Helgarpósturinn - 07.08.1986, Qupperneq 19
Arnar Jensson, fulltrúi hjá fíkníefnalöcjreglunni:
Harkalegar aðgerðir ofl oumflýjanlegar
Þegar HP innti Arnar Jensson,
fulltrúa hjá fíkniefnalögreglunni,
eftir því hvort naudsyn heföi verid á
þeirri adgangshörku sem lögreglan
beitti í þeirri adgerd sem sagt er frá
hér á opnunni, sagði hann að íþess-
um málaflokki vœru slíkar aðgerðir
oft óumflýjanlegar. Hœgt vœri aö
eyða sönnunargögnum með því að
skola fíkniefnum niður um salerni
eða á annan hátt og því vœri nauð-
syn að koma grunuðum mönnum t
opna skjöldu. Arnar sagði að það
vœri ófrávíkjanleg starfsregla að
ryðjast ekki inn í hús án þess að
hafa húsleitarheimild. Hann sagði
hins vegar að oft á tíðum vœri hún
ekki til staðar þegar ráðist vœri til
inngöngu en hins vegar hefðu lög-
reglumennirnir vissu fyrir þvi að
hún vœri fengin og þá á leiðinni.
Um afrakstur þessarar aðgerðar
vildi Arnar lítið tjá sig þar sem þessu
máli væri ekki lokið hjá fíkniefna-
lögreglunni. Við húsleitina hefðu
fundist sannanir fyrir fíkniefna-
neyslu en ekki fíkniefnasölu.en
ástæða aðgerðarinnar var grunur
um hið síðarnefnda. Hins vegar
væri sá grunur enn til staðar og
áfram væri unnið í þessu máli.
Aðspurður um hvort upplýsingar,
sem ekki koma fram á framburðar-
skýrslu, og mannaferðir við hús
manna væru nægjanlegar ástæður
til þess að vera með svo harkalegar
aðgerðir, sagði Arnar að fíkniefna-
lögreglan hefði lagt upplýsinga-
skýrslu fyrir dómara og hann hefði
kveðið upp heimild til húsrannsókn-
ar. Dómari hefði því metið málið svo
að full þörf væri á húsrannsóknum.
Um tímamismun er fram kemur í
húsleitarheimildinni og handtökum
manna í tengslum við húsrannsókn-
ina vildi Arnar ekki tjá sig og benti
á Guðjón St. Marteinsson er kveðið
hafði upp úrskurðinn.
Að öðru leyti vildi Arnar ekki tjá
sig um þetta mál þar sem lögreglan
hefði þagnarskyldu gagnvart grun-
uðum mönnum og auk þess þeim er
veittu henni upplýsingar.
Guðjón St. Marteinsson, fulltrúi
við ávana- og fíkniefnadómstólinn,
vildi ekkert tjá sig um þá heimild til
húsleitar er hann kvað upp á mið-
vikudaginn í síðustu viku, er HP
hafði samband við hann. Hann
sagði að kærufrestur vegna húsleit-
arúrskurðar rynni út 24 tímum eftir
að hann væri kveðinn upp og þessi
tiltekni úrskurður hefði ekki verið
kærður. Því taldi hann að þessu máli
væri lokið hvað sig varðaði.
ari pípu. Engin fíkniefni, né önnur
tæki er hægt var að tengja fíkni-
efnanotkun, fundust.
Önnur húsrannsókn
í leit sinni í íbúðinni fundu lög-
reglumennirnir ávísun að upphæð
kr. 4.000,- sem stíluð var á hand-
hafa. Þar sem markaðsverð á
amfetamíni mun vera nærri þessari
upphæð krafðist lögreglan húsleit-
arheimildar hjá þeim aðila er gefið
hafði hana út og fékkst sú heimild.
Útgefandinn var tvítug vinkona
unnustu Frímanns sem ekki hefur
komið við sögu hjá fíkniefnalögregl-
unni. Við húsleit á heimili hennar
fannst ekkert er tengdist fíkniefna-
notkun.
I yfirheyrslum á lögreglustöðinni
yfir hinum handteknu kom ekkert
fram og var þeim öllum sleppt fljót-
lega. Mennirnir tveir, sem voru
staddir á bílum við Grímsbæ, þekktu
Frímann einungis lítillega og höfðu
ekki komið á heimili hans þetta
kvöld. Kunningi Frímanns hafði
spjallað lítillega við hann og fengið
lánað í strætó. Frímann neitaði stað-
fastlega að hafa nokkurn tímann
selt fíkniefni.
Tvívegis brotið
fíkniefnalöggjöfina
Þar sem lögreglan hafði engan
staðfestan vitnisburð um fíkniefna-
sölu Frímanns og engin fíkniefni
höfðu fundist í tveimur húsleitum
né á því fólki er hafði verið handtek-
ið í tengslum við þær, gat lögreglan
ekki haldið Frímanni lengur. Frí-
mann fékk að hafa samband við
réttargæslumann sinn eftir að kom-
ið var með hann niður á lögreglu-
stöð en eftir að lögreglan hafði
sannfært hann um að einungis yrði
tekin fáorð skýrsla af Frímanni til að
uppfylla formsatriði taldi hann ekki
áslæðu til þess að hafa afskipti af
málinu þá um nóttina.
Frímann komst á skrá hjá fíkni-
efnalögreglunni í apríl 1985, er
hann var tekinn með eitt gramm af
hassi og eitt gramm af amfetamíni.
Dómssátt hefur gengið í því máli og
var Frímanni gert að greiða 7.500-
kr. í sekt. í ágúst sama ár var hann
aftur handtekinn og þá með 11,6 gr.
af amfetamíni og er dómsmeðferð
þess máls ekki lokið.
