Helgarpósturinn - 21.05.1982, Blaðsíða 32
JþiSsturínn iFöstudagur 21. maí 1982
Atkvæði greitt
SjálfstæðisfloKKnum
er ávísun á:
Eins flokks stjóm í Reykjavík
Davíð Oddsson sem borgarstjóra
Hægri sveiflu í landsmálum
Geir HaUgrímsson sem forsætisráðherra
Nýja leiftursókn
Kaupmáttarskerðingu
Atvinnuleysi
Landflótta
Alþýðubandalagid eitt
getur lokað leið
ul nýrrar leiftursóknar
Þjttatkvæði og tryggt vinstri meirihluta
semþarf i Reykjavík
Áhugamenn um áframhaldandi forystu
Alþýðubandalagsins í Reykjavík.
• Útitaflið við Lækjartorg er án
nokkurs vafa það verk núverandi
meirihluta borgarstjórnar sem
mesta athygli vakti á kjörtima-
bilinu. Nú bregður hinsvegar svo
við, að ekki er vist að næsti
meirihluti erfi þetta umdeilda
tafl. Þannig er mál með vexti að
landið undir útitaflinu er ekki
eign borgarinnar, heldur ríkisins
og heyrir þvi undir Torfusamtök-
in sem hafa umrædda Torfu á
leigu, með öllu sem á henni er —
bæði hús og gras. Borgin þurfti
þvi leyfi Torfusamtakanna til að
hefja framkvæmdirnar við úti-
taflið og það var veitt, en með þvi
skilyrði að samstarf næðist milli
borgarstjórnar og Torfusamtak-
anna um uppbyggingu Torfunnar.
Þetta samstarf hefur sem kunn-
ugt er gengið erfiðlega á undan-
förnum árum, einkum hvaðvarðar
fasteignagjöldin sem Torfusam-
tökin þurfa að greiða borginni. t
september i fyrra sendu Torfu-
samtökin Reykjavikurborg svo
bréf þar sem itrekað var aö þau
teldu umráðarétt sinn yfir lóðun-
um á Torfunni óskertan og farið
fram á samningaviðræður um
notkun svæðisins. Þessari mála-
leitan hefur borgin ekki sinnt, og
þvi hafa Torfusamtökin. enn sent
borginni bréf og bent á að borgar-
yfirvöldum sé ekki heimilt að
nýta lóðirnar undir útivistarsvæði
á sinum vegum. Það gæti þvi
endað með þvi að Torfusamtökin
kölluðu hreinlega á lögregluna og
bæðu hana að fjarlægja útitaflið
af lóð sinni. Og það yrði saga til
næsta bæjar.
• Einhver kurr mun vera
kominn upp meðal hluthafa i
Reykjapi enti, útgáfufélagi Visis
áður en sameiningin varð og það
rann ásamt Dagblaðinu i Frjálsa
fjölmiðlun hf. Mun ástæðan fyrir
þvi ekki hvað sist vera uppsögp
Sæmundar Guðvinssonar, frétta-
stjóra Dagblaðsins og Visis og
þykir hluthöfunum sem hlutur
Visis gamla i áhrifastörfum innan
nýja fyrirtækisins fari að verða
ansi rýr. Sæmundur hefur ráðið
sig á Auglýsingastofu óiafs Step-
hensenog mun sjálfur hafa látið
þau orð falla um uppsögn sina að
honum hafi þótt orðið timabært
að breyta til, en aðrar heimildir
herma að hann hafi verið orðinn
langeygur eftir breytingum á
D&V sem i bigerð hafa verið allt
frá sameiningunni...
Gerum við Kalkhoff — SCO —
Winter — Peugeot — Everton
og öll önnur hjói.
Fullkomin tækja- og vara-
hhitaþjónusta.
Sérhæfing i fjölgirahjólum.
Seljum uppgerö hjól.
Opið alla daga frá kl. 8—18,
laugardaga kl. 9—1.
Hjóiatækni
Vitastig 5. Simi 16900
• Við vorum mátuiega búnir að
vera með vangaveltur um nýja
ritstjóra Sjómannablaðsins Vik-
ings, þegar veður skipuðust þar i
lofti og Þórleifur ólafsson,blaða-
maður á Morgunblaðinu, var ráð-
inn til að taka við Vikingi.Þór-
leifur hefur langa reynslu i sjá-
varútvegsmálum og var um ára-
bil starfsmaður Llú útii Grimsby
og annaðist afgreiðslu islenskra
fiskiskipa, sem þar seldu...
• Og fleiri hræringar i fjöl-
miðlaheiminum. Finnbogi vinur
okkar Hermannsson á ísafirði
hefur sagt upp störfum sinum á
Vestfirska fréttablaðinu.
Ástæðan er sú að hann hyggst
yfirgefa ísafjörð eftir að hann
'.elur bæjarstjórnarme'rihlutann
þrr hafa broúo a sér lög með þvi
að hunsa umsókn hans um ibúð i
félagspakkablokkunum þar
vestra. Þetta mál mun raunar
vera eitt helsta kosningamálið á
staðnum þessa dagana...
• Búnaðarbankinn hetur
fengið sinar sárabætur fyrir
bankaskattinn sem á hann var
lagður eins og aðra banka.
Bankamálaráðherra hefur fyrir
sitt leyti heimilað að bankinn fái
gjaldeyrissöluheimild, likt og
Landsbankinn og Útvegsbankinn
hafa nú, en Seðlabankinn á að
visu eftir að staðfesta þessa
ráðstöfun...
• Svarthöfði fer á kostum á mið-
vikudag út af innbroti og
Ikveikjutilraunum á kosninga-
skrifstofu Framsóknarflokksins I
gamla Edduhúsinu, þar sem
stolið var úr söfnunarbauk og
kveikt í giuggakistu á dögunum.
Segir Indriðí G,i pistli sinurn, að
það beri vott uin snautlega
menntun blaðamanna og fjöl-
miðlara að þeir skuli ekki fyrir
löngu vera farnir að rannsaka
málið I anda Woodwardog Bern-
stein vegna svipaðra atburða á
þeirri frægu kosningaskrifstofu
Watergate, En þá er þvi til að
svara að gárungarnir eru búnir
að stela glæpnum frá rann-
sóknarblaðamönnum og eru
komnir fram með pottþétta skýr-
ingu: Framararnir hafi sjálfir
sett þetta á svið, þvi þeir svifist
einskis til að koma B-listanum á
framfæri, samanber Beina linu
útvarpsins á dögunum....