Helgarpósturinn - 09.05.1985, Síða 26
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur
10. maí
19.15 Á döfinni.
19.25 Krakkarnir í hverfinu.
19.50 Fróttaógrip á tóknmáli.
20.00 Fróttir og veöur.
2Ö.40 ,,Ekki óg". Þessa mynd lét Tóbaks-
varnanefnd gera um skaðsemi tób-
: aksreykinga.
21.00 Skonrokk.
£1.30 Þýskaland. Bresk heimildarmynd
// | um lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
22.15 Átrúnaðargoð. (The Fallen Idol) s/h.
Bresk bíómynd frá 1948 gerð eftir
sögu eftir Graham Greene. Leikstjóri
Carol Reed. Myndin gerist í sendi-
herrabústaö í Lundúnum. Barnungur
einkasonur sendiherrahjónanna verð-
ur mjög hændur að brytanum í hús-
inu. Honum er þó ofviða aö skilja at-
burði sem gerast í heimi fullorðna
fólksins og stofna vini hans í mikinn
vanda.
23.50 Fróttir í dagskrórlok.
Laugardagur
11. maí
16.30 Enska knattspyrnan.
17.45 íþróttir.
19.25 Jeiknimyndasyrpa.
19.50 Fróttaógrip ó tóknmóli.
20.00 Fróttir og veöur.
2Ö;35 Hótel Tindastóll.
21.10 Mærin og sígauninn (The Virgin
and the Gipsy). Bresk bíómynd frá
1970, gerð eftir sögu eftir D.H.
Lawrence. Leikstjóri Christopher
Miles. Aöalhlutverk: Joanna Shim-
kus, Franco Neri, Honor Blackman,
Mark Burns, Fay Compton og Maur-
ice Denham. Tvær prestsdætur snúa
heim til föðurhúsa eftir námsdvöl í
Frakklandi. önnur þeirra, Yvette, unir
illa höftum og siöavendni á heima-
slóðum. Hún velur sér vini, sem ekki
eru fööur hennar að skapi, og lætur
engar fortölur hefta sig.
22.45 Afgreitt mál (Kharij). Indversk bíó-
mynd frá 1983. Leikstjóri Mrinal Sen.
Ung hjón í Kalkútta taka í þjónustu
sína dreng sem snöggt verður um.
Rannsókn er hafin til að kanna hvað
valdið hafi dauöa drengsins og hvort
nokkur eigi sök á honum. Myndin lýs-
ir indversku hversdagslífi og er jafn-
framt ádeila á þá barnaþrælkun sem
viðgengst á Indlandi.
00.25 Dagskrórlok.
Sunnudagur
12. maí
18.00 Sunnudagshugvekja.
18.10 Leynilögreglumeistarinn Karl
Blómkvist. Endursýning.
18.40 Með íkorna ó öxlinni. Bresk mynd
um íkornann Sammy sem ólst upp
með kettlingum á heimili náttúru-
fræðings eins.
19,50 Fróttaógrip ó táknmáli.
20.00 Fróttir og veður.
2Ö 4Q Sjónvarp næstu viku.
20<55 Hvaðan komum viö? Fyrsti hluti af
þremur. Svipmyndir úr daglegu lífi á
síðustu öld eftir Árna Björnsson, þjóö-
háttafræðing. Flytjandi Borgar Garð-
arsson.
21.25 Til þjónustu reiöubúinn. Breskur
4 framhaldsmyndaflokkur.
22.20 Empire Brass Quintet. Þessi al-
| kunni málmblásara-kvintett leikur i
sjónvarpssal. Verkin eru af ýmsum
toga, frá Bach og Hándel til laga úr
West Side Story og Dixílanddjass.
22.55 Dagskrórlok.
Fimmtudagur
9. maí
19-00 Kvöldfróttir.
19J50 Daglegt mól.
20.00 Leikrit: „Kvöld í Hamborg" eftir
Stig Dalager.
21.05. Einsöngur í útvarpssal.
21.35 ,,Ef það skyldi koma stríð". Dag-
skrá í Ijóðum um stríð og frið í umsjón
Siguröar Skúlasonar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Þetta er þótturinn. Umsjón: örn
Árnason og Sigurður Sigurjónsson
23.00 Músikvaka.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Föstudagur
10. maí
07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Á virkum degi.
07.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur.
08.00 Fréttir.
09.00 Fréttir.
09.05 Morgunstund barnanna.
10.00 Fréttir.
10.45 ,,Þaö er svo margt að minnast á."
11.15 Morguntónleikar.
12.20. Fróttir. 12.45. Veðurfregnir.
14.00 ,,Sælir eru syndugir"
14.30 A lóttu nótunum.
16.00 Fréttir.
16.20 Síödegistónleikar.
17.00 Fróttir á ensku.
17J0 Síðdegisútvarp.
