Helgarpósturinn - 11.12.1981, Blaðsíða 6
34
_____________________________Wstuda9ur 11. desember 198' hplgptrpn^f, /nnp
ST/KLAÐ í JÓLABÓKAFLÓÐ/NU
Berdreymi
Helgarpósturinn birtir kafla úr nýrri bók Sigurðar A.
Magnússonar, Möskvar morgundagsins,
Sem fyrr segir haföi pabbi litlar mætur
á prestum og fór einattháöulegum oröum
um kenningar kirkjunnar einsog hann
skildi þær, en þar fyrir hafði hann tals-
veröan áhuga á dulrænum efnum svosem
titt er um Islendinga-. Endrum og eins
heyröi ég hann minnast á drauga og vissi
aö hann tnlöi á tilvist þeirra. Einusinni i
æsku haföi hann séö svip framliöins
manns hverfa innf vegg i bæjargöngunum
og gat lýsthonum svo ljóslega aö heima-
menn könnuöust viö hann. Þaö var ungur
maöur sem mörgum árum áöur haföi rat-
aö I ástarraunir og fargaö sér.
Berdreymi var efni sem ósjaldan bar á
góma.enda haföi pabbi trú, á draumvitr-
unum, þó ég minnist einungis tveggja
dæma úrhans eigin reynslu. 1 ööru tilvik-
inu dreymdi hann ákveöna tölu og mundi
hana þegar hann vaknaöi. Honum var i
fyrstu ráögáta hvaö draumtalan fæli I Sér,
en komst aö þeirri niöurstööu aö draum-
urinn væri bending um aö hann ætti aö
kaupa happdrættismiöa meö umræddu
númeri. Þegar hann kannaöi máliö hjá
Happdrætti Háskólans kom i ljós aö miöi
á þessu niimeri lá ekki á lausu, svo hann
lét kyrrtliggja og hirti ekki um aö rann-
sakaþaö frekar.En þegar vinningsnúmer
voru birtnokkrusiöarkom uppúr dúrnum
aö stór vinningur haföi komiö á miöa meö
númerinu sem honum virtaöist i draumn-
um.
Seinna dæmiö var annars eölis. Nótt
eina dreymdi hann aö góövinur hans,
Daniel hross, sem var húsvöröur i Stjórn-
arráöinu og formaöur Fáks, kæmi til hans
ogsegöi viö hann: ,,Þú máttekki kveikja i
mér, Jói.” Pabbi sór og sárt viö lagöi aö
hann ætti ekki dropa af áfengi og gæti þvi
ekki kveikt i vini sinum, en Daniel marg-
itrekaöi beiöni sina. Þegar pabbi vaknaöi
mundi hann drauminn en taldi hann
marklausan og hugsaöi diki frekar um
hann. En þennan sama mra-gun þurfti
hann aö skreppa i bæinn einhverra erinda
og kom viö IkjötbúöinniBorg viö Lauga-
veg. Þar var honum sagt I óspuröum
fréttum aö nú væri Daniel hross látinn.
Fregnin fékk mjög á fööur minn, þvi meö
þeim Dani’el haföi alla tiö veriö einkar
kært, en hitt varö honum ekki sföur um-
hugsunarefni aö sennilega haföi hann
dreymt vin sinn einmitt um þaö bil sem
hann var aö skilja viö. Og nú brá svo viö
aö honum varö merking draumsins degin-
um ljósari.
Svo var mál meö vexti aö Daniel haföi
veriö félagi idönskum bálfararsamtökum
og lagt svofyrir aö lik\ hans skyldi sent til
brennslu f Kaupmannahöfn þegar hann
væni allur. Pabtó taldi sig nú hafa fengiö
óvefengjanleg boö um aö Danlel heföi
snúisthugur á banastundinni og reyndi aö
fá þvi framgengt aö likiö yröi ekki sent ut-
an, heldur grafiö á lslandi, en vitanlega
talaöi hann fyrir daufum eyrum. Draum-
vitrunin var ekki talin jafnþungvæg og
fyrirmæliDaniels Ilifandi lifi. Honum var
þvifylgt til skips af friöri fylkingu riöandi
Fáksfélaga og vakti sú skrautreiö verö-
skuldaöa athygli i bænum. Pabbi sneri
hinsvegar aldrei aftur meö þaö aö óskir
ldtins vinar heföu veriö virtar aö vettugi.
