Helgarpósturinn - 09.05.1985, Qupperneq 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Blaðamenn: Edda
Andrésdóttir, Jóhanna
Sveinsdóttir og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Elín Edda
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Magnea Matthíasdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson
Auglýsingar:
Steinþór Ólafsson
Innheimta:
Garðar Jensson
Afgreiðsla: Ásdls Bragadóttir
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavlk, slmi
8-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
sís
drepur þorp
Á Suðureyri við Súganda-
fjörð þykir mönnum tími til
kominn að fara að lögum ís-
lenska lýðveldisins. Fölk þar
vestra er orðið þreytt á því að
þurfa að lúta dyntum peninga-
vörslumanna Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga í höf-
uðstöðvunum í Reykjavík. Og
skyldi engan undra. Vegna
skuldseiglu Sambandsins hef-
ur sveitarstjórnin á Suðureyri
ekki getað sinnt nauðsynleg-
um framkvæmdum I bænum.
Og svarið sem sveitarstjórnin
fær, þegar hún sýnir rukkunar-
tilburði, er að eina atvinnufyrir-
tækinu í bænum verði lokað
sýni sveitarstjórnin derring.
Helgarpósturinn segir þessa
merkilegu og skrýtnu sögu í
blaðinu í dag. i sem fæstum
orðum snýst málið um það, að
eigendur eina atvinnufyrir-
tækisins í bænum svo ein-
hverju nemur, neita að greiða
opinber gjöld. Og eigendur,
Sambandið og Kaupfélag is-
firðinga að langstærstum hluta,
vita fullvel, að þeim er stætt á
því að greiða ekki skuldina.
Ástæðan er einfaldlega sú, að
með því að loka fyrirtækinu
lognast heilt sjávarþorp út af.
Það deyr. Og þeir sem fara fyrir
Sambandinu í þessu máli víla
ekki fyrir sér að benda á þetta.
SÍS hefur réttilega verið
nefnt auðhringur og einokunar-
hringur. Fyrirtækið, eða Sam-
steypan, hefur á undanförnum
árum fært út kvíarnar, farið inn
á nýjar brautir í atvinnurekstri
og aðlagað sig breyttum at-
vinnuháttum. Ekki virðist hafa
skort fé til þeirra hluta. Stór-
fiskurinn Islandslax er dæmi
um slíkt fyrirtæki. Þá tókst inn-
flutningsdeild SIS að raka til sín
fjármunum og sýna góða stöðu
á kostnað Kaffibrennslu Akur-
eyrar, svo annað dæmi sé tekið.
Öllum með minnsta snefil af
skynsemi ætti að vera Ijóst, að
SIS ber ekki bara siðferðileg
skylda til að greiða skuldir sínar
heldur einnig ótvíræð lagaleg
skylda til þess. Hingað til og
um langan aldur hafa þeir blóð-
mjólkað Suðureyri og haft
vænar tekjur af staðnum. Nú
þegar illa árar í framsóknartíð er
það óafsakanleg bíræfni og
ósvífni að greiða sveitarfélag-
inu ekki skuldir sínar og koma
þannig í veg fyrir að í þorpinu
þrlfist eðlilegt og nútímalegt
mannlíf.
Og það er enn meiri ósvífni,
nánast subbuleg illmennska,
að hóta íbúum Suðureyrar lok-
un á frystihúsi staðarins. Þann-
ig myndi stærstur hluti bæjar-
búa missa atvinnuna og bær-
inn deyja út.
SÍS er með þessu að svíkja
byggðastefnu og það er ekki í
samræmi við samvinnuhug-
sjónina, sem auglýst er sem
mest í sjónvarpinu.
BRÍF TIL RITSTJORNAR
Athugasemd
vegna
greinar um
NT-málió
Ég vil vinsamlegast biðja Helgar-
póstinn um að koma á framfæri við
lesendur sína leiðréttingum á furðu-
sögu sem ritstjóri HP skrifaði í síð-
asta tölublað sitt um störf mín fyrir
dagblaðið NT á undanförnum miss-
erum.
