Helgarpósturinn - 01.08.1985, Page 4
SJÓNARSPIL Á
SJÓNVARPINU?
Hinrik fékk að velja sér stöðu. Ingi-
björg ætlar að bóka mótmæli í móli
Elínborgar. Er þegar búið að ókveða
að Ingvi Hrafn verði fréttastjóri?
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ eftir Egil Helgason myndir Jim Smart og fleiri ■■■■■■■■■i
Það er aldrei logn
á Rlkisútvarpinu,
svo mikið er víst. Ef
það eru ekki lands-
menn sem láta
rigna óvægnum
skömmum yfir
heimilisvinina út-
varp og sjónvarp, er
jafnvíst að þar eru
einhverjar nræring-
ar innan dyra;
mannaráðningar,
mannskaðar eða
önnur stórpólitísk
mál. Þetta hefur
ekki breyst I tíð hins
nýja útvarpsstjóra,
nema síður sé.
Markús Örn Antons-
son vinnur nú
ósleitilega að því að
treysta tök sín á
Ríkisútvarpinu,
vafalítið minnugur
þess að snemma á
næsta ári verður
áratuga einokun
þess úr sögunni.
Sumum þykir valda-
tafl útvarpsstjóra I
hæsta máta eðlilegt
— starfshætti stofn-
unarinnar verði að
laga að nýjum tím-
um og harðnandi
samkeppni. Aðrir
eru þess fullvissir að
þetta sé ekki annað
en pólitískt brölt
íhaldsmanna og
verður um og ó þeg-
ar þeir sjá fórnar-
lömbin, oft hina
hæfustu starfsmenn,
hlaðast upp við veg-
arkantinn.
I vor stóð styrinn um Ævar
Kjartansson, varadagskrárstjóra
hjá útvarpinu og formann starfs-
mannafélags þess. Nú eru það
miklar skipulagsbreytingar í yfir-
mannahaldi hjá sjónvarpinu, sem
kunngerðar voru fyrir skömmu.
Útvarpsstjóri hefur ákveðið að
leggja niður báðar dagskrárdeildir
sjónvarpsins, nefnilega frétta- og
fræðsludeild og lista- og skemmti-
deild. I stað þeirra verða stofnaðar
þrjár nýjar deildir; fréttadeild,
deild innlendrar dagskrárgerðar
og innkaupa- og markaðsdeild.
Það er reyndar harla ólíklegt að
upp komi gagnrýni á þessar breyt-
ingar sem slíkar; til dæmis þykir
sjónvarpsmönnum alveg sjálfsagt
að fréttastofan sé sjálfstæð eining
Markús örn Antonsson; pólitfskt
brölt eða eðlileg hagræðing?
Ingibjörg Hafstað; óeðlileg máls-
meðferð.
innan stofnunarinnar og sjái um
fréttaútsendingar og gerð frétta-
tengdra þátta. Verksvið deildanna
tveggja sem nú eru lagðar niður
var tvíþætt, hvort tveggja innkaup
á erlendum þáttum og framleiðsla
innlends efnis. Árangurinn hefur
vissulega verið umdeildur, sér-
staklega hvað lýtur að lista- og
skemmtideild, og því geta senni-
lega flestir tekið undir með út-
varpsstjóra að þetta sé „nauð-
synjamál með tilliti til breyttra
skilyrða og aukins umfangs."
Hinrik fékk
að velja sér stöðu
Samt gerast þessar skipulags-
breytingar langt í frá hávaðalaust.
Samtímis og fjölmiðlum var til-
kynnt um breytingarnar var nefni-
lega einnig skýrt frá því að Hinrik
Bjarnason, sem verið hefur for-
stjóri lista- og skemmtideildar,
hefði verið ráðinn deildarstjóri
hinnar nýju innkaupa- og mark-
aðsdeildar. Staðan var sumsé ekki
auglýst laus til umsóknar eins og
venja er, heldur mun Hinriki hafa
verið boðið að velja á milli stöðu
yfirmanns deildar innlendrar dag-
skrárgerðar og deildarstjórastöðu
í innkaupa- og markaðsdeildinni.
