Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 14.01.1983, Blaðsíða 13
13 hlelgai----- .pðsturinrL Föstudagur 14. janúar 1983 inyndir: Jim Smarl „SATT er von íslenskrar dægurlagatónlist- ar í dag“, fullyrðir Jóhann. „Við erum búnir að hjakka lengi í sama farinu. Það hefur ekk- ert breyst. Og það mun heldur ekkert breytast nema tónlistarmenn geri sjálfir eitthvað í því. Þetta veltur allt á trú manna á eigin mátt“. Það er eiginlega fyrst núna að verulegt líf er farið að færast í SATT, þó enginn haldi fram að erfiðleikarnir séu fyrir bí. Popparar eru langt frá því stéttvísir menn. „Það var búið að ræða málin lengi án þess að nokkuð væri gert“, sagði Jóhann. „Það var eiginlega Hörður Ólafsson lögfræðingur sem var aðalhvatamaðurinn að stofnun SATT. Þannig var að ég sendi nokkur lög 1978 í American Song Festival og komst með þau í undanúrslit. Ég var í Póker á þessum tíma og við vorum einnig að velta fyrir okkur að fara til Bandaríkjanna, þannig að ég þurfti af tveimur ástæðum á lögfræðiaðstoð að halda í sambandi við höfundarréttarmál. Hörður er gamall trommari, svo ég hafði samband við hann. Og þegar við erum að ræða höfundar - téttarmálalmenntspyr hann hversvegna viðdrífum ekki í því að stofna með okkur samtök, sem hefðu eitthvað að segja um þessi mál. Það varð úr að við gerðum tilraun. Þetta var ’78 og það mættu þrír. Málið fór auðvitað í salt. Popparar í hundraðatali Ári seinna, 1979,komst aftur skriður á mál- in þegar Sigurjón Sighvatsson var staddur hér. Hanri vildi að við drifum í þessu og við sömdum um að hann hringdi út i mann- skapinn, en ég flytti framsöguræðuna. í þetta skipti tókst það - á fundinn komu 50 til 60 manns og skömmu seinna héldum við fram- haldsstofnfund“, segir Jóhann. „íslenskir popparar eru nú á milli þrjú og fjögur hundruð talsins. Það er álitlegur fjöldi. Gailinn er sá að margir yngri poppar- anna sérstaklega hafa verið frekar andfélags- lega sinnaðir og þá litið á SATT sem eitthvað í líkingu við FlH. Það var ekki fyrr en núna í haust að þetta fólk gekk almennt til liðs við félagið". Baráttumál SATT er fyrst og fremst eitt: Að skapa tónlistarmönnum, poppurunum, viðunandi aðstæður til að vinna við. „Aðal- málið“, segir Jóhann, „hlýtúr að vera að tón- listarmenn sem skara fram úr geti leikið sfna tónlist fyrir almenning. Slík tækifæri hafa ekki verið mörg á síðustu árum. Margir sem sækja íslenska skemmtistaði að staðaldri nafa til dæmis aldrei séð EGÓ leika á sviði, og er húri þó ein allra vinsæla6ta hljómsveitin í dag. Nú erum við að vinna að þvf, í samráði við eigendur skemmtistaðanna, að þeir kaupi hljómsveitir til að leika í svona klukkutíma á kvöldi. Að diskótekin sjái um danstónlistina, en að hljómveitin verði einskonar „show“. Þetta hefur hingað til strandað á rúllu- gjaldinu, en við erum að vonast eftir sam- komulagi við skemmtistaðina um að þeir hækki rúllu-gjaldið um svona 20-30 krónur, það er að segja ef ríkið liti á framkomu hljómsveitanna sem tónleika og tækju aðeins 10% skemmtanaskatt, helst ekkert. Meira þarf ekki; ég er sannfærður um að þetta mundi mælast vel fyrir. Þetta mundi skapa meiri stemmningu á skemmtistöðunum vegna þess að stærsti hluti gesta þeirra hefur áhuga á tónlist. Við erum að vonast eftir að geta gert tilraun eina helgi, og þá í allflestum skemmtistöðunum í einu - til að sjá hvernig þetta kæmi út“. Kaninn í Keflavík Öll þessi mál þekkir Jóhann G. vel af eigin raun. Hann er sem kunnugt er af eldri kyn- slóð poppara og hefur um tveggja áratuga reynslu af heimi þeirra. Hann er einn Kefla- víkurbítlanna. „Ætli þaðgildi ekki það sama fyrir mig og liir^a strákana þarna í Keflavík. Það hefur sjálfsagt verið Kaninn sem fleytti þessu óbeint af stað. í honum hafði maður möguleika á að hlusta á það nýjasta í músík- inni og það hafði auðvitað áhrif á mann“. - Hversu góðir voru þið á þessum árum. Til dæmis ef við miðum við unglingahljóm- sveitirnar sem tóku þátt í músíktilraununum um daginn? „Það er erfitt að segja til um það. Góðu