Helgarpósturinn - 09.05.1985, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 09.05.1985, Blaðsíða 13
V W ið BSRB-þinginu blasa nokk- ur stór mál. Einkum hafa menn áhyggjur af því, að kennarar kunni að segja sig úr samtökunum, en verði af því verður það meiri háttar blóðtaka fyrir BSRB, því um 30% fé- laga í bandalaginu eru kennarar. Ekki er vitað hvaða stefnu þetta mál tekur, en menn velta vöngum yfir hugsanlegum samruna kennara í BSRB og HÍK, sem þá myndi segja sig úr Bandalagi háskólamanna ... l gærmorgun héldu deildarstjórar á útvarpinu fund vegna „útvarps- ráðsmálsins" og spáðu í viðbrögð. Ákveðið var að bíða heimkomu Elvu Bjarkar Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra. Sama dag var haldinn sameiginlegur fundur stjórna starfsmannafélaga útvarps og sjónvarps, þar sem einkum var fjallað um þetta mál af miklum hita . . . A _. hljómplata með „landsliðinu í rokki“, þar sem í fararbroddi eru þeir Björgvin Gíslason, Ásgeir Óskarsson, Haraldur Þorsteins- son, Tryggvi Hiibner, Jón Lofts- son o.fl. Eitthvað gekk brösótt að koma tónlistinni á plötu, því vegna klaufaskaps þurfti að endurtaka flutning heimings tónlistarinnar. í Hljóðrita rugluðust nefnilega spól- ur og óvart tekið yfir fullkláraða upptöku af helmingi laganna. Fall er fararheill, segja þeir og um miðjan mánuðinn kemur sem sé platan „í léttum dúr“ ... nýrri símaskrá. í kjölfarið má svo búast við útgáfu fjölda „staðar- símaskráa“, sem hafa verið gefn- ar út af einstaklingum víða um land, s.s. á Akureyri, Ólafsfirði, Vestmannaeyjum, Sauðárkróki og víðar. Hingað til hefur þetta verið einkaframtak manna, sem hafa safnað auglýsingum í skrárnar og hagnast þannig á fyrirtækinu. Þetta var látið óátalið, þótt einu sinni hafi verið gerð tilraun til að stöðva Akureyrarskrána. Ábyrgð- armaður hennar (fyrir unga fram- takssama menn) var þá Jón G. Sólnes fyrrum alþingismaður og ekkert varð úr aðgerðum. Nú hef- ur ríkiseinokunin gripið til sinna ráða. Póstur og sími hefur leyft þessar einkaútgáfur, en setur hins vegar svo stífar reglur um útgáf- una, að ekki er Ijóst hvernig dæm- ið á að ganga upp hjá einkaútgáfu- mönnum. Þannig eiga þeir að nota ljósritaðar síður úr hinni eig- inlegu símaskrá, sem í sjálfu sér er allt í lagi. Það sem verra er, er að nú er það Póstur og sími sem ákveður nákvæmlega hvar aug- lýsingar mega birtast í lókal- símaskránum, þ.e. allar í kór aftast í skránni. Nú verður spennandi að sjá hvort þetta verða enn einar reglurnar sem settar eru til þess eins að þær séu brotnar.. . Bíll frá Hreyfli flytur þig þægilega og á réttum tima á flugvöllinn. Þú pantar fyrirfram Viö hjá Hreyfli erum tilbúnir aö flytja þig á Keflavíkurflugvöll á réttum tíma í mjúkri límosinu. Málið er einfalt. Þú hringir i sima Ó85522 og greinir frá dvalarstað og brottfarartima. Viö segjum þér hvenær billinn kemur. Eitt gjald fyrir hvern farþega Viö flytjum þig á notalegan og ódýran hátt á flugvöllinn. Hver farþegi borgar fast gjald. Jafnvel þótt þú sért einn á ferö borgarðu aöeins fastagjaldiö. Viö vekjum þig Ef brottfarartirni er að morgm þarftu aö hafa samband viö ollur milli kl. 20:00 og 23:00 kvöldið áður. Viö getum séö um aö vekja þig meögóðum fyrirvara. ef þú óskar. Þegar brottfarartimi er síðdegis eöa að kvöldi nægir að hafa samband við okkur milli kl. 10 00 og 12:00 sama dag. UREYFILL Ó8 5522 TRYGGIR ÞÉR ÞÆGINDI FYRSTA SPÖLINN MæÓradagurinn eramorgun _____ ^ interflora si Mæðradagsskreytingar Afskorin blóm Blómstrandi pottaplöntur Ungplöntumarkaður: Allar ungplöntur til framhaldsræktunar pr. stk. kr. 98.- HELGARPÓSTURINN 13

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.