Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 24
KRISTJAN
Fyrsta einkasýning hans í 20 ár vígir nýjan sal
FÍM í Garðastræti.
JUKKAR ERU SIGURSTRANG
LEGIR í BRUSSEL
Kristján Davídsson vígir hinn nýja
sal Félags íslenshra myndlistar-
manna að Garðastrœti 6 við opnun
salarins á morgun, föstudag 8. maí.
A sýningunni verður Kristján með
20 verk, allt frekar stórar olíumynd-
EVRÓVISION ’87
íslendingar cetla ekki að vinna
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva aftur. Fyrirfram. Því
hafa Halla Margrét Árnadóttir og
Valgeir Guðjónsson það vonandi
bara gott í Briissel vitandi það að
af þeim er ekki krafist hins ill-
mögulega. Þau hafa sett markið á
fimmtánda sætið og œtla ekkert
að verða neitt voðalega svekkt þó
að því verði ekki náð.
Um þetta leyti í fyrra var þjóðin
Eurovision-óð. Eða öllu heldur
-drukkin. Síðan komu miklir timb-
urmenn og vondir. Og þegar sjón-
varpið auglýsti eftir lögum í
keppnina í ár bárust ekki einu
sinni eitt hundrað lög. Meira að
segja innan við sextíu. Þau tíu sem
komust í undanúrslit voru samt
slarkfær og merkilegt nokk sigr-
aði það lagið sem óskyldast var
því formúlupoppi sem flestir telja
að bjóða eigi upp á í lokaslagnum.
Því miður virðast mér dómnefndir
annarra þjóða ekki vera í upp-
reisnarhug líkt og hér á landi.
Meginhluti laganna sem keppa er
samkvæmt formúlunni lítið og lé-
legt lag með sterku og grípandi
viðlagi. Hún hefur virkað vel hing-
að til og hvers vegna þá að breyta?
Aðeins ein þjóð gefur formúl-
unni langt nef með okkur. Israels-
menn. Þeir tefla fram grínurum,
þaulvönum atvinnumönnum að
því er virðist, með nauðaómerki-
legt tjútt tjútt tra la la la sem verð-
ur þó býsna skemmtilegt þegar
sviðsframkoma grínaranna
tveggja bætist ofan á lagið. ísraels-
menn eru raunar óþekkta stærðin
Það mæðir alla jafna mikið á
kynninum í Söngvakeppni evr-
ópskra sjónvarpsstööva. Hann
þarf að hafa showið á valdi sínu
og láta sér hvergi bregða við
óvœntar aðstœður, vera hrað-
mœlskur á ótal tungur, aðlaðandi
og helst skemmtilegur. Þessum
kostum ku Viktor Lazlo, kynnirinn
í Belgíu, vera búinn.
Konur hafa alla jafna kynnt
söngvakeppnina. Það hrukku því
margir við og hugðu Belga nú
ætla að vinda sér í jafnréttisbarátt-
una af krafti er spurðist að Viktor
væri nafn kynnisins í ár. En um
hægðist er kom í ljós að Viktor
Lazlo var og er ung söngkona,
fyrrverandi fyrirsæta og mælt á
ensku, frönsku, hollensku, þýsku
og ítölsku eftir nám í háskólanum
í Brussel.
24 HELGARPÓSTURINN
ir og hafa nokkrar þeirra verið sýnd-
ar víða um heim, m.a. í Listamið-
stöð Norðurlanda í Helsinki, í Berg-
en og Sao Paulo í BrasiHu á árinu
1985.
Að sögn Kristjáns hefur hann ekki
í söngvakeppninni þetta árið. Þeir
gætu hvort heldur sem er unnið
eða orðið í neðsta sæti allt eftir því
hvernig húmorinn leggst í dóm-
nefndir þeirra þjóða sem eru með
að þessu sinni. Það er ákaflega
mismunandi hvernig húmor einn-
ar þjóðarinnar leggst í þá næstu.
