Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 9
Forsagan:
ÁRALÖNG VALDABARÁTTA
hann hér á sídunni, telur hann að
löglega hafi verið staðið að sölunni.
Ástandið á Súðavík virðist vera
komið á það stig, að allar lausnir á
þeim erjum er hrjá þorpið, virðast
vera slæmar lausnir. Það er ljóst að
núverandi eigendur hafa eignast
eina atvinnufyrirtæki þorpsins í
óþökk hreppsbúa. Allt stefnir nú í
málaferli, sem hugsanlega geta
staðið yfir í nokkur ár. Næstkom-
andi sveitarstjórnarkosningar
munu snúast um völdin í Frosta,
eins og reyndar tvennar þær síð-
ustu. (Sjá grein hér í opnunni um for-
sögu málsins.)
Hver svo sem niðurstaða málsins
verður fyrir dómstólum, er ljóst að
Auðunn Karlsson oddviti og Barði
Ingibjartsson hreppsnefndarmaður
hafa brotið trúnað við þá sem veittu
þeim umboð sitt í kosningum. Þeir
héldu samningum stjórnar Frosta,
sem þeir áttu sæti í sem fulltrúar
kjósenda sinna, leyndum. Þeir settu
málið ekki einu sinni á dagskrá
hreppsnefndarfundar sem haldinn
var daginn eftir að samningurinn
var undirritaður. Það þurfti kröfu
Halfdáns Kristjánssonar til að koma
málinu á dagskrá fundarins.
En þar sem ekki er hægt að ve-
fengja samvisku sveitarstjórnar-
manna, verður þessi
trúnaðarbrestur ekki ástæða
málshöfðunar vegna sölunnar á
hlutabréfunum. Málshöfðunin mun
beinast að aðild Auðuns Karlssonar
og Ingimars Halldórssonar að
sölusamningnum. Þar sátu þeir
báðum megin við borðið. Þeir seldu
sjálfum sér Frosta. Og þar með
Súðavík.
Guðmimdur Heiðarsson:
RÁKU FÖÐUR MINN ÞEGAR
TILBOÐ MITT BARST
Frosti h/f hefur verid svo til eini
atvinnurekandinn á Súðavík, allt
frá því aö rœkjuvinnslan á Langeyri
var innlimuð í fyrirtœkiö. Þaö fyrir-
tœki átti Björgvin Bjarnason, en
hann er fööurbróðir Áuðuns Karls-
sonar, sem mikiö á eftir aö koma viö
sögu. Frosti h/fá nú, auk frystihúss-
ins og rœkjuvinnslunnar, meirihluta í
Álftfirðingi h/f, útgeröarfélagi skut-
togarans Bessa og rœkjutogarans
Haffara.
Rœtur hlutafjárkaupa Togs h/f í
Frosta eru samfléttaöar atvinnu-
sögu þorpsins. Þaö er illmögulegt
að skilja þá atburöi sem nú eiga ser
þar stað, án þess að hafa forsögu
þeirra í huga.
ÁRATUGA EINVELDI
Börkur Ákason hafði verið fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins allt frá
sjötta áratugnum, er hann tók við
því af Karli Bjarnasyni, föður Auð-
uns og bróður Björgvins og Matthí-
asar Bjarnasonar ráðherra. Um
miðjan áttunda áratuginn gaf
hreppurinn Berki um þriðjunginn af
sínum hlut í Frosta, og frá þeim tíma
var hann svo til einráður yfir fyrir-
tækinu. Hann átti um 36%, en hafði
meirihluta ásamt Kristjáni Svein-
björnssyni og Ólafi heitnum Gísla-
syni, sem saman áttu um 13%.
Vegna hluta er fyrirtækið sjálft átti
dugðu þessi 49% til að halda meiri-
hluta. Þetta ástand varði allt þar til
hann hvarf frá því síðastliðið vor.
Eins og gefur að skilja mæltist það
misvel fyrir, enda þótti Börkur lítt
fyrir það gefinn að hafa aðra menn
með sér í ráðum.
En hverjar svo sem skoðanir
manna hafa verið á Berki Ákasyni,
þá blómgaðist fyrirtækið undir hans
stjórn. Áður en ráðist var í kaup og
breytingar á Haffara, síðastliðið vor,
skuldaði Frosti um 6 milljónir króna
og Álftfirðingur litlu minna. Þegar
gengið var frá kaupum Haffara og
verksamningum um breytingar á
honum greiddi fyrirtækið um 40
milljónir króna beint úr sjóðum
sínum.
