Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 04.03.1983, Qupperneq 12

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Qupperneq 12
Björn G. Björnsson heldur uppi stöðugu sambandi við útlönd þessa dagana, og skyldi engan furða. A tvennum vígstöðvum, Stokkhólmi og London, eru menn að leggja síð- ustu hönd á frágang kvikmyndar- innar „Húsið-Trúnaðarmál”. Frumsýning verður annan laugar- dag, 12. mars. Tvö fyrirtæki standa á bak við gerð myndarinnar, Hugmynd og Saga-Film, og eigendur þeirra, Björn, Egill Eðvarðsson, Jón Þór Hannesson og Snorri Þórisson, eru allir gamlir samstarfsmenn, fyrst í Sjónvarpinu og síðan hafa fyrirtæk- in haft nána samvinnu við gerð sjónvarpsauglýsinga. „Húsið-Trúnaðarmál” er fyrsta bíómyndin, sem þessi tvö fyrirtæki framleiða, og okkur leikur forvitni á að vita hver aðdragandinn að gerð hennar hafi verið. „Það er alveg klárt mál, að þegar menn vinna að litlum auglýsingamyndum og skyld- um knöppum verkefnum, kemur alltaf upp löngun til að takast á við eitthvað stærra og meira. Við gengum út frá því i upphafi, að ef við gerðum mynd, yrði hún frumsamin. Við vild- um alls ekki hnýta kvikmyndagerðina aftan í bókmenntirnar eða einhverjar aðrar listgrein- ar. Þegar við erum að byrja kvikmyndagerð í landinu, er engin ástæða til þess að ráðast á stórfelld afrek á einu listsviði til þess að reyna að koma sér á lappir á öðru. Af herju ekki að koma upp verkþekkingu, af hverju ekki að læra aðferðirnar við að gera handrit og segja sögu í myndum og koma okkur upp ákveðn- um standard í kvikmyndagerð? Þá getum við tekist á við Njálurnar og hvað það nú heitir, en ekki fyrr”. Þá er það efni myndarinnar. Um hvað á hún að vera? Björn segir frá því er þeir félagarnir komu sér fyrir í risherberginu á Torfunni með kaffi og kökur á borðinu, til þess að velta því fyrir sér. Lík í veggnum „Við vorum staddir í þessu gamla húsi og á fimm minútum kom hugmyndin upp: af hverju ekki gamalt hús? Þessi hús eiga sér sína sögu og þar hefur eitt og annað gerst. Ef vegg- irnir gætu talað, kæmist maður að ýmsu. Hvað er að gerast í bænum í dag? Ungt fólk flytur inn í gömul hús. Kannski er lík múrað inn í einn vegginn, og því ekki að spinna út frá því? Fljótlega hætti þetta að verða annað en kveikja og það næsta, sem við gerðum var að setja niður persónur. Þar fannst okkur nauð- synlegt að takmarka okkur og hafa fáar per- sónur”. — Þú talaðir áðan um knöpp verkefni, er þetta kannski angi út frá því? „Ég hugsa að öll sú vinna hafi mótað vinnu- brögð okkar. Auglýsingagerðin gerir miklar kröfur. Það þarf stundum að segja býsna mik- ið á tuttugu sekúndum og þá er enginn tími fyrir útúrsnúninga, aukaatriði eða smáatriði. Maður verður að ganga beint til verks og jafn- vel að hafa áhrif á fólk á þessum tuttugu sekúndum til þess að það fari og geri eitthvað. Kannski hefur þetta áhrif í þá veru, að það er tiltölulega Iítill texti í þessari mynd. Það eru langir kaflar, þegar farið er að líða á sögu- þráðinn, þar sem ekkert orð er sagt og myndin talar algjörlega”. — Þið eruð þrír skrifaðir fyrir handritinu (Björn, Egill og Snorri), hvernig gengur að vinna svona í hópvinnu? „Ég hef alltaf haft sérstakar skoðanir á öllu þessu hópvinnutali, sem hefur verið tískuorð síðustu árin. Hópvinna gengur alveg ágætlega í vissan tíma, en svo kemur alltaf að því, að það þarf að taka af skarið. Ef tíu menn færu að mála