NU vikur sögunni til Mörtu og draum-
vitrunar sem átti eftir aö skipta okkur öll
mklu máli og gerbreyta heimilishögum
um sinn. Hana dreymdi semsé nótt eina
aö mamma kæmi til hennar og færi hönd-
um um tiltekinn blettundir vinstra heröa-
blaöi. Þó mamma segöi ekki beinum orö-
um i draumnum hvaö fyrir henni vakti
þóttist Marta skynja aö hún væri aö gefa
sér visbendingu um aösteöjandi hættu.
Hún lét þvi veröa sitt fyrsta verk daginn
eftir aö fara i berklaskoöun, og mikiö
rétt: hún var komin meö blett á ööru
lunga nákvæmlega þarsem mamma haföi
þuklaö hana i draumnum. Henni var
uppálagt aö ieggjast umsvifalaust inná
Vifilsstaöi sem hún og geröi. Þetta atvik
varö okkur áþreifanlegt tákn um sfvökula
umhyggju mömmu fyrir okkur öllum.
En nú var heimiliö húsmóöurlaust og
pabbi i vanda staddur. Fyrsta úrræöi
hans var aö leita á náöir gömlu vinkonu
sinnar iPólunum, Astu, og fala af henni
eldri dótturina sem ráöskonu. Var þaö
auösótt, en sá böggullfylgdi skammrifi aö
Elsa vildi fá aö hafa unnustann hjá sér,
þvi hann gekk laus þá stundina. Þannig
atvikaöist þaö aöElsa og Kalli fluttu I'litla'
herbergiö innaf eldhúsinu sem Geiri
frændi haföi rýmt þegar hann fékk fast
starf og húsnæiS hjá hænsnabónda útá
Seltjarnarnesi.
Elsa tók viö búsforráöum en var mjög
ósýnt um störfin sem hún átti aö inna af
hendi. HUn var góö viö okkur krakkana
þegar hún á annaö borö skipti sér af okk-
ur, sem var sjaldan, þvi hUn virtist ein-.
lægt vera meö hugann viöeitthvaö annaö.
Hún var hyskin og hálfsubbuleg, enda
drabbaöist heimiliö fljótlega niöur og
maturinn varö ólystugri meö hverjum
degi. Elsa drakk ósköpin öll af svörtu
kaffi og sat löngum meö sigarettu milli
fingranna á kolli viö eldhúsboröiö og
staröi Uti fjarskann. Kalli svaf framá
miöjandag og fór þá Ibæinn, kom yfirleitt
ekki heim aftur fyrren langt var iiöiö á
kvöld. Þá settust þau skötuhjúin framl
eldhús og lokuöu aö sér, töluöu i hálfum
hljóöum langt framá nætur og var allt
þeirra atferli fjarskalega dularfullt. Ég
mmdi eftir Kalla úr Pólunum, dökkum
yfirlitum, hoknum, meö litil flóttaleg
augu, og vissi sem var aö hann var tiöur
gestur i tukthúsinu vegna innbrota, svo ég:
fór að setja langar nætursetur og hvisl-
ingar þeirra Elsu i samband við áformuð
afbrot og sá fyrir mér hrikalega atburöi
sem fylltu mig i senn ógn og eftirvænt-,
. ingu.
Elsu voru falin innkaup fyrir heimiliö
og fékk tilþess ákveöna fjárhæö sem varö
aö hrökkva fyrir brýnustu nauösynjum,
en hún kvartaöi látlaust yfir alltof naum-
um framlögum á s£una tima og viöurværi
okkar varö bæöi rýrara og einhæfara.
Þrásinnis stóö maöur soltinn ippfrá borö-
um þegar allur matur var þrotinn.
