Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 19
trjnn Föstudagur 14. janúar 1983 19 Max Euwe Þegar Max Euwe lést í fyrra- haust rúmlega áttræður að aldri átti skákheimurinn á bak að sjá einum merkasta manni sínum á þessari öld. Þar fór ekki aðeins svipmikill skákmaður sem hafði verið kóngur í skákheimi um skeið og forseti alþjóðasambands skákmanna á erfiðri tíð, heldur afkastamikill rithöfundur skákar- innar fyrr og síðar - og þar að auki ljúfmenni sem var vinsæll hvarvetna og átti sér naumast nokkurn óvildarmann. Euwe tókst að skila ágætu ævi- starfi á tveimur sviðum. Hann gekk menntabraut, iagði stund á stærðfræði og lauk þar doktors- prófi 25 ára gamall. Síðan gerðist hann kennari og kenndi stærð- fræði, aflfræði og stjörnufræði um langt skeið f fæðingarborg sinni Amsterdam. Á sextugsaldri fór hann að leggja stund á tölv- ufræði og varð einn fremsti fræðimaður Hollendinga í þeirri grein. Hann var forstöðumaður rannsóknarstöðvar Hollands í tölvufræðum og prófessor við tvo hollenska háskóla í sömu grein- um þar til hann varð að láta af störfum sakir aldurs. Skák eftir Guðmund Arnlaugsson Euwe ritaði mjög mikið um skák. Bækur hans skiptu tugum og greinarflokkur hans „Skák mánaðarins" birtist í skák- tímaritum um allan heim. í ritum hans koma einkenni hans vel fram: skýrleiki í framsetningu, rökvísi og skiplagningargáfa. Það er með ólíkindum hve miklu hann hefur komið í verk. Hann hrósaði íslensku skákmönnum •mjög, ekki síst Guðmundi Pálm- asyni sem þá var ungur mennta- skólanemi og taldi hann líklegan til stórræða í skákinni - spádóm- ur sem ekki er ósennilegt að hefði ræst, hefði Guðmundur ekki tekið vandasamt starf sitt fram yfir skákina. Ég kynntist Euwe nokkuð þann tíma sem hann dvaldist hér og ágóðar minningar um þau kynni. Eg átti viðtal við hann í útvarpi. Þar spurði ég hann m.a. um hvaða taflmeistara hann teldi mestan af þeim sem hann hefði kynnst. Hann hikaði ekki við svarið: Emanúel Lask- er. Þetta varð mér minnisstætt, því að ljóminn af afrekum Aljek- íns var enn svo mikill á þessum árum að manni fannst enginn komast til jafns við hann. Af þessum borgaralega lífsferli gæti hver maður verið sæmdur. En Euwe átti sér annan feril ekki síður glæsilegan í heimi skákar- innar. Machgielis, eins og hann var skírður, þótt það væri seinna stytt í Max, lærði ungur að tefla og þótti efnilegur án þess þó að vera undrabarn. Tvítugur var hann orðinn fremsti skákmaður Hollendinga. Hann gat ekki tekið jafnmikinn þátt í skák- mótum og ella sakir vinnu sinnar, en hann tefldi einvígi við ýmsa af fremstu meisturum samtíðar sinnar, m.a. við Aljekín er sigr- aði hann afar raumlega sama árið og hann vann heimsmeistara- titilinn af Capablanca. Hér er ekki rúm til að rekja sigra Euwe á þessu tímabili. En 1935 er hann kominn það langt á framabraut- inni að landar hans efna til lands- söfnunar til þess að hann geti teflt við Aljekín. Fáir munu hafa gert sér vonir um það í alvöru að Euwe myndi sigra, en menn þótt- ust vissir um að hann myndi standa sig sómasamlega. En svo gerðist hið óvænta: í einu tvísýn- asta og best teflda einvígi um heimsmeistaratitilinn vinnur Euwe sigur, hann vann 9 skákir, Aljekín 