einstaklingarnir eru inn á milli og þeir koma ekki almennilega fram fyrr en eftir nokkurn tíma. En nú er komin miklu meiri hefð á þessa tónlist. Lengi vel vorum við bara að kópera beint vinsæl erlend lög. Ekkert frum- samið. Nú eru lögin orðin mun þróaðri, og þessar ungu hljómsveitir eru meira og minna með frumsamið efni“. Óðmenn - En var ekki miklu meiri persónudýrkun þá. Voruð þið ekki miklu meiri hetjur? „Það held ég ekki. Líttu bara á Bubba. En þó má benda á að þá - svona 67 til 69 voru hljómveitir miklu meira í sjónvarpinu - and- litin voru þekktari. Við það skapast meiri spenningur í kringum einstaklingana". Jóhann G. var í Óðmönnum þegar bítla- tíminn stóð sem hæst, hljómveit sem var í alla staði venjuleg fyrir þann tíma, og spilaði mik- ið á sveitaböllum og hér í Reykjavík. Hann spilaði á bassa og söng. í kringum 1968 verða svo talsverðar sviptingar í íslenskri dægurtón- list. Þá hættu tvær vinsælustu hljómsveitirn- ar, Hljómar og Flowers,svo úr varð ein - Trúbrot. Um svipað leyti hættu Óðmenn, og Jóhann G. fór að spila rólegri músík í Þjóðleikhúskjallaranum. Uppúr því urðu Óðmenn númer 2 til, og það er fyrir veru sína í þeirri hljómsveit sem Jóhann er líklega þekktastur. En tíminn getur stundum fegrað minninguna. „Við fórum útí að spila mjög prógressíft efni, og mikið af því var okkar eigið. Það átti ekki allsstaðar uppá pallborðið, og við neituðum að spila vinsældalög. Við vorum eiginlega akkúrat á þeirri línu sem böndin eru á í dag. Við höfðum líka sérstöðu að því leyti að við vorum frekar einangraðir, þóttum líta mjög stórt á okkur. Prinsipp hjá okkur var að drekka ekki meðan við vorum að spila. Ekki þannig að við værum reglumenn, í þeim skilningi og ábyggilega voru prinsippin ein- hvern'tíma brotin. Basl En málið var að við spiluðum frekar lítið. Við vorum langt frá því að vera vinsælt dans- band. Það liðu stundum tveir mánuðir á milli þess sem við spiluðum. Það var helst ef að einhver önnur hljómsveit forfallaðist að hóað var í okkur til að redda málunum. Ég man til dæmis eftir einu skólaballi á Selfossi, þar sem við gerðum reyndar góða lukku, að við vor- um fengnir vegna þess að Jónas R. kvefaðist skyndilega. Þannig var að Benedikt Viggós heitinn skrifaði einu sinrei að ekki væri hægt að dansa eftir tónlist okkar, og átti þá við að Óðmenn væru fyrst og fremst tónleikahljóm- sveit. En þetta festist við okkur - viðvorum hljómsveitin sem ekki var hægt að dansa eftir. Það sem bjargaði okkur var að við fengum umboðsmann, Ágúst Þór Jónsson, sem nú er byggingaverkfræðingur. Hann tók í hnakka- drambið á okkur og fékk okkur til að æfa fjögur eða fimm vinsældalög. Þar með náðum við að spila síðasta sumarið okkar. Við enduðum á stóra tvöfalda albúminu. Þetta var óttalegt basl allan tímann og á end- anum voru það fjármálin sem og erf- iðleikarnir í kringum þau sem urðu til þess að við hættum. Og því miður hefur þetta lítið breyst. Fjár- málin eru alltaf að vefjast fyrir mönnum. Og nú eru staðirnir farnir að velta ábyrgðinni yfir á hljómsveitirnar. Þannig að þær fá skellinn ef aðsókn er drærn. Sjáðu til dæmis Mezzo- forte. Þeir hættu að spila núna um áramótin eftir að hafa verið að frá því í sumar. Þeir gáfust bara upp á þessu í bili vegna þess að þeir höfðu ekkert uppúr því. Ef vel gekk á einum stað, þá fór það á næsta. Það er hægt að standa í þessu í svolítinn tíma, þegar maður er ungur og hress, en þreytan segir fljótt til sín, sérstaklega þegar fjölskyldur eru komnar til sögunnar. Enda eru fslenskar hljómsveitir ekki langlífar.“ Samdi lítið - En hvernig hljómlistarmaður telur Jó- hann G. Jóhannsson sig vera? „Það má eiginlega segja að ég hafi sem tónlistarmaður svikið sjálfan mig. í Óð- mönnum II samdi ég frekar efni sem þótti prógressíft, texta með ádeiluívafi, og held því, að nokkru áfram með Náttúru eftir að Óð- menn hættu. Slíka tónlist er best að vinna í hljómsveit þar sem náin tengsl skapast. En þegar . ég hætti með Náttúru hætti ég meira og minna í spila- mennskunni og fór yfir í myndlistina. Þá fóru ýmsir að leita til mín eftir lögum á plötur sínar. En það var sérstök tegund sem menn vildu fá af lögum - „hit“ lög - lög sem líkleg voru til vinsælda. Og afleiðingin hefur verið sú að það er þessháttar tónlist sem ég er þekktur fyrir sem tónlistarmaður hin síð- ustu ár.