Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 9
Jp&sturinri— Föstudagur 14. janúar 1983
Gagnrýnendur Helgarpóstsins meta stöðu listgreina
á nýliðnu ári og velja helstu viðburði ársins
Gróskurfkt án stórbyltinga
Það hefur ríkt mikil gróska í djassheimin-
um án þess að tónlistin hafi tekið miklum
breytingum. Einn af helstu meisturum
djassins, trommarinn, tónskáldið og hljóm-
sveitarstjórinn Jack Dejohnette, kallar tón-
list sína margátta, „við leikum frjálst með
sveiflu". Þetta lýsir vel meginstefnu margra
hinna yngri manna s.s. Arthur Blythe og
þess djassleikara sem mesta athygli vakti á
árinu, trompetleikarans unga frá Art Blak-
ey boðberunum: Wyntons Marsalis, en les-
endur down beat kusu hann djassleikara
ársins svoog trompetleikara ársins og fyrstu
skífu hans samnefnda á Columbiu, plötu
ársins. Hún hefur því miður ekki enn feng-
ist í íslenskum plötubúðum, en Jón Múli
kynnti hana ágætlega í djassþáttum sínum.
Marsalis heyrðist líka með Blakey í íslenska
sjónvarpinu en þegar Blakey kom hér í boði
Jazzvakningar er Listahátíð stóð yfir (Lista-
hátíðarnefnd sleppti djassinum að þessu
sinni) var Marsalis hættur í bandinu og nýtt
njúorlínskt trompetefni komið í staðinn:
Terrence Blanchard. Jazzvakning fékk
fleiri góða gesti á árinu: The Art Ensemble
of Chicago, Leo Smith og Bobby
Naughton, Roscoe Mitchelle, Joe New-
man, Charlie Haden’s Liberation Music
Orchestra (sem hreyfingin tapaði 100 þús-
und krónum á) og The Missisippi Delta
Blues Band. A vegum Jazzdeildar FÍH
komu hingað Jón Páll og Pétur Östlund frá
Svíþjóð og léku á 50 ára afmælishátíð FÍH,
norski saxafónleikarinn John Pál Inderberg
og dansk-hollenska hljómsveitin The Ap-
ocalypse. Hópur áhugafólks um jazz fékk
svo hingað tríóið Air.
Þrjár innlendar djasssveitir störfuðu á ár-
inu, tríó og kvartett Guðmundar Ingólfs-
sonar, Nýja kompaníið og kvartett Krist-
jáns Magnússonar og gáfu tvær þær fyrst-
nefndu út skffur: Guðmundur Ingólfsson:
Nafnakall og Nýja kompaníið:Kvölda
tekur. Auk þess komu út þrjár bræðings-
skífur: Björn Thoroddsen: Svif, Jakob
Magnússon: Tvær systur og Mezzoforte 4.
Dassað hefur verið af krafti á Nausti, í
Djúpi og Stúdentakjallaranum, en í Stúd-
entakjallara hefur leikið sveit skipuð fé-
lögum úr Nýja kompaníinu og Mezzoforte.
Jazzdeild FIH skólans heldur áfrant að
kenna djass og á stóran þátt í eflingu ís-
lensks djasslífs. Því miður hefur ekkert
heyrst í Bigbandi því er Björn R. hefur
stjórnað sem af þessum vetri en Steinþór
Steingrímsson og fleiri gamlir kappar komu
fram á djasskvöldi milli jóla og nýárs og er
vonandi að þeir láti ekki þar við sitja. Þar
komu líka í heimsókn Oktavía Stefánsdótt-
ir söngkona sem búsett er í Kaupmanna-
höfn og Steingrímur Guðmundsson
(Steingrímssonar) trommu og tablaleikari,
en hann er við nám í Bandaríkjunum.
Björn Thoroddsen kom heim í vor endur-
nærður eftir ársnám á gítar í Los Angeles og
Pétur Grétarsson barði hér trommur í sum-
ar, en hann er við nám í Berkley í Boston.
Þar hafa fleiri íslendingar lært á árinu:
Gunnar Hrafnsson, Sigurður Flosason og
Stefán Stefánsson, sem þar dvelst enn.
Tvær íslenskar djasssveitir léku erlendis á
árinu: Kvartett Kristjáns Magnússonar í
Færeyjunt og kvartett Guðmundar Ingólfs-
sonar í Lúxemborg og má fullyrða að ís-
lenskur djass hafi ekki staðið í slíkum
blóma sl. fimmtán ár.
