Helgarpósturinn - 05.03.1987, Page 11
kveldi var lögð fram heilsteypt dag-
skrá fyrir Rás 2 langt fram í mars-
mánuð. Einsog kunnugt er verður
byrjað á sólarhringsútvarpi þar lík-
lega 18. mars, sérþættir færast yfir á
kvöldin og marglr nýir þættir og ný
nöfn munu koma við sögu. Á dag-
skráráætlun ér m.a. stórt tónlistar-
magasín eftir hádegi, þarsem Leif-
ur Hauksson bóndi, tónlistarmað-
ur og leikari mun stjórna til að byrja
með. Einna stærst verður breytingin
á síðdegisdagskránni og mun vera
áformað að stórt fréttamagasín
verði milli klukkan fjögur og sjö síð-
degis. Aðal röddin í þessum þætti
verður til að byrja með knúin talfær-
um Brodda Broddasonar nýráðins
fréttamanns. í haust er talið að
Stefán Jón Hafstein muni taka við
stjórn síðdegisútvarpsins og ýmsu
varðandi dagskrárpólitík hjá út-
varpinu. Jón Ólafsson útvarps-
maður, sem nú er staddur í Hol-
landi mun koma til starfa í sumar.
Sérstakur morgunþáttur fyrir áris-
ula verður milli kl. 6 og 9 undir
stjórn Erlu Skúladóttur, leikkonu
og Rósu Pálsdóttur leikkonu.
Morgunútvarpið sem nú er í gangi
frá klukkan níu til hádegis hefur
hins vegar staðið af sér breytingar
og verður í höndum sömu stjórn-
enda, Kolbrúnar Harðardóttur
og Kristjáns Sigurjónssonar. í
dagskrártillögunum er gert ráð fyrir
miklum breytingum á helgarefni
útvarpsins og þar með að til komi
skemmtiþættir, sem og á fimmtu-
dagskvöldum. Þar verða nýir þættir
með einskonar nærmynd af viðtals-
efni, þannig að talað verður við
samferðamenn þess sem sérstak-
lega er talað við. Þessar upplýsingar
eru fengnar í gegnum milliliði úr
sérstakri leyniskýrslu dagskrár-
nefndarinnar, en talið er að útvarps-
ráð muni samþykkja glatt og kátt.
Samkvæmt heimildum HP er mór-
allinn nú um stundir mun betri en
áður á Rás 2 og starfsfólk hefur ver-
ið á námskeiðum til undirbúnings
nýrri dagskrá. Þykist fólkið vel í
stakk búið. . .
| Þjóðviljanum á þriðjudaginn
var harðorð grein eftir Stefaníu
Þorgrímsdóttur rithöfund frá
Garði í Mývatnssveit, þarsem hún
kvartar undan sérkennilegri pólitík
stjórnarandstöðuflokks á þingi
vegna svonefnds fræðslustjóramáls.
Sérstaklega fá þeir nótu frá Stefaníu
þingmennirnir Hjörleifur Gutt-
ormsson, Garðar Sigurðsson og
þá helst Guðmundur J. Guð-
mundsson sem hún svarar með
biblíu- og bókmenntatilvitnunum.
„Þessi þríeining Alþýðubandalags-
andans í neðri deild Alþingis
tryggði íhaldinu sigur og Sverri Her-
mannssyni náðugt ævikvöld í sæti
menntamálaráðherra." Undir lok
greinarinnar tilkynnir Stefanía úr-
sögn úr Alþýðubandalaginu: ,,Ég
hef einfaldlega ekki það skap, sem
þarf til að vera kölluð flokkssystir
Biblíu-Grána J. Guðmundssonar og
hans nóta lengur. ..
^^/^iargir menn í kerfinu hafa
marga bitlinga og gefa þá ekki svo
glatt frá sér, þó þeir taki við anna-
sömum störfum í stjórnkerfinu.
