Helgarpósturinn - 01.08.1985, Síða 15

Helgarpósturinn - 01.08.1985, Síða 15
IISTAPOSTURINN Adrienne Hawkins sýndi hvernig hægt er að gefa allt í botn án þess að ofgera á nokkurn hátt... BLAMENNI BÆNUM Það var svartur galdur á parket- gólfiKramhússins á mánudgskvöld- ið síðasta. Mér skilst að þannig hafi það verið undanfarið og íslenskir hafi roðið svörtum rýþma á sálirnar og látið líkamann sveiflast uppá afr- ísku. Það er stórgott og vel leið gömlum djassgeggjara undir skemmtun þeirri er Kramhússstjór- ar buðu uppá. Eggjandi dans Adri- enne Hawkins hinnar bandarísku og íslenskra ballerína var glœsileg- ur, þótt hljómur sáltónlistarinnar í hátölurum vœri ekki sem skyldi. Afrískir danssprettir Á fyrri hluta dagskrár voru framd- ir nokkrir danssprettir. Var það af- rakstur af námskeiði sem staðið hef- ur yfir í Kramhúsinu undanfarið. Námskeiðið var tvíþætt, annars vegar Modern Jazz (nútíma-jass), sem Adrienne Hawkins kenndi, og hinsvegar „afro“, sem trumbumenn frá Senegal sáu um. Adrienne flutti nokkur sölónúmer (að sjálfsögðu öll við svarta tónlist) og sýndi okkur hvernig hægt er að gefa allt í botn í dansi án þess að ofgera á nokkurn hátt, og tókst að laða fram geysi- kraft sem smitaði út frá sér. íslenskir dansarar fengu að láta Ijós sitt skína. Meðlimir úr íslenska dansflokknum, þær Auður Bjarna- dóttir, Lára Stefánsdóttir og Katrín Hall, fluttu verk af innri sálarþunga, og er gaman að sjá hvíta dansara fremja „svartan dans“. Ástrós Gunn- arsdóttir átti þarna sóló, en hún hef- ur undanfarinn vetur verið við nám hjá Alvin Ailey og tekið miklum framförum sem dansari. Ástrós hef- ur töluvert annan bakgrunn en myndir Jim Smart Blámennirnir Keyssi, Ken og Samba í hvltum kyrtli ásamt Abdu í gallabuxum... dansarar ísl. dansflokksins (þ.e.a.s. ekki klassíska þjálfun) en það háir henni engan veginn tæknilega. í lokin tók Adrienne léttan ,,afró“ danssprett með einum meðlimi úr Senegal-sveitinni við mikinn fögn- uð áhorfenda. Þetta kallar maður fjöruga þjóðdansa! Það væri kannski hægt að brjóta upp þjóð- dansaform okkar (með fullri virð- ingu) og setja smá offbít í „Fram, fram fylking" svona til tilbreytingar. Pólýfóniskur ryþmi Svo var komið að blámönnunum afrísku. Keyssi, Ken og Samba frá Senegal og Denny frá Zaire, ásamt Abdu frá Marokkó sem býr hérlend- is, slógu trommur, dönsuðu og sungu. Þeir fjórmenningarnir búa í Brússel. — Keyssi og Ken með langa afrólokka, Samba í hvítum kyrtli og Denny í skrautlegum búningi ásamt Abdu í gallabuxum, stóðu við tjald- aðan spegilvegg og börðu trumbur. Pólýfónískur rýþminn magnaðist og svo var sungið. Djassinn á ættir að rekja til vestur-afrískrar tónlistar og trúlega er margt óbreytt í seneg- ölskum trumbuslætti nútímans og þess er forfeðurnir fluttu með sér yf- ir Atlantsála á sautjándu öld. í það minnsta minnti margt á söngl og trumbuslátt þess kúbanska 'Chano Pozo, er m.a. flutti Cuban Be, Cuban Bop með stórsveit Dizzy Gillespie 1947. Ceddo er flokkurinn nefndur og Keyssi Bousso fyrirliðinn sem dansaði stundum við vin sinn Ken og flutti sá margan góðan formál- ann fyrir verkunum, meðan Samba studdi fæti á tomtomtrommuna með Krupa-málmgjallinu og barði. Helstur hljóðfæraleikari hópsins er þó Denny frá Zaire — Denis Mpunga heitir hann fullu nafni og er í hljóm- sveitinni Eko-Kuango í Brússel ásamt einum landa sínum, Þjóð- verja Og Belga. Þeir leika afródjass þarsem afrískur rýþmi og söngur með eilitlu poppbragði er í bland við djasssólóa. Denny sló trumburn- ar einsog sá sem valdið hafði og einnig lék hann á balafon, hinn afr- íska sýlófón, svo og sansa; fingrapí- anóið afríska af málmi gert — var það rafmagnað þarna. Denny dans- aði líka og þá varð fyrst ljós hin afr- íska mýkt — svo fékk hann áheyr- endur til að syngja með sveitinni og var það hin besta skemmtun. Um verslunarmannahelgina verða þeir félagar í Atlavík ásamt Stuðmönn- um. Þar verður örugglega rosalegt stuð í samspili hinna afrísku og ís- lensku blámanna! En það eru fleiri afríkanar í Reykjavík um þessar mundir. í kvöld og næstu kvöld skemmtir Cab Kay á Nausti. Hann er frá Ghana en býr í Hollandi. Hann tók í tromm- urnar hjá Fats Waller í London fyrir stríð og kom hingað 1952 og lék ‘ m.a. með Gunnari Ormslev. Cab er píanisti og söngvari — syngur gjarn- an standarda og auk þess eigin verk. Hann hefur líka með sér trommur margskonar, s.s.taltrommur. Það er margt að gerast í heims- borginni Reykjavík! _ VL/EE. HELGARPÓSTURINN 15

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.