Helgarpósturinn - 04.03.1983, Page 7

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Page 7
V,*'" Guðjón Pedersen og Ragn- heiður E. Arnardóttir í Frök- en Júlíu — Strindberg kemst hygg ég merkilega vel til skila, myndirnar og athafnirnar sem þau sýna liggja í raun í texta hans, segir Sigurður m.a. í um- sögn sinni Fröken Júlía — prýðHeg /eiksköpun Gránufjelagið sýnir í Hafnarbíói: Fröken Júlíu Höfundur: August Strindberg Þýðandi: Geir Kristjánsson Leikstjóri: Kári Halldór Leikmynd og búningar: Jenný Guðmundsdóttir Lýsing: Ingvar Björnsson Framkvæmdastjórn: Ingibjörg Guðmundsdóttir Leikendur: Júlía: Ragnheiður Arnardóttir Jean: Guðjón Pedersen Kristín: Kristín Kristjánsdóttir Per Olof: Þröstur Guðbjartsson Carl Johan: Gunnar Rafn Guð- mundsson Proust: undarlega hugljómandi endurfundir við skynræna upp- lifun, einhvers sem er löngu liðið og gleymt en hefur samt haldið áfram að vera til og endurskapast í þessari merkilegu maskínu sem minnið er. (Þannig endurmótast leiksýningar líka á undarlega draumvirkan hátt í minninu.) Kandís sagði ég já. Þetta var nú bara örskotsstund í anddyrinu á leiðinni inn í salinn. Strindberg Það er hættuspil að flytja stutta kafla úr leiksýningum í sjónvarpi til kynningar. Ég sá smábút úr sýningunni um daginn og fékk Nýtt leikfélag Nýtt leiklistarkompaní frum- sýndi fyrsta verk sitt á mánudag- inn var í Hafnarbíói, sem hýsir um þessar mundir tvö önnur kompaní: Revíuleikhúsið og Alþýðuleikhúsið. Fólki snjóaði inn í þröngt anddyrið á þessu leikhópeflda bíói og myndaðist brátt skafl. Ég lenti þeim megin í skaflinum sem sneri að greiðasöl- unni og sjá: þar var kaffi til sölu á mjög alúðlegu barborði með hvítklæddum ungum stúlkum innan við og umhyggjusamlegir dúkar undir stellinu og kandís- sykur í krukku. Kandís! Ég get ekki lýst því sem hrærðist innra með mér, það var eitthvað í lík- ingu við madeleine-kökuna hans allt aðra mynd af sýningunni en kom á daginn (Ég fékk það hálf- partinn á tilfinninguna að þetta væri einhvers konar útgáfa „lík- amlega leikhússins“ sem stundað var af ofþrótti um gjörvalla Vestur-Evrópu og víðar fyrir fimmtán til fimm árum síðan. Svo var alls ekki). Sýningin byrjar á leikrænni upphitun. Eltingaleikur með ýmsum forskriftum. Leikararnir tala ennþá ekki fyrir okkur, held- ur sín á milli. Eitt augnablik ótt- aðist ég að þetta væri að verða voða svona frjálslegt og tilgerðar- legt en það voru í raun leifarnar af hug-myndinni sem ég hafði skapað mér eftir að sjá kaflann í sjónvarpinu. Þetta var semsé ekki ein af þessum sýningum sem er leikræn upphitun og líkams- þjálfun út í gegn, textalaus o.s.frv. Alls ekki. Þetta reyndist nefnilega sýning á leikverkinu Fröken Júlía eftir Strindberg. Al- veg prýðileg leiksköpun á því góða verki. Fyrrgreind upphitun er í raun mjög merkingarbært inngangsatriði í hugmyndaheim verksins. Mér finnst hún koma til skila Jónsmessunóttinni, hömlu- lausum ærslum og þrá miðsumar- ofsans. Mér virðist þessi marg- brotna ást-haturflétta milli Júlíu og Jeaaauk Kristínar bjóða upp á líkamlega spennta útfærslu, bjóða upp á að teikna þessa spennu í leikrýmið. Athugum ,, fyrst hvernig því er hagað. í takti Salurinn í Hafnarbíói er auðvitað