19,00 Kvöldfróttir.
19.55 Dfiglegt mál.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21/30 Fró tónskáldum.
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 Úr blöndukútnum. (RÚVAK).
23.15 Á sveitalínunni. (RÚVAK).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Laugardagur 11. maí
07.00 Fréttir. Tónleikar. Þulur velur og
kynnir.
08.00 Fréttir.
08.15 Veðurfregnir.
08.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar.
08.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur.
09.00 Fréttir.
09.30 óskalög sjúklinga.
11.20 Eitthvaö fyrir alla.
12.20 Frótfir.
14.00 Hór og nú.
15.15 Listapopp.
16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál.
16.30 Bókaþáttur.
17.00 Fróttir ó ensku.
17.05 Á óperusviðinu.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Þetta er þátturinn.
20.00 Útvarpssaga barnanna.
20.20 Harmonikuþáttur.
20.50 „Veröfall". Smásaga eftir Jórunni
Ólafsdóttur frá Sörlastöðum. Höfund-
ur les.
21.40 Kvöldtónleikar.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
22.35 Skyggnst inn í hugarheim og
sögu Kenya. 2. þáttur.
23.15 „Zarzuela". Teresa Berganza og
Placido Domingo syngja aríur úr
spænskum söngleikjum. Rafael Fru-
beck de Burgos og Luis Garcia-
Navarro stjórna hljómsveitum sem
leika með.
24.00 Miðnæturtónleikar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur 12. maí
08.00 Morgunandakt.
08.10 Fréttir.
08.35 Lótt morgunlög.
09.00 Fréttir.
09.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga.
11.00 Messa í Akureyrarkirkju.
Hádegistónleikar.
12.20 Fróttir.
13.30 Glefsur úr íslenskri stjórnmála-
Val Guömundar Jónssonar
menntaskólakennara
„Einhvern veginn er það nú svo að ég fylgist minna með útvarpi og
sjónvarpi en ég ætla mér. Þetta kemur svona í skorpum.
Ég hlusta lítið á útvarp, þá helst 7-fréttir að kvöldi. Ætli ég hlýði ekki á
frásöguna um vinnukonuna á kvöldvökunni á föstudaginn, sömuleiðis
erindi Vilhjálms Árnasonar og spjall Helga Skúla á sunnudaginn. Rás 2
í útvarpinu leiði ég að mestu leyti hjá mér.
Mér virðist sjónvarpsdagskráin um helgina vera býsna ásjáleg. Kvik-
myndina „Átrúnaðargoð" ætla ég að horfa á og kvikmyndirnar á laugar-
dagskvöldið hef ég á bak við eyrað — þetta eru a.m.k. ekki bandarískar
vandamálamyndir. Svei mér þá, ég horfi líklega á allt efni sunnudags-
kvöldsins. Spennandi verður að sjá hvernig tekst með „Hvaðan komum
við?“ Ég hef fylgst með „Til þjónustu reiðubúinn" og hef gaman af skop-
legri lýsingu á starfsbræðrum mínum í Bretiandi fyrir 60 árum. Þeir
minna mig stundum á suma sem ég þekki... “
sögu — Stéttastjórnmólin. 4. og
síðasti þóttur: Tryggvi Þórhalls-
son.
14.30 Fró tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar (slands í Háskólabíói 9.
þ.m. Fyrri hluti.
15.15 „Mín kristni hefur alltaf verið bar-
átta". Atli Rúnar Halldórsson ræðir
við séra Stefán Snævarr fyrrum pró-
fast á Dalvík. (Áður útvarpað 5. apríl
sl.).
16.00 Fréttir.
16.20 Um vísindi og fræði. Hvað eru
gagnrýnin félagsvísindi? Dr. Vil-
hjálmur Árnason flytur sunnudagser-
indi.
17.00 Fróttir á ensku.
17.05 Meö ó nótunum. Spurninga-
keppni um tónlist. 5. þáttur.
18.00 Á vori.
18.20 Tónleikar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfróttir.
19.35 Fjölmiölaþótturinn.
20.00 Um okkur.
20.50 Hljómplöturabb.
21.30 Útvarpssagan: „Langferð Jóna-
tans" eftir Martin A. Hansen. (5).
22.00 Tónleikar. Veðurfregnir. Fréttir.
22.35 íþróttaþóttur.
22.45 Eiginkonur íslenskra skálda. Ás-
gerður Bjarnadóttir kona Egils
Skallagrímssonar. Umsjón: Málm-
fríöur Siguröardóttir. (RÚVAK).