8, en 13 lauk í jafntefli. Þetta vakti feikna athygli, á einni nóttu var Euwe orðinn þjóðhetja Hollendinga. í þessu sem öðru sýndi Euwe sig góðan dreng, hann gaf Aljekín tækifæri á nýju einvígi eftirtvö ár(íþau21 ársem Aljekín var heimsmeistari tefldi hann aðeins fjórum sinnum um titilinn). Og þá sigraði Aljekín. Bæði þessi einvígi eru mjög vel tefld, og merkileg að því leyti að úrslitin úr báðum komu á óvart. Það er vandi að velja eina skák til að sýna taflmennsku Euwe. Ég ætla að taka skák gegn Keres. Sá mikli sóknarsnillingur velur hvassa byrjun gegn franskri vörn Euwe og er fróðlegt að sjá rök- vísa taflmennsku Euwes, hvernig hún leiðir til fallegrar sóknar. KERES EUWE Franskur leikur, Zandvoort 1936 1. e4-e6 2. d4-d5 3. e5-c5 4. Rf3-cxd4 5. Dxd4 Nimzovitsch og Keres beittu þessari aðferð stundum. Nimzo- vitsch lék þá oft 5. Bd3 eða jafn- vel 4. Dg4 og fórnaði drottning- arpeðinu. 5.....Rc6 6. Df4-f5 Um þetta segir Euwe: með þess- um leik festir svartur peðamiðj- una til þess að geta lokið hervæðingu án hindrana. Hvass- ara en hættulegra var 6.-f6. 7. Bd3-Rge7 8. 0-0-Rg6 9. Dg3-Be7 10. Hel-O-O Hvítur hefur ofurvaldað peðið á e5 í anda Nimzovitsch. 11. a3-Bb8! Engan einstrengingshátt! Riddar- anum er ætlað að fara leiðina b8- d7-c5-e4, en að vísu kemur ekki til þess. 12. Rbd2-a5 13. Rb3-Ra6 14. a4 Svartur hótaði að leika a5-a4 og síðan Ra6-c5-e4. Hvítur gat hin- . draðþað með 14. Bxa6, en það er O auðskilið að Keres er sárt um i_/ Spilaþraut helgarinnar S G-9 H 4-3-2 T Á-K-8-6-2 L D-5-4 sSD-10-8-6 S7-5-4-3 H D-10-8 H 9-7-6-5 T G 7-5-4 T D LK-8 LG-10-7-6 S Á-K-2 H Á-K-G T 10-9-3 L Á-9-3-2 Suður vinnur sex grönd. Vest- ur lætur tígul fjarka. Lausn á bls. 23 T Pottþétt pasta ...upp upp mín sál og allt mitt geð,hjarta og ristill fylgi með... fyrst ekki er um að ræða að leggjast í algjöran dvala þar til óverðrinu slotar er best að byrgja það úti um sinn með því að loka að sér inni í eldhúsi og fremja nornaseið yfir spaghettípottin- um... upplagt þar sem spaghettí minnir á orma... mæli ég um og legg ég á að rammvillt sálin rati aftur til móðurhúsanna og hrakin og hrelld sólin sleppi úr skoltum úlfsins Skolls og láti miskunnar- ljós sitt skína svo vér megum loksins loksins fagna náttúrunnar jólum með styrku og glöðu hjarta... Reyndar hermdi mér spakur maður í einni lægðarmiðjunni á dögunum að bandarískar rann- sóknir þættust hafa leitt í ljós að fólk hugsaði óvenju skýrt fyrir áhrif nærliggjandi lægða. Það þykir mér undarlegt, nema þær rannsóknir hafi t.a.m. átt sér stað í mollulegum Suðurríkjunum. Þá er skiljanlegt að hvers kyns vindstrókar valdi mönnum innblæstri. En almennt má ætla að staðviðri stuðli að hugarfestu en misviðri að mis- lyndi og rótleysi hugans. Aumingja við... En nóg af sjálfsvorkunnsemi. í pottinn með spaghettíið. Pasta í ótal stærðum og geröum Spaghettí og makkarónur er það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar ítalskan mat ber á góma. Hvort tveggja fellur undir það sem ítalir kalla pasta. Orðið pasta merkir einfaldlega deig (sbr. páte á frönsku) sem er búið til úr hveiti, vatni, salti, feiti og oftar en ekki eggjum. Talið er að sumar pastategundir