En því miður vantar okkur enn djass-
klúbb og það eru ekki margir sem geta haft
lífsviðurværi af því að leika djass frekar en
áður, þó kennt sé með, skúrað og leikið
fyrir dansi og dinner.
Við minntumst í upphafi á margstefnu-
djassinn. Að sjálfsögðu eru margar aðrar
stefnur á kreiki. Á þessu ári kom út skífa
með Ornette Coleman: Of Human Feelings
(Antilles), tekin upp 1979. Þó að Coleman
hafi ekki breytt mikið eigin saxafónleik, er
samleikur allur annar en áður. Það eru allir
jafnir og samspinna næstum einsog gert var
í frumdjassi þó reglur séu frjálsar. Allt er
rafntagnað, en hin ljóðræna snilli Colemans
gerir tónlist hans að þeirri djassgleði sem
ekki finnst í sama mæli hjá lærisveinum
hans, James Blood Ulmer og Ronald
Shannon Jackson. Coleman nefnir tónlist
sína harmolodic, en sumir kalla Blood og
Shannon pönkdjassara.
Auðvitað kom út óhemju fjöldi af djass-
skífum á árinu og var Miles Davis við sama
heygarðshornið á sinni skífu: Wc Want Mi-
les (Columbia), þar var rafmagnið í háveg-
um en gamli maðurinn blés samt stundum
eins fallega og í gantla daga. Don Cherry og
Ed Blackwell fóru hina þjóðlegu leið á E1
Corazón (ECM) en sá mæti píanisti Chick
Corea hugleiddi tónskáldskap tuttugustu
aldarinnar á tvöföldu albúmi sínu: Trio
Music (ECM), fyrri skífan innihélt impró-
víseringar, oft í anda Bartoks, en hin síðari
næma túlkun á átta meistaraverkum Thel-
oniusar Monks. Monk var einn þeirra
djassmeistara sem kvöddu þessa lífstjörnu
áárinu, aföðrum má nefnasaxafónsnilling-
ana Art Pepper og Sonny Stitt, gamla
Ellingtontrommarann Sonny Greer, blúsar
ann Lightin Hopkins og píanistann Jimmy
Jones, sem kom til íslands með Ellu Fitz-
gerald 1966.
En þótt menn deyi lifa verk þeirra og á
árinu koniu út nnargir gimsteinar með áður
óbirtu efni gömlu meistaranna og skal
aðeins minnst á The Girl’s Suite/Thc Perf-
ume Suite (Columbia) með Duke Elling-
ton, þar sem fyrrnefnda svítan kemur fyrst
fyrir eyru djassgeggjara svoog meistara-
verk með Charlie Parker:One Nigth In
Washington (Elektra Musican El-60019).
Upptökurnar eru ekkert síðri en stúdíóupp-
tökur Verve þetta ár, 1953.
'★ ★ ★ ★ framúrskarandk
★ ★ ★ ágæt
★ ★ g6ð
★ þolanleg
0 léleg
Itíóin
Bíóhö|lin:
*
Konungur grínsins (King of Comedy).
Bandarísk, árgerð 1982. Leikendur: Ro-
bert DeNiro, Jerry Lewis. Leikstjóri: Mart-
in Scorsese. í myndinni er sagt frá frimurara,
sem ætlar sér að verða grínisti. Frímúrara?
Já, þvi hann vinnur ekki, er alltaf múraður og
á alltaf fri. Myndin er hundleiðinleg, langdreg-
in og ekki fyndin fyrr en í lokin, ef hægt er að •
brosa út í annað að fimm mínútna Woody
Allen fyndni.
- JAE
Litli lávarðurinn (Little Lord Fauntleroy).
Bandarísk kvikmynd. Leikendur: Alec Gu-
inness, Ricky Schroder, Eric Porter. Leik-
stjóri: Jack Gold.
Hugguleg fjölskyidumynd um lítinn iávarð og
annan stærri. Jólamyndin í ár.
Bílþjóf urinn (The Grand Theft Auto). Banda-
rísk kvikmynd. Leikendur: Ron Howard,
Nancy Morgan.
Fjörug unglingagrinmynd i anda amerisku
veggskriftarinnar.
Átthyrningurinn (The Octogone). Bandarisk
kvikmynd. Leikendur: Chuck Norris, Jo-
hnny Fist.
Bardagamynd með hasargæjanum fræga,
glímukappanum góða.