23.00 Djassþóttur.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Fimmtudagur 9. maí
20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda
rósar 2.
21.00-22.00 Gestagangur.
22.00-23.00 Rökkurtónar.
23.00-24.00 Gullhólsinn. Þriðji þáttur af
sex þar sem rakinn er ferill Michael
Jackson.
Föstudagur 10. maí
10.00-12.00 Morgunþóttur.
14.00-16.00 Pósthólfið.
16.00-18.00 Léttir sprettir.
23.15-03.00 Næturvaktin.
Laugardagur 11. maí
14.00-16.00 Lóttur laugardagur.
16.00-18.00 Milli mála.
24.00-00.45 Listapopp.
00.45-03.00 Næturvaktin.
Sunnudagur 11. maí
13.30-15.00 Krydd í tilveruna.
15.00-16.00 Dæmalaus veröld. Þáttur um
dæmalausa viðburöi liðinnar viku.
16.00-18.00 Vinsældalisti hlustenda
rósar 2.
SJÓNVARP
eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Gladst saman og grátið
ÚTVARP
eftir Halldór Halidórsson
Ofstœki í útvarpsráði
Þetta er svo sem ekki nýleg uppgötvun, en
látum gossa: ísland er afskekkt! Eyþjóðin
norður í Bailarhafi gerir sér fulla grein fyrir
því og heldur meðal annars uppi tveimur
ansi stórum flugfélögum til þess að geta
skroppið oftar en ekki yfir landamærin sem
í okkar tilviki eru í breiðara iagi. Eitt úthaf-
anna.
Þessi fjarlægð frá næstu byggðu bólum
hefur verið okkar lán í óláni, svo maður taki
landsföðurlega pólinn í hæðina: Vegna
hennar náðum við næsta afskiptalaust upp
sérstæðri útkjálkamenningu og tókst að
varðveita hana, ásamt fallegri forntungu og
sæmilegu frelsi í seinni tíð. En jafnframt liðu
áar okkar efnalegan skort sakir samgöngu-
erfiðleikanna á fyrri öldum og svo framvegis,
eins og það til dæmis í seinni tíð hve mikið
vesen það er okkur að fara á fund við danska
skinku. Ég man ekki alveg hvað apexinn
kostar í dag, en a.m.k. flýgur maður ekki
daglega. '
Og þannig kúrir maður einangraður í af-
skekktu landi, ef ekki landfræðilega eins og
fyrrum, þá fjárhagslega vegna þeirrar seðla-
býsnar sem reiða þarf af hendi fyrir flug-
miða. En þetta er kannski ekki svona alvar-
legt. Stjarnfræðilega nálgumst við megin-
löndin jafnt og þétt. Gervitungiin gefa okkur
í auknum mæli tækifæri til að samgleðjast
eða gráta með öðrum heimsbúum yfir sama
atvikinu á sama tíma. Beinum útsendingum
fer fjölgandi í sjónvarpi. Það er vel.
Þannig sáum við Júróvisión beint í annað
sinn á laugardagskvöld. Áður höfðum við
horft á enska drengi sparka beint. Og meira
til. Söngvakeppni sjónvarpsstöðvanna í Evr-
ópu (RUV er í þeirri álfu!) er gott dæmi um
sjónvarpsefni sem varla nýtur sín öðruvísi en
með beinum útsendingum. Þar kemur að
sjálfsögðu keppnin til, spennan og úrslitin;
ekki ósvipað fótboltanum. Fyrri tíma sýning-
ar íslenska sjónvarpsins á þessum söngva-
keppnum um eða yfir misserisgömlum, var
ekki sárabót, heldur eyðilegging á þessu
ágæta efni.
Og maður skyldi ætla að fyrst farið væri að
sýna þessa keppni loksins beint, væru allir
afskaplega ánægðir. Ekkert gæti gert þetta
efni betra eða verra en það kæmi fyrir á sín-
um útsendingartíma. En — ég ætla að nöldra
aðeins! í bæðl skiptin sem sjónvarpið hefir
sent okkur söngvakeppnina beint inn í stofu,
þ.e.a.s. í fyrra og núna, sendi það menn út til
að sitja í salnum á meðan glamorinn gekk og
útskýra fyrir landanum hvað þessar furðu-
legu hljóðmyndanir þýddu sem berast af og
til úr munni kynnisins uppi á sviði. Þetta er
góð viðleitni, þar sem það er ekki á færi allra
að skilja þessar misjöfnu tungur beint og si
sona. Og þar kemur sjálfsagt einangrun okk-
ar aftur til sögunnar.
