Helgarpósturinn - 04.03.1983, Síða 20

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Síða 20
20 Föstudagur 4. mars 1983 þjifisturinn. Meira en milljón í tannlækna á dag en koma þeir tönnunum í lag? Hvað skyldi kosta að gera við eina litla holu framan á miðri framtönn í efrigóm? Slík aðgerð er einföld, holan er á sléttum fleti og í hana þarf eina fyllingu. Verkið tekur tann- lækni 20-25 mínútur. í örlítilli skyndikönnun - með því að hringja á nokkrar tannlæknastofur og spyrja um- verð á slíkri viðgerð komumst við að því að hér í Reykjavík kostar hún frá um þrjú hundruð og upp í 1.630 krónur. Það var sem sagt meiraen 500 prósent munurá hæstu og lægstu tölu. Á öllurn tannlæknastofunum sem hringt var í var tekið fram að ekki væri hægt að gefa upp ákveðið verð í gegnum síma. Og á þremur stofum af átta var neitað að nefna nokkra tölu. Á stofu Björgvins Jónssonar var giskað á að þessi viðgerð kostaði 300 krónur. Á stofu Þórarins Sigþórssonar varsagtað verðið væri allt að kr. 1.630, þaðfæri eftirhvort væri notuð fylling sem kostaði 869 krónur eða 538 krónur, en um þessar tvær fyllingar væri að ræða. Á þremur stofum var farið beint í gjaldskrá tannlækna og þar er verðið 321 kr. og 61 kr. fyrir deyfingu, og er þá innifalinn efniskostnaður. í gær kom fram á alþingi að ríkisstjórnin hefur ákveðið að ríkið skuli endurgreiða ein- staklingum 20% af kostnaði við allar al- mennar tannviðgerðir. En þetta er svosem ekki í fyrsta skipti sem tannlækningar ber á góma í sölum alþingis. Þannig hefur nú til dæmis frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur og fleiri alþýðuflokksmanna um aukið eftirlit á verðlagningu tannlækninga legið hjá fjárhags og viðskiptanefnd alþingis í fjóra mánuði síð- an hún flutti það í haust. „Eg heyri stöðugt sögur af fólki sem þarf að borga alveg hrika- legar upphæðir fyrir tannlækningar, tugi þús- unda. Eg á því ákaflega bágt með að trúa að Dýr menntun Tannlæknamenntun er dýrasta menntun- in i nánast öllum löndum, og einnig hérlend- is. Það starfar fyrst og fremst af hinum dýru kennslutækjum, en einnig vegna þess að mikill fjöldi kennara er nauðsynlegur við verklegu kennsluna, sem er um helmingur námsins. Samkvæmt upplýsingum deildarforseta Tannlæknadeildar Sigfúsar Þórs Elíassonar eru nú um sjötíu manns í tannlæknadeild- inni og útskrifast 6 til 8 á ári hverjn. Um þrjátiu stunda nám á fyrsta ári, en aðeins átta er hleypt uppá annað ár. Fjöldinn á- kvarðast af tækjakostinum. Nú nýlega voru keyptir til landsins 23 tannlæknastólar og deildin er nýflutt í nýtt húsnæði. Rekstrarkostnaður deildarinnar er á þessu ári áætlaður rúmar fimm milljón- ir en kostnaðurinn vegna tækjakaupa og efniskaupa er mörgum sinnum hærri. í tannlæknadeildinni er hægt að fá ókeypis tannviðgerðir. allir tannlæknar fari eftir þeirri gjaldskrá sem þeir hafa og er í raun lágmarksgjaldskrá. Þar fyrir utan vil ég að sú gjaldskrá sé skoðuð miklu nánar en hefur verið gert, vegna þess að tannlækningar hreinlega geta ekki verið svona dýrar. Núna er fólk ákaflega varnar- laust gagnvart þessari verðlagningujsagði Jó- hanna í samtali við Helgarpóstinn. Lágmarksgjaldskrá Gjaldskráin sem Jóhanna talar um varð til 1975 þegar sett voru lög um endurgreiðslu Tryggingastofnunar á tannviðgerðum barna og ellilífeyrisþega. Þá var gerður samningur milli Ríkisins ogTannlækr.afélags íslands um verðlagningu á vinnu tannlækna. Ríkið end- urgreiðir eftir þeim samningum, og að sögn Gunnars Þormar, formanns Tannlæknafél- agsins, er það sá taxti sem flestir tannlæknar nota einnig við tannviðgerðir á „frjálsum markaði“. Um það eru þó skiptar skoðanir, og athugun Helgarpóstsins sem greint var frá hér fyrst bendir til þess að sá taxti sé æði teygjan- legur. Og í raun getur tannlæknir, ef hann t.d. telur sig sérstaklega góðan, verðlagt sína vinnu hærra. Það er því afar erfitt að komast að því hverjar tekjur tannlækna eru, eða hversu miklu þjóðin eyðir í tannlækningar. Nú eru starfandi 179 tannlæknar á landinu. Þeir hafa allir aðstoðarmanneskju, og um 80 manns vinna við tannsmíðar og önnur störf tengd tannlækningum - í allt um 440 manns á land- inu. