Helgarpósturinn - 09.05.1985, Page 18
KVIKMYNDIR
Kvikmyndahátíð 1985
Kvikmyndahátíð Listahátíðar í ár býður upp á 26 kvikmyndir frá 16 þjóð-
löndum. Kvikmyndirnar mynda enga sjálfstæða hátíðarheild, heldur hefur,
að því er virðist, verið lögd áhersla á val mynda frá einstökum þjóðlöndum.
Allt eru þetta nýlegar myndir, sumar hverjar heimsfrægar oa verðlaunaðar í
bak og fyrir, aðrar alls óþekktar í alþjóolegu tilliti. Gestir hátíðarinnar eru
franski leikstjórinn Jean-Luc Godara, þýski leikarinn og leikstjórinn Hark
Bohm, sænski leikstjórinn Tage Danielsson og skáldkonan Astrid Lindgren,
einnig frá Svíþjóð. Samantekt eftirfarandi kvikmyndalista er Helgarpóstsins
en íslenskar þýoingar kvikmyndaheitanna eru Listahátíðar.
eftir Ingólf Margeirsson
Ronja rövardotter
(Ronja ræningjadóttir)
Sænsk 1984. Leikstjóri: Tage Dani-
elsson. Aðalhlutverk: Hanna Zett-
erberg og Den Hafström.
Opnunarmynd Kvikmyndahátfðar.
Leikstjórinn Tage Danielsson og hand-
ritahöfundurinn Astrid Lindgren verða
viðstödd sýninguna. Bæði nöfnin eru
þekkt íslendingum, ekki sist Lindgren
fyrir tugi barnabóka sinna (Lína lang-
sokkur, Emil ( Kattholti, o.s.frv.) Ronja
ræningjadóttir kom út ( (slenskri þýð-
ingu (fyrra. Mynd þessi hefur farið sig-
urför um Noröurlöndin og v(ðar, og er
að ytra borði spennandi ævintýrasaga í
hulduskógi, en undir niðri fjallar sagan
um dýpri hluta tilverunnar, eins og líf og
dauöa.
Alsino Yel Condor
(Gammurinn)
Nicaragua/Kúba/Mexfkó/Costa
Rica 1982. Leikstjóri: Miguel Littin.
Aðalhlutverk: Alan Esquivel, Dean
Stockwell, Carmen Bunster.
Sögusviðiö er Nicaragua 1979 og
hermenn Sómósa eru að bugast undan
uppreisn sandfnista. Alsfnó er Ktill
drengur sem fylgist með styrjaldarátök-
unum og áhorfandinn sér umhverfið
gegnum augu piltsins. Ljóðræn efnis-
meðferð í anda s-amerískrar frásagnar-
listar. Fyrsta myndin I fullri lengd frá
Nicaragua.
Namío
Gyermekeimnek
(Segðu mér söguna
aftur)
Ungversk 1982. Leikstjórn: Márta
Mészáros. Aðalhlutverk: Zsuzsa
Czinkóczi, Anna Polony, Jan No-
wicki, Tamás Tóth.
Myndir Mörtu Meszáros Ættleiðing
(1975) og Nfu mánuðir (1980) hafa verið
sýndar hér á Kvikmyndahátíð Nýjasta
mynd hennar fjallar um viðkvæma,
sjálfsævisögulega þætti úr uppvexti
leikstjórans þar sem hreinsanir Stalíns
og átök milli flokksframa og sjálfsvirð-
ingar eru (forgrunni.
La Colmena
(Býflugnabúið)
Spænsk 1984. Leikstjóri: Mario
Camus. Aðalhlutverk: Victoria
Abrii, Ana Belén, Agustin Gonzál-
es. Charo López.
Sagan gerist kringum kaffihúsið „La
Delicia". Þar inni er lýst þeim manneskj-
um sem flýja daglegt amstur (félags-
skap hverrar annarrar, þar sem spjall og
dagdraumar ráða ferðinni. I baksýn er
Madrid eftirstríðsáranna. Býflugnabúið
hefur hlotið margvísleg verðlaun. Leik-
stjórinn Mario Camus er fæddur 1935,
og hefur sjö kvikmyndir og sjónvarps-
myndaflokk að baki.