mynd, endaði hún sem einhver grár óskapnaður. Það kemur alltaf einhver punkt- ur í samvinnunni, þar sem lokað er á tillögu- gerðina og umræðurnar og einhver tekur af skarið og tekur ákvarðanirnar. Eftir það er þetta einræði. Einhver verður að bera listræna ábyrgð”. Egill og sneplarnir — Hvernig var þetta í ykkar hópi? „Við Iögðum efnishugmyndir í púkk. Upp- haflega hugmyndin um gamla húsið og unga fólkið er komin frá mér. Síðan stakk einhver upp á, að það væri gaman að flétta mystík inn í söguna, einhverju, sem spilaði inn á áhugann fyrir dulrænum fyrirbærum. Við köstum þessu á milli okkar, á fundum, í vinnunni og Egill hélt öllu til haga á smá sneplum. Við fór- um svo fram á það við hann, að hann ynni úr þessu. Það endaði með því, að fyrir ári síðan tók hann sér þriggja vikna frí úr vinnunni og fór til útlanda með sneplana og eitt og annað, sem við höfðum viðað að okkur, og gerði beinagrind að handriti. Þetta var aðeins at- riðahandrit, en samtölin unnum við síðast, eftir að við höfðum gert okkur grein fyrir því hverjir áttu að leika aðalpersónurnar og höfð- um kynnst því fólki”. Húsið-Trúnaðarmál fjallar um ungt fólk, sem flytur inn í gamalt hús í Reykjavík. Hún er kennari í heyrnleysingjaskóla, en hann er tónlistarmaður. Fljótlega eftir að þau koma í húsið, verður stúlkan vör við eitthvað, sem angrar hana. Um miðbik myndarinnar fer sambýlismaður hennar utan til náms og þá færast hinir dularfullu atburðir í aukana. Stúlkan heyrir raddir og verður meðal annars vör við, að í húsinu eru haldnir miðilsfundir. Hún einbeitir sér að því að leysa ráðgátu húss- ins og kostar það mikla og spennandi leit. Lausnin finnst í lokin, en að sjálfsögðu vilja aðstandendur myndarinnar ekki skýra frá því hver hún er. Það var trúnaðarmál Framleiðendur myndarinnar voru lengi vel mjög sparir á allar yfirlýsingar um efni henn- ar og segir Björn, að það hafi fyrst og fremst verið gert í því skyni að skemma ekki ánægj- una fyrir væntanlegum áhorfendum. En var þetta ekki jafnframt auglýsingastarfsemi með öfugum formerkjum? „Nei. Það var ekki fyrr en seinna, að við sá- um, að það var nauðsynlegt að varast það að auglýsa of mikið. Við sóttum um styrk í kvikmyndasjóð í fyrra til þess að gera mynd, sem hét Húsið, en við fórum fram á, að farið yrði með nafn og efni myndarinnar sem trúnaðarmál. Á öllum okkar umsóknum og blöðum stóð alltaf „trúnaðarmál”. Þegar hitt nafnið strikaðist síðan út, fór vinnuheiti myndarinnar að verða „Trúnaðarmál”. Við vorum hræddir við það á tímabili, að ef hún héti Húsið, myndi athyglin beinast of mikið að húsinu, sem er bara einn þáttur í myndinni. En þegar við vorum komn- ir vel af stað með hana, kom i ljós, að hún átti að heita Húsið áfram. Við tímdum svo ekki að missa Trúnaðarmálsnafnið út, þar sem búið var að kynna myndina undir því, enda á það ágætlega við um það leyndarmál eða trúnað- armál, sem um er að ræða í myndinni”. — Ef við snúum okkur aðeins að sjálfum þér, þá hefur þú lengi unnið sem leikmynda- teiknari, en ert ekki lærður sem slíkur. Hvað varð til þess að þú fórst að vinna sem slíkur? „Ég er alla vega ekki skólagenginn. Það byrjaði fyrir skemmtilega tilviljun. Þegar Sjónvarpið fór af stað 1966 vorum við félagarnir í Savannatríóinu beðnir um að vera með sex skemmtiþætti. Þetta voru fyrstu ís- lensku skemmtiþættirnir og við vorum með

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.