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Þormar hefur Tannlæknafélagið engar tölur um tekj- ur tannlækna, eða veltuna á stofum þeirra. Og afar erfitt er að meta tekjur þeirra eftir hinni venjulegu gjaldskrá. Eina viðmiðunin sem telja verður nokkuð áreiðanlega lág- marksviðmiðun er sá tímataxti sem í gildi er, ef mjög erfitt reynist að meta vinnuna. Ef t.d. manneskja er í mjög tímafrekri og langri að- gerð, þarf að koma aftur og aftur til að láta athuga eitthvað og svo framvegis, þá er stund- um brugðið á það ráð að verðleggja ekki eftir hinni venjulegu gjaldskrá, sem kveður á um á- kveðið gjald fyrir ákveðið verk, heldur ann- arri, sem kveður á um ákveðið gjald fyrir hverja klukkustund. Það gjald er reiknað út- frá meðalvinnu og er núna um 900 krónur. Af því reiknast 46% sem laun tannlæknis, en 54% sem rekstrar-og efniskostnaður stof- unnar. Með þessa tölu að leiðarljósi er hægt að reikna og fá út niðurstöður sem síst eru of há- ar, þó þær séu að sjálfsögðu ekki hárná- kvæmar. Ef við þannig gefum okkur að þessi tala séu meðallaun tannlæknis, þá fær hann um 3.300 í laun yfir daginn. Og ef reiknað er með 21 vinnudegi í mánuði eru mánaðarlaunin orðin um 70 þúsund, og heildarvelta stofunnar um 160 þúsund. Nú er rétt að taka fram að tannlæknar vinna ekki allir átta tíma á dag, og að hluti af vinnu þeirra er skriffinnska. En á móti geta líka eflaust flestir vitnað um að það er ekki al- gengt að sleppa með 450 krónur fyrir venju- Hvar eru tann- fræðingarnir? í tannlæknaþjónustu nágrannaþjóð- anna, sem að flestu leyti er lengra á veg kom- in en okkar, gegna svokallaðir tannfræðing- ar miklu hlutverki, sérstaklega i fyrirbyggj- andi starfi. Tannfræðingar hafa þar svipuðu hlut- verki að gegna og t.d. hjúkrunarfræðingar í almennu læknisstarfi — þeir annast störf sem ekki krefjast hinnar miklu menntunar tannlækna. í skýrslu sem starfsmaður WHO, Ingólf Möller, gerði fyrir fimm mánuðum um tannlækningar á íslandi bendir hann ein- mitt á að hér vanti nánast algjörlega þetta fólk (tanofræðingarnir eru þrír hérlendis) og afleiðingin sé sú að hámenntaðir og dýrir tannlæknarséu í síauknum mæli að fást við einfalda hluti sem tannfræðingar ættu að annast. Tannfræðingarnir séu sérstaklega mikilvægir í skólatannlækningum og á heilsugæslustöðvum úti á landi. ■ Þrátt fyrir að íslendingar eyði gríðarlegum fjármunum í tanniækningar og að tann- læknar séu hér með alflesta móti, þá eru tannskemmdir miklu meiri hér en í flestum Evrópulöndum. MAIIt að 500% munur á verðlagningu tannlækna. lega hálfrarklukkustundar heimsókn til tann- læknisins. Launin eru því mjög há eins og allir reyndar vita. Og ef haldið er áfram að spá í þessar töl- ur, og við margföldum einfaldlega dagsveltu hverrar stofu (7.200 miðað við fyrri forsend- ur) með fjölda tannlækna á landinu (179) þá komumst við að því að á degi hverjum eyðir þjóðin um 1.3 milljónum í tannlækningar, - lágmark. Slíkt kemur reyndar heim og saman því samkvæmt upplýsingum Svavars Gests- sonar, heilbrigðisráðherra greiðir ríkið um 100 milljónir 1983 í tannlækningar barna og gamalmenna. Þetta eru upphæðir á við allar útflutnings- bætur þjóðarninnar og marga skuttogara, - gríðarlegir fjármunir. Og þeim er því miður ekki mjög vel varið. Um það eru tannlæknar og stjórnmálamenn sammála. „Mokstur í botn- lausa tunnu“ Nú nýverið var Magnús R. Gíslason tann- læknir ráðinn til starfa í heilbrigðisráðuneyt- ið, en fram að þessu hefur enginn tannlæknir verið til ráðgjafar þeim sem stjórna heilbrigð- iskerfinu. í skýrslu sem Magnús hefur samið um tannlækningar, segir meðal annars að að- eins þrjár þjóðir í heiminum, Danir, Norð- menn og Svíar hafi betra hlutfall milli tann- lækna og íbúa en við, en hér er hlutfallið einn á móti 1.250 íbúum. (Einn á móti 750 í Reykjavík sem er auðvitað stórkostlega gott) En í skýrslunni bendir hann einnig á að við eyðum miklum peningum í óþarfa: Vitað er að með fræðslu og tiltölulega ó- dýrum aðgerðum til tannverndar er hægt að minnka tannskemmdir um allt að 50%. Það er sú leið sem hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa farið með góðum árangri. Á þetta hefur marg- sinnis verið bent hérlendis og m.a. stofnaður sjóður fyrir átta árum til að standa undir kostnaði við varnir gegn tannskemmdum. Aftur á móti er ekkert gert af hálfu ríkisins til að koma í veg fyrir tannskemmdir. í stað þess er stöðugt greitt fyrir fleiri og fleiri viðgerðir í tönnum, eins og tannskemmdir séu sjálf- sagður hlutur, sem þær eru alls ekki. í þessum efnum erum við orðin 20 til 30 ár- um á eftir nágrannaþjóðum okkar. „Aðgerðir ríkisins í þessu máli minna á mokstur í botnlausa tunnu og lítið gert til að minnka opið á botninum“, segir Magnús R. Gíslason í skýrslu sinni. „Skerum okkur úr í tannskemmdum“ Ólafur Ólafsson, landlæknir, sagði sömu-

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.