Helgarpósturinn - 07.05.1987, Blaðsíða 4
HP-listi yfir 35 tekjuhæstu menn höfuðborgarsvæðisins 1985:
Úr neyð má nurla
Þorvaldur Guömundsson með 3 milljónir mánaðarlega í tekj-
ur/hagnað. Sjúkdómar eru tryggasta tekjuiindin og fógeta-
skatturinn drjúgur.
Samkvœmt skattskrá 1986 var
tekjuhœsti einstaklingur höfudborg-
arsvœdisins meö tœplega þriggja
milljón króna mánadarlegar tekjur
árid 1985, reiknað á núvirði. Petta
var Þorvaldur Guðmundsson for-
stjóri Síldar og fisks hf, eigandi Hót-
el Holts með meiru. Þorvaldur
persónulega hafði samkvœmt þessu
tekjur um 90.000 krónur á hverjum
einasta degi ársins og rúmlega 11
þúsund krónur á klukkustund mið-
að viö dagvinnu. En þess ber auðvit-
að að gœta að Þorvaldur og fyrir-
tœki hans eru eitt og hið sama.
I dag birtir HP lista yfir 35 tekju-
hæstu einstaklinga höfuðborgar-
svæðisins 1985, en samsvarandi listi
birtist í fyrra fyrir árið áður. I flest-
um tilfellum er um að ræða einstakl-
inga eins og Þorvald, menn sem
ekki er hægt að aðgreina frá einka-
rekstri þeirra. Tekjutölur eru fengn-
ar úr skatta- og útsvarsskrám
Reykjavíkur- og Reykjaneskjör-
dæmis. Útsvarstölur eru umreiknað-
ar samkvæmt viðkomandi útsvars-
hlutfalli og útkoman framreiknuð
miðað við framfærsluvísitölu.
Áberandi er sú breyting á röð allra
efstu einstaklinga frá í fyrra, að þá
var langefstur á listanum Guðmund-
ur Axelsson listaverkasali í Klaust-
urhólum en hann er ekki á lista nú,
á hann höfðu skattar verið áætlaðir.
Hann kærði og nú hafa skattar Guð-
mundar hrunið niður og útsvar
hans nú bendir til aðeins um 60 þús-
und króna mánaðartekna. 1 þessu
sambandi er rétt að ítreka að nú
sem áður er sá fyrirvari settur að
skattar á einstaka menn hafa verið
áætlaðir og ekki enn búið að af-
greiða allar kærur þegar skattskráin
var prentuð. Þannig er ekki ótrúlegt
að Þorvaldur, sem var í öðru sæti í
fyrra en langefstur nú, eigi eftir að
lækka, enda með ótrúlega mikla
sérstöðu nú. Útsvar hans hækkaði
um 213% milli áranna 1985 og 1986
eða rúmlega þrefaldaðist.
LYFSÖLUM OGTANN-
LÆKNUM FJÖLGAR
Nú sem fyrr eru það menn
„krankleikans" sem setja mestan
svip á listann. Af 36 tekjuhæstu ein-
staklingunum eru þannig 10 lyfsal-
ar, 5 tannlœknar og 3 lœknar og er
þá upptalinn helmingur listans. Um
þessa menn alla gildir að einstakl-
ingurinn og viðkomandi rekstrar-
eining er oftast eitt og hið sama, út-
svarið er í senn mælikvarði á laun
þeirra og rekstrarhagnað, sem ekki
er varið í sérstaka fjárfestingasjóði.
Sá lyfsali sem mest halar inn er Birg-
ir Einarsson í Vesturbæjarapóteki
og er nokkuð langt í hans næsta
kollega, Sigurð G. Jónsson í Austur-
bæjarapóteki. Þá er annar tveggja
kvenmanna á listanum lyfsali, Ingi-
björg Böðvarsdóttir í Hafnarfirði.
Hinn kvenmaðurinn á listanum er
aftur á móti tannlæknirinn Guðrún
Olafsdóttir í Reykjavík með um 565
þúsund krónur á mánuði og er að-
eins einn tannlæknir henni ofar á
höfuðborgarsvæðinu, Ólafur Björg-
úlfsson á Seltjarnarnesi. Ekki er síð-
an langt í Ragnar Traustason í
Reykjavík. Lækna var ekki að finna
á lista efstu manna í fyrra, en nú eru
þeir þrír og þeirra efstur er Bragi
Guðmundsson bæklunarlæknir,
sem rekur lækningastofu að Sól-
vangi í Hafnarfirði. Um þessa menn
má segja að þeir hafi lifibrauð sitt af
„þjáningum borgaranna". Það á
ekkert síður við þá Jón Skaftason
borgarfógeta og Einar Ingimundar-
son bæjarfógeta/sýslumann, sem er
á þessum lista yfir tekjuhæstu menn
höfuðborgarinnar. Ekki eru það
þeirra embættislaun sem eru svona
há, heldur er meginuppistaðan sú
1% hlutdeild sem þeir fá í eigin vasa
af innkomunni við hvert nauðung-
aruppboð. Þetta byggir á gömlu
ákvæði laga, sem nú hefur blessun-
arlega verið afnumið — í áföngum
næstu árin.