Ég fann aö pabbi var farinn aö hafa
áhyggjur af ástandinu á heimilinu, en
hann fór varlega I sakirnar og reyndi eftir
fremsta megni aö foröast árekstra, þvl
hann átti fárra kosta völ og vildi flest I
sölur leggja til aö halda heimilinu saman
þangaðtil Marta kæmi aftur.
Fyrsta mánuöinn eftir aö hún hvarf til
Vifilsstaöa kom hún einusinni I heimsókn
til okkar. Þaö var árla dags og viö vorum
ekki komin á fætur. Alltieinu birtist hún I
dyrunum og fór aö hlæja þegar hún sá
okkur þvi nokkrum dögum áöur haföi
pabbi látiö snoöklippa okkur strákana
sárnauöuga og látiö bænir okkar um vægö
sem vind um eyrun þjóta. Vakti þaö
Mörtu þennan sjaldgæfa hlátur, en okkur
megna gremju og blygöun, enda lét ég
ekki sjá mig húfulausan utan dyra svo
vikum skiptiog leiö vitiskvalir iskólanum
þarsem ég var eini snoöklippti krakkinn.
Ekki bætti þaö úr skák aö mér var eitt
sinn boöið til stofu i Laugarnesi þegar ég
átti þangaö erindi fyrir pabba og varö aö
hlusta á heimasætuna, semmér þótti bæöi
falleg og tiguleg.fara mörgum oröum um
sætu ljósu lokkana sem nú væru horfnir af
kollinum á mér. Þá heföi veriö gott aö
geta látið sig sökkva niörUr gólfinu.
Heimsókn Mörtu varö til aö minna okk-
ur óþyrmilega á umskiptin sem oröiö
höföu á heimilinu frá þvihún fór og æröu
upp i mér söknuö sem kom mér óneitan-
lega dálitiö á óvart. Ég var smámsaman
aö skilja hvilik stoö Marta haföi alla stund
veriö okkur systkinum og hve mikils viö
höföum misst þegar hún hvarf frá okkur.
Hún haföi skamma viödvöl i þetta sinn og
viö sáumst ekki aftur fyrren aö hálfu ári
liðnu.
Einsog málum var háttaö heföi pabbi
vafalaust reynt til hins ýtrasta aö sjá i
gegnum fingur viö hiröuleysi og subbu-
skap Elsu ef ekki heföi komiö aö þvi sem
kannski var óhjákvæmilegt einsog I pott-
inn var búiö. Þaöhurfu peningar Ur buddu
pabba og böndin bárust aö Kalla og Elsu.
! Pabbi gekk hránt til verks og spurði Elsu
hvort hún vissi hvernig peningamir heföu
horfiö, en hún brást viö einsog óhemja og
jós yfir hann óbótaskömmum fyrir tor-
tryggni og upplognar sakargiftir. Kalli
kom hálfklæddur innanúr litla herberginu
og hnykkti á þvi sem Elsa haföi sagt meö
mári uppburöum en ég átti von á, en.
geröi hvorki aö játa né neita ásökunum
pabba sem nú var oröinn snakillur og bar
uppá hann peningastuld. Eftir stutta en
háværa rimmu skipaöi pabbi hjónaleys-
unum að hafa sig á brott þegar i stað meö
pjönkur sfnar, sem þau og geröu meö
mörgum viöeigandi athugasemdum um
pabba og okkur krakkana.
Enn stóöum viö uppi bjargráöalltil.
Pabbi tók til bragös aö ganga sjálfur I
heimilisstörfin en kunni li'tt til slikra
verka. Niöurstaðan varö sú aö viö liföum
aöallega á mjólk og skyri, kaffi og beina-
kexi. Eitthvaö hefur nágrönnunum viö
Laugarnesveg þótt búskapur okkar
óbjörgulegur, þvilögö var fram kæra hjá
réttum yfirvöldum og einn góöan veöur-
dag birtust tveir eftirlitsmenn frá ein-
hverri nefnd og vildu fá aö skoöa börnin.