svona í meðallagi eins og skáldið sagði. Égverð að segja að útfærsla Jennýar er ein sú besta sem ég hef séð þar. Hún velur þann kostinn að dansa eftir þeim takti sem bíósalurinn gefur, ef svo má að orði komast. Hún býr til gafl sem fylgir braggalögun hússins og hefur hann úr efnivið þess líka, þeas. bárujárni. Á þessum gafli eru svo þrjú op, sem mynda þrjú innri leikrými og auk þess er stigi úr miðsvæðinu upp í efra rými, sem við sjáum að sönnu ekki en vitum af á allt annan hátt heldur en ef leikararn- ir færu út af sviðinu til hliðanna. Þessi útgönguleið veldurþví að sá sem þangað fer er allan tímann yfirvofandi í orðsins fyllstu merk- ingu. Þannig er lítil lofthæð í saln- um virkjuð á skemmtilegan hátt en alveg sleppt að hafa hliðar- rými eða útgönguleiðir til hliðanna. Innri leiksvæðin þrjú skiptast þannig í grundvallaratr- iðum að til vinstri er fatahengi, í miðjunni eldhúshlutir, pottar, eldavél (Rafha gömul eða tíma- laus), strauborð o.s.frv. Til hægri er svo spegill og hægindastóll, sem nýtist ágætlega í smámynda- byggingu t.d. í seinni hlutanum þegar Carl Johan situr þar sem fjarlægt vitni að átökunum; maður með hatt andspænis speg- ilmynd sinni. Veggir eru ljósgrábláir en gólf- ið öllu ástríðukenndara: rauð- leitt. Gólfið er í sumum köflum nokkuð mikilvægur vettvangur átakanna og það sem ég hélt vera líkamsþjálfunarleik í sjónvarpinu var yfirleitt alveg trúverðugt í ramma og aðferð sýningarinnar. Dæmi um slíkt ert.d. kaflinnþeg- ar Jean og Júlía koma niður og Júlía komin úr efri hluta gula dressins. Jean svartklæddur held- ur á því. Þessi litablöndun hinna andstæðu póla þótti mér vel heppnuð. Éinstaka hlutir varð- andi búninga orka meir tvímælis, einkum þó búningur Júlíu í loka- atriðinu. Pólar Andstæðir pólar. Það er a.m.k. tvenns konar spenna í gangi milli þeirra Júlíu og Jean, langsum og þversum ef svo mætti segja. Spenna milli karls og konu og milli einstaklinga af sitt hvorri þjóðfélagsstétt. Þessir hlutir flétt- ast saman og birtast í ótal til- brigðum. Nokkra athygli hefur vakið að aukið er í sýninguna tveimur leikendum, sem ekki eru í texta Strindbergs. Þetta er auðvitað alveg sjálfsagður hlutur ef leikstjórinn kýs að hafa það svo. Leiksýning er sjálfstæður aðili og allar útfærslur á leiktexta leyfilegar. Engin uppsetning er sú rétta, engin aðferð á einkarétt. Stundum eru menn að tala um svik við eitthvert leikrit, að á- kveðin uppseming sýni ekki trún- að við leikverk. Nær væri í raun að tala um hvort sýning sé sjálfri . sér trú eða ekki. Ég sá ekki betur en þessar aukapersónur ættu vel heima í sýningunni og gengju á- reynslulaust inm' formgerð henn- ar. Ég las þessa kappa tvo, Per Olof og Carl Johan eins og þeir eru nefndir í leikskrá, sem nokk- urs konar persónugervinga þeirra tilbrigða sem um er að ræða í löngunum og kenndum þjónsins Jean. Ég hef hér minnst á spennu í samskiptum persóna, spennu sem komið er til skila oft á tíðum með nokkurri líkamlegri spennu, einkum hjá Guðjóni; Jean. Hins vegar finnst mér sem textameð- ferð sé ekki alveg alltaf fylgjandi þessari spennu; ég er ekki frá því að meiri þensla í texta væri til bóta, það er stundum undirspilað um of. En margt er eftirminnilegt