Helgarpósturinn - 05.03.1987, Blaðsíða 15
lega gaman að eignast lítið barn.
Eitthvað svona alveg út í hött...“
— Hver er afstada stelpna á þess-
um aldri til fóstureyðinga?
„Hún er rnjög neikvœð. Þeim
finnst það eins og að skrifa upp á að
þær séu afskaplega vondar mann-
eskjur, tilbúnar til þess að drepa og
hvaðeina. Það er ofsalega við-
kvæmt og erfitt mál, og ræturnar á
þessu viðhorfi liggja mjög djúpt."
— Hvað pirrar unglingana mest
við okkur, fullorðna fólkið?
„Sko, við erum oft svona svolítið
ósanngjörn við þau. Ég held það sé
helsta umkvörtunarefnið. Eina
stundina eiga þau að vera fuilorðin
og sýna okkur að þau geti staðið sig,
en síðan erum við strax farin að
segja þeim til og skamma þau, eins
og börn. Við erum ógurlega föst í
þessu og ég held að það svekki þau
mest — að vera álitinn barn eða full-
orðinn til skiptis, eftir því hvað hent-
ar fullorðna fólkinu."
LANGT Á EFTIR í
iAFNRÉTTISMÁLUM
—■ Nú ert þú dóttir Sverris Her-
mannssonar, menntamálaráð-
herra. Langar þig aldrei sjálfa út í
stjórnmál, til þess að komast nœr
ákvarðanatöku og völdum í þágu
unglinganna „þinna"?
„Nei, ég hef ekki síður trú á gras-
rótarstarfi. Ég held að einstaklingur-
inn sé mikils megnugur og hef enga
löngun til þess að gera hlutina með
látum, eins og surnir!"
— Rœðirðu um vinnuna við
pabba þinn?
„Ja, maður er nú ekkert að buna
þessu út úr sér við matarborðið. En
sumt ræði ég við hann og hann spyr
mig út í það, sem hann hefur áhuga
á, eins og t.d. fíkniefnamál. Það eru
þá frekar svona „yfirheyrslur“.“
— Eru unglingarnir hérna póli-
tískir?
„Mér finnst unglingarnir oft alveg
hroðalega íhaldssamir og forpokað-
ir. Manni getur alveg ofboðið! En
svo breytist þetta. Þau eru kannski
ekkert of örugg með sig og grípa
þess vegna hugmyndir annarra á
lofti.
Jafnrétti kynjanna, til dæmis. Þau
eru voðalega langt á eftir þar. Stelp-
urnar segja kannski: „Ég myndi
aldrei treysta manninum mínum til
að vera heima með börnin. Hann
gæti bara misst þau í gólfið, hellt
kaffi yfir þau og svoleiðis!" Það ligg-
ur við að þetta sé svona, og strák-
arnir eru eitthvað álíka. Ofsalegir
fordómar, skal ég segja þér. Þetta er
ekki auðveldasti hópurinn til að
eiga við hvað það varðar."
Hópur unglinga var búinn að
koma á skrifstofuna á meðan við
ræddum saman. Leyst var úr máli
hvers og eins og síðan hurfu þau á
braut. Það komu líka smiðir með
hurðir, sem höfðu verið í viðgerð, og
starfsliðið baukaði við hitt og þetta,
á milli þess að leika fótboltaspil við
„heimalningana" á staðnum —
krakka, sem eru mikið viðloðandi
Fellahelli allan daginn. Ég fór hins
vegar aftur út í rokið og rigninguna,
hlaðin andlegu veganesti úr heimi
unglinganna, sem mörgum þykja
svo ögrandi. Líklega af því að okkur
hættir til að dæma eftir útlitinu, án
þess að „gefa þeim sjéns".
f KJÖRDÆMI FORSÆTISRÁDHERRA:
■ I I I Elín Jóhannsdóttir, kennari er í 4. sæti
-I—JJL—JX X lista Framsóknarmanna á Reykjanesi.
hflki spm cvpifaríHnrnarmaAnr
Elín hefur reynslu að baki sem sveitarstjórnarmaður.
Hún vill treysta stöðu fjölskyldunnar í samfélaginu og eru
ungar fjölskyldur og lífskjör þeirra þar efst á blaði
í 6. sæti: Gylfi Guðjónsson, öku-
kennari og fyrrum lögreglumaður.
starfað að sveitarstjórnarmálum og málefnum
og sérþekking hans á öryggis- og umferðarmálum
í nútíma samfélagi.
Jóhann Einvarðsson.
Hann er aðstoðarm
félagsmálaráðherra, fyrrverandi aiþingismaður og bæjai
á ísafirði og í Keflavík. Jóhann er landsþekktur
félagsmálamaður, einkum á sviði stjórnsýslu og húsnæðismá
I 3. sæti: Níels Árni Lund,
» * d* - — — - ritstjóri Tímans. Hann er fyrr-
ærandi kennari, lögreglumaður og æskulýðsfulltrúi ríkisins.
liels Árni er þekktur fyrir störf sín að æskulýðs- og
þróttamálum auk þátttöku í stjórnmálum.
........zZL
I 1. sæti: Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra.
Hann er virtasti og vinsælasti leiðtoginn í íslenskum stjórn
skv. skoðanakönnunum. Steingrímur hefur náð einstökum
í stjórn efnahagsmála og aukið hróður íslands á alþjóðavettv<
I 5. sæti: Valdís Kristinsdóttir,
kennari í Grindavík.
Valdís býr að þekkingu
á félagsmálum í sjávarplássi. Hún leggur sérstaka áherslu
á barnaverndarmál, æskulýðsmál og málefni aldraðra
og beitir sér fyrir nýjum viðhorfum á þeim sviðum.
.. ..... .............. .. ...... ..... ......—..
VIÐKYNNUM
6 EFSTUMENN
í REYKJANESKJÖRDÆMI
FRAMSOKNAR
FLOKKURINN lj|J
HELGARPÓSTURINN 15