Helgarpósturinn - 07.08.1986, Blaðsíða 10
HP
HELGARPÖSTURINN
Ritstjórar:
Ingólfur Margeirsson og
Halldór Halldórsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Blaðamenn: Egill Helgason,
Friðrik Þór Guðmundsson,
Jóhanna Sveinsdóttir,
Jónína Leósdóttir og G. F^tur
Matthíasson.
Útlit: Jón Oskar Hafsteinsson.
Ljósmyndir: Jim Smart.
Útgefandi: Goðgá h/f.
Framkvæmdastjóri:
Hákon Hákonarson.
Skrifstofustjóri:
Garðar Jensson.
Auglýsingastj.óri:
Steinþór Ólafsson.
Auglýsingar:
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Sigurður Baldursson.
Dreifing:
Garðar Jensson
(heimasími: 74471).
Berglind Björk Jónasdóttir.
Afgreiðsla:
Ólöf K. Sigurðardóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
68-15-11. Afgreiðsla og skrifstofa
eru að Ármúla 36.
Sími 68-15-11.
Setning og umbrot:
Leturval s/f.
Raun og vextir
Það er skammt stórra högga á
milli á íslenskum fjármagns-
markaði. Á síðasta áratug
kepptust menn við að hella sér
út í skuldir sem verðbólgan sá
síðan um að koma í lóg. Heilu
kynslóðirnar komu sér þannig
upp þaki yfir höfuðið og þeir
sem höfðu þor og nennu
græddu á tá og fingri og juku sí-
fellt umsvif sín með því að
bæta við skuldum. Þau fyrir-
tæki sem skulduðu mest
blómstruðu þar til allur áburður
var horfinn úr efnahagslífinu.
Eftir sátu þeir sem höfðu þráast
við að hella sér út í hringiðuna
og geymdu enn sitt sparifé í
bönkum.
Þegar í óefni var komið var
gripið til þess ráðs að koma hér
upp raunvaxtakerfi. Þá snerist
dæmið við. Vegna þess að allt
sparifé landsmanna var uppur-
ið gátu þeir, sem eitthvert fé
áttu aflögu, nú stjórnað lána-
markaðinum og krafið skuldara
sína um óheyrilega vexti. í stað
hins verðbólgna hugarfars var
nú komið annað. Nú þótti sjálf-
sagt að græða sem mest á
þeim sem sárvantaði peninga
og menn okruðu hver á öðrum,
bæði leynt og Ijóst. Raunvext-
irnir urðu þeim einkum raun er
þurfu að borga þá.
Þeir sem ekki voru nógu fljót-
ir að söðla um klemmdust fastir
á milli þessara kúvendinga.
Menn sem áður töldu sig
stjórna stöndugum fyrirtækj-
um vöknuðu upp á hraðsigl-
ingu í gjaldþrot og húskaup-
endur komust að því að þeir
voru ekki bara að reisa sér þak
yfir höfuðið heldur einnig hurð-
arás um öxl. En á sama tíma og
þessir reyndu að bjarga sér á
sundi úr skuldafeninu stóðu
aðrir á bakkanum og hentu til
þeirra björgunarlínu sem þeir
tóku vexti af fyrirfram svo hún
náði aldrei til þeirra sem voru
að drukkna.
Og á sama hátf og sparifjár-
eigendur fengu ekki samúð
nokkurs manns áður urðu þeir
sem bitu í hið súra epli hávaxt-
anna að kyngja því í hljóði.
„Þeim var nær" — sögðu þeir
sem stóðu á andlitinu á þeim
og þökkuðu sínum sæla fyrir
að hafa fleytt sér á þessari hol-
skeflu, um leið og þeir skimuðu
eftir þeirri næstu.
Og þeir eru vissir um að hún
komi því það er enginn vilji fyrir
því til lengdar að gutla í lygnum
polli.
BREF TIL RITSTJORNAR
Veitid ríkis-
búskapnum
aðhald
Kópavogi 19.7. 1986.
Ég hef keypt Helgarpóstinn nokk-
uð reglulega á undanförnum árum
og oftast nær líkað vel við lesning-
una. Greinar blaðsins um þau atriði
í þjóðlífinu sem betur mættu fara
eru vel unnar, en það sem ég met þó
kannski mest við þær, er að þær eru
settar fram af óhlutdrægni og heið-
arleika, sem því miður fer að verða
sjaldgæft hjá þeim fjölmiðlum
landsins sem hvað áfjáðastir eru í að
kalla sig frjálsa og óháða.
