Helgarpósturinn - 07.08.1986, Síða 27
s
jónvarpsstjori Islenska sjon-
varpsfélagsins, Jón Óttar Ragn-
arsson, hefur lýst því yfir að félagið
muni hefja útsendingar í endaðan
september. Þótt skammur tími sé ti!
stefnu hefur Sjónvarpsfélagið enn
ekki ráðið til sín nema brot af þeim
starfsmönnum er það þarfnast til
þess að geta hafið útsendingar og
haldið þeim áfram. Þegar fyrirtækið
auglýsti eftir starfsmönnum seinni-
partinn í júní sýndu nokkrir vanir
fjölmiðlamenn áhuga á að koma ti!
liðs við það. Hins vegar fóru að
renna tvær grímur á þá flesta er þeir
ræddu um kaup, kjör og starfstilhög-
un við forráðamenn Sjónvarpsfé-
lagsins. Á þeim bæ var þá allt enn á
reiki um þessa hluti og svo er enn.
Flestir umsækjendanna hafa því
gefist upp á samskiptum við þá
Sjónvarpsfélaga, enda með upp-
sagnarfrest hjá núverandi atvinnu-
veitendum sem er lengri en sá tími
sem er til stefnu þar til félagið hefur
útsendingar. Þó svo að þeir Sjón-
varpsfélagar hafi lítið getað sagt
ákveðið um kaup og kjör hafa þeir
alltaf verið tilbúnir að ræða málin
og þá helst yfir kokteil. Hanastélið
er þá jafnan hvítvín blandað appel-
síni og sagði einn, sem hefur smakk-
að þann drykk, að hann bragðist
jafnvel verr en hann hljómar...
B
mra~ ragi Asgeirsson ritar harð-
orða grein í Morgunblaðið í vikunni
um ráðningu nýs skólastjóra við
Myndlista- og Handíðaskólann.
Þar heldur Bragi uppi málsvörnum
fyrir Torfa Jónsson, sem eins og
kunnugt er var ekki endurráðinn
skólastjóri þrátt fyrir að hann nyti
fulltingis Skólamálaráðs Reykja-
víkur og ýmissa kennara og nem-
enda skólans. í staðinn valdi Sverr-
ir Hermannsson menntamálaráð-
herra Bjarna Daníelsson til starf-
ans, en hann vinnur nú að doktors-
ritgerð um myndlistarkennslu á ís-
landi fyrr og nú. Bjarni er sumsé
með sérmenntun í myndlistar-
kennslufræðum, en Bragi og fleiri
hefðu frekar viljað sjá praktíserandi
myndlistarmann taka að sér þetta
starf. Samkvæmt heimildum Helg-
arpóstsins hefur þó ekki ríkt sá ein-
hugur um Torfa sem nú er af látið,
húsnæðismálin eru í ólestri og
stjórnun skólans hefur þótt heldur
losaraleg. Því munu margir yngri
kennarar fagna því að fá nýjan
mann í starfið. Kannski má það líka
fljóta með að Bjarni er tengdasonur
Gunnars G. Schram, þingmanns
Sjálfstæðisflokksins. ..
lE n þeir voru fleiri sem sóttu um
skólastjórastöðuna í MHÍ. Helgar-
póstinum er kunnugt um Daða
Guðbjörnsson myndlistarmann,
Halldór Björn Runólfsson list-
fræðing, Gddu Óskarsdóttur
myndlistarmann og kennara og
Ríkharð Hördal, sem gerir við
málverk hjá fyrirtæki sínu Morkin-
skinnu. . .
Eitt af eftirsóknarverðari
brauðum landsins, Breiðholts-
prestakall, er nú laust til umsóknar
og rennur umsóknarfresturinn
reyndar út á morgun, föstudag. Séra
Lárus Halldórsson lætur nú af far-
sælu starfi í sókninni samkvæmt 95
ára reglunni. HP er kunnugt um
fjóra guðfræðinga sem sótt hafa um
þetta brauð, sem inniheldur töluvert
á fimmta þúsund sálir. Þetta eru þeir
Bragi Skúlason, íslandsprestur í
Kanada, Gísli Jónasson í Vík,
Guðmundur Karl Ágústsson í
Ólafsvík og_ farpresturinn Guð-
mundur Örn Ragnarsson.
Klerkaspekúlantar eru ekki á einu
máli um það hver þessara manna sé
líklegastur til að hreppa hnossið, en
Guðmundarnir eru þó oftar nefndir
en hinir. Altént er búist við hörku-
slag. . .
