Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 12

Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 12
Nýkomin vor- og sumarefni og efni í ferm- ingarfötin, mjög hagstætt verö. * Jogging- og jerseyefni í einlitu og röndóttu. Strandgötu 34 220 Hafnarfirði Simi 651212 Siðumúii 31 108 Reykjavlk Slmi 84222 Póstkröfuþiónusta AUÐVELDUM VIÐ UMFERÐ FATLAÐRA? RÁOqpF QC RÁONÍNGAR Náms- og starfsráðgjöf Ábendis sf. getur aðstoðað þig við að finna það nám og/eða starf sem hentar þér og eykur því vellíðan þína. Unnið er út frá tölfræðilegum forsendum. Grundvöllurinn að starfsaðferðum Ábendis sf. byggist á áratuga rannsóknum og reynslu í bandarískum skólum og fyrirtækjum. Nánari upplýsingar og tímapantanir í síma 689099 kl. 9—15 virka daga. ÁBENDI SF. Engjateig 7 (gegnt Hótel Esju) Ágústa Gunnarsdóttir, M.A. sálfræði Nanna Christiansen, ráðgjafi Þórunn H. Felixdóttir, ráðgjafi A JR^^Arni Johnsen hefur lagt fram þingsályktunartillögu um af- nám einokunarsölu lyfjafræðinga á lyfjum. Hann hefur safnað saman upplýsingum í sérstakt fylgiskjal sem jafngildir nánast stríðsyfirlýs- ingu gegn lyfjafræðingum og „pennaglöðum" læknum. Á sér- stökum blaðamannafundi Árna í gær var hann óspar á yfirlýsingar. Hann sakaði lyfjafræðinga um óeðlilega samtryggingu, að liggja á upplýsingum þannig að ekki einu sinni landlæknir fær að vita um söluhæstu lyfin, að þeir færu með staðlausa stafi um háan lagerkostn- að og að reka eins konar ferðaskrif- stofur, sem bjóða læknum og öðrum úr heilbrigðisstéttunum í svokallað- ar „ráðstefnuferðir", en kostnaður- inn við ferðir þessar leggst ofan á iyfjaverðið. Sagði hann 99% af upp- lýsingum um lyf koma frá lyfja- og heildsölum sjálfum og að heilbrigð- is- og tryggingaráðuneytið hefði upplýsingar, en hefði ekki ieyfi til að láta þær út fyrir ráðuneytið. .. Í^jff^íedal þess sem kom fram hjá Árna Johnsen á blaðamanna- fundinum var, að 1,7 milljónir íyfja- ITT Vegna ótrúlega hagstæðra samninga við ITT í Vestur-Þýskalandi bjóðum við 20" ITT lit- sjónvarpstæki á aðeins kr. 33.780,- stgr. Umboðsmenn um land allt Radióröst, Hafnarflröi Hjá Óla, Keflavik Rafborg, Grindavík Mosfell, Hellu Árvirklnn, SeHossl Kaupf. Rangæinga, Hvolsvelli Neisti, Vestmannaeyjum Hótiöni, Höfn, Hornaf. Myndbandaleiga Reyöarfjarðar Búland, Neskaupstað Rafvirklnn, Esklflrðl Kaupf. Héraösbúa, Egilsstöðum Kaupf. Þlngeyinga, Húsavík KEA, Akureyri Radióþjónustan, Ólafsfirði. Kaupf. Skagflröinga, Sauöárkróki Oddur Sigurðsson, Hvammstanga Póllinn hf., isafirði Kaupf. Stykklshólms, Stykkishólmi Versl. Blómsturvellir, Hellissandi Húsprýöl, Borgarnesi Skagaradíó, Akranesi TTT FYLGIR EKKI TÆKNINNI ITT LEIÐIR TÆKNINA Skipholti 7, símar 20080 og 26800. ávísana hafi verið gefnar út á síð- asta ári, en að örfáir læknar gefi út stærstan hluta þeirra. Þannig gáfu 8 af mörg hundruð læknum í Reykja- vík alls út helming allra lyfjaávísana í borginni. Á Reykjanesi utanverðu eru um 20 iæknar en einn þeirra skrifaði út um helming lyfjaávísana og í Árnessýslu gaf einn læknir af 40 sömuleiðis út um helming