Þessar þýðingartilraunir hafa mistekist
hrapallega í bæði skiptin og skemmt útsend-
inguna meira en skýrt hana. Þannig sat
Hinrik Bjarnason úti í sænska salnum á laug-
ardagskvöld og skildi ekki brandarana sem
Lill Lindfors lét frá sér fara í kynningu, en
þýddi að öðru leyti þurrlega að „two points"
væru tvö stig og svo framvegis. Þar fyrir utan
drógu innskot hans úr allri stemmningunni
sem myndaðist þó þarna.
Þetta þarf RUV að laga næst.
Frá Skúlagötu 4 berast slæm tíðindi. Meiri-
hluti útvarpsráðs telur Ævar Kjartansson
varadagskrárstjóra vanhæfan til þess að sjá
um þátt á laugardagsmorgnumj sumar ásamt
Ólafi H. Torfasyni á Akureyri. Ástæðan er sú,
að Ævar mun ekki vera í stjórnmálaflokki
með meirihluta ráðsins, sjálfstæðismönnum,
kratanum og framsóknarmanninum. Það
kemur ekki á óvart, að útvarpsráð taki póli-
tíska afstöðu, þegar fjallað er um dagskrána
frekar en þegar ráðið fjallar um umsóknir í
störf hjá útvarpinu, einkum fréttamanns-
störf.
Dæmin eru mýmörg.
Hins vegar eru bíræfnin og óforskömmug-
heitin með ólikindum í þessu tilviki. Pólitískt
kjörið útvarpsráð hafnar sjálfum varadag-
skrárstjóra útvarpsins sem þáttagerðar-
manni vegna þess að það þykist ekki geta
treyst á heiðarleika hans af pólitískum
ástæðum. í umræðum í útvarpsráði kom
þetta fram í máli manna eins og Eiðs Guðna-
sonar og Magnúsar Erlendssonar. Dæmi
nefndu þeir engin um vanhæfni Ævars sem
þáttagerðarmanns. Ævar hefur haft umsjón
með ýmsum þáttum og sýnt að hann er með
beztu útvarpsmönnum sem völ er á.
En pólitísk „hýstería" þessara manna kom
greinilega fram í máli þeirra, þegar þáttamál
Ævars bar fyrst á góma, m.a. að hann væri
of vinstri sinnaður til þess að vera í Alþýðu-
bandalaginu og þar með væri honum ekki
treystandi! Það sem þessum blessuðu of-
stækismönnum í útvarpsráði virðist sjást yfir,
er að með þessu eru þeir að lýsa almennu
vantrausti á starfsmann útvarpsins, sem unn-
ið hefur mjög gott starf hjá dagskrárdeild út-
varpsins og raunar komið sæmilegu starfs-
lagi á hana.
Ævar Kjartansson hefur verið seinþreyttur
til leiðinda vegna ýmiss konar óviðurkvæmi-
legra afskipta útvarpsráðs af störfum innan-
húss, en nú er mælirinn fullur. Meira að segja
Gunnar Stefánsson dagskrárstjóri, mikill
hæglætismaður, lætur hafa eftir sér í NT, að
það sé óþolandi að útvarpsráð hafi þau af-
skipti af dagskránni sem raun ber vitni.
Það hefur verið sagt um útvarpsráð, að það
sé ekkert annað en pólitískur varðhundur.
Þetta sagði Ævar Kjartansson í „Fjölmiðla-
þættinum" fyrr í vetur og hann leyfði sér að
segja, að það ríkti trúnaðarbrestur á milli
starfsmanna og útvarpsráðs. Þessu neitaði
Inga Jóna Þórðardóttir, formaður ráðsins. Nú
er ekki annað að sjá en Ævar hafi sagt orð
að sönnu.
Dæmið um Ævar er ekki það eina um
óviðurkvæmileg afskipti útvarpsráðs. Til
dæmis lumaði Inga Jóna á ungri íhaldskonu,
sem troðið var upp á Margréti Oddsdóttur í
dagskrárdeild og Sigríði Arnadóttur frétta-
mann, sem hugðust vera með þátt um
kvennamálefni í sumar.
Málsvarar frjálsrar fjölmiðlunar í útvarps-
ráði eru nú í fararbroddi vondra pólitískra
ríkisafskipta. Hvað liggur að baki? Það
skyldi þó ekki vera tilgangurinn að eyði-
leggja dagskrá útvarpsins frjálsum einka-
stöðvum í hag, þegar þær hafa fengið leyfi til
starfa?
Spyr sá, sem ekki veit.
Eitt er þó ljóst: Útvarpsráð hefur eina ferð-
ina enn gert sig sekt um óþolandi pólitísk af-
skipti, sem ekki verða látin óátalin.
26 HELGARPÖSTURINN