Samanber það að stundum eigum
við erfitt með að brosa að því sem
Dönum þykir drepfyndið og öfugt.
Ég varð fyrir vonbrigðum með
framlag annarra Norðurlanda-
þjóða að þessu sinni. Svíar tefldu
djarft í fyrra með rokkarann
hressa E’de det hár du kallar kár-
lek? Bleik var óskaplega brugðið
að þessu sinni og tæpast á salsan
Boogaloo eftir að verða ofarlega í
ár. Danir sem eitt sinn sendu
Bamses venner í keppnina bjóða
nú upp á lag sem allt eins gæti
hafa verið á þýskum vinsældalista
á sjötta áratugnum. Finnar virðast
hafa hrist saman Gleðibankann og
Rockylagið Eye Of The Tiger. Út-
koman er eitt það ómerkilegasta
sem þeir hafa komið með um
langt skeið. Sennilega hef ég verið
sáttastur við framlag Norðmanna
vegna þess að ég er löngu hættur
að búast við neinu úr þeirri átt-
inni. Kate Gulbrandsen sýnist mér
því sigurstranglegust söngvara af
Norðurlöndunum. Tæpast blandar
hún sér þó í toppbaráttuna. Til
þess sýnist mér lagið hennar vera
allt of venjulegt.
Því var lýst yfir síðastliðið haust
í Bretlandi að hér eftir yrði
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva tekin alvarlega þar í
landi. Vanda skyldi val lagsins og
Viktor Lazlo hefur verið at-
vinnumaður í sönglistinni síðan
árið 1983 er hún var uppgötvuð af
sama manninum og kom Plastic
Bertrand á framfæri. Það er ein-
mitt Plastic þessi sem keppir fyrir
hönd Luxembourgara á laugar-
dagskvöldið. Fyrsta smáskífa
Viktors var Casanova. Hún komst
á topp tíu í Belgíu og Frakklandi.
Næsta lag, Backdoor Man, var
notað í kvikmyndina A Mort
CArbitre. Loks kom svo breiðskíf-
an She út árið 1985. Hún var ná-
lægt því að vinna söngkonunni
platínuplötu í Belgíu, seldist í á
annað hundrað þúsund eintökum
í Frakklandi og tugum þúsunda í
Japan svo að dæmi séu tekin.
Þessi plata hefur nú verið endurút-
gefin vegna skyndilegrar athygli
sem beinist að Viktor Lazlo.
senda með það ,,alvöru“ poppara
til Brússel. Hér á árum áður
kepptu fyrir Bretlands hönd
stjörnur á borð við Sandie Shaw,
Lulu, Mary Hopkin, The Shadows,
New Seekers, Cliff Richard og
Olivia Newton-John. Allt fólk sem
hafði slegið í gegn áður en það
hélt á vit Eurovision. Ekki reyndist
fulltrúi Breta í ár merkilegri
músíkant en hefur komið frá eyj-
unum mörg undanfarin ár. lrar
tefla þó fram sigurvegara ársins
1980, Johnny Logan, og virðast
talsvert sigurstranglegri en grann-
ar þeirra.
Johnny Logan getur vart talist
með poppstjörnum þótt eitt sinn
hafi hann sigrað í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva. í
keppninni í ár eru nokkrir söngv-
arar af stærri gráðu. Til dæmis
ítalirnir Umberto Tozzi (Ti amo)
og Raf. Þá gerði fulltrúi Luxem-
bourgara, Belginn Plastic Bert-
rand, góða lukku árið 1978 með
lagið Ca Plane Pour Moi. Aðrir
hafa mér vitanlega ekki getið sér
prð á alþjóða vettvangi. Hvorki
Italir né Luxembourgarar sýnast
mér geta náð efstu sætunum.
Frakkar og Spánverjar, margfaldar
sigurþjóðir, eru einnig í miðju-
moðinu og virðast ekki til stór-
ræðanna í þetta skiptið.