Einn slíkra þenslumanna er Þórður
Friðjónsson forstöðumaður Þjóð-
hagsstofnunar. Hann erm.a. stunda-
kennari við HÍ, í stjórnum Fram-
kvæmdasjóðs, Stjórnunarfélags ís-
lands og í norræna útflutníngsverk-
efnasjóðnum. Það er nóg að gera
hjá Þórði. . .
|k|
H okkur átök munu vera
þessa dagana á Þórshöfn á Langa-
nesi vegna útgerðarmála togaran's
Stakfells. Þar hafa verið haldnir
borgarafundir og gefin út dreifirit
vegna málsins. Tildrög þessara
átaka eru þau, samkvæmt heimild-
um, að Kaupfélag Langnesinga á
Þórshöfn keypti á síðasta ári hlut
Raufarhafnarbúa í togaranum og er
þarmeð í meirihluta í Útgerðarfé-
lagi Norður-Þingeyinga og á
kaupfélagið þannig 52% í togaran-
um. Þessi togari er hins vegar fjör-
gjafi frystihússins Fiskiðjunnar á
Þórshöfn. Fiskiðjan og Þórshafnar-
hreppur eiga minnihluta í útgerð
Stakfellsins og eru ósammála þeim
breytingum sem kaupfélagið ætlar
að láta gera á skipinu, þ.e. breyta því
í frystiskip. Þannig telja Fiskiðju-
menn að kæmi til hráefnaskorts ef
togarinn hætti að gera upp hjá Fisk-
iðjunni, en kaupfélagsmenn telja að
enginn rekstrargrundvöllur sé fyrir
útgerðinni nema skipinu verði
breytt í frystitogara. Framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar er Jóhann Jóns-
son en framboðslisti hans vann
mikinn sigur í sveitarstjórnakosn-
ingum sl. vor og fékk 4 menn
kjörna. Annar listi var borinn fram
með stuðningi kaupfélagsstjórans
Þóróifs Gíslasonar, en sá listi fékk
hins vegar 1 mann kjörinn. Telja
sumir að hér sé um eftirleik sveitar-
stjórnakosninganna að ræða að
nokkru leyti. Hins vegar sitja þeir
Jóhann og Þórólfur í mikilli sátt báð-
ir tveir á framboðslista Stefáns Val-
geirssonar í Norðurlandskjör-
dæmi eystra og er ekki vitað til að
þessi átök um togarann muni hafa
áhrif þar á gang mála...
ástæður fyrir því
ALÞYÐUFLOKKURINN í REYKJAVÍK leggur út í
kosningabaráttuna með sterkum og framsæknum framboðslista,
SIGURLISTANUM '87. Styrkur hans helgast af fjölbreyttum
starfsferli þess fólks sem hann skipar, ólíkri lífsreynslu þess og
hæfileikum. Þetta eru fulltrúar þess fólks, sem myndar íslenskt
NÚTÍMASAMFÉLAG og vill móta framtíð þess í anda
JAFNAÐARSTEFNUNNAR.
JAFNAÐARSTEFNAN ER í SKRIÐÞUNGRI SÓKN
UM ALLT LAND. Taugaveiklun í herbúðum andstæðinganna
er því skiljanleg.
Alþýðuflokkurinn stefnir ákveðið að því að 5 EFSTU MENN
LISTANS í REYKJAVÍK TAKI SÆTI Á ALÞINGI ÍSLENDINGA
EFTIR KOSNINGAR. 5 ÁSTÆÐUR fyrir því að KJÓSA KRATANA
eru fólkið sem skipar 5 EFSTU SÆTIN.
1. JÓN SIGURÐSSON, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, einn helsti
efnahagssérfræðingur þjóðarinnar,
2. JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR, alþm., sem með atorku sinni á
þingi hefur þokað íslensku samfélagi á brautir velferðarríkisins,
3. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON alþm., sem með fgstinsinni og
sókndirfsku hefur fylkt Alþýðuflokknum í fremstu víglínu íslenskra
stjórnmála,
4. LARA V. JÚLÍUSDÓTTIR, lögfræöingur ASÍ og formaður
Kvenréttindafélags íslands með nána reynslu af kjara- og \
jafnréttisbaráttu.
5. JÓN BRAGIBJARNASON Iífefnafræðingur, talsmaður nýrra leiða
í atvinnumálum íslendinga.
25, APRÍL NÁLGAST!
NÚ HAFA ALLIR FLOKKAR
KYNNT LISTA SÍNA.
GERIÐ SAMANBURÐ
Á ÞESSUM LISTA OG
LISTUM ANNARRA
FLOKKA.
HELGARPÓSTUFWMN 11