ANDSTÆÐINGAR BARKAR
VINNA KOSNINGAR
Eftir sveitarstjórnarkosningarnar
árið 1982 beitti Auðunn Karlsson,
þá nýkjörinn oddviti, sér fyrir því,
að hreppsnefndin samþykkti að
selja __ hlutabréf hreppsins í Frosta
h/f. í samþykkt hreppsnefndarinn-
ar segir að það skuli gert til að
auka áhrif fólks í byggðarlaginu á
stjórn Frosta. Hins vegar væri rétt-
ara að orða hugmyndina að baki
þessari ákvörðun jáannig, að með
henni átti að neyða Börk til að
stjórna fyrirtækinu í samráði við
aðra í þorpinu. Þessari samþykkt
var hins vegar ekki fylgt eftir, þar
sem hún hafði ekki nægan hljóm-
grunn. Þar sem rekstur fyrirtækis-
ins gekk vel þótti ástæðulaust
að breyta þar nokkru um. Upphaf-
lega kom hreppurinn inn í fyrirtæk-
ið til að tryggja atvinnu í þorpinu og
hún var ekki í neinni hættu undir
stjórn Barkar.
Þegar líða tók að sveitarstjórnar-
kosningum síðastliðið vor, komu
þessar raddir aftur upp á yfirborðið.
Settur var saman sérstakur listi, er
hafði það að yfirlýstu markmiði
að auka lýðræði í atvinnumálum
Súðavíkur. Það gat ekki þýtt nema
eitt: að takmarka völd Barkar Áka-
sonar. Forvígismenn þessa lista
voru Auðunn Karlsson og Hálfdán
Kristjánsson sparisjóðsstjóri. Gegn
þessum lista var stillt upp lista Bark-
armanna. Þriðji listinn var einnig í
framboði og var listi þeirra er vildu
bera klæði á vopnin og tryggja frið
í atvinnumálum þorpsins.
Úrslit kosninganna urðu síðan
þau að Barkarmenn fengu tvo
menn kjörna í hreppsnefnd, en and-
stæðingar hans þrjá. Sáttamenn
fengu engan annan mann kjörinn.
BERKI BOLAÐ BURT
Þegar úrslit kosninganna lágu fyrir
kölluðu Börkur og mágur
hans, Sigurður Þóröarson, sem sæti
átti í stjórn Frosta, inn varamenn
sína og buðu stjórn fyrirtækisins
hlut sinn í því á 100 milljónir
króna. Þeir lýstu sig vanhæfa til að
semja við sjálfa sig fyrir hönd fyrir-
tækisins og gengu þar með af fundi.
I fjölmiðlum lýsti Börkur því yfir,
að hann væri búinn að fá sig full-
saddan af baslinu í sjávarútvegin-
um. Þeir sem til þekktu vissu sem
var, að hann stal í raun leiknum af
hreppsnefndinni. Það var þegar bú-
ið að ákveða að gera hann valda-
lausan innan fyrirtækisins.
Stjórn Frosta samdi síðan um verð
við Börk. Nafnverð bréfa hans var
365 krónur. Frosti keypti þau af hon-
um á rúmar 52 miiljónir. Helmingur
borgaður á fyrsta árinu og eftir-
stöðvar á sjö árum.
Fyrir aðalfund, sem þá stóð fyrir,
fékk Auðunn Karlsson það sam-
þykkt í hreppsnefndinni að hann
einn færi með atkvæði hreppsins,
sem þá hafði raun einræðisvald
yfir Frosta, í skjóli óvirkra hluta-
bréfa í eign fyrirtækisins. A aðal-
fundinum gekk Kristján Svein-
björnsson, þáverandi stjórnarfor-
maður, af fundi. Ástæða þess mun
hafa verið sú að Kristjáni hafi ekki
líkað hvernig ,,lýðræðið“ í fyrirtæk-
inu safnaðist í hendurnar á Auðuni
Karlssyni.
Á aðalfundinum var samþykkt að
Auðunn Karlsson yrði stjórnarfor-
maður og var honum veitt umboð til
að velja sér meðstjórnendur. Hann
valdi sér við hlið Ingimar Halldórs-
son, nýráðinn framkvæmdastjóra
Frosta og Stein Inga Kjartansson,
sveitarstjóra.
AUÐUNN LEGGST í BÓL
BARKAR
Eftir aðalfundinn óskuðu Kristján
Sveinbjörnsson og erfingjar Ólafs
Gíslasonar eftir því að Frosti keypti
hlut þeirra í félaginu. Það var gert
og fengu þessir aðilar svipuð kjör og
Börkur. Samtals hafði þá fyrirtækið
keypt um 49% hiut í sjálfu sér fyrir
rúmar 70 milljónir króna. I skjóli
þessa óvirka hluta hafði hreppurinn
algjört einræðisvald yfir fyrirtæk-
inu.
Þann 16. janúar í ár var síðan
þorpsbúum og starfsmönnum
Frosta sent tilboð um kaup á þeim
hlutabréfum er fyrirtækið hafði
keypt. í bréfinu voru viðtakendur
beðnir að hafa samband við fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins fyrir
febrúarlok.