í þessari sýningu, kannski vegna þess hvað Kára hefur tekist að finna oft á tíðum skýra og afdrátt- arlausa sjáanlega hluti: athafnir og hreyfingar. Ég nefni tvö dæmi: þegar Kristín hrekkur upp af svefni í stiganum og þegar Júlía gengur línudans á sviðsbrún í loka- mónólógnum. Það væri gaman að fjalla nánar um þessa sýningu og velta vöngum yfir ýmsu; ég hef minnst heldur á ýmsa hluti sem mér finnst ganga upp, aðrir finnst mér gera það síður, en í heild er þetta mjög ánægjulegt og einlægt verk og nýstofnuðu Gránufjelagi til sóma. Strindberg kemst hygg ég merkilega vel til skila, mynd- irnar og athafnirnar sem þau sýna liggja í raun í texta hans (sem Geir Kristjánsson hefur þýtt prýðisvel). Þau takast á við text- ann, en hafa ekki lamast af ótta- blandinni virðingu fyrir sígildi hans eins og stundum vill verða. Kassinn Ég get ekki látið hjá líða að minnast á stutt viðtal við Kára Halldór í sjónvarpinu þar sem fréttamaður sagði á þessa leið: „Nú erFtöken Júlía ekki kassa- styl±i. llvemig er með fjármál- in?“ Mér finnst þessi fullyrðing dæmi um það hvernig blaðamenn fara oftlega fram á svör við svör- um en ekki spurningum. Og auk þess spyr ég: síðan hvenær hefur Fröken Júlía ekki verið kassa- stykki? Ég held hún hafi verið það í 95 ár eða svo. (Skrifuð 1888, ári á eftir Föðurnum og ári á undan Kröfuhöfum. Áratug áður en D- leikritin springa út: Til Damask- us, Draumaleikur, Dauðadans- inn. Allt eru þetta hornsteinar nútímaleikritunar og stöðugt sækja menn hvatningu og spurn- ingar í leit sinni í Strindberg.) S.P. „Geysimagnað verk" segir Róbert Arnfinnsson, sem fer með hlutverk Agamemmnons í Óresteiu Æskýlosar „Ég kem fram í einu atriði, en et drepinn blessunarlega fljótt.” Þetta sagði Róbert Arnfinnsson leikari, sem fer með hlutverk Aga- memmnons konungs af Þebu í þrí- leik Æskýlosar Óresteiu, sem Þjóð- leikhúsið frumsýndi á miðvikudag. Ekki það, að honum finnist þetta ómerkilegt „Þetta er geysimagnað verk.einsog grísku harmleikirnir eru oft.” Aðspurður hvort leikarinn þyrfti að beita öðrum vinnubrögðum við verk af þessari tegund, kvað Róbert svo vera. „Þetta er allt í hálfbundnu máli og maður þarf að faraýmsar króka- leiðir til að koma textanum til skila. Þýðingar eru yfirleitt fyrst og fremst gerðar til aflestrar og menn geta legið yfir þeim og velt fyrir sér. Okkur er hins vegar lagt það á herð- ar að koma textanum til skila á sek- úndubroti þannig að aliir skilji hann,” sagði hann. Róbert bætti því við, að þýðing Helga Hálfdánarsonar væri mjög góð og vandinn yrði því kannski Róbert Arnfinnsson ekki minni, setningar og málsgrein- ar væru það meitlaðar, að erfitt gæti verið að ná dramatísku sam- hengi. Róbert var þá spurður hvort svona gamalt verk ætti erindi við leikhúsgesti í dag. „Þetta er verk, sem alltaf á er- indi, eins og allar heimsbókmennt- irnar”, sagði hann. Hins vegar kæmi hann kannski ekki auga á hvort efni verksins sem slíkt ætti beinlínis erindi, nema þá það að þarna væru menn alltaf að drepa hver annan, eins og í dag, og einnig væri þarna eitthvað um mannát. „En ég er nú ekki viss um að menn stundi það nú til dags, sagði Róbert Arnfinnsson.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.