GAMLIR KVEÐJA —
NÝIR HEILSA
Sem fyrr segir er horfinn af iistan-
um og úr efsta sætinu Guðmundur
Axelsson í Klausturhólum. Þeir Þor-
valdur Guðmundsson forstjóri og
Gunnar B. Jensson húsasmíða-
meistari voru í efstu sætum í fyrra.
í þriðja sæti nú er Úlfar Eysteinsson
veitingamaður en hvað hann varðar
kann tímabundinn söluhagnaður að
spila inn í á meðan hann skipti um í
rekstri. Af listanum eru nú meðal
annars horfnir Sigmar Pétursson
veitingamaður, Einar Birnir forstjóri
og skipstjórarnir Pétur Stefánsson
og Bjarni Gunnarsson. Þá hefur
Herluf Clausen forstjóri lækkað úr
5. sæti í hið tuttugasta og níunda.
Nýr á listanum er Ragnar Kjartans-
son fyrrverandi forstjóri Hafskips,
sem 1985 hefur samkvæmt þessu
haft í laun um 465 þúsund krónur á
mánuði á núvirði. Hætt er við því að
laun hans séu eitthvað lægri um
þessar mundir. Ekki er mikið um
slíka „venjulega" forstjóra á listan-
um. Þó er skammt í nafntogaða
bissnessmenn og má nefna nokkra
á bilinu 330—365 þúsund krónur á
mánuði: Ragnar S. Halldórsson, for-
stjóri ÍSAL, Thor Ó. Thors, forstjóri
íslenskra aðalverktaka, Agnar
Kristjánsson forstjóri, Erlendur
Einarsson fv. forstjóri SÍS, Gunnar
M. Hansson forstjóri IBM á Islandi,
Halldór H. Jónsson, stjórnarfor-
maður Eimskipafélagsins, ÍSAL og
margra annarra fyrirtækja, Sveinn
Valfells forstjóri, Þórarinn Þ. Jóns-
son endurskoðandi og Hjalti Páls-
son aðstoðarforstjóri SÍS. Af mönn-
um á bilinu 250—330 þúsund má
síðan nefna Jón Ingvarsson í ísbirn-
inum, Hörð Sigurgestsson forstjóra
Eimskipafélagsins, Jóhannes Nor-
dal seðlabankastjóra og Björgvin
Vilmundarson bankastjóra Lands-
bankans.
EN HVAÐ HAFÐI
PÖPULLINN?
Tekjutölurnar á listanum eru auð-
vitað svimandi háar í augum hins
almenna borgara — litla mannsins.
Til samanburðar má nefna að ráð-
herrann Ragnhildur Helgadóttir
skartar 135 þúsund króna mánaðar-
tekjum samkvæmt sömu forskrift
og náði því aðeins fjórðungi af tekj-
um stallsysturinnar Guðrúnar Ólafs-
dóttur tannlæknis.
Samkvæmt því sem fram kemur í
vinnumarkaðsriti Byggðastofnunar
fyrir árið 1985 voru meðallaun í
landinu það árið 482 þúsund krónur
yfir árið. Framreiknað gera þetta
655 þúsund krónur eða um 55 þús-
und krónur á mánuði.
35 tekjuhæstu einstaklingar Stór-Reykjavíkur
1. Þorvaldur Guömundsson, forstjóri, Reykjavík............................. 2.750.000
2. Gunnar B. Jensson, húsasmíðameistari, Reykjavík........................... 850.000
3. Úlfar Eysteinsson, veitingam., Reykjavík.................................. 850.000
4. Birgir Einarsson, lyfsali, Reykjavík.................................. 850.000
5. Ólafur Björgúlfsson, tannlœknir, Seltj.nesi............................... 600.000
6. Sigurður G. Jónsson, lyfsali, Reykjavík................................... 570.000
7. Guðrún Ólafsdóttir, tannlœknir, Reykjavík................................. 565.000
8. Kristján Einarsson, Reykjavík............................................. 560.000
9. Werner I. Rasmusson, lyfsali, Kópavogi.................................... 550.000
10. Jón Skaftason, borgarfógeti, Kópavogi..................................... 550.000
11. Valdimar Jóhannsson, bókaútgefandi, Reykjavík............................. 535.000
12. Ragnar Traustason, tannlœknir, Reykjavík................................. 515.000
13. Kristinn Seinsson, bygg.meistari, Reykjavík............................... 510.000
14. Christian Zimsen, lyfsali, Reykjavík..................................... 505.000
15. Andrés Guðmundsson, lyfsali, Reykjavík.................................... 505.000
16. ívar Daníelsson, lyfsali, Reykjavík....................................... 500.000
17. Rúnar Garðarsson, Reykjavík............................................... 490.000
18. Ólafur Stephensen, forstjóri, Garðabœ..................................... 470.000
