Helgarpósturinn - 04.03.1983, Side 24

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Side 24
24 , Föstudagur 4. mars 1983 JplfisturinrL Glæsibæ sími 34350 Snorrabraut sími 13505 Hamraborg sími 46200 Miðvangi sími 53300 AUGLÝSINGASTOFA SAMBANDSINS 926 4 Austurstræti Við bjóðum jakkasett á aðeins kr. 2445, stakar buxur á kr. 695, vesti á kr. 425, mittisjakka á kr. 1250, skyrtur á kr. 395 og skó á kr. 640. H6RRAR K H€RRRR'K IU/£ 'niRtlRl R”K Prófaðu Mesta úrvalið. Besta þjónustan. Skeifan 9. 108 Reykjavik s. 91-86915 Tryggvabraut 14, 600 Akureyri s. 96-23515 Sigur Gunnars G. Schram í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi hefur vakið verulega athygli, en þar hlaut Gunnar annað sæti listans og ógn- aði meira að segja veldi Matthíasar Á. Mathiesen í 1. sætinu. Ýmsir hafa orðið til þess að kenna Gunnar BÍLALEIGA um hugsanlegt framboð Gunnars Thorodd- sen til alþingis í næsta mánuði hafa enn magnast eftir að Gunnar gaf ýmislegt í þá átt í skyn á fundi með ungum framsóknar- mönnum í vikunni. Hefur Gunnari þótt gaman að sjá stuðningsmenn sína og aðdáendur rótbursta stuðn- ingsmenn „flokkseigendafélags- ins” í hverju prófkjörinu á fætur öðru. Sagan segir að dr. Gunnar sé nú alvarlega að hugsa um að slá til og fara í framboð — enda séu stuðningsmenn hans í væntanlegu þingliði Sjálfstæðisflokksins nú margfalt fleiri en eftir síðustu kosn- ingar. Þegar alþingiskosningum er lokið getur Gunnar svo hirt hátt í þriðjung þingflokksins, sem verður höfuðlaus eftir þegar bæði flokks- formaðurinn og þingflokksfor- maðurinn sitja heima með sárt enn- ið... við nafna sinn Thoroddsen og víst er það, að forsætisráðherra studdi Gunnar Schram í prófkjörsslagn- um. Á fundi í Hafnarfirði fyrir prófkjörið neitaði Gunnar Schram hins vegar öllum tengslum við Gunnarsarm flokksins og aðspurð- ur sagði hann umbúðalaust, að hann myndi lúta meirihlutavaldi í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. önduðu þá margir úr Geirsarmin- um léttar. Svo er bara spurningin hvaða armur kemur til með að hafa meirihluta í þingflokki sjálfstæðis- manna að loknum næstu kosning- um... Fréttir af skipan fólks á framboðslista flokkanna ber- ast nú jafnt og þétt er nær dregur alþingiskosningum. Al- þýðuflokksmenn eru þessa dagana að ganga frá sínum lista í Norður- landskjördæmi vestra og er þar efstur Jón Sæmundur Sigurjóns- son, hagfræðingur, eneftir því sem við heyrum verða tvær konur trú- lega í næstu sætum. Þær eru Dóra Þorsteinsdóttir á Sauðárkróki og Elín Njálsdóttir, hreppsnefndar- maður á Skagaströnd. Jón Karls- son, verkalýðsforingi á Sauðár- króki mun hafa hafnað því að taka annað sætið á listanum... Og hjá Bandalagi jafnaðar- manna er rætt um að efstur á lista flokksins í Austur- landskjördæmi verði Guðmundur Einarsson líffræðingur. Hann er ættaður frá Hornafirði. Á Vestur- landi er talið að ofarlega á lista bandalagsins, ef ekki efst, verði Hrönn Ríkharösdóttir (Jónssonar) á Akranesi, sem áður var í Alþýðu- flokknum. Á Suðurlandi má búast við að Þorlákur Helgason aðstoð- arskólameistari á Selfossi verði í framlínu... Við heyrum einnig af kosn- > 1 ingaundirbúningi Bandalags J jafnaðarmanna að farið sé að vmna að blaðaútgáfu á þess vegum fyrir kosningarnar. Það er hópur undir forystu Óðins Jónssonar sem að þessu vinnur og verður væntan- lega um vikublað að ræða. Ekki er þó talið líklegt að það hljóti nafnið Nýtt land... Kvennaframboðskonur eru líka á fullu við að undirbúa sín framboð og fundahöld hafa mikil verið í vikunni, ekki síst í Reykjaneskjördæmi. Hvað Reykjavíkurlistann varðar heyrum við að þar verði ofarlega Elín Ólafs- dóttir, kennarafulltrúi í Fræðslu- ráði Reykjavíkurborgar,sem hingað til mun hafa fylgt Sjálfstæðis- flokknum að málum.og Guðrún Agnarsdóttir, læknir. Aðrar konur sem taldar eru líklegar í sæti á list- anum eru Guðrún Jónsdóttir borg- arfulltrúi, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Jóhanna María Lárus- dóttir, kennari í Verslunarskólan- um, Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir háskólakennari, Kristín Ást- geirsdóttir sagnfræðingur og Helga Thorberg leikari... Talsverðar hræringar eru nú / J. í íslenskum ferðaiðnaði og S* hjá flugfélögunum. Valdatafl hófst þegar Leifur Magnússon framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum sótti um stöðu flugmálastjóra enda var almennt talið að hann fengi starfið. Jóhann Sigurðsson, stöðv- arstjóri Flugleiða í London, var kallaður heim og settur í nýtt starf hjá félaginu. í framhaldi af því hef- ur heyrst að Steinn Lárusson, fram- kvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals, hafi hug á að taka við af JÓ- hanni í London — eða að fara í annað „feitt” starf hjá Flugleiðum. Líklegur eftirmaður Steins hjá Úr- vali er talinn vera Knútur Óskars- son, framkvæmdastjóri innan- landsdeildar Úrvals. Þá hefur Arn- arflug ráðið Halldór Björnsson, framkvæmdastjóra ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsens, til að vera skrif- stofustjóra félagsins í Sviss. Og loks mun Haukur Harðarson, fyrrum bæjarstjóri á HÚsavík,vera á leið- inni til ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar... Frá Alþingi heyrum við, að f' l það veki athygli margra þar ■S neðra, hve duglegur VII- mundur Gylfason sé að notfæra sér þá aðstöðu, sem þingmenn hafa til að senda stuðningsmönnum sínum frumvörp, bréf og annan áróður. Vilmundur er sagður hafa látið prenta frumvörp sín og annan prentaðan áróður í fimm þúsund eintökum og látið Alþingi senda vítt og breitt um landið. Kostnaður vegna þessa, sem Alþingi greiðir, mun samsvara umfangi meðal 12—15 manna þingflokks... Bóka mark aóirrn Góöar bækur Gamalt verö Bokamarkaðurinn HÚSGAGNAHÖLLINNI, ÁRTÚNSHÖFÐA

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.