★ * *
Snákurinn (Venom). Bresk kvikmynd, ár-
gerð 1982. Lelkendur: Klaus Kinski, Nicol
Williamson, Oliver Reed, Sterling Hayden.
Leikstjóri: Piers Haggard.
Góður þriller af gamia skólanum. Spennan er
byggð upp hægt og sígandi og helst allan
tímann. Góð afþreying i skammdeginu.
- JAE.
★ ★★
Fram i sviðsljósið (Being There). Bandarisk,
árgerð 1981. Handrit Jerzy Kosinski, eftir
eigin skáldsögu. Leikendur: Peter Sellers,
Melvyn Douglas, Shlrley MacLaine. Leik-
stjóri: Hal Ashby.
Sá sigrar sem þorir (Who Dares Wins).
Bresk kvikmynd, árgerð 1982. Leikendur:
Lewis Collins, Judy Davis, Richard Wid-
mark, Robert Webber.
íranska sendiráðið í London í maí 1980: skærul-
' iðar hafa hertekið það. Sérsveitir breska hers-
ins koma gislunum til bjargar. Spennumynd
byggð á sannsögulegum atburðum. Svona var
það.
Regnboginn:
Dauðinn á skerminum (La mort en direct).
Frönsk, árgerð 1979. Handrit: David Ray-
field eftir sögu D. Compton. Leikendur:
Romy Schneider, Harvey Keitel. Leik-
stjóri: Bertrand Tavernier. Romy
Schneider stendur fyrir sínu sem deyjandi
kona í beinni utsendingu i sjónvarpskerfi.
Grasekkjumennirnir (Grásánklingarna).
Sænsk kvikmynd, árgerð 1982. Leikendur:
Janne Karlsson, Gösta Ekman. Leikstjóri:
Hans Iveberg.
Tveir kunningjar verða grasekkjumenn i viku og
ætla að eyða henni hvor með sínum hætti. En
áætlanir þeirra standast þó ekki alveg. Hressi-
leg gamanmynd.
★ ★ ★
Kvennaborgin (Citta di donna). ítölsk kvik-
mynd. Aðalhlutverk: Marcello Mastroianni
og fullt af konum. Handrit og stjóm: Feder-
ico Fellini.
Maður nokkur fellur í draumsvefn og lendir í
Kvennabænum, þar sem konurnar eru af öllum
stærðum og gerðum. En er þetta draumur?
Sá brenndi (The Burning). Bandarisk kvik-
mynd, árgerð 1982. Leikendur: Brian Matt-
hews, Leah Sayers, Lou David. Leikstjóri:
Tony Maylam.
Sumarbúðastjóri nokkur er leiðinlegur og frek-
ur. Gárungar ætla að hrekkja hann, en ekki vill
betur til, en kall brennist illa. Nokkrum árum
síðar ásetur hann sér að hefna ófaranna. Mikill
hryllingur.
Hugdjarfar stallsystur (Cattle Anne and litt-
le Britches). Bandarisk kvikmynd. Leikend-
ur: Burt Lancaster John Savage. Rod Stei-
ger, Amanda Plummer.
Hörkuskemmtilegur grinvestri með gömium
kempum.
Njósnir í Beirút (Operation Beirút). Al-
þjóðleg kvikmynd. Leikendur: Richard
Harris, Dominique Boschero. Síðasta
tækifærið tii að sjá Beirút eins og hún var í
gamla daga. Hasar og fallegar konur, alþjóð-
legar njósnir. 'if&í
Laugarásbíó * * *
Geimálfurinn E.T. Bandarisk kvikmynd, ár-
gerð 1982. Handrit: Melissa Mathison.
Leikendur: Henry Thomas, plastbrúða o.fl.
Leikstjóri: Steven Spieiberg.
Sagan segir frá Elliot Taylor (takið eftir upp-
hafsstöfunum) sem finnur geimveruna E.T. og
skýtur yfir hana skjólshúsi svo illir menn nái
henní ekki. Kvikmyndataka er einföld og blátt
áfram. Myndáhrit koma mjög vel vel út, en eru
sáraeinföld i sjálfu sér og er það gott.
-JAE
Austurbæjarbíó: * * *
Arthur. Bandarisk kvikmynd, árgerð 1981.
Leikendur: Dudley Moore, John Gielgud,
Liza Minelli.