Saga ritstjórans var í stuttu máli á
þá leið að stjórn Nútímans hefði, án
samráðs við ritstjóra, ráðið mig til
hálaunaðra njósnastarfa á ritstjórn
NT, í raun til höfuðs ritstjóranum.
Nema hvað, botnar ritstjóri HP, að
ég hafi aldrei skilið hlutverk mitt, og
því ekki sinnt því sem skyldi. Eitt er
að bera af sér illar sakir, en annað
og engu léttara að hrista af sér ein-
faldleikann. Sitthvað er við söguna
að athuga.
Ég var t.d. alls ekki ráðinn til NT af
stjórn Nútímans. Boð um starf kom
Helgarpósturinn segir
söguna á bakvið uppgionó á NT
UPPGIOR!
grmli
í hönd?
. Einn blaóamaöur eftir á
ritstiórn blaðsins
. Steingrímur ósáttur vtð
stefnu blaösins - vill
flokksblað
. Fjöldauppsaghirnar spara
Nútímanum 6 miUlórur á án
_. ,..:i — nnnói hálaunsððn
til mín beint af ritstjórn NT um það
leyti sem blaðið var að hefja göngu
sína og ég var að tygja mig til heim-
ferðar frá hagfræðinámi. Að ráðn-
ingu minni stóðu þeir Kristinn Hall-
grímsson fréttastjóri og Magnús,
Ölafsson ritstjóri.
Ég var auðvitað ráðinn til hreinn-
ar blaðamennsku og um önnur störf
var ekki rætt fyrr en í lok þess lang-
vinna prentaraverkfalls sem efnt
var til á síðasta hausti. Þá hafði þessi
umtalaða stjórn Nútímans samband
við mig og óskaði eftir að ég gerði
hlé á blaðamennskunni um þriggja
mánaða skeið, og færi þess í stað að
skipta mér af fjármálum fyrirtækis-
ins um sinn. Magnús Ólafsson vissi
vel af þessum óskum frá byrjun,
enda bar hann mér fyrstu boðin um
þær. Magnús hvatti mig ennfremur
til að taka starfið að mér.
Þetta óvænta starfstilboð stjórnar-
innar átti vissulega rætur að rekja til
verkfallsins sjálfs. Fjárhagur NT
hafði beðið alvarlegan hnekki í verk-
fallinu, og var e.t.v. ekki vanþörf á
að gefa þeim málum alvarlegan
gaum í kjölfarið. Trúnaðartraustið á
milli starfsfólks og stjórnar Nútím-
ans hafði ennfremur beðið skipbrot í
verkfallinu, og við Magnús skildum
starfstilboðið báðir þannig að
stjórnin vildi reyna að brúa gjána á
milli sín og ritstjórnarinnar með því
að gefa einum úr hópi ritstjórnar-
manna tækifæri til að fylgjast með
rekstrarlegum þáttum blaðsins.
Þeir sem þekktu eitthvað til þeirra
átaka sem urðu á NT um samninga
við prentara og áframhaldandi út-
gáfu, þurfa mikið hugmyndaflug til
að láta sér detta í hug að stjórn Nú-
tímans teldi sig geta ráðið einn af
þeim ritstjórnarmönnum sem
fremstir stóðu í þessum átökum til
þess, strax í lok verkfallsins, að
vinna óhæfuverk gegn ritstjórninni.
Einu atriði er rétt að bæta við. Ég
hafði þá sterku skoðun í vetur að NT
ætti eina leið út úr þeim ógöngum
sem blaðið hafði ratað í. Þessi leið
var að gera starfsfólk NT að stórum
og áhrifamiklum eignaraðila að Nú-
tímanum hf. Slík breyting hefði án
efa styrkt ritstjórnar- og markaðs-
stöðu blaðsins, auk þess sem ég hef
það eftir samvinnuskólum þeirra
John Stuart Mills og Jaroslav Van-
eks að allur rekstur fyrirtækisins
hefði orðið kraftmeiri eftir heldur
en áður. Ég setti það reyndar sem
skilyrði fyrir því að taka starfstil-
boði stjórnar Nútímans að ég hefði
frjálsar hendur með að vinna að
þessu markmiði. Sérstakur vinnu-
hópur starfsfólks taldi sig finna flöt
á hvernig af þessari eignaraðild
gæti orðið. Tilboði starfsmanna —
sem ekki fól í sér neina skerðingu á
hlut þeirra sem eiga Nútímann —
var hins vegar hafnað í fram-
kvæmdastjórn Framsóknarflokks-
ins í febrúar síðastliðnum.