Hinrik þurfti víst ekki lengi að
velkjast í vafa um hvora stöðuna
hann ætti að velja — þeirri síðari
fylgja ferðalög og setur á ráðstefn-
um og kvikmyndahátíðum erlend-
is, en þeirri fyrri líklega hark og
þras um þá smápeninga sem sjón-
varpið hefur úr að spila til inn-
lendrar dagskrárgerðar.
Elfnborg Stefánsdóttir; sagði upp
samdægurs.
Ingvi Hrafn Jónsson; er þegar búið
að ráða (fréttastjórastöðuna?
Því fór fjarri að allir yrðu jafn-
kátir með þessa málsmeðferð.
Sannleikurinn er nefnilega sá að
Elínborg Stefánsdóttir dag-
skrárfulltrúi hefur borið hitann og
þungann af innkaupum á erlendu
skemmtiefni síðustu tíu árin. Hún
hefur próf frá háskóla, mikla og
góða reynslu í þessu starfi og auk-
inheldur persónuleg sambönd við
söluaðila og sjónvarpsstöðvar er-
lendis. Það hefði sumsé verið erfitt
íyrir útvarpsstjóra að ganga fram-
hjá Elínborgu ef staðan hefði verið
auglýst til umsóknar og hún sótt
um. En Hinrik er maður hægri afl-
anna og var á sínum tíma komið í
sína gömlu stöðu við harðan leik.
Til þess að slíkt endurtæki sig ekki
var honum sumsé boðið að velja
sér stöðu eftir hentugleikum, eins
og áður var greint frá. Þarna taldi
Elínborg Stefánsdóttir að hefði
verið ómaklega framhjá sér geng-
ið; hún sagði upp störfum sam-
dægurs og er ekki væntanleg aft-
ur, því hún mun eiga inni sumarfrí
sem nemur þriggja mánaða upp-
sagnarfresti. Dagskrárfulltrúa-
staða Elínborgar hefur nú verið
auglýst laus til umsóknar.
Annað sem stingur í augu er að
allar þessar breytingar eiga sér
stað meðan útvarpsráð er í sumar-
fríi. Það kemur svo saman aftur
níunda ágúst og vafalaust hafa þá
ýmsir eitthvað við skipulagsbreyt-
ingar Markúsar Arnar að athuga.
Ingibjörg Hafstað, fulltrúi
Kvennalistans, sagði í samtali við
Helgarpóstinn að þarna væri um
að ræða þrjár nýjar stöður hjá
Hinrik Bjarnason; valdi innkaupa-
stjórastöðuna.
Guöjón Einarsson; fréttamenn eru
honum hliðhollir.
sjónvarpinu sem allar hefði lögum
samkvæmt átt að auglýsa. Ingi-
björg segist ætla að láta bóka mót-
mæli við þessari málsmeðferð á
útvarpsráðsfundinum.
Ingvi Hrafn —
kandídat Markúsar?
Hinar stöðurnar tvær, yfir-
mannsstöður á fréttadeild og deild
innlendrar dagskrárgerðar, hafa
hins vegar verið auglýstar til um-
sóknar og rennur fresturinn út
sjötta ágúst. Sá orðrómur hefur
gerst æði þrálátur upp á síðkastið
að löngu sé búið að ákveða hver
hljóti hnossið á fréttadeildinni
þegar Emil Björnsson lætur þar
loks af störfum í haust. Það er
gamalkunnugt en jafnframt um-
deilt andlit úr röðum sjónvarps-
manna sem er nefnt til sögunnar
sem tilvonandi ritstjóri sjónvarps-
frétta — enginn annar en Ingi
Hrafn Jónsson, fyrrum þing-
fréttamaður og nú lausráðinn dag-
skrárgerðarmaður við stofnunina.