eigi sér æva- langa sögu. Hversu langa er ógerlegt að skera úr um, en það er fyrst nefnt í matreiðslubók frá 13. öld. Sumar sagnfræðilegar heimildir herma að það sé mörg þúsund ára gamalt, eða allt frá því um 5 þúsund árum f. Krist. Alltént hafa ítalir reynt að halda saman öllum heimildum um þennan vinsæla þjóðarrétt, hafa m.a.s. reist sérstakt spaghettísafn í Pontedassio á ítölsku rívíerunni, Museo Storico degli Spaghetti. Munurinn á spaghettíi og makkarónum er eink- um sá að spaghettíið er þétt í sér en makkarónurn- eftir Jóhönnu Sveinsdóttur ar holar. Orðið spaghettí merkir fyrir víst þræðir, en uppruni orðsins makkaróna er óviss. Sumir álíta að það sé komið af gríska orðinu makar sem þýðir hamingjusamur. Aðrir telja að það reki rót sína til latnesku sagnarinnar maccare sem merkii að hamra eða slá. En ítalir framleiða miklu fleiri pastategundir en spaghettí og makkarónur. Þarlendis er hægt að kaupa í verslunum hátt á annað hundrað pastateg- undir. Þær bera margar hverjar skemmtileg nöfn í ætt við lögun sína, s.s. capelii d’ angelo (englahár), capelli de prete (prestahattar), conchiglie (snigla- hús), creste de galli (hanakambar), farfalle (sumarfuglar), lingue di passeri (spörvatungur), lumache (sniglar), mustaccioli (lítil yfirvara- skegg), occhi di lupo (úlfaaugu), ricciolini (litlar krullur), stelle (stjörnur), stivaletti (lítil stígvél), vermicelli (litlir ormar) og ziti (brúðgumar). í búðum hérlendis má alltént fá auk venjulegs spaghettís gnocchi, makkarónur sem rninna á kuðunga, pcnne, fjaðurpennaodda, lasagne, stór- ar pastaplötur sem eru soðnar fyrst og síðan bakaðar í ofni með sósu og osti, farfallc, surnar- fugla, tagliatelle, núðlur sem einnig eru nefndar fettuccine eða bandspaghettí. { búð Náttúrulækn- ingaféiags íslands oge.t.v. fleiri stöðum er hægt að fá bandspaghettí úr heilhveiti. Og að lokum verm- icelli, fíngerða spaghettíþræði sem mikið eru not- aðir í súpur. Pastasósurnar geta verið enn fjölbreytilegri en pastategundirnar sjálfar. Allir þekkja sjálfsagt spaghetti alla Bolognese,spaghettí með nauta- hakksstyrktri tómatsósu, en allt eins má nota út í tómatsósuna kjúklingakjöt, fisk, skelfisk eða grænmeti eingöngu, svo fátt eitt sé nefnt. En ítalir borða einnig olíusósur og kotasælusósur ineð pasta. Semsagt, sósuna má ætíð aðlaga dyntum og fjárhag. Hinir matgírugu Italir borða pasta yfirleitt í forrétt, en ég geri nú ráð fyrir að flestum okkar henti það betursem aðalréttur ásamt góðu brauði, og þá e.t.v. eftir að hafa gætt okkur á léttu hrá - salati. Hér á eftir fara nokkrar þekktar sósuuppskriftir sem má svo sem borða með hvers kyns spaghettíi eða makkarónum, þótt þær beri e.t.v. samkvæmt ítalskri matargerðarhefð nöfn tiltekinna pastateg- unda. En fyrst ber að huga að suðu pastans sjálfs. Alúð skal sýna við pastasuðu Mauksoðið pasta er ekki sérlega girnilegt. ítalir vilja hafa það al dente, þannig að tennumar finni mótstöðu þegar bitið er í það. Því er gott að hafa eftirfarandi í huga: < 1. Hitið ríflegt vatn í stórum potti, gjarnan 11 af vatni fyrir hver 100 g af pasta. 2. Setjið u.þ.b. 1 tsk. af saíti út f vatnið þegar suðan er komin upp. 3. Setjið gjarnan 1 msk af olíu út í vatnið, þá festist pastað síður saman. 