Mér hefur samt fundist upp á síð-
kastið, við lestur blaðsins, að gagn-
rýni þess hafi í æ ríkari mæli færst
yfir á einkaaðila, til dæmis hlutafé-
lag í kjölfar Hafskipsumræðunnar, á
kostnað ríkisbúskaparins, þar sem
siðferðisbresturinn og óráðsían er
engu minni en hjá öðrum aðilum.
Ég vil sérstaklega benda á Byggða-
stofnun og fjölmarga þá sjóði sem
honum tengjast — og oftar en ekki
er stjórnað af misvitrum mönnum,
þangað komnum fyrir tilstilli póli-
tísks klíkuskapar.
Milljónirnar sem þarna hafa farið
í súginn eru margar á undanförnum
árum og fer sjáifsagt ekki fækkandi
nema aðhald fjölmiðla aukist. Helg-
arpósturinn sýndi á árum áður að
hann gat stuggað við kerfinu. Mér
virðist að það aðhald sem hann
sýndi því fyrir nokkrum árum hafi
verið miklu meira en nú er orðið,
þegar megináherslan er að finna
glæpina innan hlutafélaganna, sem
þó auðvitað verður að leggja
áherslu á jafnframt.
En gleymið ekki ríkinu, slakið
ekki á aðhaldinu á því sviði. Þess
hefur sjaldan verið meiri þörf en
einmitt núna.
HP-lesandi
Athugasemd ritstj.
HP þakkar bréfið — og tekur áskor-
uninni.
Ritstj.
✓
Utvarp en ekki
útvarpsrád
í umfjöllun mína um útvarp í síð-
asta tölublaði slæddist inn leiðinleg
prentvilla, sem ruglaði heldur betur
þýðingu setningarinnar og þar með
pistilsins í heild. í stað orðsins ,,Út-
varp“ setti prentvillupúkinn ,,út-
varpsráð", en það er jú eins og flestir
vita allt annar handleggur. Setning-
in átti að vera á þessa leið:
Þessi viðleitni til afnáms ritskoð-
unar (húrra, Sverrir — aldrei slíku
vant!) mætir alheilagri vandlætingu
fjögurra útvarpsráðsmanna, sem
sent hafa frá sér fréttatilkynningu
þess efnis að þeir ætli VÍST að
ákveða fyrirfram hvað megi segja í
útuarpid og hvað ekki!
Jónina Leósdóttir blaðamadur
Egill Helgason
ritstjórnar-
fulltrúi á HP
Að undanförnu hefur Egill Helga-
son starfað sem ritstjórnarfulltrúi
hér á Helgarpóstinum í fjarveru rit-
stjóra, og mun hann gegna því starfi
fram á haustdaga, þegar hann
hverfur að líkindum til námsdvalar
erlendis. Egill Helgason hefur starf-
að við blaðamennsku um fimm ára
skeið; fyrst á Helgarblaði Tímans,
því næst á Helgarpóstinum, þá á NT
og í vor tók hann aftur til starfa hér
á ritstjórn Helgarpóstsins. Auk
þessa hefur Egill fengist við lausa-
mennsku af ýmsu tagi fyrir blöð og
tímarit.
■■■ rátt er liðið hálft það kjör-
tímabil sem Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti lslands, hefur lýst yfir að
verði líkast til hennar síðasta í því
embætti. Og við heyrum að nokkrir
nánustu samstarfsmenn hennar í
stjórnarráðinu hugsi sér til hreyf-
ings, meðal annarra Halldór
Reynisson forsetaritari. Hann er,
sem kunnugt er, prestlærður og er,
að því er HP er tjáð, farið að langa
til að praktísera. I því sambandi er
vísað til fjölgandi ferða hans austur
á bóginn og alla leið upp í Hruna í
Hrunamannahreppi, fallegan stað
og sögufrægan kirkjubæ, þar sem
Sveinbjörn Sveinbjörnsson lætur
brátt af störfum sem klerkur. Þykir
heimamönnum sem allur fram-
gangur Halldórs á staðnum sé til
marks um að hann hugsi sér brauð-
ið. Þar með losnaði eftirsótt ritara-
starf hjá æðsta manni þjóðarinnar
og hefur áður verið bent á séra
Bernharð Guðmundsson sem lík-
legan eftirmann Halldórs í það
embætti. Ku ekkert hafa breyst í því
efni...
o
^^■staðfestar fregnir úr bóka-
heiminum herma að Forlagið
hyggist gefa út viðtalsbók við Þur-
íði Pálsdóttur söngkonu fyrir
næstu jól, enda hafa slíkar bækur
verið afar góð söluvara undanfarin
ár. Úr sömu átt berast þau tíðindi, að
Mál og menning hafi verið með
bók um Guðmund J. Guðmunds-
son í vinnslu áður en til stórtíðinda
dró vegna heilsubótarferðar hans
um árið. Hvort vinnslu bókarinnar
hafi verið haldið áfram eftir vinslitin
frægu, vitum við ekki, en það er
auðvitað spurning hvort „Aiberts-
þætti“ verði eitthvað breytt í ljósi
nýjustu sögutúlkana...