A
■^^^nnað eftirsótt brauð er
Húsavíkurprestakall, sem ein-
mitt er laust þessa dagana. Við vit-
um það að Jón A. Baldvinsson
hefur hugann, en hann hefur unnið
merkilegt starf í Lundúnum á síð-
ustu misserum. Jón Þorsteinsson
prestur í Grundarfirði er nefndur
sem hugsanlegur arftaki nafna síns
í þessum nafla gamla heimsveldis-
ins. Þá er staða fangaprests laus eftir
að Jón Bjarman vígðist til sálu-
hjálpar á sjúkrastofnunum og skilst
okkur að Ólafur Jón Sigurðsson,
sem hefur með Hvanneyrar-
prestakall í Borgarfirði að gera,
renni hýru auga í þá áttina. . .
ir
■ ^^.annanir á lífsviðhorfum og
hugarástandi manna eru alltaf vin-
sælar. Nú hefur ein slík bæst í gott
safn sem fyrir var. Það er könnun
sem nokkrir félagar í Samtökunum
’78 gerðu fyrir skömmu á kynlífs-
hegðun íslendinga. Niðurstöður
rannsóknarinnar munu ekki ætlað-
ar til birtingar en þar mun margt
forvitnilegt hafa komið í ljós. Til
dæmis hefur HP það fyrir satt að
komið hafi í ljós, eftir að búið var að
flokka niðurstöðurnar eftir atvinnu
og búsetu, að bændur í Árnes-
sýslu hafi verið fjölmennastir
klæðskiptinga (þeirra sem þykir
gott að bregða sér í kvennmanns-
föt). Fast á hæla bændanna komu
svo sjómenn úr ýmsum sýslum
landsins. Fleiri niðurstöður könnun-
arinnar hafa enn ekki lekið en HP
mun birta þær jafnharðan og þær
berast...
ólm staldra við í Eden í Hvera-
gerði, en rútubílstjórinn mun hafa
tekið því víðs fjarri — hann vildi
stoppa í Fossnesti á Selfossi, og
það varð úr þrátt fyrir að ungmenn-
in mótmæltu hástöfum. Við látum
ósagt um hvort hér hafi einhver
gróðavon ráðið ferðinni eða einfald-
lega ást bílstjórans á Selfossbæ. ..
Orðsending
til þeirra sem huga að fjárfestingu í innréttingum á næstunni yjyfól
H Hi ú þegar ferðamannatím-
inn stendur sem hæst er ekki laust
við að berist millum manna sögur af
aðilum sem ætla sér að maka ær-
lega krókinn á öllum þeim fjölda
sem hringsólar um þjóðvegi lands-
ins. íslenskir bændur munu vera að
setja upp sjoppur og minjagripa-
verslanir af miklu kappi og leita
mjög samstarfs við rútubílstjóra og
fararstjóra til að glæða viðskiptin.
Víða erlendis þykir sjálfsagt að slíkir
aðilar taki við þóknun frá kaup-
mönnum, en hérlendis þykir það í
hæsta máta óeðlilegt, þótt slíkir við-
skiptahættir tíðkist vissulega í ein-
hverjum mæli. Helgarpóstinum er
kunnugt um rútubílstjóra sem
keyrði með hóp unglinga í og úr
Þjórsárdalnum um helgina. Ungl-
ingarnir tóku rútuna á leigu og töld-
ust því líklega eiga að ráða ferðinni.
Á heimleiðinni vildu ungmennin
Úrvalið er mikið og ekki
vandalaust að taka ákvörð-
un. En leggir þú saman
allan þann fjölda smáatriða
sem skipta máli í slíku vali
eru miklar líkur tii að
niðurstaða númer 1 verði
Bjóðum ennfremur:
Tréstiga,
Perstorp gólfborð,
Blomberg heimilistæki,
loftlúgustiga.
DKE innrétting frá Innvali.
Og hvers vegna? kannt þú
að spyrja. Jú - svarið við
spurningunni er að finna í
verslun okkar að Nýbýla-
vegi 12 í Kópavogi.
Verið velkomin.
Söluumboð á Akureyri:
Bynor, Glerárgötu 30
S: 96-26449.
Nýbýtavegi 12. 200 Kópavogur.
simi 44011. Pósthólf 167
HELGARPÓSTURINN 27