Helgarpósturinn - 11.12.1981, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF. 83.29
Föstudagur 11. desember 1981
li£andl sagallðinna atburða í máliogmyndum
ÖLDIN SEXTÁNDA, seinna bindi, ísamantekt
Jóns Helgasonar.
Bindið tekur yfir seinni hluta aldarinnar,
1551—1600, þann tíma sem hinn lútherski siður
var aðfesta sig i sessi í landinu.
Sextánda öldin var mikið umbrotaskeið í
sögu þjóðarinnar, tími hatrammra átaka,
málaferla og mannvíga. Þá tók danska
konungsvaldið að seilast til æ meiri áhrifa og
draga ómældan auð út úr landinu.
í þessu bindi eru fjölmargar myndir, ýms-
ar harla fáséðar. „Aldirnar“ eru nú orðnar ell-
efu talsins. í þeim er rakin í aðgengilegu formi
nútíma fréttablaðs saga þjóðarinnar í samfellt
1*70 ár. Myndir i verkinu eru hátt á fjórða
þúsund og er i engu öðru ritverki að finna slikt
safn íslenskra mynda. „Aldirnar" eru þannig
lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum.
Þær eru fullar af fróðleik og jafnframt svo
skemmtilegt lestrarefni að naumast hafa komið
út á íslensku bækur sem njóta jafn almennra
vinsælda fólks á öllum aldri.
Enginn sem eignast hefur þær „Aldir“ sem
áður eru komnar lætur ÖLDINA SEXTÁNDU
vanta í safnið. Aðgætiö hvort allar bækurnar
ellefu eru i bókaskápnum:
Öldin sextánda 1501—1550.
Öldin sextánda 1551—1600.
öldin sautjánda 1601—1700.
Öldin átjánda 1701—1760.
Öldin átjánda 1761—1800.
Öldin sem leið 1801—1860.
Öldin sem leið 1861—1900.
Öldin okkar 1901—1930.
Öldin okkar 1931—1950.
Öldin okkar 1951—1960.
Öldin okkar 1961—1970.