benjamin” á móti Floru Robson
á Old Vic 1933. Það virtist ætla að
rætast eftir frábæra frammistöðu
Laughton á æfingatimabilinu og
aldeilis stórgóöa lokaæfingu. En á
frumsýningu var skyndilega eins
og honum hyrfi allur kraftur,
hann virtist af einhverjum dular-
fullum ástæðum hafa misst gjör-
samlega öll tök á hlutverkinu og
olli áhorfendum miklum von-
brigðum. Eftir frumsýninguna,
kom Lillian Baylis inn á búnings-
herbergi Laughton og sagði:
„Taktu þetta ekki nærri þér elsk-
an, þú átt áreiöanlega einhvern
tima eftir að verða góöur „Benja-
min”. Laughton sem reiddist
heiftarlega, hét að tala aldrei við
frúBaylis aftur og taldi þetta mis-
heppnaða frumsýningarkvöld
• •Stærsti litli veitingastaöurinn
y y á Reykjavíkursvæöinu^ ^
Gunnar, Björgvin og
Tómas leika nýstár-
lega dinnertónlist
á sunnudagskvöld.
Matseðill kvöldsins
Kjötseyði Colbert
Rækjukokkteill með ristuðu
brauði •
Roast beef Bernaise
Hamborgarakóteletta Hawai
Perur Bella Helín
■ \
Verið velkomin
í Vesturslóð
Hagamel 67.
Sími 20745.
VERSLUNIN
DALVER
Alhliða matvörur
Kreditkortaþjónusta
VERSLUNIN
DALVER
Dalbraut 3 ■ Sími 33722
hafa stórskaöað leikferil sinn.
Hvað svo sem hæft var i þvi var
skyndilega hætt við fyrirhugaöa
gerð kvikmyndar um „Benja-
min” með Laughton i aöalhlut-
verki og margt fleira fylgdi i kjöl-
fariö. Annað listrænt áfall, af
sama ættmeiði, átti sér stað á
Royal Court leikhúsinu áriö 1928
þegar leikstjórinn Barry Jackson
ákvað að setja leikritið á svið i
framúrstefnustil, ef svo má að
oröi komast. Ein af þessum bráð-
snjöllu hugmyndum, sem hljóma
svo skemmtilega á fyrsta sam-
lestrileikaranna, en reynast siðan
ekki eins frábærar i framkvæmd.
Lady „Benjamin” var látin birt-
ast á sviöinu með glæfralegan
tiskuhatt á höfði og skelplötugler-
augu i nefi, þar sem hún bregöur
„Carmen” á upptrektan
grammófón og dansar tangó við
„Benjamin”, sem var klæddur
rósflúruðum silkibaðslopp. Mac-
duff var hinsvegar i hámóðins,
köflóttum pokabuxum og sport-
sokkum, en hermennirnir, sem
klæddust skrautfatnaði að hætti
dansmeyja fóru allra sinna feröa
um leiksviðið á hjólaskautum.
Þetta glórulausa fyrirtæki þótti
allt saman skoplegt i meira lagi
og var fyrsta leiksýningin i Lond-
on, þar sem búningarnir fengu
víðfeömari umfjöllun i blöðunum
en leikritið sjálft. En til allrar
hamingju eru til „jákvæöari”
hliðar á þessu umfjöllunarefni.
Sir Laurence Olivier hefur
skemmtilega sögu að segja frá
þeirri sýningu á „Benjamin”,
sem áöur er getið. Eftir að leikið
hafði veriö fyrir fullu húsi um
skeið á Old Vic var sýningin flutt
aö The New Theatre skömmu fyr-
ir jól og leikið þar að jafnaði fyrir
vita galtómu húsi. A einni sýning-
unni, þegar einu áhorfendurnir
voru fjórir ellilifeyrisþegar, sem
fengið höfðu fritt inn, kom Olivier
skyndilega auga á litinn strák,
sem sat i einni hliðarstúkunni og
virtist fylgjast meö sýningunni af
ótviræöum og einlægum áhuga.
Þetta þótti Olivier mikil hvatning
og beindi leik sinum eftir það sér-
staklega til stráksins og allir hinir
leikararnir gerðu ósjálfrátt hið
sama. Sýningin öðlaðist mikið lif
við uppörvun þessa einlæga
áhorfanda og lék leikhúsiö á
reiðiskjálfi af krafti og leikgleði. I
leikhléi sagði Olivier uppveörað-
ur við John Merivale, sem lék
Banquo: „Ég þori að veðja aö
þessi strákur hefur aldrei
áður séð neitt eins
magnaö og hann á
Peter O’Toole mætir glaðbeitt-
ur til leiks daginn cftir frumsýn-
ingu.
Kodak
Ektralite400
myndavél sem
vekurathygli
Falleg og stílhrein myndavél með linsu f/6.8
— Ijósopi 24 mm. — Innbyggðu flassi —
Föstum fókus frá 1,2m til óendanlegt.
í fallegri gjafaöskju.
BANKASTRÆTI
S: 20313
GLÆSIBÆR
S: 82590
AUSTURVER
S: 36161
Umboðsmenn
um allt land
Verö kr.
478.-
[^HANSPETERSENHF