Jónas Gudmundsson
hagfrœdingur,
fv. blaöamadur NT.
„Fróðleg
lesning“
Vegna athugasemdar Jónasar
Guðmundssonar (ekki sjómanns) skal
tekið fram, að HP sakaði hann ekki
um njósnir á ritstjórn NT. Þaðanaf-
síður landráð. Hins vegar höfum við
eins tryggar heimildir fyrir því og
hægt er, að í hugum blaðstjórnar-
manna NT átti Jónas að vera „augu
og eyru blaðstjórnar" á ritstjórn-
inni. Þetta eru orð eins blaðstjórnar-
manna. Hvort eða hvenær Magnús
Ólafsson ritstjóri vissi af ráðningu
Jónasar skiptir litlu í þessu sam-
bandi. Það sem skiptir máli var
hvort Magnúsi var ljóst að hugsunin
að baki ráðningunni væri sú sem að
ofan greinir.
Að öðru leyti er ekki annað að
segja um bréf Jónasar en að það er
hin fróðlegasta lesning. .■
Gunnlaugur Sigfússon.
Ásgeir Tómasson.
Gunnlaugur
hættir —
Ásgeir tekur vid
Gunnlaugur Sigfússon sem séð
hefur um popp- og rokkskrif Helgar-
póstsins frá 1980, hefur hætt störf-
um fyrir blaðið og er tekinn til starfa
á öðrum vettvangi. Við tónlistar-
skrifum Gunnlaugs tekur Ásgeir
Tómasson, dagskrárgerðarmaður
við rás 2. HP þakkar Gunnlaugi fyrir
dyggileg störf undanfarin 5 ár og
býður Asgeir velkominn til starfa.
Síðasta grein Gunnlaugs birtist í
blaðinu í dag, en fyrsta grein Ás-
geirs birtist í næsta tölublaði HP.
- Ritstj.
I elgarpósturinn sagði frá því
fyrir nokkrum vikum að til stæði að
reisa íbúðarhús á Valhúsahæð á Sel-
tjarnarnesi. Nokkrum dögum síðar
kom bæjarstjórn Seltjarnarness
saman og voru lagðar fram fundar-
gerðir Lóða- og skipulagsnefndar
sem dagsettar voru 23. og 24. apríl
1985. Skipulagsnefnd lagði til að af-
greiðslu á tillögum um skipulag Val-
húsahæðar yrði frestað til næsta
fundar eða þar til álit Náttúru-
verndarráðs lægi fyrir. Á fund
nefndarinnar voru mættir fulltrúar
Náttúruverndarráðs, þeir Eyþór
Einarsson, Gísli Gíslason og Ein-
ar Sæmundsson. Kom í ljós, og
greindu þeir félagar frá því, að Val-
húsahæð væri á náttúruminjaskrá í
B. flokki öðrum hluta.. .
JVL _ „
kom fram á þessum bæjarstjórnar-
fundi Seltjarnarness. M.a. var lögð
fram lokaskýrsla svonefndrar Sjón-
varpsnefndar bæjarfélagsins. í
skýrslu kom m.a. fram að nefndin
leggur til að Seltjarnarnesbær leiti
sem fyrst eftir heimild til almenns
útvarpsrekstrar, og kanna beri hug
íbúanna til móttöku og dreifingar
útvarps- og sjónvarpsefnis. Voru til-
lögur nefndarinnar samþykktar
samhljóða. ..