La notte di
San Lorenzo
(Nóttin I San
Lorenzo)
(tölsk 1982. Leikstjóri: Paolo og
Vitterio Taviani. Aðalhlutverk:
Omero Antonutti, Margarita Loz-
ano, Claudio Bigagli.
Taviani-bræður gerðu myndina San
Miniato, Luglio 1954. Fjallaði'hún um
flótta þorpsbúa (Toscana-héraði undan
fjöldaaftökum nasista I stríðinu. i þess-
ari nýju mynd endurgera þeir sama
þemað en færa það enn meira út og
bæta inn I bernskuminningum, munn-
mælasögum og draumsýnum.
Number One
(Karl í krapinu)
Bresk 1984. Leikstjóri: Les Blair.
Aðalhlutverk: Bob Geldof, Mel
Smith, lan Dury.
Fyrsta mynd Les Blair. Hann og hand-
ritshöfundur myndarinnar, G.F. New-
man, hafa árum saman gert sjónvarps-
þætti fyrir BBC og afhjúpað brotalamir
á þjóðfélagskerfinu. Number One er
gamanmynd meö alvarlegum botni og
segir frá heimsmeistaramótinu í billjard
(snóker) sem er eitt vinsælasta sjón-
varpsefni ( Bretlandi þá 10 daga sem
keppnin stendur yfir. I myndinni er farið
á bak við forgrunn þessarar glæsi-
keppni. Myndin er afsprengi breskrar
raunsæisstefnu og hins lágmælta húm-
ors Bretanna.
Der Stand der
Dinge
(Ástand móla)
Þýsk 1981. Leikstjóri: Wim Wend-
ers. Aðalhlutverk: Paul Getty III,
Samuel Fuller. Robert Kramer,
Roger Corman og fl.
Þessi mynd Wim Wenders (m.a.
Amerfski vinurinn og Raris-Texas) er
eins konar hliðarspor. Myndin fjallar um
brösótta samvinnu bandarlskra og evr-
ópskra kvikmyndageröarmanna sem
eru að taka upp kvikmynd I Portúgal.
Samvinna Wenders og bandaríska leik-
stjórans Coppola (sem ma. skilaði af
sér myndinni „Hammet") er kveikjan
að þessari mynd, en sú samvinna leik-
stjóranna endaði með ósköpum.
Otto er et næsehorn
(Ottó er nashyrningur)
Dönsk 1983. Leikstjóri: Rumle
Hammerich. Aðalhlutverk: Axel
Ströby, Kirsten Roiffes, Birgit
Sandolin og Judy Grimger.
Dönsk barnamynd og frumraun leik-
stjórans Rumle Hammerich. Falleg og
hrífandi mynd um dreng sem öðlast
töfrablýant sem gerir allar teikningar lif-
andi. Drengurinn teiknar nashyrning,
hlúir síðan að honum (foreldrahúsum í
litlu þorpi ( Danmörku. Mynd sem er
full af ævintýrum og hugmyndaflugi.
Wo die griinen
Ameisen trdumen
(Þar sem grænu
maurana dreymir)
Þýsk 1984. Leikstjóri: Werner Her-
zog. Aðalhlutverk: Bruce Spence,
Wandjuk Marika, Ray Berrett,
Norman Kaye.
Þýski leikstjórinn Werner Herzog
Ima. Woyzek, Kasper Hauser, Stroszek
og Fitzgeraldo) er hér á ferðinni með
nýja mynd. Sú gerist í Ástralfu og fjallar
um baráttu frumbyggja við iðnjöfra og
auðhringa sem komast vilja yfir land-
svæði hinna fyrrnefndu og reisa þar
verksmiðjur. Sem fyrr fjallar Herzog um
árekstra tveggja heima, tveggja menn-
ingarsvæða, tvenns konar trúarbragða
og ólfkra viðhorfa.
Feroz
Spænsk 1983. Leikstjóri: M.
Guitiérrez Aragón. Aðalhlutverk:
Fernando Fernán Gómez, Fredric
de Pasquale, Elene Lizarralde.