ÍESins og við skýrðum frá í síð-
asta Helgarpósti mun hús Björg-
ólfs Guðmundssonar, Hávallagata
1, vera komið á söluskrá. En hver
ætlar að kaupa? Verð eignarinnar
er sagt vera um 17 milljónir. Þó er
farið að nefna nöfn í þessu sam-
bandi og er eitt þeirra nafn Guð-
jóns B. Ólafssonar, næsta Sam-
bandsforstjóra. Það væri heldur
ekki óviðeigandi, því húsið reisti
Vilhjálmur Þór, sem í eina tíð var
forstjóri Sambandsins.. .
l£nn eitt ,,Líf-blaðið“ er á leið-
inni á markaðinn. Það er Veiðilíf
sem klúbbur að nafni Fluguhnýt-
ingarklúbburinn Fjaðrafok ætlar
að gefa út. Blaðið á að vera veglegt
eins og hin Líf-blöðin og fjalla um
alls konar sportveiðimennsku og
mun væntanlega fjalla um laxveiði
og fleira fínirí. Og mennirnir á bak
við klúbbinn eru ekki ómerkari
menn en Guðlaugur Bergmann,
forstjóri Karnabæjar, stjórnarmaður
í Arnarflugi og fyrrverandi stjórnar-
maður í Hafskip, Sigurður Vald-
imarsson, forstöðumaður Víxla- og
verðbréfadeildar Útvegsbankans,
og Henrik Thorarensen...
v
■V íkurfréttir í Keflavik greindu
nýskeð frá því að Byggðastofnun
hefði fyrsta þriggja mánaða starfs-
feril sinn í fyrra lánað 8 milljónir í
fyrirtækið Kanínumiðstöðina í
Njarðvík, en aðeins 2 milljónir á
sama tíma í sjávarútvegsfyrirtæki á
Suðurnesjum. Þó, segir blaðið, veitir
Kanínumiðstöðin aðeins sárafáum
atvinnu, en útvegsfyrirtækin hundr-
uðum manna. í þessu sambandi var
bent á að Kanínumiðstöðin væri al-
farið „hermangaragróðafyrirtæki" í
eigu Járn- og pípulagningaverk-
taka Keflavíkur hf. Þetta fyrirtæki
er eitt af fjórum sem til samans
mynda Keflavíkurverktaka, sem
síðan er 50% eignaraðili að ís-
lenskum aðalverktökum. Suður-
nesjamenn hafa á undanförnum
árum horft uppá þessi fyrirtæki fara
út í hinar og þessar fjárfestingar fyr-
ir gróða sinn af viðskiptum við her-
inn og er sagt að þau viti vart hvað
skuli gera við alla peningana. ís-
lenskir aðalverktakar dembdu sér
út í „Watergate“höllina í Reykja-
vík, Rafmagnsverktakar Kefla-
víkur hf. hafa verið með í stofnun
Ramma hf. auk þess að eiga stór-
hýsi á Iðavöllum í Keflavík. Málara-
verktakar Keflavðíkur hf. munu
vera að reisa stórhýsi í Njarðvík sem
enginn veit hvaða tilgangi á að
þjóna og Byggingaverktakar
Keflavíkur hf. eru að koma fé sínu
í lóg með byggingu stórs hótels í
Keflavík. Frammi fyrir þessu öllu
urðu þeir á Víkurfréttum forviða yf-
ir því að þessi sterkefnuðu fyrirtæki
skuli síðan vaða í opinbera sjóði
meðan sjávarútvegurinn sveltur.
Framkvæmdastjóri JPK og um leið
Kanínumiðstöðvarinnar er Ingvar
Jóhannsson vélvirkjameistari og
var hann að vonum óánægður með
skrif Víkurfrétta. Enda birtist
feiknamikil svarfrétt í blaðinu
Reykjanesi, en að sögn heimilda-
manna HP er Ingvar reyndar helsti
styrktarmaður þess...
■ yrir skömmu birti hið virta,
danska dagblað, Information, við-
tal við sænska rithöfundinn Torgny
Lindgren, tekið á Laugarvatni þar
sem hann var gestur á samnorrænni
móðurmálskennararáðstefnu. Við-
talinu fylgir mynd af Torgny með
gufustróka í baksýn og snævi þak-
inn Heklutind. Blaðamaðurinn ger-
ir hvað hann getur til að lýsa þessu
stórbrotna umhverfi á sem fjálgleg-
astan hátt, enda við hæfi þar sem
Torgny fjallar mikið um samspil
manns og náttúru í verkum sínum.
