Helgarpósturinn - 05.03.1987, Síða 20
AFANGAR
FERÐAHANDBÓK
SEXTÍU LEIOARLÝSIMGAR
OG SÉRTEIKNUÐ KORT
Safnrit ferðanefndar
Landssambands hestamannafélaga
HESTAMANNSINS
Bókaútgáfa Helgarpóstsins s: 681511
Þ
essi frásögn er óstaðfest: Fyr-
ir nokkrum dögum fréttum við, að
verðbréfamarkaður Iðnaðar-
banka Islands byði fyrir hönd
ónafngreinds aðila yfirverð í hluta-
bréf í Flugleiðum, eða stuðulinn
4,5, en verðmæti hlutabréfa í félag-
inu munu vera nær 3,9. Ymsar get-
gátur eru um hver kaupandinn sé.
Þess má geta, að aðalfundur Flug-
leiða er á næstu grösum...
l tímaritinu Heimsmynd, sem
kom út í dager forvitnileg grein um
eyðni eftir Oskar Arnbjarnarson
lækni, sérfræðing í ónæmisfræðum
sem er að koma til starfa á íslandi
eftir sérfræðinám í Bandaríkjunum.
í grein sinni gerir Óskar því skóna,
að hin mikla umræða um eyðni og
varnir gegn sjúkdómnum sé mestan
part uppblásinn hræðsluáróður.
Fram mun koma hjá Óskari, skv.
heimildum HP, að eyðni sé fyrst og
fremst bundin við svokallaða
áhættuhópa og að svo muni verða
áfram. Þá mun Óskar hafa alla fyrir-
vara á gagnsemi smokksins sem
vörn gegn þessum vágesti. . .
þá er í blaðinu viðtal við þau skötu-
hjú Valgerði Bjarnadóttur og
Kristófer Má Kristinsson, sem nú
starfa í Briissel, en voru áður for-
sprakkar í Bandalagi jafnaðar-
manna. Skv. heimildum HP tala
þau óhikað um samferðamenn sína
í pólitík. Meðal þeirra sem fá það
óþvegið eru Guðmundur Einars-
son alþm., aðrir bandalagsmenn og
formaður Alþýðuflokksins, Jón
Baldvin Hannibalsson, auk nokk-
urra helstu forystumanna Sjálf-
stæðisflokksins. Valgerður
Bjarnadóttir var, eins og kunnugt er
af fréttum, orðuð við framboð fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, en haetti við eft-
ir að hafa skoðað málið. í viðtalinu
segir hún, skv. heimildum HP, frá
samskiptum sínum við forystumenn
flokksins þeirra á meðal Styrmi
Gunnarsson, ritstjóra Morgun-
blaðsins. Má gera ráð fyrir því að
landsþingsfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins drekki í sig fróðleikinn í
Laugardalshöllinni næstu
daga...
NUTIMAFOLK
Bókin um einstaklinginn í einkalífi og
starfi. Gagnleg bók handa fólki á öllum aldri
Islensk bók sem á
erindi vid alla og þig
líka
Höfundar Nútímafólks eru
hinir kunnu sálfræðingar Álf-
heiður Steinþórsdóttir og
Guðfinna Eydal. Þær reka í
sameiningu sjálfstætt fyrirtæki
á sínu sviði, Sálfræðistöðina,
þar sem þær bjóða m.a. upp á
einkaviðtöl og starfsráðgjöf.
Álfheiður og Guðfinna hafa á
undanförnum árum efnt til
námskeiða um land allt og hafa
þúsundir manna sótt þessi
námskeið, sem bæði hafa verið
sniðin að þörfum almennings,
sérhæfðra starfshópa og at-
vinnufyrirtækja. Þá hafa þær
ritað fjölda greina í blöð og
tímarit.
I Nútímafólki er m.a. leitast vid aö
svara þessum spurningum:
• Hvad mótar einstaklinginn?
• Hvernig pössum við saman?
• Hvers vegna ganga sum sambönd
en önnur ekki?
• Hvers vegna rífumst viö?
• Hvernig hjálpum viö börnum
best í skilnaöi?
• Hvernig vegnar þér í starfi?
• Hvernig eru samskiptin á
vinnustaö?
• Andlegt heilbrigöi — hvaö er
aö vera ,,normal“?
20 HELGARPÓSTURINN