Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 43

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 43
FRETTAPOSTUR Steingrímur í Moskvu Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra dvaldi í Moskvu í siðastliðinni viku í boði þarlendra stjórnvalda. Gestgjafi Steingríms var forsætisráðherrann Rychkov og ræddu starfshræðurnir einkum um viðskipti þjóðanna. Að öllum líkindum munu íslendingar kaupa meiri olíu af Sovétmönnum heldur en áður, en í stað þess munu Sovét- menn kaupa meira af ullarvörum. Auk þess komu til um- ræðu sildarkaup, væntanleg kaup Sovétmanna á islensku ærkjöti og málningu. Steingrímur ræddi einnig við leiðtoga Sovétríkjanna, Gorhachev, um friðar- og afvopnunarmál og hafa verið uppi miklar vangaveltur fréttamanna um mikil- vægi þessarar heimsóknar hvað þetta varðar. íslenskir sendimenn og fylgdarmenn Steingrims segja greinilegt að rofað hafi til innan Sovétríkjanna og að aukið frjálsræði í viðskiptum sé á döfinni. Þegar heimsókn Steingríms lauk hélt hann rakleiðis til Danmerkur í boði Schliiters, forsætisráðherra Dana, og hafa þeir m.a. rætt afvopnunartillögur Gorbachevs auk þess sem íslenski forsætisráðherrann vakti máls á erfiðleikum ís- lendinga í Danmörku við að fá rétt föðurnöfn á börn sín. IBM-skákmótið Nigel Short, hinn ungi Englendingur, sigraði örugglega á IBM-skákmótinu sem lauk á Hótel Loftleiðum á miðviku- dag. Short, sem er aðeins 21 árs gamall, vann fyrstu 6 skákir sínar á mótinu, en slakaði siðan á og tapaöi einni skák fyrir Jóhanni Hjartarsyni. Með sigrinum varð Short u.þ.b. hálfri milljón islenskra króna ríkari. Jafnir í öðru til þriðja sæti urðu þeir Jan Timman og gamli fléttumeistarinn Mikhail Tal, vinningi á eftir Short. íslensku stórmeistararnir fjórir, Jón L., Helgi, Jóhann og Margeir, riðu hinsvegar ekki feit- um hesti frá mótinu. Jón L. stóð sig þeirra best, hann varð í 7.—8. sæti, Helgi og Jóhann urðu ásamt einum öðrum í 9.—H. sæti en Margeir mátti láta sér lynda að reka lestina, hann hlaut aðeins tvo vinninga. Þing Noröurlandaráðs Á þingi Norðurlandaráðs, sem staðið hefur yfir í Helsinki, urðu harðar umræður um hvort Norðurlöndin ættu að koma fram sem ein heild í alþjóðamálum og voru um það skiptar skoðanir. Miðflokkar og vinstri flokkar voru hlynntir þessu en hægri fiokkarnir vildu ekki að svo yrði. Jákvæðari viðbrögð fékk hinsvegar tillaga um að Norður- löndin kæmu fram sem heild i umhverfismálum og myndu sameiginlega leggja áherslu á aukið vægi þeirra á alþjóða- . vettvangi. Á þinginu var samþykkt tillaga Eiðs Guðnasonar um að stofnaöur yrði samnorrænn kvikmyndasjóður sem hefði það hlutverk að styrkja kvikmyndagerðarmenn í sköpun sinni. í umræðum um réttindamál homma og lesbía fengu íslendingar og Finnar harðar ákúrur frá sumum þingfulltrúum sem þóttu þessi mál vera of stutt á veg komin í löndunum tveimur. EBE vill skattleggja loðnulýsi Tillögur sem fram hafa komið á vegum EBE um að skatt- leggja lýsi og feiti til útflutnings hafa mætt mikilli and- spyrnu hérlendis. Forsvarsmenn Síldarverksmiðja ríkisins hafa lýst því yfir að ef þessi skattlagning nær fra_m að ganga sé grundvellinum kippt undan loðnuveiðum íslendinga. Nær allur okkar útflutningur á þessari afurð er til aðildar- ríkja EBE og telja forsvarsmenn útgerðarinnar að nær von- laust sé að leita nýrra markaða með sama