Þessu má kannski líkja við bónda sem er með nokkrar kindur, en vill haldá stórbú. Og um leið og ég hætti að spila nætti ég auðvitað að þróast sem spilari. Ég kem reyndar aftur inn 1978 - í Póker. Þá var stefnt að því að fara út til Bandaríkj- anna að spila. En þegar á reyndi, þegar við vorum komnir með samninginn í hendurnar, þá var samstarfið brostið. Sama gamla sagan.“ Tjáning á inntökunni Jóhann G. hefur verið öllu meira við myndlistina en músíkina sfðastliðin 10 til 12 ár. „Ég er aðe'ins eitt dæmið af mörgum tón - [istarmönnum sem hafa hætt vegna aðstöðu- leysis til að vinna að frumsömdu efni og flytja opinberlega. Það nenna svo fáir að standa í því til íengdar að digga upp vinsæl lög til að spila á böllum", segir hann. En hvernig myndlistarmaður er hann að eigin mati? „Ég er að minnsta kosti mjög breytilegur. Það fer mikið eftir sálarástandinu hvernig ég mála, og ástæðum hjá mér hverju sinni. Til marks um það get ég nefnt að ég bjó um tíma í lítilli, mjög þröngri íbúð. Þá málaði ég eink- um dimmar, litlar myndir. En þá flutti ég í stórt einbýlishús í Garðabæ, bjó þar í eitt ár. Við þetta gjörbreyttust myndirnar. Litirnir urðu bjartari og myndirnar stærri. Án þess að ég tæki eftir því fyrr en eftirá. En svona er þetta. List er bará tjáning á því sem maður tekur inn. En ég hef lítið sem ekkert getað málað undanfarin ár. Ég fór útí að reka gallerí og nánast öll mín orka hefur farið í það, og svo auðvitað SATT“. Meðfram Gallerí Lækjartorgi hefur Jó- ‘ hann reynt að brydda uppá ýmsum nýjung- um. Hann opnaði meðal annars hljómplötu- verslun þar sem eingöngu væru seldar ís- lenskar plötur. gamlar sem nýjar, og nú í ceinni tíð einnig vinsælar erlendar hljóm- Plötur. „Salan á hljómplötum hefur byggst á hrað- sölu. Plöturnar seljast í einn til tvo mánuði, en síðan eru þær nánast ófáanlegar. Það er betta gat sem vantar upp á þjónustu við kúnnana sem ég er að reyna að fylla. Og núna er ég að fara af stað með nýjung - myndaútleigu. Hugmyndin er þá sú að fyrir- tæki og einstaklingar geti í gegnum hana tekið á leigu myndir um ákveðinn tíma og skilað þeim síðan inn aftur, eða keypt á kaupleigusamningi. Undir stöðurnar Og Jóhann G. súmmerar upp starf sitt að undanförnu: „Mín orka hefur undanfarið að meira og minna leyti farið í að vinna að undir- stöðunum í tónlistinni og myndlistinni. Ég er að reyna að breyta því sem ég hef af reynslunni fundið að er ábótavant. Finnst þér þú vera á réttri hillu í lífinu? „Já, það finnst már. Að vísu mundi ég gjarnan vilja vinna meira á sviði tónlistar og myndlistar - að listsköpuninni sjálfrL Ég held ég hafi gert mér grein fyrir strax í upphafi að ég yrði að vinna að verkefnum sem ég hefði áhuga á. Ég held til dæmis að ég gæti aldrei sætt mig við brauðstritið, eins og það er kallað. Að strita bara til að hafa í sig og á. Það verður að vera eitthvað meira á bak- við. En þetta þýðir líka að ég verð seint há- tekjumaður. Áð þessu leyti er ég efni í hug- sjónamann. Ég vinn oftast meira útfrá tilfinningu en kaldri rökhyggju. Stundum tek ég langan tíma í að melta mál, sem ég hætti kannski að afgreiða í skyndi. Ég mætti vera betur skipu- lagður, ég finn fyrir því núna þegar ég er farinn að reka fyrirtæki. Svo held ég að ég geti með nokkurri vissu sagt að ég er fremur hlédrægur maður. Ég kann að mörgu leyti ekkert sérstaklega vel við mig í sviðsljósinu, þó ég hafi getað tekið því sæmilega í gegnum tíðina. Þess vegna held ég að ég hafi bara haft gott af því að vinna þessa vinnu sem ég hef unnið að undan- förnu, því ég hef þurft að umgangast mjög mikið annað fólk. En dagfarslega kann ég best við mig útí horni“.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.