En blaðamanninum varð heldur
betur á í messunni þar sem hann
segir: ,,Og þarna sjáum við Torgny
Lindgren með snævi þakinn Etnu-
tind í baksýn...
l lauflétt saga af undirbún-
ingi afmælishátíðar borgarinnar.
Borgarfulltrúar munu eiga að
standa í ströngu þá 3 daga sem há-
tíðarhöldin standa yfir. Varð einum
þeirra að orði í samtali við Helgar-
Helgarpósturinn væntir góðs af
starfi Egils Helgasonar sem rit-
stjórnarfulltrúa.
Ritstj.
*
Aréttun
Fyrir skömmu greindum við stutt-
lega frá nokkrum nýliðum síðustu
ára í Frímúrarareglunni. Við gátum
þess réttilega að Sveinn G. Sveins-
son verkfræðingur hefði gengið í
regluna, en á hinn bóginn fór það
því miður fram hjá okkur að Sveinn
hefði látist í fyrra. Helgarpósturinn
biður aðstandendur forláts.
Ritstj.
LAUSNÁ
SPILAÞRAUT
17 Anderson
1. Kd6! hótar 2. Db7 mát.
1. — Hg6+ 2. Be6
Hd3+ 2. Bd5
Laglega hindrar hrókurinn bisk-
upinn í helstu afbrigðunum.
18 Samuel Loyd
1. Dal + ! Kxal 2. Rxb4 Ba2 3.
Rxc2 mát.
Eftir drottningarfórnina verður
svartur að leika sig í mát.
1. Dal+ Kb3 2. Dc3+ og síðan
annaðhvort Dxb4 eða Rxb4 mát.
póstinn, að það sé eins gott að inn-
yflin verði í lagi þessa daga, það
skipti að minnsta kosti minna máli
með toppstykkin. Meðal þeirra veit-
inga sem þeir væntanlega verða að
bragða á er hin 200 metra lang-
terta sem verður á Lækjargötu.
Háir sem lágir eiga að fá sér bita og
gosdrykkjaframleiðendur munu
veita ókeypis gos. En vandaðir
menn hafa hins vegar miklar
áhyggjur af því ómælda sherrýi
sem á að fara í tertuna — magnið
mun vera gífurlegt — og spurning
hvort bakararnir eigi ekki að ein-
skorða áfengi þetta við annan tertu-
helminginn, bindindismönnum og
óvirkum alkóhólistum til hægðar-
auka.. .
D
■^^eykvíkingar hafa eytt drjúg-
um tíma í að fegra borgina sína fyrir
afmælið, hinn 18da ágúst. Þó er
náttúrlega ýmislegt í borginni sem
enn brýtur í bága við almennan
þrifnað og snyrtimennsku. Keyri
maður áleiðis upp Laugaveginn og
Suðurlandsbrautina blasa við tvö
stórhýsi sem eru lítt ásjáleg, svo
ekki sé sterkar kveðið að orði. Ann-
að er fjölbýlishúsið Hátún 6 sem er
í eigu Árna Fannberg. Þetta mikla
hús er ómálað, hið skuggalegasta á
að líta og lóðin ófrágengin. Um-
hverfismálaráð mun ítrekað hafa
kvartað yfir þessari vanrækslu, en
því hefur ekki verið sinnt. Við Suð-
urlandsbraut stendur svo veitinga-
húsið Sigtún, mikið ferlíki, hálfklár-
að og óneitanlega til lýta í umhverf-
inu, eign Sigmars Péturssonar
veitingamanns...
BLI
■ ýju og fínu hljómflutn-
ingstækin hans Davíðs borgar-
stjóra munu að sjálfsögðu koma að
góðum notum við afmælishaldið
mikla, 18da ágúst. Þá fá borgarbúar
að kynnast því hvílík úrvalsfjárfest-
ing þetta var. Á afmælisdaginn er
ráðgert að Sinfóníuhljómsveit ís-
lands spili. Á því eru þó viss tor-
merki, vegna þess hversu stór og
dreifð hljómsveitin er. Það gæti
orðið talsverður höfuðverkur fyrir
hljóðmeistara borgarinnar. Við höf-
um frétt að til að útiloka alla óvissu
eigi að taka leik hljómsveitarinnar
uppá band og láta hana sjálfa spila í
þykjustunni á afmælisdaginn. . .
10 HELGARPÓSTURINN