Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 01.08.1985, Qupperneq 13

Helgarpósturinn - 01.08.1985, Qupperneq 13
ósk krata þessa dagana að alþingis- kosningar fari fram hið fyrsta (sbr. þokkalegt fylgi í skoðanakönnun- um) og í samræmi við það leitar Jón Baldvin Hannibalsson formaður nú logandi ljósi að spennandi fram- bjóðendum á lista flokksins í kjör- dæmum landsins. Leiðtoginn var á dögunum staddur á Akureyri þess- ara erindagjörða, og gerði sér m.a. ferð á ritstjórnarskrifstofu íslend- ings, málgagns Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Er- indið var að ræða við Tómas Inga Olrich, ritstjóra blaðsins og menntaskólakennara, og segir sag- an að Jón Baldvin hafi farið huggu- lega í kringum ámálgan um að Tóm- as tæki fyrsta sæti á lista krata í kjör- dæminu. Ástæðan fyrir hrifningu Jóns Baldvins á útverði borgara- legra verðmæta í kjördæminu mun vera sú, að ritstjórinn skrifaði grein um byggðastefnu sem féll Jóni Bald- vini einkar vel í geð. Engum sögum fer hins vegar af viðbrögðum Tóm- asar við erindi Jóns Baldvins. Kunn- ugir á Akureyri undrast þetta uppá- tæki Jóns Baldvins mjög, því þeir þykjast hafa tekið eftir því undan- farnar vikur og mánuði að Tómas ritstjóri stefndi á frama innan Sjálf- stæðisflokksins. Þá þykir mönnum einnig undarlegt að Jón Baldvin skuli ekki leggja neina sérstaka áherslu á að fá Arna Gunnarsson, fyrrv. þingmann Alþýðuflokksins í kjördæminu, í framboð. Almanna- rómur segir að Árni njóti mikils fylg- is. En allt er þetta spurning um hver eigi upp á pallborðið hjá formannin- um og eftir því sem HP hefur síðast frétt velta Jón Baldvin og hans helstu ráðgjafar því nú fyrir sér hvort ekki væri ráðlegast að Bryn- dís Schram tæki fyrsta sæti Al- þýðuflokksins í kjördæminu... c C^^umir verkalýðsforingjar hafa unnið af miklum krafti í sumar við að undirbúa kjarabaráttu vetrarins, en eins og kunnugt er verða samn- ingar VSI og ASÍ lausir um áramót- in. Fremst í flokki er gamla kempan Guðmundur J. Guömundsson, formaður Dagsbrúnar og Verka- mannasambands íslands. hefur Jak- inn þegar hafið baráttuna meðal fiskvinnslufólks og sá VSÍ sig knúið til að slíta bónusviðræðunum við VMSÍ í gær, miðvikudag, eftir að Jakinn og félagar höfðu lagt fram kröfu um að einfalda bónuskerfið í fiskvinnslu, gera það meira kaup- aukandi og minnka álag á verka- fólkið. Hefur nú forystusveit Verka- mannasambandsins lagt til að ekki verði unnið í bónusvinnu frá 9. sept- ember þangað til nýir samningar liggja fyrir. En þetta er aðeins byrj- unin á fyrirhugaðri endurreisn verkalýðsins. Dagsbrúnarmenn vinna nú af miklu kappi við að und- irbúa kröfugerð sína fyrir nýja samninga um áramót. Dagsbrúnar- B HV ókautgefendur brydda stöð- ugt upp á nýjungum til að vinna sigra á hinum erfiða samkeppnis- markaði bókarinnar. Bókaútgáfan Vaka, sem Ólafur Ragnarsson og félagar reka, hefur stofnað blóma- klúbb fyrir félaga sem áhuga hafa á ræktun inniplantna. Félagar í blómaklúbbnum frá blómabók, skreytta litmyndum og fræðandi texta, á sex vikna fresti undir kjör- orðinu „Láttu heimilið blómstra." En það sem okkur á HP þykir fýsi- legast er að hverri bók fylgir fræ- poki sem klúbbmeðlimir geta stráð úr í mold svo að upp spretti blóm. Hugmynd þessi mun vera komin frá Svíþjóð, þar sem blómaklúbbar dafna vel meðal bókaorma. Hins vegar visnar ekki útgáfan hjá Vöku, því nú munu þegar vera komnir yfir fimm þúsund félagar í blómaklúbb- inn. Það næsta verður sennilega að forlögin stofni t.d. dýraklúbba og að hundar, hestar eða rollur verði keyrð heim með hverri bók... menn voru þeir sem lögðust harðast gegn undirritun samninganna í sumar en ákváðu að þegja og sam- þykkja; í stað þess að gera uppreisn gegn Ásmundi Stefánssyni, forseta ASI, og vasatölvusósíalistum hans. Nú hafa Dagsbrúnarmenn sem sagt haft allan vara á og mæta til leiks vel undirbúnir fyrir veturinn, því Guð- mundi J. og fleiri forystumönnum í launþegahreyfingunni er ljós sú staðreynd, að nú er um líf eða dauða verkalýðsstéttarinnar að tefla; ef éinkasamningar á frjálsum markaði halda áfram og hagfræðingar ASÍ ná undirtökunum endanlega í verkalýðsbaráttunni, mun pólitísk verkalýðshreyfing eiga á hættu að þurrkast út. Það stefnir því í líflegan vetur í kjaramálum með tilheyrandi átökum og verkföllum. . . Örugg vemd Innstæða á Kjörbók er varin gegn árásum verðbólgunnar. í>ú nýtur ávallt góðra kjara hvenær sem þú leggur inn. LANDSBANKINN Grœddur er geymdur eyrir

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.