Drengur breytist á undarlegan hátt í
björn (greinilega myndlfking á frumeðli
mannsins). Sálfræðingur heldur því
fram engu að síður að björninn sé mað-
ur, þrátt fyrir breytinguna, en dýrafræð-
ingur stendur á þvl föstum fótum að
björninn sé dýr. Sálfræðingurinn kennir
birninum mannasiði og menntar hann
með tilliti til þess að hann taki að sér
tölvuvinnslu. Þrátt fyrir táknræna frá-
sögn er myndin laus við allar menning-
arvitlegar pælingar og ber atburðarás-
ina á borð sem ævintýrasögu.
Ein Mann wie Eva
(Maður eins og Eva)
Þýsk 1983. Leikstjóri: Radu
Gabrea. Aðalhlutverk: Eva
Mattes, Lisa Kreuzer, Charles
Regnier, Werner Stocker.
Eftir dauða Fassbinders 1982 hefur
goðsögnin um leikstjórann magnast
stöðugt. I þessari mynd Gabrea er fjall-
að um Fassbinder sem kemst í fjár-
hagsþrot í miðjum upptökum á kvik-
mynd. Það furðulega við þessa mynd
er að fyrrverandi stjarna Fassbinders,
leikkonan Eva Mattes, leikur hinn
heimsfræga leikstjóra, (klædd leður-
jakka, með lafahatt og skegg á vöng-
um!
Sauve qui peut
(la vie)
(Bjargi sér sem betur
getur)
Frönsk/svissnesk 1980. Leikstjóri:
Jean-Luc Godard. Aðalhlutverk:
Isabelle Huppert, Jacques Du-
tronc, Nathalie Baye.
Sjálfspælingar Godards eru ekki nýj-
ar af nálinni. í þessari mynd sem hann
gerði I samvinnu við svissneska aðila,
segir leikstjórinn frá kvikmyndaleik-
stjóranum Paul Godard (!) sem á angist-
arfull samskipti við umhverfi sitt, ást-
konu s(na, vændiskonu, eiginkonu og
stálpaða dóttur.
Carmen
Spænsk, 1983. Leikstjóri: Carlos
Saura. Aðalhlutverk: Antonio
Gades, Laura Del Sol, Paco De
Lucia o.fl.
Mögnuð mynd Carlos Saura um
uppsetningu á óperu Bizet, og ábyrgð
listamanna, sem fjalla um lifandi hefðir
(eigin lista- og menningarsögu. Mynd,
sem titrar af frábærri tónlist, flamenkó-
dönsum og erótík.
Hverniq ég var
kerfisbunaið lagður í
rúst af fíflum
Júgóslavnesk 1983. Leikstjóri: Slo-
bodan Sijan. Aðalhlutverk: Danilo
Stojkovió; Jelisaveta Sabijió, Rade
Markovió.
Satlrisk mynd um frelsið og bylting-
una. Flækingur á götum Belgrad verður
snortinn við fráfall Che Guvera og
ákveður að feta (fótspor hans heima
fyrir. Uppgjör leikstjórans við kynslóð
stúdentaóeirðanna og blómahreyfing-
arinnar.
Prénom Carmen
(Hún heitir
Carmen)
Frönsk 1983. Leikstjóri: Jean-Luc
Godard. Aðalhlutverk: Maruschka
Cetmers, Jacques Bonnaffe, Myr-
iam Roussel.
Gestur Kvikmyndahátfðar og fransk-
ur nýbylgjupostuli sjöunda áratugarins
Godard virðist vera með kvengoðsagn-
ir ofarlega (huga. Nýjasta mynd hans er
um Mar(u mey I nútfmaformi (sjá á öðr-
um stað í þessum lista) en myndin sem
hann gerði þar á undan heitir Prénom
Carmen, goðsögnin um hina einu
Carmen sett ( nútímabúning þar sem
Carmen og Don José lögregluþjónn
gerast bankaræningjar. I stað hinnar
hefðbundnu tónlistar Bizets, velur God-
ard Beethoven sem uppistöðu ( kvik-
myndinni.
Silver City
(Skýjaborgir)
Áströlsk 1984. Leikstjóri: Sophia
Turkiewicz. Aðalhlutverk: Gosia
Dobrowolska, Ivar Kants, Anna
Jemison.