Þó pabbi bæri sig vel og ég legöi mig I
framkróka aö prisa atlætiö, þá hefur eft-
irlitsm ön nun um ekk i litist m ára en svo á
umhiröu okkar systkina, enda höföum viö
satt aö segja gert okkur ósköp litla rellu
útaf daglegum þvottum eöa öörum hrein-
lætisráöstöfunum. Garmarmr sem ég var
I voru rifnir og óhreinir og ég haföi vist
ekki komist i" tæri viö vatn svo dögum
skipti.
Eftirlitsmennirnir létu lofræöur minar
um búshald pabba lönd og leiö, skoöúöu
mig bakviö eyrun og kunngeröu hátiölega
aö brýna nauðsyn bæri til aö koma okkur
systkinunum i hendur hæfra uppalenda.
Þegar pabbi vildi fá aö vita hvort þeir
heföu lagaheimild til aö svipta hann börn-
um sinum og leysa upp heimiliö, þá svar-
aöi annar eftirlitsmaöurinn þvi til aö víst
væru tillög sem heimiluðu yfirvöldum aö
koma börnum i fóstur þegar heimilis-
ástæöur væru meö þeim hætti aö þau
kynnu aö biöa tjón á sál og likama sakir
vanrækslu.
Pabbi hló kaldranalega aö þessari há-
tiölegu tölu og kvaö þá sem kært heföu
vera niöinga en þá sem tækju frá honum
börmn hjartaiaus fól, og ég fann sárt til
þess hve nærri honum var höggviö. Hann
baö yfirvöld og útsendara þeirra hvergi
þrifast, envaröum siöir aö láta I minni
pokann og sættast á aö viö yröum sótt
næsta dag og komiö fyrir á barnaheimili.
Þannig geröist þaö sem pabba haföi meö
öllum tiltækum ráöum reynt aö sporna
gegn: heimiliö var leyst upp.
Saga sem virðist
sameign margra
..Möskvar morgundags-
ins”,önnur bók Sigurðar A.
Magnússonar i minninga-
bókafiokki hans, kom fyrir
nokkru i bókaverslanir.
Þeir sem lásu fyrri bókina,
„Undir kalstjörnu”, biðu
meö óþreyju, enda er það
vist, að sá veruleiki, sem
Siguröur lýsir, stendur
mörgum nærri.ungum sem
öldnum.
,,Ég hitti ungan mann
fyrir nokkru”, sagði
Sigurður A. Magnússon i
stuttu spjalli viö Helgar-
póstinn, ,,og sá sagöi mér,
að þótt hann væri ekki
nem a tuttugu og fimm ára,
þá hefði ég lýst hans
þroskaferli náiö — ég
skyldi varla hvað hann átti
við — en þá sagði hann, að
þótt ytri aðstæður manna
væru aðrar nú en fyrrum,
þá gengju menn i gegnum
hliöstæða reynslu til-
finningalega.
Auðvitað hafa menn
upplifað sina þróun og
þroskaferil misjafnlega.
Sumir á minum aldri
kannast við h'tið, og svo
kemur fólk úr alltöðrum
tima og þekkir sig mæta-
vel. Ég get t.d.nefnt bróður
minn og svo leikfélaga,
sem ég hef rætt við — þeir
muna þetta ekki eins og
ég- ”
Sigurður kvaðst eigin-
lega vera undrandi yfir
þeim góðu viðtökum sem
bækur hans hafa hlotið,
ekki hvað sist „Undir kal-
stjörnu” og hann gæti ekki
annað en veriö ánægður.
Eigum við von á þriðju
bókinni næsta ár?
Siguröur A. Magnússon
„Ekki næsta ár kannski,
en ætli maður haldi þessu
ekki áfram.Ég reikna meö
aö skrifa þá þriöju”.
Helgarpósturinn birtir i
dag kafla úr „Möskvar
mœ-gundagsins” og ber sá
yfirskrif tina „Ber-
dreymi. ”.
— GG.