ávís- ananna. Nefndi Árni enn fremur að sumir lyfjafræðingar byggðu eða keyptu hús við hliðina á apótekum sínum og leigðu út til „pennaglaðra" lækna. I þessu sambandi komu upp nöfn Ingólfsapóteks, Borgar- apóteks og Austurbæjar- apóteks... Þ að hefur ekki farið framhjá mönnum að í Keflavík og nágrenni hefur verið óhemju mikið um nauð- ungaruppboð og önnur slík vand- ræði síðustu misserin. Og það virð- ast fáir sleppa framhjá haukfránum augum sýslumannsins syðra, Jóns Eysteinssonar. Nýlega birtust margar nauðungaruppboðsauglýs- ingar í Lögbirtingablaðinu frá Jóni. Ekki einasta eru einstaklingar og sjávarútvegsfyrirtæki að komast undir hamarinn samkvæmt auglýs- ingum þessum, því ekki einu sinni hin „helgustu" vé fá að vera í friði. í blaðinu er nefnilega eignin Iðavell- ir 3 í Keflavík auglýst á uppboð síðar í þessum mánuði ef eigandinn gerir ekki upp 28 þúsund króna skuld sína við Brunabótafélagið. Eig- andinn er frímúrarastúkan Sindri. .. ^Eins og menn muna kom Nið- urlæging Giinthers Wallraffs út í ísienskri þýðingu sr. Gunnars Kristjánssonar fyrir síðustu jól. Tákn gaf út og seldist bókin mjög vel. Önundur Björnsson hjá for- laginu hefur nú afráðið að halda áfram á þessari braut og gefur á næsta hausti út bók Wallraffs sem lýsir viðbrögðum kerfis og manna við örlögum tyrkneska farand- verkamannsins Ali í Þýskalandi, en bókin er nýkomin út í heima- landi höfundar. Þar hefur hún vakið síst minni athygli en Niðurlægingin, þykir virkilegur reyfari, enda lýsir Wallraff þar harkalegum viðskipt- um sínum við lögregluna, innbrot- um hennar á heimili sitt, hand- tökum og ryskingum. í bókinni heldur Wallraff því meira að segja fram að lögreglan hafi drepið vin sinn vegna útkomu Niðurlægingar- innar — og gefur á fieiri sviðum hvergi eftir, sem fyrr . .. v lm æntanlegir húsbyggjend- ur eiga margir hverjir í vændum langa þrautagöngu í kerfinu eins og alþjóð er kunnugt. Það eru hinsveg- ar ekki einu þrautirnar sem þeir geta lent í því þrátt fyrir að þeir hafi tryggt sér lán til að byggja fyrir þá getur orðið bið á að þeir fái húsnæð- ið afhent. Það er nefnilega alls ekk- ert öruggt að byggingaraðilar standi við fyrirhugaða afhendingarskil- mála og afhendi íbúðir til kaupenda í því ástandi sem samið var um á réttum tíma. Þannig heyrir HP að nú séu kaupendur að íbúðum við Vesturgötu, í fjölbýlishúsi sem þar er verið að byggja, búnir að bíða hátt á annað ár eftir því að fá íbúðir sínar afhentar en lítið miði enn í þá átt. Iðnaðarmenn sem vinna fyrir byggingaraðilann eru orðnir enn þreyttari á að fá enga greiðslu fyrir vinnu sína og haga nú verkum sín- um þannig að ef þeir hafa ekkert annað að gera þá koma þeir og dútla í húsinu en um leið og þeir fá tilboð um verk annarstaðar þá láta þeir sig einfaldlega hverfa og koma þegar þeim sjálfum hentar. Á með- an hokra væntanlegir kaupendur í leiguíbúðum um allan bæ, sumir búnir að flytja mörgum sinnum á undanförnum árum og meira að segja löngu hættir að biðja til al- mættisins um betri tíð. . . 12 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.