Fyrir ári síðan spáði ég fyrir um
úrslitin í Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva. Mér tókst bæði
vel og illa upp. Bjóst við að íslend-
ingar og Belgar myndu bítast um
sigursætið. Belgar unnu og okkar
fólk lenti neðar! Enn skal þess
freistað að spá eftir að hafa horft
Söngstíll hennar er djassað
popp og róleg lög í svipuðum stíl
og Sade syngur. Ekta síðkvölds-
tónlist með öðrum orðum. Nýjasta
LP platan sem heitir Viktor Lazlp
kom út rétt fyrir mánaðamótin. Á
henni er tónlistin nokkuð hraðari
og hressilegri en á She. Meðal ann-
arra sem koma fram á nýju plöt-
unni eru Bunny DeBarge, Toots
Thielemans og Mike Miller gítar-
leikari. James Ingram syngur með
Viktor Lazlo í laginu Breathless
sem kom út á smáskífu í síðasta
mánuði. Viktor syngur það ein-
mitt í beinni útsendingu á laugar-
dagskvöldið áður en keppnin sjálf
hefst. Betri auglýsingu getur upp-
rennandi söngkona vart hugsað
sér. Reiknað er með að um sex
hundruð milljón manns fylgist
með Söngvakeppni evrópskra
og hlustað nokkrum sinnum á lög-
in tuttugu og tvö sem verða með
að þessu sinni. Röðin er þessi:
1. Júgóslavía
2. Þýskaland
3. ísrael
4. Sviss
5. írland
6. Belgía
7. Luxembourg
Lögin í fimmta til sjöunda sæt-
inu þóttu mér reyndar ósköp svip-
uð að „gæðum“ svo að röðin er
þessi nánast fyrir tilviljun. Sjálf-
sagt er það bara gamla þjóðernis-
remban og minnimáttarkenndin
sem er á ferðinni þegar ég fæ það
á tilfinninguna að Hægt og hljótt
eigi eftir að komast ofar en í fimm-
tánda sætið. Að mínu mati eigum
við skrambi góða fulltrúa í þessari
illræmdu eða kannski heldur
mjögsvoumdeildu söngvakeppni.
Fulltrúa sem sætta sig ekki við að
feta einföldustu leiðina að mark-
inu. Hugurinn verður í Brússel að
kvöldi þess níunda.
Viktor Lazlo, kynnirinn með karlmanns-
nafnið — og fimm tungumál á hreinu.
sjónvarpsstöðva í ár.
Rétt er að vekja athygli á öðru
lagi af plötunni Viktor Lazlo með
Viktor Lazlo. Það heitir Hey Baby
Cool. Þar leikur hljómsveit Count
Basies með söngkonunni og Frank
Foster útsetjari Franks Sinatra og
Sarah Vaughan sér um þá hlið
mála fyrir Lazlo.
Meðan keppendur svitna við að
vekja á sér athygli í Brússel fyrir
keppnina stendur Viktor Lazlo
reyndar einnig í sama slagnum.
Hún hélt hljómleika í Cirque Royal
í fyrrakvöld og í gær var hún með
blaðamannafund á Astoria hótel-
inu í Brússel til að kynna sig og
plötu sína. Ef þú færð ekki að
keppa í Eurovision fáðu þá að
verða kynnir og það getur komið
ferlinum vel sé rétt úr spilað.