4. Setjið pastað út í sjóðandi vatnið. Reiknið með u.þ.b. 70 - 100 g á mann, en það fer eftir því hversu matarmikil sósan er. 5. Sjóðið pastað eftir leiðbeiningunum utan á um- búðunum, en hyggilegast er að víkja ekki frá pottinum á meðan, heldur gæta þess að pastað sjóði við jafnan hita og sé á stöðugri hreyfingu. Því getur verið gott að hræra í því jafnt og þétt með trégaffli. 6. Þegar pastað er soðið hellið þið því í sigti og látið vatnið renna vel af því. Gott er að setja smjörklípu út í pastaskálina, með því móti fest- ist það síður sarnan, jafnvel þótt það standi dálítið. Ragú Alla Bolognese Þessi þekkta sósa fer vel með hvers kyns pasta. Uppskriftin er handa 4-6. 50 g reykt svínaflesk (mó sleppa) 1 laukur 1 lítil gulrót 1 sellerístöngull 1 hvítlauksgeiri 2 msk smjör 200 g nautahakk 1 dl kjötkraftur 1 dl rauðvín 1 dós niðursoðnir tómatar (450 g) 1 msk söxuð steinselja (eða 7; msk þurrkuð) 1 tsk orcgano ögn af múskati salt og pipar 50 gr. sveppir 1 dl rjómi (má sleppa) 1. Skerið skinkuna í ræmur, sakið laukinn smátt, skerið gulrótina í þunnar sneiðar og sellerístöngulinn einnig, merjið hvítlaukinn. Hitið olíuna í potti og léttsteikið framantalið hráefni upp úr henni í 4-5 mínútur, en án þess að það brúnist. 2. Setjið kjöthakkið út í pottinn og hrærið í þar til hakkið hefur brúnast lítillega. Hellið þá kjöt- krafti rauðvíni út í pottinn og látið malla víð vægan hita í u.þ.b. stundarfjórðung. 3. Hellið nú tómötunum út í og kryddið með steinselju,ore6ano, múskati, salti og pipar, og látið sósuna sjóða í hálftíma til viðbótar. Gætið þess að hún þorni ekki um of, e.t.v. getur reynst nauðsynlegt að bæta út í hana meiri kjötkrafti eða rauðvíni meðan á þessari suðu stendur. 4. Hreinsið sveppina, skerið þá í sneiðar og setjið út í pottinn. Bætið rjóma út í, ef vill. Látið sósuna sjóða enn í 5 - 10 mín. Tagliatelle meö Kotasælu Afar fljótleg pastasósa handa 4-6. ítalir nota parmesanost út á pasta. Sá ostur er þurr og nokk- uð bragðsterkur, ævinlega mjög fínt rifinn. Hann fæst í sumum verslunum hérlendis í litlum staukum eða pokumt-d. í Austurveri við Háa- leitisbraut). Annars má að sjálfsögðu nota hvers kyns ost. 25 g smjör 100 g beikon, skorið í ræmur 200 g kotasæla (1 dós) 50 g riflnn (parinesan)ostur Steikið beikonræmurnar í smjörinu. Deilið kota- sælunni á diskana. Látið renna vel af pastanu og deilið á diskana, þá beikoninu, og stráið að lokum rifnum osti yfir. Tagliatelle meö kræklingum, sardín- um og papriku Fljótleg og fremur matarmikil sósa handa 4-6. 1 saxaður laukur 2 msk ólífuolía 6 sardínur 1 1 dós niðursoðnir tómatar (450 g) 2 grófsaxaðar grænar paprikur 1 marið hvítlauksrif 1 dós niðursoðnir kræklingar (150 g) Léttsteikið saxaðan laukinn í olíunni. Hellið tóm- ötum og sardínum út í pottinn. Látið sjóða við vægan hita með loki í 5 mín. Setjið saxaðar paprik- urnar og marinn hvítlaukinn út í og látið sjóða í 15-20 mín. til viðbótar. Hellið vökvanum af krækl- ingunum, setjið þá út í sósuna og látið þá gegn- hitna. Berið sósuna fram ásamt heitu pastanu,, brauði og rifnum osti, ef vill.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.