árangri og nú hef- ur náðst. Uppi eru raddir um að íslendingar verði að beita öflugum mótaðgerðum ef til þessa kemur, og er einkum i þvi sambandi bent á að íslendingar séu einráðir á ferskfisk- mörkuðum í fjórum borgum innan EBE og geti því lamað atvinnu i þeim ef þurfa þykir. Fréttapunktar 0 Stofnaður hefur verið nýr stjórnmálaflokkur sem ber heitið Þjóðarflokkurinn. Flokkurinn hyggst bjóða fram í öllum kjördæmum við komandi alþingiskosningar. Stefnu- mál hans eru nær samhljóða stefnumálum Samtakanna um jafnrétti milli landshluta, þó flokkurinn starfi ekki á vegum samtakanna. • Starfsmannafélag Kópavogs hefur samið við bæjarfélagið um 21—22% kauphækkun í kjölfar nýs starfsmats. Kópa- vogur er fyrsta stóra bæjarfélagið sem lýkur samningum í samræmi við rammasamning sem sveitarfélögin gerðu við starfsmenn sina fyrir tæpum mánuði. • Háskólamenntaðir hjúkrunarfræðingar hafa boðað til verkfalls þann 19. mars. Að öllum líkindum munu kennarar innan HÍK fara í verkfall þann 16. mars, hafi samningar ekki tekist en þeir fara fram á 45.500 kr. lágmarkslaun. Fjármálaráðherra hefur boðið 34.500. • Fargjöld Flugleiða hafa nú hækkað um 10% og hefur félagið farið fram á sömu hækkun í ágúst næstkomandi. Verðlagsráð hefur ekki tekið afstöðu til beiðninnar. • Ljóst virðist vera að páfinn sjálfur muni heimsækja ís- land á árinu 1989, á ferð sinni um Norðurlöndin, en ekki er ákveðið hvenær árs heimsóknin verður. • Bindiskylda viðskiptabankanna gagnvart Seðlabankan- um hefur verið lækkuð úr 18% i 13%. Að sögn Jóhannesar Nordal verður þetta til þess að lausafjárstaða bankanna batnar um 2,5 milljarða króna. • Tæknigarður hefur verið stofnaður við Háskóla íslands með aðild Reykjavíkurborgar, Félags íslenskra iðnrekenda og fleiri. Garðurinn á að vinna að rannsóknum sem tengjast atvinnulífinu og leggur Reykjavíkurborg 50 milljónir króna til framkvæmda á tveimur árum sem Háskólinn mun end- urgreiða með kaupleigusamningi. • Tillaga Alþýðuflokksins um að sameina alla lifeyrissjóð- ina i einn sjóð er orðin að hitamáli í kosningabaráttunni. Þorsteinn Pálsson hefur lýst sig andvígan hugmyndinni en Jón Baldvin segir Þorstein bara ekki hafa lesið tillögurnar nógu vel. BÖN- OG ÞVOTTASTÖÐIN ÖS veitir eftirtalda þjónustu: tjöruþvott, djúphreinsun teppa og sœta, mótorþvott mössum bónum og límum ó rendur. Opiö virka daga kl. 8—19. Opið laugardaga kl. 10-16. Bón- og þvottastööin Smokkur Hann gœti reddaö þér GEGN EYÐNI Frá 1. mars 1987 eru vextir í Landsbankanum sem hér segir: \ A Landsbanki íslands Banki allra landsmanna LANDSBANKANS, INNLÁNSVEXTIR: Vextir alls á ári Sparisjóðsbækur 11,0% Kjörbækur 20,0% Vextir eftir 16 mánuði 21,4% Vextir eftir 24 mánuði 22,0% Vaxtaleiðrétting v/úttekta 0,8% Verðtryggður Sparireikningur: Með 3ja mánaða bindingu 2,0% Með 6 mánaða bindingu 3,5% Sérstakar verðbætur á mán. 0,92% 11,0% Sparireikningarbundnir í 3 mán. 12,0% Sparireikningar bundnir í 12 mán. 13,0% Sparilán 13,0% Tékkareikningar 6,0% Innlendir gjaldeyrisreikningar: Bandaríkjadollar 5,0% Sterlingspund 9,5% Vesturþýsk mörk 3,0% Danskarkrónur 9,5% ÚTLÁNSVEXTiR: Vextir alls á ári Víxlar (forvextir) 19,0% Hlaupareikningar 20,0% Almenn skuldabréf 21,0% Verðtryggð lán: Lánstími í allt að21/2ár 6,0% Lánstími minnst 21/2 ár 6,5% HELGARPÓSTURINN 43

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.