Ingvi Hrafn er gamall blaðamaður
af Mogganum, sjálfstæðismaður
og ekki síst góðkunningi Markús-
ar Arnar. Ráðning hans myndi því
aldeilis treysta tök útvarpsstjóra
og hægri manna á fréttastofunni.
Það er náttúrlega of snemmt að
fullyrða að það sé hreint sjónarspil
hjá útvarpsstjóra að auglýsa frétta-
stjórastöðuna. Á fréttastofunni eru
margir hæfir menn sem vel koma
til álita; Guðjón Einarsson frétta-
maður er í leyfi fram að áramót-
um, en hann gegndi stöðu vara-
fréttastjóra í áraraðir. Fréttamenn
sjónvarps munu vera þess fýsandi
að Guðjón sæki um, en hann kvað
vera á báðum áttum. En vissulega
yrði erfitt að ganga framhjá manni
með jafnmikla reynslu og hann
hefur. Fleiri eru nefndir til; Helgi
H. Helgason, sem upp á síðkastið
hefur hlaupið í skarðið fyrir Emil
Björnsson; Sigrún Stefánsdóttir
sem reyndar mun ætla að halda
utan í haust; og þá má ekki gleyma
öðrum ágætum fréttamönnum —
Ögmundi Jónassyni, Páli
Magnússyni, Einari Sigurðs-
syni og svo framvegis.
Sækja allir fréttamenn um?
Þegar Helgarpósturinn spurðist
fregna á fréttastofu sjónvarpsins
var þeim sögusögnum hvorki neit-
að né játað að nær allir frétta-
menn stofnunarinnar ætluðu að
sækja um téða stöðu, hvort sem
þeir ágirntust hana eður ei. Og
hvers vegna skyldu þeir ætla að
þvælast þannig hver fyrir öðrum?
Jú, það væri þá í mótmælaskyni
við fyrirhugaða ráðningu Ingva
Hrafns, sem sagður er njóta lítillar
hylli á fréttastofunni. Þar á bæ
voru menn þó ekki almennt búnir
að gera upp hug sinn, enda margir
fjarverandi vegna sumarleyfa.
Útvarpsráð þarf auðvitað að
gefa umsögn um mannaráðningar
hjá Ríkisútvarpinu, þótt það hafi
gerst að útvarpsstjóri gengi í ber-
högg við álit þess. Vinstri helming-
ur þess mun án efa beita sér gegn
Ingva Hrafni, komi nafn hans upp
úr einu umslaginu, og þá ráðast
málalyktir af því hvort fulltrúar
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
verða á eitt sáttir.
Engin slagsmál
um „Ijónagryfjuna"
Á útvarpsráðsfundi verður líka
fjallað um þriðju toppstöðuna á
sjónvarpinu — stöðu yfirmanns í
deild innlendrar dagskrárgerðar.
Það er spurning hvort mönnum
þyki hún jafngirnileg og hinar
tvær á tíma þegar fjársvelt ríkis-
sjónvarp þarf að standa í kapp-
hlaupi við einkaaðila um hylli
landsmanna. Ég er hræddur um
að þessi staða verði hálfgerð ljóna-
gryfja, sagði einn viðmælenda
Helgarpóstsins á sjónvarpinu. Enn
sem komið er eru líka fáir orðaðir
við þessa stöðu — helst Tage
Ammendrup, einn elsti og al-
reyndasti starfsmaður sjónvarps-
ins.
Það ríkir sumsé óvissa á sjón-
varpinu, nú þegar styttist óðum í
að samkeppnin umtalaða bresti á.
Hjá sjónvarpinu viðurkenna menn
að stofnunin sé rekin á algjöru lág-
marki þessa dagana — eins og
sjónvarpsnotendur hafa sjálfsagt
tekið eftir. Eins og kemur fram hér
að ofan er óvíst hvernig tekst til
með ráðningar yfirmanna, og svo
má ekki heldur gleyma því að
óvíst er að nokkur lausn fáist á
málum tæknimanna sem nú reyt-
ast hægt og bítandi af sjónvarpinu.
4 HELGARPÓSTURINN