Litlar undirtektir urðu við þessu
tilboði. Einstaka menn keyptu þó
litla hluti. Haft var eftir Steini Inga
Kjartanssyni, sveitarstjóra, þegar
fresturinn var útrunninn, að engin
meiri háttar tilboð hefðu borist.
En þann 3. mars barst til Súðavík-
ur staðfest símskeyti frá Guömundi
Heiöarssyni, nema í Samvinnuskól-
anum, þar sem hann óskaði eftir
kaupum á 20% hlut í fyrirtækinu
fyrir 30 milljónir króna. Stjórn fyrir-
tækisins tók þá afstöðu að líta fram
hjá þessu tilboði. (Sjá viðtal við Guð-
mund hér í opnunni).
Síðan gerist ekkert í málefnum
Frosta og Súðavíkur fyrr en allt
springur í loft upp á hreppsnefndar-
fundi síðastliðinn laugardag. Vegna
þrálátra sögusagna óskar þá Hálf-
dán Kristjánsson eftir því að málefni
Frosta verði tekin á dagskrá. í þeim
umræðum viðurkennir Steinn Ingi
Kjartansson að Togi h/f hafi verið
seldur 45% hlutur í fyrirtækinu dag-
inn áður. Aðspurður kvaðst hann
ekki muna hvert söluverðið var, né
hvaða kjör kaupendum voru boðin.
Barði Ingibjartsson, hrepps-
nefndarmaður, varamaður í stjórn
Frosta og einn af hluthöfum í Togi
h/f, gekk af þessum fundi vegna
tengsla sinna við málið. Steinn Ingi
gekk sömuleiðis af fundi.
Þegar þeir höfðu vikið af fundi
samþykktu þeir þrír hreppsnefndar-
menn sem eftir sátu tillögu Hálfdáns
Kristjánssonar um að honum yrði
falið að beita öllum ráðum til að fá
kaupsamningi Togs h/f á hlutum í
Frosta rift. Þess má geta að þeir tveir
hreppsnefndarmenn sem sátu fund-
inn með Hálfdáni, eru báðir starfs-
stúlkur hans í Sparisjóðnum.
„Þaö sem Auðunn Karlsson lœtur
hafa eftir sér í Morgunblaðinu um
tilboö mitt er í öllum meginatriöum
rangt," sagði Guðmundur Heiðars-
son í samtali viö Helgarpóstinn.
Guömundur gerði tilboö í 20% af
hlutabréfum Frosta meö staöfestu
símskeyti þann 28. febrúar, daginn
sem tilboösfrestur rann út.
,,Ég sendi staðfest skeyti innan
tímamarka. Þegar ég kom síðan til
Súðavíkur í byrjun mars fór ég strax
á fund Ingimars Halldórssonar,
framkvæmdastjóra Frosta. Hann
var þá reyndar á landsfundi Sjálf-
stœðisflokksins, en ég frestaði ferð
minni suður til að ná tali af honum.
í samtali við hann ítrekaði ég tilboð
mitt og bauðst til að leggja inn nýtt,
skriflegt tilboð til áréttingar. Ingi-
mar vildi hins vegar ekkert með það
hafa.
Eftir þetta samtal beið ég eftir
svari frá stjórn Frosta við tilboði
„LOGBROT“
„Ég held að það liggi nokkuö Ijóst
fyrir aö Auðunn Karlsson og Ingi-
mar Halldórsson hafa brotiö hluta-
félagalögin meö þvíaö selja sjálfum
sér fyrirtœkið," sagöi Hálfdán Krist-
jánsson, hreppsnefndarmaöur og
sparisjóðsstjóri á Súðavík. Hálfdáni
var faliö á síöasta hreppsnefndar-
fundi að leita allra ráöa til aö rifta
kaupsamningi Togs h/f á hlutabréf-
um í Frosta.
,,Það er skýrt íekið fram í 56. og
60 gr. almennra laga um hlutafélög
að stjórnarmenn og framkvæmda-
stjórar megi ekki taka þátt í samn-
ingsgerð fyrir hönd félagsins ef þeir
hafa sjálfir verulegra hagsmuna að
gæta. Auk þess segir að félagsstjórn
megi ekki gera neinar þær ráðstaf-
anir, sem bersýnilega eru fallnar til
þess að afla ákveðnum hluthöfum
ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað
annarra hluthafa.
Ég fæ ekki betur séð en þeir Auð-
unn og Ingimar hafi þverbrotið
þessi ákvæði í öllum þessum kaup-
um.“
Til hvaöa aögeröa mun hrepps-
nefndin grípa?