Ung, pólsk flóttakona kemur til
flóttamannabúða fyrir utan Sidney (
Ástralíu 1949. Þar kynnist hún öðrum
Pólverja sem er giftur. Það takast með
þeim heitar ástir, en ( hinu undarlega
umhverfi þar sem aðfluttir flóttamenn
og Ástrallubúar lifa, endar hið leynilega
samband þeirra með ósköpum. Tólf ár-
um síðar hittast þau aftur af tilviljun...
Keine Zeit fúr Tranen
(Eigi skal gráta)
Þýsk 1983. Leikstjóri: Herk Bohm.
Aðalhlutverk: Marie Colbin, Mic-
hael Gwisdek, Christine Limback,
Angela Schmidt.
Hark Bohm er leikari sem margir
kannast við úr myndum Fassbinders
(m.a. píanistinn í Lily Marlene). Hann
hefur gert sína fyrstu mynd um hina
frægu atburöi í Þýskalandi 1982 þegar
kona skaut morðingja dóttur sinnar (
réttarsalnum og tók þar með lög og
dóm (eigin hendur. Bohm verður gest-
ur Kvikmyndahátíðar.
The Gold Diggers
(Gullgrafararnir)
Bresk 1983. Leikstjóri: Sally Potter.
Aðalhlutverk: Julie Christie, Co-
lette Laffont.
Myndin fjallar um konur, gerð af
konu og þá væntanlega mest fyrir kon-
ur. Tekin að hluta til á íslandi 1982. Ce-
leste er dökk og frönsk og vinnur við að
mata tölvur f banka en tekur að gerast
gagnrýnin á kerfið, þjóðfélagið og
stöðu konunnar. Ruby er Ijós og bresk
og llður frá einum manni til annars (
táknrænum dansi, altsó andstæða Ce-
lesta
Rue Cases Negres
(Sætabrauðsvegurinn)
Martinique/Frakkland 1983. Leik-
stjóri: Euzhan Palcy. Aðaihlutverk:
Darling Legitimus, Gary Cadenat,
Douta Seck.
Fyrsta myndin frá frönsku nýlendu-
eyjunni Martinique í Vestur-lndíum.
Leikstjórinn er kona, Euzahan Palcy, og
handritið gert eftir skáldsögunni
„Sætabrauðsvegurinn" eftir Joseph
Zobel. Myndin er gerð að mestu leyti (
sjálfboðavinnu og fjallar um baráttu
blökkufólks á eyjunni árið 1930. Aðal-
söguhetjan er ungur blökkudrengur og
samskipti hans við önnur börn og aldr-
að fólk meðan fullorðna fólkið púlar á
sykurekrunum.
Je Vous salue Marie
(Ég heilsa þér María)
Frönsk 1984. Leikstjóri: Jean-Luc
Godard. Aðalhlutverk: Myriem
Roussel, Thierry Rode, Phillipe La-
coste, Juliette Binoche.
Einn helsti boðberi frönsku nýbylgj-
unnar á sjöunda áratugnum, kvik-
myndagagnrýnandinn og leikstjórinn
Godard, verður gestur Kvikmyndahá-
tíðarinnar. Nýjasta mynd hans um
Marfu hefur vakið mikinn úlfaþyt í kaþ-
ólskum löndum og víðar, og nýjustu
fréttir herma að páfinn hafi fordæmt
myndina. Ég heilsa þér María segir frá
meyjarfæðingu Marlu (nútímabúningi.
Jósef er leigubílstjóri og vonbiðill hinn-
ar ungu Mar(u. Einn daginn kemur
herra Gabrlel og segir hinni skírKfu
konu að hún sé með barni...
Die Erben
(Ungliðarnir)
Austurrísk 1982. Leikstjóri: Walter
Bannert. Aðalhlutverk: Nikolas
Vogel, Roger Schauer.
Tveir unglingar, annar úr yfirstétt og
hinn úr lágstétt, kynnast smám saman.
Þeir eru báöir tilfinningalega vannærðir
af fjölskyldum s(num en finna félags-
skap og rómantlk (röðum ný-nasista.
Þátttaka þeirra endar þó með skelfingu
og sekt. International Film Guide 1984
segir þessa mynd velleikna og mynd-
rænar lausnir góðar, en myndin sé yfir-
drifin og gerð af litlum sálrænum skiln-
ingi.