Úr MUSIC & MEDIA
haldið einkasýningu í fjöldamörg ár
eða ekki frá því Bogasalur var lagð-
ur niður í forsetatíð Kristjáns Eld-
járn. Kristján segist ekki hafa fundið
annan sal sem sér hefði þótt henta
eins vel til sýninga fyrr en þá nú en
hann segir að sér lítist mjög vel á
nýja sal félagsins: „Þetta verður
skemmtilegt gallerí og ég tel gott
fyrir bæjarbúa að fá sýningarsal
svona miðsvæðis." Aðspurður um
hvort hann máli öðruvísi eftir því
sem hann eldist kveðst Kristján ekki
telja svo vera því hann hafi nýlega
fundið mynd heima hjá sér sem
hefði grafist bak við í um tuttugu ár
og af henni megi sjá að hann sé í
aðalatriðum enn að fást við ná-
kvæmlega það sama. „Ég var með
ekki ósvipuð verk á sýningunni í
Bogasalnum 1968 og ég er með
núna,“ segir hann.
Þótt Kristján hafi ekki haldið
einkasýningu í um tuttugu ár hefur
hann tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum víða um heim með „Septem-
hópnum" sem hann er félagi í. Hann
segist vera stoltur, ánægður og
þakklátur fyrir að hafa verið boðið
að sýna fyrstur listmálara í hinum
nýja sal FIM.
-AKM
FELAG íslenskra myndlistar-
manna opnar á föstudag nýjan sýn-
ingarsal að Garðastræti 6. FIM hefur
ekki rekið sýningarsal í mörg ár eða
frá því um 1981 er þeir leigðu út sal
sinn að Laugarnesvegi 112. Nú hef-
ur félagið selt húseignina og fest
kaup á hentugum sal en eins og
kunnugt er hefur eftirspurn eftir
sýningarplássi aukist upp á síðkast-
ið en framboð sýningarsala þá jafn-
framt minnkað sbr. þegar Listmuna-
húsið lokaði. Félagið hyggst hafa
opnunartíma sinn kl. 14—19 alla
daga vikunnar og mun hver ný sýn-
ing opna á föstudögum en þeir opn-
unardagar hafa ekki tíðkast hér-
lendis þótt föstudagarnir séu al-
gengir opnunardagar til dæmis í
Kaupmannahöfn. Salurinn að
Garðastræti 6 var áður í eigu Bún-
aðarbankans og hefur FÍM unnið að
breytingum og lagfæringum upp á
síðkastið til að færa húsnæðið í það
horf er henta þykir fyrir góðan sýn-
ingarsal. Nýtt gólf hefur verið lagt
úr massivu parketi sem félagarnir
hafa olíuborið og ljós í salnum gefa
frá sér dagsbirtu. FIM-salurinn verð-
ur til leigu fyrir félagsmenn og aðra
myndlistarmenn og er áætlað að
hver sýning standi í hálfan mánuð.
FRANK Ponzi listfræðingur, sem
hefur verið búsettur hérlendis
nokkur undanfarin ár, lætur ekki
hátt með rannsóknir sínar og skrif
um íslenska myndlist, en þau eru þó
eitthvert merkilegasta innlegg í
menningarsögu okkar eftir stríð.
Ponzi á þejgar að baki þrjú verk um
myndlist Islendinga (með enskum
og íslenskum texta) sem öll hafa
komið út hjá Almenna bókafélag-
inu. Þetta eru bækurnar um braut-
ryðjandann Finn Jónsson, ísland á
18. öld og ísland á 19. öld en síðast-
talda bókin kom út fyrir síðustu jól.
Því er á þetta minnst að Almenna
bókafélagið tók nýlega þátt í The
Art Historical Bookfair, bókasýningu
listfræðinga, sem haldin var í Vic-
toria og Albert Museum í London í
marslok. Áðurnefndar bækur Ponzi,
sem voru framlag AB á sýningunni,
vöktu mikla athygli og þau eintök
sem til voru seldust upp. í síðustu
tveimur eintökum af hinu mikil
virta menningarriti Times Literary
Supplement, sem fer víða um heim,
hefur og verið vakin sérstök athygli
á íslandi á 19. öld, meðal annars
með því að skipa henni á lista yfir
athyglisverðustu myndlistarbæk-
urnar um þessar mundir.
KYNNIR SONGVAKEPPNINNAR
ER SJÁLFUR POPPSTJARNA