Helgarpósturinn - 04.12.1981, Síða 1
% Bla
timwm mm I^Föstudagur 4. desember 1981
Þóröur Ben. viö Reykjavlkuruppdrátt sinn: — Fólk hefur
lengi skynjaö þessa galla á umhverfinu...
Er Reykjavík
dýr og Ijót?
— Rætt við
Þórð Ben.
Sveinsson
listamann,
sem hefur
lagt fram
tillögu um
nýja stefnu i
Steinsteypufrumskógur i Breiöholtinu — sem slöar á eftir aö breiöast austur um til Rauöavatns. Allir skipulagssérfræöingar, sem kallaöir voru
til, kusu þróun meö ströndum; Alftanes og Garöabæ — en borgarstjórn Reykjavlkur hafnaði þeim tillögum.
skipulags-
málum
Hringborðsumræða um sýningu Þórðar Ben. og skipulagsmál i Reykjavík:
Hreppapólitík en
ekki skynsemi?
Akvarðanir sveitar-
eða bæjarstjórna
ganga oft þvert gegn
ráðifftf fagmanna
Umræöa um byggingalist og skipulagsmál
Reykjavikur, sem og annarra byggöa á islandi,
hefur veriö furöulega Iltil, ef miöaö er viö þá
staöreynd, aö einmitt þessi árin, erum viö is-
lendingar aö byggja upp borgir okkar og bæi.
Þóröur Ben. Sveinsson listmálari vakti þvi
óneitanlega athygli á skipulagsmálunum á
skemmtilegan hátt, en sýning hans aö Kjarvals-
stööum var fjölsótt af áhugamönnum um bygg-
ingalist og skipulagsmál. Þórður lagði þar fram
tillögu um þróun byggðar til suöurs, aö næstu
byggingasvæöi I og viö Reykjavlk, yröu Vatns-
mýrin og flugvallarsvæðið sem tengdist svo
Hafnarfiröi og Suöurnesjum meö brú yfir
Skerjafjörö. Þessi tillaga er reyndar ekki meö
öllu ný — eins og Gunnlaugur Halldórsson
arkitekt bendir á I umfjöllun hér á eftir — reynd-
ar stóö þaö alla tiö til aö þróa Stórreykjavikur-
byggöina til suöurs, fremur en teygja borgina I
austurátt.
Helgarpósturinn fékk þrjá arkitekta til aö
ræða skipulagsmál Reykjavflsur út frá sýningu
Þóröar Ben. Viö völdum arkitektana vls-
indalega: Hjörleifur Stefánsson er þeirra yngst-
ur.eða rúmlega þrltugur. Geirharður Þorsteins-
son tilheyrir næstu kynslóð á undan Hjörleifi, er
formaöur Arkitektafélagsins og hefur unniö
mikið viö skipulag I Reykjavik. Elstur I hópnum
er svo Gunnlaugur Halldórsson arkitekt, sem
kominn er af léttasta skeiöi, en þekkir öðrum
betur þróun byggöar I og umhverfis Reykjavlk.
Gunnlaugur hefur og löngum átt setu I sveitar-
stjórn og þekkir vel, hvernig pólitlkusar taka á
byggingamálum byggðanna.
Arkitektarnir þrlr voru sammála um, að til-
laga Þórðar Ben.væri merk hugvekja og þarft
innlegg I vaknandi umræöu um skipulagsmál.
Gunnlaugur minnti I byrjun á, aö Þórður Ben.
væri ekki fyrstur listmálara til aö segja álit sitt á
skipulagsmálum, enda væri eölilegt aö listmál-
arar gæfu þeim málefnum gaum — þeir væru
skildir arkitektum I listinni. En nú gefum viö
arkitektunum orðið:
HS: Skipulagning bæja er tiltölulega nýtt við-
fangsefni hér hjá okkur. Og i þeirri mynd sem
skipulagning er unnin núna, má segja að hún
eigi rætur að rekja til ársins 1921, þegar fyrstu
skipulagslögin voru sett. Upphafsmaður þeirrar
lagasetningar var prófessor Guðmundur
Hannesson, sem hafði kynnt sér skipulagsmál
mikið og reyndar skrifað kennslubók i skipu-
lagsfræðum. Nú, Reykjavik fékk sitt fyrsta
skipulag 1927. GuðjónSamúelssonvannþað. Það
var skipulag fyrir alla borgina og þar kenndi
einhverra framtiðarhugsjóna og draumsýna um
það, hvernig borgin skyldi vaxa. Þá átti öll borg-
in að rúmast innan Hringbrautar og Snorra-
brautar. Eftir þetta var ekki gert heildarskipu-
lag fyrr en 1963, þegar aðalskipulag Bredsdorfs
var gert. Allan þennan tima þarna á milli var
aðeins prjónað við. Þetta skipulag frá ’63 átti að
gilda til ’83. Ein af meginforsendum þessa
skipulags var, að borgin skyldi byggjast með til-
liti til einkabilisma, og að samgöngukerfið
skyldi fyrst og fremst vera fyrir einkabilinn.