9 ár fyrir 11,6 gr.
af amfetamíni
Samkvæmt þumalputtareglu, sem
notuð er hjá fíkniefnadómstólnum,
er gefin út ákæra á þá, er teknir eru
með meira en 10 gr. af amfetamíni,
en leitað dómssáttar í málum þeirra
sem teknir eru með minna magn.
Samkvæmt þessari reglu var gefin
út ákæra á Frímann vegna þeirra
11,6 gr. er hann var handtekinn með
í ágúst 1985. Dómur hefur ekki ver-
ið kveðinn upp en Guðmundur
Benediktsson, dómari við fíkniefna-
dómstólinn, mun kveða hann upp.
Samkvæmt heimildum HP hefur
þeirri reglu verið beitt við dómstól-
inn að fyrir hver 10 gr. af sterkum
efnum sem menn hafa verið teknir
með hafi þeir verið dæmdir í eins
mánaðar varðhald. Frímann getur
því búist við um mánaðar varðhaldi
er dómur verður kveðinn upp.
En Guðmundur Benediktsson
stendur frammi fyrir erfiðari
ákvörðun en að dæma eftir þessari
viðmiðunarreglu. Frímann er á
reynslulausn úr fangelsi og á yfir
höfðu sér tæplega níu ára skilorðs-
bundinn dóm. í hegningarlögum er
tekið fram að ef fangi, sem er á
reynslulausn og skilorði er dæmdur
fyrir nýtt brot, skuli hann einnig
sitja af sér hinn skilorðsbundna
dóm, sem í tilfelli Frímanns er tæp
níu ár — á fjórða þúsund daga. En í
sömu lögum er dómara heimilt að
láta skilorðið standa óhaggað þó
svo hann dæmi mann til nýrrar
refsivistar.
Grunur
lögreglunnar
Dæmi eru um þetta hvort tveggja
í íslenskri réttarsögu og mun þess-
um ákvæðum hafa verið beitt jöfn-
um höndum. En þess eru hinsvegar
engin dæmi að menn hafi verið
dæmdir til að sitja af sér jafn langa
vist og Frímann á yfir höfði sér eftir
brot á skilorði.
Páll Arnór Pálsson, réttargæslu-
maður Frímanns, tjáði HP að Frí-
mann hefði að þessu slepptu staðið
sig ágætlega í skilorðseftirlitinu,
allavega ekki verr en gengur og ger-
ist.
Fyrir utan þessi brot hefur Frí-
mann einu sinni verið færður til
yfirheyrslu hjá fíkniefnalögregl-
unni. Það var í maí á þessu ári að
borin var undir hann fullyrðing
manns frá því í nóvember 1985 þess
efnis að Frímann hefði um langan
tíma selt honum hass. Frímann neit-
aði þessu og lýsti furðu sinni á því að
það tæki lögregluna hálft ár að kalla
sig til yfirheyrslu eftir að hafa skrif-
að í skýrslu að hann seldi hass.
Frásögn þessa manns getur varla
hafa verið ástæðan fyrir eftirliti lög-
reglunnar með Frímanni. Sam-
kvæmt heimildum HP hefur lög-
reglan ekki undir höndum neinar
skýrslur af yfirheyrslum þar sem
fram kemur að Frímann hafi stund-
að sölu á fíkniefnum. Hinsvegar
höfðu lögreglunni borist til eyrna
sögusagnir þess efnis og því fylgst
með mannaferðum við íbúð Frí-
manns.
Nú hefur Frímann setið í fangelsi
í mörg ár og lengur en flestir aðrir
og á þeim tíma hafa hundruð
manna streymt út og inn úr sama
fangelsi og margir þeirra hafa tengst
fíkniefnamisferli. Eftir að Frímanni
var sleppt úr haldi hafa sumir þess-
ara manna haldið sambandi við
hann og heimsótt.
Oftúlkun
lögreglunnar
Páll Arnór, lögfræðingur Frí-
manns, sagðist telja að fíkniefnalög-
reglan hefði látið fortíð kunningja
Frímanns, er heimsóttu hann,
hlaupa með sig í gönur. Hún virtist
ekki gera ráð fyrir að þessir menn
hefðu önnur samskipti en fíkniefna-
viðskipti og ályktunin sem lögregl-
an dró af ávísuninni sem hún fann
við húsleitina sýndi þetta vel. Fyrir
utan tvö brot Frímanns var það eina
sem benti til þess að hann seldi
fíkniefni óstaðfestar sögusagnir og
kunningjahópur Frímanns sem
vegna fortíðar hans hlyti að teljast
eðlilegur.
Pípan, sem lögreglan lagði hald á,
var í raun það eina sem benti til
fíkniefnanotkunar. Frímann segir
að einhver hafi gleymt henni hjá sér.
Sumir kunningja hans neyti fíkni-
efna en hann segist ekki skipta sér
af því þótt hann hafi hætt sjálfur
allri fíkniefnanotkun fyrir nokkrum
mánuðum. En ef þessi pípa réttlæti
þær harkalegu aðfarir sem lögregl-
an beitti hann og fjölskyldu hans,
réttlætti hún að sama skapi jafn
harkalegar aðfarir á hendur þeim
mörg þúsund íslendingum er fíkni-
efnalögreglan og aðrir aðilar hafa
lýst yfir að neyttu fíkniefna.
/
í tilefni flutninga höfum við tekið rækilega til á bygginga- flísar, hreinlætistæki, tcppi, teppamottur am.fl. með
vörulagernum. í nýju húsakynnunum á Stórhöfða bjóðum 30—50% afslætti. Þú gerir ósvikin reyfarakaup á þessari
við um þessar mundir alls konar afganga og efnisbúta, rýmingarsölu!
Stórhöfða, S ími 671100
HELGARPÓSTURINN 19