Helgarpósturinn - 21.05.1982, Blaðsíða 23
Svartar ró
Bæ, bæ Lisa... Bæ, bæ Stjáni
Pétur...
Þær fréttir berast frá kóngsins
Kaupmannahöfn að hljómsveitin
Kamarorghestarnir, sem gaf út
i fyrra plötuna Bisar i banastuði,
hafi nú slitið samstarfi. Mun
samstarfið hafa slitnað sökum
tónlistarlegs ágreinings. Stjána
Pétri, Gilla, Tobba og nýja gitar-
leikaranum þóttu vist Böggi, Lisa
og Óli hafa of kommersial tón-
listarsmekk og hættu. Böggi, Lisa
og óli ætla samt ekki að láta
meirihlutann hafa áhrif á sig og
munu leita nýrra félaga um
þessar mundir. Hvað nýhættu fé-
lagarnir munu gera er þó alls
óvist, nema að Stjáni Pétur ætlar
um sinn að helga sig trésmiði.
Jamm og já. Hver er sinnar gæfu
smiður.
Hún Birgitta Jónsdóttir sendi
Stuöaranum ljóð sem heitir
Svartar rósir. Birgitta er 15 ára
gömul og var i vetur i grunn-
skóla Hveragerðis, en þar bjó
hún hjá ömmu sinni og afa. Hún
er nú flutt til Reykjavikur og
farin að vinna á fullu I búð nokk-
urri á Seltjarnarnesinu.
Birgitta hóf að yrkja ljóð eftir
jólin siðustu og hefur ort mörg
tonn, að eigin sögn. I Hvera-
gerði var hún nefnilega á leik-
listarnámskeiði og átti að flytja
ljóð. 1 staðinn fyrir að flytja ljóð
eftir aðra, settist hún sjálf niður
og orti. A visnakvöldi hjá Visna-
vinum fyrir skömmu flutti hún
þetta ljóð sem Stuðarinn birtir,
og var gerður góður rómur að
þvi, en Birgitta sagði Stuðaran-
um að hún hefði verið voða
stressuð við flutning ljóðsins.
,.r I —H""*8*rW’ '
U» e«r
Svartar rósir
Ég horfi út um gluggann
og sé svartar rósir.
Ég horfi út um gluggann
og sé svartar rústir.
Ég horfi út um gluggann
og sé ekkert kvikty allt dautt.
Af hverju spyr ég.
Ajf hverju er allt dautt?
Það skullu sprengjur i nótt
meðan þú varst sofandi.
Atómbombur skullu
og tortimdu mannkyninu.
Hver er ég
spyr ég.
Hver er ég?
Ég horfi út um gluggann
og sé hrunin hús.
Ég horfi út um gluggann
og sé blóð i straumum.
Ég horfi út um gluggann
og sé svarta ösku,
og leifar af mannslikömum.
Þetta er það sem eftir er
af mannkyninu okkar.
Allt sem við sköpuðum
og kynslóðir eftir kynslóðir
slitu sér út við
er orðið að engu.
Af hverju?
Til hvers?
1.400,0okr.
Veistu aö hver reykvísk fjölskylda
greiöir 1.400,- kr. í ár til að standa
undir hallarekstri Borgarspítalans?
Borgarspítalinn er í reynd landsspítali.
Á honum liggja jafnt Reykvíkingar
sem landsbyggöarmenn.
En Reykvíkingar borga brúsann.
Viðviljum að ríkið reki Borgarspítalann.
það finnst okkur jafnréttismál.
Eigum við ekki samleið?
listinn
Reykjavík
22. maí
1982.
9
BETRI BORG! f?