Gamanmynd með Óskarsverðlaun i farangrin-
um. Ungur piltur á ríkan föður og lifir hátt á hans
kostnað. I staðinn skal hann kvænast ungri
stúlku, sem á ríkan föður. En allt fer öðru visi en
ætlað er... Sprell og aftur sprell.
Bíóbær:
Geimorustan. Sýnd ókeypis fyrir börnin kl.
14 og 16 á laugardag.
Tarzan. Sýnd ókeypis fyrir börnin kl. 14 og
16 á sunnudag.
Að baki dauðans dyrum (Beyond Death’s
Door). Bandarisk kvikmynd, byggð á met-
sölubók Dr. Maurice Rawlings. Tilvalin mynd
fyrir andatrúarmenn og aðra framliðna drauga.
Spurningin er: Er lif handan grafar og likams-
dauða? Svar fæst kannski.
Bæjarbfó:
Ungfrúin opnar sig (The Opening of Misty
Beethoven). Unaðsleg tónlistarmynd um
litla systur þessa fræga tónskálds. Sagan
gerist rétt eftir að Lúðvík fékk sér nýjan
frakka. Fallegir leikarar, faliegt fólk. Hugljúf
fjölskyldumynd.
Háskólabíó:
★
Með allt á hreinu. Islensk kvikmynd. argerð
1982. Handrit: Ágúst Guðmundsson og
Stuðmenn. Leikendur: Stuðmenn, Grýlur,
Eggert Þorleifsson, Sif Ragnhildardóttir.
Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson.
Hin víðfræga íslenska söngva- og gleöimynd
gengur enn fyrir fullu húsi áhorfenda. islensk
skemmtun fyrir allan heiminn.
Nýja bíó: * * *
Villimaðurinn Conan (Conan the Barbari-
an). Bandarisk, árgerð 1981. Handrit:
John Milius og Oliver Stone. Leikendur:
Arnold Schwarzenegger, Sandahl Berg-
man, James Earl Jones, Max von Sydow.
Leikstjóri: John Milius. Petta er fyrst og
fremst ævintýramynd með hrottafengnum
húmor og minnir um margt á gullaldarbók-
menntirnar. Kvikmyndatakan er i betra lagi
og áhrifsmyndun góð, en leikurinn í myndinni
er jafn hryllilegur og myndin er hrottaleg.
-JAE
Kvikmyndaklúbbur
Alliance Francaise:
★ ★ ★
Police Python 357. Frönsk, árgerð 1976.
Leikendur: Yves Montand, Simone Sign-
oret, Francois Périer, Stefania Sandrelli.
Leikstjóri: Alain Corneau. Hörkuspenn-
andi lögreglumynd með frábærum leikurum.
Sýnd i Regnboganum 19. og 20. janúar kl.
20.30.
Stjörnubíó:
* *
Snargeggjað (Stir Crazy). Bandarisk. árgerð
1981. Handrit: Bruce Jay Friedman.
Leikendur: Gene Wilder, Richard Pryor.
Leikstjóri: Sidney Poitier.
Peir Wilder og Pryor eru bráðskemmtilegt par i
þessari „snargeggjuðu" sögu um tvo náunga
frá New York, sem freista gæfunnar í Kaliforniu
en lenda i fangelsi i staðinn. Frammistaða aðal-
leikaranna er reyndar mun betri en efni standa
til. handritið og leikstjórnin missa dampinn eftir
miðbik myndarinnar, en þeir Pryor og Wilder
eru í stuði allt til loka.
-ÁÞ
Varnirnar rofna (Breakthrough). Banda-
rísk kvikmynd.
Leikendur: Richard Burton, Rod Steiger.
Hörkuspennandi striðsmynd, nokkurs konar
framhald af Járnkrossinum. Þessi mynnd
gerist meðal Rússa.
Tónabíó: *
Moonraker (Tunglrakarinn). Bresk kvik-
mynd, árgerð 1979. Handrit: Christopher
Wood. Leikendur: Roger Moore, Lois Chi-
les, Michel Lonsdale, Richard Kiel. Leik-
stjóri: Lewis Gilbert.
Bond-formúlan er alltaf söm við sig, en hér er
hún þó í slappara lagi vegna illa unnins og
ófrumlegs handrits. Bond er alltaf í eltingar-
leik um allan heim til þess aö bjarga þessum
sama heimi frá eyðileggingu. Stelpurnar eru
sætar, landslagið lika. Leikur er lítill, en
Bondfríkar skemmta sér sæmilega. Hinir
lika.
G.B.