Það var I engu hróflað við sveitarfélagsmörkum
og menn gáfu sér ýmsar forsendur, sem uröu
mjög mótandi fyrir skipulagið.
Eftir að þetta skipulag kom fram, held ég að
ekki hafi verið gerð tilraun til að lita borgar-
myndina sem heilsteypt fyrirbæri fyrr en núna,
að Þórður Ben.gerir það með sinni sýningu.
GÞ: Það má segja, að þetta skipulag, sem
unnið var 1963 til’64, hafi að þvi leyti verið barn
sins tima, að þar var fyrirvaralaust látið undan
þeirri almennu reglu erlendis, að lita á umferð-
armálin sem grundvallarvandamál borganna.
Það er ekki fyrr en fimm til tiu árum seinna,
sem skipulag almennt i heiminum byrjar aö
læknast af þessu. Það er nokkrum árum seinna,
að mennhætta sums staðar að byggja eftir fyrir-
liggjandi skipulagi, hætta t.d. við að byggja göt-
ur sem byrjað hafði verið á. Það eru nokkur slik
dæmi frá Bandarikjunum, þar sem götur og brýr
standa ónotaðar — þetta eru eiginlega fyrstu
varnarsigrar þeirra sem voru andvigir þannig
bíldýrkunarskipulagi. Það eru þarna brýr, sem
standa ónotaðar eins og minnisvarði um það, aö
lengra hafi menn ekki treyst sér meö bilismann.
En við erum hérna með dæmigert bilaskipulag,
gert undir yfirumsjón Peders Bredsdorf, sem
gerði ráð fyrir þvi að það yrðu tveggja hæða
gatnamót næstum þvi á öllum gatnamótum
Miklubrautar alveg neðan úr bæ og innfyrir
Elliðaár. Það var að visu aldrei leyst í teikningu,
en það var reiknað með þvi i fullri alvöru á með-
an verið var að skila þessu af sér. Þessu var tek-
ið með litlum mótbárum — og frekar máttlaus-
um — af þeim sem ekki trúðu á þetta. Þaö var
svo ekki fyrr en tiu árum seinna, að dæmið sner-
ist við. Nú er ýmislegt óhugsandi, sem þá þótti
sjálfsagt. Þegar þetta skipulag var gert, heyrö-
ust ekki andmæli nema frá einum eða tveimur
varðandi fyrirætlanir um að rifa Berhöftstorf-
una, eða að fara með Suðurgötuna i gegnum
Grjótaþorpið. Og það þótti sjálfsagður hlutur að
gera Grettisgötuna að tengibraut með mjög
mikilli bilaumferð, likt og á Hverfisgötu. Ým-
islegt þessu likt má tina til. Menn eru kannski
búnir að gleyma þessu núna, en svona voru hug-
myndir okkar þá.
GH: Mér finnst þið fara nokkuð fljótt yfir
sögu. Ég bendi á, að það hefur ekki alla tið verið
reiknað meö þvi, að borgin þróaðist svona til
austurs, eins og hún hefur gert, aö viö byggöum
svona austur eftir nesinu.
eftir: Gunnar Gunnarsson
Þórður Ben. Sveinsson
listmálari hélt nýstárlega
sýningu að Kjarvalsstööum
i nóvember s.l. þar sem
hann fjallaöi um skipulag
Rey kjavlkursvæöisins I
máli og myndum.
Þóröur gagnrýndi með
sýningu sinni harðlega nú-
verandi heildarskipulag
Reykjavikur og fyrirsjáan-
lega þróun þess, jafnframt
þvl að hann benti á nýja
leið I þróun byggöar á höf-
uðborgarsvæðinu.
Þórður Ben.er ekki fyrst-
ur úr hópi málara, til að
gera skipulagsmálin að
umræöuefni. Fyrstur lista-
manna til að fjalla um þau,
varSiguröur Guömundsson
málari fyrir um hundraö
árum. Hann lagöi á sinum
tima til aö borgin yröi látin
þróast i suðurátt, eins og
Þóröur gerir núna. Og Jó-
hannes Kjarval fjallaöi og
um skipulagsmál og bygg-
ingarlist i eina tölublaöi
blaðs sem hann gaf út og
hét „Árdegisblaö lista-
manna”, en þaö blaö kom
út kringum 1930.
A sýningunni aö Kjar-
valsstöðum núna, lýsti
Þóröur Ben. hugmyndum
sinum ýtarlega og lagði
ákveöið til, aö Reykjavík
færöi sér i nyt sinn siöasta
möguieika, þ.e. aö vaxa til
suðurs út i Vatnsmýrina og
yfir flugvallarsvæöiö og
siöan yfir á Alftanes meö
byggingu brúar. Hann lýsti
hvernig unnt væri aö
byggja nýja borgarmiöju i
Vatnsmýrinni og geröi ráö
fyrir upphituðum tengi-
brautum innan þeirrar
miðju.
Er Reykjavik
dýr og Ijót?
Skipulag Reykjavikur
seinni tima, sem og marg-
ar af nýjustu byggingum
borgarinnar,
hafa sætt
myndir:
Jim Smart