„Við munum í samráði við lög-
menn okkar finna leiðir. Auðunn og
félagar sitja enn sem fastast á kaup-
,,Þaö var staðiö löglega aö þess-
um kaupum og viö berum engan
kvíðboga gagnvart samþykkt síö-
asta hreppsnefndarfundarj' sagöi
Auðunn Karlsson, oddviti, stjórnar-
formaöurí Frosta ogeinn afhluthöf-
um í Togi h/f í samtali við Helgar-
póstinn.
„Þessi samþykkt er runnin undan
rifjum öfundarmanna. Það er ekk-
ert athugavert við hvernig staðið
var að samningunum. Nokkrir lykil-
menn í fyrirtækinu tóku sig saman
og ákváðu að leggja fjármagn inn í
fyrirtækið. Það þurfti að gera,
vegna þess fjármagns sem streymt
hefur úr byggðarlaginu eftir sölu á
hlutum nokkurra manna. Þetta var
gert með framtíð atvinnulífs í
byggðarlaginu í huga, ekki vegna
persónulegra hagsmuna. Ásakanir
um annað eru ekkert annað en róg-
ur.“
Finnst þér þá ekkert athugavert
viö aö þú sem fulltrúi hreppsins í
stjórn félagsins seljir sjálfum þér og
mínu. Þeir hafa enn ekki séð ástæðu
til að senda mér það. Reyndar hef ég
ekki heyrt orð frá þeim mönnum.
Einu viðbrögðin voru þau að dag-
inn sem tilboð mitt barst til Súðavík-
ur og Ingimar leysti það út af póst-
húsinu var föður mínum sagt upp
störfum. Það var 3. mars og verður
það að teljast einkennilegt að víkja
manni úr starfi fyrsta virka dag
mánaðar."
En nú hafa forsvarsmenn Frosta
haldiö því fram aö ekkert mark vœri
takandi á símskeyti frá skólastrák.
Hvernig œtlaöir þú aö fjármagna
þessar 30 milljónir?
„Það er rétt að ég er ekki mikill
eignamaður. Ég neita því ekki að
það stóðu menn á bak við mig.“
Sögur segja aö þaö hafi veriö
Sambandiö?
„Það er ekki rétt. Þetta voru ein-
staklingar sem áhuga hafa á at-
vinnumálum Súðavíkur."
samningi og öilum heimildum um
söluna. Þeir hafa ekki einu sinni
sent hlutafélagaskrá stofnsamning
Togs h/f. Það er ekki fyrr en við höf-
um fengið þessi plögg að við getum
hafið raunverulegan málatilbún-
ing."
Telur þú aö enn sé meirihluti fyrir
því í hreppsnefndinni aö rifta kaup-
unum?
„Já. Þósvo Auðunnsjái ekki sóma
sinn í því að víkja vegna tengsla
sinna við málið, þá er meirihluti fyr-
ir samþykkt síðasta fundar. Steinn
Ingi Kjartansson, sveitarstjóri og
Baröi Ingibjartsson, hluthafi í Togi
h/f, eru það miklir heiðursmenn að
þeir munu aldrei ganga svo langt að
fara að greiða atkvæði um eigin
vanhæfni."
Meirihlutinn er þá ekki bundinn
viö starfsstúlkur þínar úr Spari-
sjóönum?
„Þær eru, eins og aðrir sveitar-
stjórnarmenn, ekki bundnar af
neinu öðru en eigin samvisku. Ég tel
ástæðulaust að vefengja afstöðu
þeirra. Auk þess er ég sannfærður
um að það muni koma fram á borg-
arafundinum á sunnudaginn að það
er mikill meirihluti þorpsbúa sam-
þykkur afstöðu okkar."
félögum þínum meirihlutavald í fé-
laginu?
„Nei. Þetta var gert með hag fyrir-
tækisins að leiðarljósi. Mér sem
stjórnarmanni bar að taka ákvarð-
anir í ljósi þess og það gerði ég. En
það er ekki rétt að við höfum selt
meirihluta í félaginu. Tog h/f á nú
minni hlut en hreppurinn."
En einstaklingar innan Togs h/f
eiga persónulega það sem á vantar.
„Já, en það er ekki þar með sagt
að við séum með meirihluta. Það
byggist á því hvort við höldum ein-
ingu innan okkar raða.“
Hvernig œtlar Tog h/f aö standa
undir þeim skuldbindingum sem
þaö hefur nú tekið á sig?
„Það er okkar mál, hvers fyrir sig.
Við eigum okkar eignir og við eru
tekjuháir."
Ert þú tekjuhár og eignamikill?
„Égvil ekki svara spurningum um
mín eigin fjármál. En ég tel mig hafa
fundið leiðir til að fjármagna minn
hluta af hlutabréfunum í Togi h/f.“
Hálfdán Kristjánsson, sparisjóðsstjóri
Auðunn Karlsson, oddviti og stjórnarformaður
Frosta:
„ÓTTUMST EKKI
HREPPSNEFNDINA“