19. Ragnar Kjartansson, fv. forstjóri, Reykjavík.............................. 465.000
20. Matthías Ingibergsson, lyfsali, Kópavogi.................................. 460.000
21. Helgi Einarsson, tannlœknir, Garðabœ...................................... 440.000
22. Magnús Þórðarson, Kópavogi................................................ 435.000
23. Eggert Þorfinnsson, skipstjóri, Reykjavík................................. 435.000
24. Ragnar Tómasson, héraðsdómslögmaður, Reykjavík............................ 420.000
25. Bragi Guðmundsson, lœknir, Hafnarfirði.................................... 420.000
26. Sverrir Bernhöft, stórkaupmaður, Reykjavík................................ 420.000
27. Skúli Þorvaldsson, lögfrœðingur, Reykjavík................................ 415.000
28. Kjartan Gunnarsson, lyfsali, Reykjavík.................................... 405.000
29. Herluf Clausen, forstjóri, Reykjavík...................................... 400.000
30. Þórður Eydal Magnússon, tannlœknir, Reykjavík............................. 400.000
31. Örn Æ. Markússon, lyfsali, Reykjavík...................................... 395.000
32. Ingibjörg Böðvarsdóttir, lyfsali, Hafnarfirði............................. 395.000
33. Einar Ingimundarson, fógeti/sýslumaður, Bessast.hr........................ 380.000
34. Einar Sindrason, lœknir, Reykjavík...................................... 380.000
35. Ásgeir Theódórsson, lœknir, Reykjavík.................................... 365.000
Á myndinni sjást skotgötin á glugga skrifstofu lögmannsins. Eins og sjá
má af myndinni eru þetta fimm lítil göt, sem hafa farið í gegnum tvöfalt
gler. — Smartmynd
SKOTÁRÁS Á LÖGMANNSSTOFU
KÚLURNAR
í RANNSÓKN
EN ÓLJÓST HVORT UM VAR AÐ RÆÐA RIFFIL
EÐA LOFTBYSSU
Samkvœmt upplýsingum Helga
Daníelssonar, deildarstjóra í
Rannsóknarlögreglu ríkisins, er
nú verið að kanna kúlursem skot-
ið var í gegnum rúður á lög-
mannsstofu í Skeifunni. Þegar
blaðið fór í prentun var enn ekki
Ijóst hvort um kúlur úr loftbyssu
eða riffli vœri að rœða.
Þegar lögmaðurinn kom á skrif-
stofu sína síðastliðinn laugardag
kom í ljós að gluggar skrifstofunn-
ar voru brotnir. Á einum gluggan-
um voru tvö stór göt eftir stein, að
því er virtist. Á hinum tveimur
gluggum skrifstofunnar voru hins
vegar mörg smá göt eftir skot.
Hann kærði málið til lögreglunn-
ar, sem síðan fól Rannsóknarlög-
reglunni málið. Við vettvangs-
rannsókn fundust kúlur, sem nú
eru í frekari rannsókn.
Að sögn Helga Daníelssonar
hefur enn ekkert komið í ljós sem
bendir til þess að skotárásinni hafi
verið beint sérstaklega að lög-
manninum sem á stofuna. Málið
er enn í sama farvegi og þau
mörgu skemmdarverk, sem ber-
ast inn á borð Rannsóknarlögregl-
unnar.
Helgi sagði að enn lægi enginn
undir grun. Það eina sem væri vit-
að væri að sá sem skaut á glugg-
ana, hafi annað hvort staðið uppi
á þaki nærliggjandi húsa, eða
skotið úr mikilli fjarlægð. Stefna
skotanna benti til þess.
í húsinu eru fjórir lögmenn með
stofur sínar. Skotin lentu öll í
þremur gluggum skrifstofu eins
þeirra. Enginn annar gluggi í hús-
inu varð fyrir skoti.
Þegar Helgarpósturinn innti
lögmanninn eftir því hvort hann
hefði fengið morðhótanir, eða
vissi til einhvers er kynni að renna
stoðum undir þá kenningu að
árásinni hafi verið beint gegn hon-
um persónulega, kvað hann svo
ekki vera.
„Þrátt fyrir að ég hafi unnið við
erfið mál sem lögmaður, hafa
menn hingað til ekki haft í hótun-
um við mig,“ sagði hann. „Eg hef
líka reynt að fara varfærnum
höndum um erfið mál.“
En setur ekki að þér óhug, þar
sem öll skotin fara í gegnum
glugga á þinni skrifstofu?
„Eg hef ekki hugleitt þetta mál á
þann veg. Ef satt reynist að hér sé
um riffilkúlur að ræða, þá verður
málið kannski alvarlegra. Þessir
gluggar eru reyndar ekki merktir
mér. En það eru aðrir gluggar ann-
ars staðar í húsinu. Það var ekki
skotið á þá.“
gse
4 HELGARPÓSTURINN