O. enn af fundi Seltjarnar-
nesbæjar: Magnús Erlendsson
lagði fram tillögu, þar sem Alþingi
var kvatt til að samþykkja á yfir-
standandi þingi frumvarp til laga
um heimild til sölu á áfengum
bjór...
||
■ lér er lítil saga úr einum
bankanna: Viðskiptavinur kom til
bankastjórans að kikna undan
greiðslum af víxli og bað um fram-
lengingu. Bankastjórinn samþykkti
það enda viðkomandi skilvís kúnni
bankans til margra ára. Þegar
bankastjórinn spurði manninn
Ihvort hann væri ekki með sömu
ábyrgðarmenn á víxlinum kvað
hann nei við og sagði: „Nei, ætli ég
fái ekki Kölska til þess að skrifa upp
á þetta. Það er hvort sem er allt að
fara til andskotans." Þetta sam-
þykkti bankastjórinn umyrðalaust
og kvað Kölska hátt skrifaðan í
bankanum...
l sumar geta næturhrafnar stytt
sér stundir á heilsusamlegan hátt
fjarri reykfylltum vínstúkum. Þann-
ig er mál með vexti, að Gerdur
(Pálmadóttir) í Flónni hyggst
koma sér upp heilmiklum heita-
vatnsnuddpotti í garðinum við sól-
baðsstofuna Sólskríkjuna niðri í bæ
og bjóða ferðamönnum og öðrum
aðgang — væntanlega gegn vægu
gjaldi. Annars mun Gerður hafa
mikinn áhuga á því, að nýta húsin
sem standa við Skúlagötuna, steypa
þeim saman í eina heild og reka þar
hótel, nuddstofu, sólstofu, gjafa-
verslun o.s.frv. til þess að fólk geti
notið þeirra „forréttinda" að heyra
regnið bylja á þakinu...
l^rirhugaðar eru miklar breyt-
ingar á Laugaveginum okkar í
Reykjavík. Er það aðallega hvað
varðar vestari hluta götunnar nær
miðbænum. Það stendur nefnilega
til að gera götuna huggulegri, setja
niður nýja ljósastaura, planta trjám
meðfram gangstéttinni og koma
símaklefum fyrir við götuna (hvort
sem það gerir Laugaveginn huggu-
legri eða ekki). Er mikill áhugi borg-
aryfirvalda á að hraða þessum að-
gerðum og mun hugsunin vera sú
að fegra Laugaveginn, minnka bíla-
umferð með því að gera erfiðara að
beygja inn á Laugaveginn frá öðrum
götum og víkka fyrir strætisvagna-
ferðir niður götuna. Við heyrum að
breytingaaðgerðir muni hefjast á
þessu ári...
Y
■ mislegt forvitnilegt er að
finna í hlustendakönnun Ríkisút-
varpsins. M.a. mun það hafa verið
mikið sjokk fyrir Sjónvarpið að fá
upplýst að íþróttaþættir stofnunar-
innar njóta ekki meiri vinsælda en
raun ber vitni. Þannig nær enska
knattspyrnan aðeins athygli 12%
áhorfenda og aðrir íþróttaþættir
Sjónvarpsins fá svipaðar undirtektir;
sem sagt með því lakasta í allri dag-
skrá Sjónvarpsins. Almennt var talið
að unnendur íþrótta væru margir,
en greinilegt er, að annað hvort ber
að fækka íþróttasendingum eða
breyta gerð þeirra...
| síðasta blaði skýrðum við frá
klókindum krata vegna byggingar
kratahallar á vegum SUJ við
Laugaveginn. Þar kom fram að
verktakinn fengi eina hæð fyrir
sig. Nú heyrum við að önnur hæð
eigi að fara undir eitt stykki tann-
lækni, sem fram til þessa hefur
haft aðsetur í Allaballahúsinu við
Hverfisgötu. Sennilega einhver
flokkaflakkari. En smátt og smátt
minnkar kratahöllin...
LAUSN A SKAKÞRAUT
Barnes.
í síðustu helgarþrautum var
spurningin hvorum riddaranum
ætti að leika og hvert. Hér brennur
sama spurning um hrókana: Hvor-
um hróknum á að leika og hvert?
Eina lausnin er I. Hc5!
Reynið aðra leiki og varnir svarts
gegn þeim.
Rinck.
1. Ra6! Bg4+ 2. Kc7 Be2!
3. Bd5 Bxa6 4. Bxe4 h2
5. Bhll B eitthv.6. Bxb7 mát
10 HELGARPÓSTURINN