Boy meets girl
(Strókur í stelpuleit)
Frönsk 1984. Leikstjóri: Leos Ga-
rax. Aðalhlutverk: Denis Lavant,
Mireille Perrier, Carroll Brooks,
Ellie Poicard, Maité Nahyr, Crist-
ian Clonrec.
Þessi mynd er eftir 23 ára Frakka,
Leos Garax, og fékk góöar viðtökur f
Cannes (fyrra. Myndin segir frá strákn-
um Alex sem kvaddur hefur verið I her-
inn. Vinur hans er orðinn skotinn í vin-
konu hans. Alex ráfar um á Signubökk-
um, eftir að hann þykist kála vininum
og talar um það að vera ungur 1984.
Hann kemst á slóð unnustunnar, og
endar í skrautlegu samkvæmi. Boy
meets girl hefur verið kölluð einlægt
næturljóð I svart-hvftu, og höfundurinn
ungi verið nefndur arftaki stóru nafn-
anna (franskri kvikmyndagerð.
Suburbia
Bandarisk 1983. Laikstjóri: Pene-
lope Spheeris. Aðalhlutverk: Chris
Pederson, Bill Coyne, Jennifer
Clay, Timothy Eric O'Brien, Mic-
hael Bayer.
Ftenelope Spheeris er eitt þekktasta
nafn í utangarðskvikmyndagerð (USA.
Mynd hennar um pönkara ( Los Angel-
es, „Fall vestrænnar siðmenningar"
vakti mikla athygli. Þessi mynd fylgdi (
kjölfarið og fjallar um hræsni og sektar-
kennd þeirra sem fordæma utangarðs-
ungmennin. Tónlistin er ekta LA-rokk.
Spheeris hlaut 1. verðlaun á kvik-
myndahátíðinni ( Chicago f fyrra.
Le Bal
(Dansinn dunar)
Frönsk/alslrsk/ítölsk 1983. Leik-
stjóri: Ettore Scola. Aðalhlutverk:
Christophe Allwright, Aziz Arbia,
Marc Berman, Regis Bouquet,
Chantal Capron, Martine Chauv-
in, Liliane Delval, Francesco De
Rosa og m.fl.
Italinn Ettore Scola nam lögfræði og
vann sem blaðamaður áður en hann
hóf störf við kvikmyndaiðnaðinn. I
fyrstu skrifaði hann handrit en fyrstu
mynd leikstýrði hann 1964. Eftir hann
liggja myndir sem Signori e signore,
buonanotte (1976) og Una giornata
particolare (1977) og Passione d'amore
(1981). Árið 1983 gerði hann frægustu
mynd sína með Frökkum og Alsfrbú-
um, „Le Bal" og hlaut Silfurljónið (Berl-
(n 1984 fyrir. Le Bal er mögnuð mynd án
orða, sem sýnir sama dansstaðinn frá
1930 til (dag, þar sem á skiptast djass,
grátsöngvar, rokk, popp og diskó og
hinar miklu breytingar mannKfsins á
umræddum tímaskeiðum.
L'Argent
(Peningar)
Frönsk 1983. Leikstjóri: Robert
Bresson. Aöalhlutverk: Christian
Patey, Sylvie Van Den Elsen, Mich-
el Briguet, Caroline Lang.
Nýjasta mynd hins aldna meistara
Robert Bresson (m.a. Le journal d'un
Curé de Campagne (1950), Pickpocket
(1959) og Réttarhöldin yfir Jóhönnu af
örk (1962)). Í Reningum, sem er 13.
mynd Bressons, fjallar leikstjórinn um
ungan krimma sem snýr baki við verð-
mætamati þjóöfélagsins og slátrar aö
lokum heilli fjölskyldu. Formúlan er
glæpamyndarinnar, en myndin að öðru
leyti knöpp, spennt og ofbeldiskennd
og ( hinum dæmigerða leikstd sem
Bresson er frægur fyrir.
Dhrupad
Indversk 1983. Leikstjóri: Mani
Kaul.
Indversk spunamynd um indverska
tónlist.
18 HELGARPÖSTURINN