Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 31

Helgarpósturinn - 07.05.1987, Síða 31
styr um stöðu framkvæmdastjóra Alþýðuflokksins. Akveðið var að leggja titil þennan niður og var það túlkað á þann hátt að Jón Baldvin Hannibalsson formaður væri að losa sig við þáverandi fram- kvæmdastjóra, Kristínu Guð- mundsdóttur. Um svipað leyti var BÍLALEIGA Útibú í kringum landið REYKJAVÍK:.....91-31815/686915 AKUREYRI:...... 96-21715/23515 BORGARNES:.............93-7618 BLÖNDUÓS:.........95-4350/4568 SAUÐÁRKRÓKUR: ....95-5913/5969 SIGLUFJÖRÐUR:.........96-71489 HÚSAVÍK:........96-41940/41594 EGILSSTAÐIR:...........97-1550 VOPNAFJÖRÐUR: .....97-3145/3121 FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166 HÖFN HORNAFIRÐI: ..... 97-8303 Borðapantanir í síma 11340. Ámundi Ámundason ráðinn og fékk titilinn „útbreiðslustjóri", sem var nýtt heiti yfir sama starf. En fyrir rúmu ári var gamli titillinn tekinn upp aftur og ungur maður, Jón Baldur Lorange, gerður að fram- kvæmdastjóra. Nú hefur Jón þessi hins vegar fyrir nokkru sent inn uppsagnarbréf sitt eftir ítrekaða árekstra við fyrrnefndan Ámunda. Jón telur hendur sínar bundnar og mun hafa sett fram ákveðin skilyrði fyrir því að halda áfram. Ef að líkum lætur stefnir hins vegar í að Ámundi sjái gamlan draum rætast, að fá að bera titilinn framkvæmdastjóri Al- þýðuflokksins.. . að mat hefur komið fram í Helgarpóstinum að lítið hafi verið fjallað um og gert úr sigri Borgara- flokksins í nýafstöðnum þingkosn- ingum. Smám saman birtast þó til- raunir til greiningar á fyrirbærinu. Um næstu helgi kemur út tímaritið Þjóðlíf og er þar aðalgreinin stjórn- málafræðileg úttekt á Borgara- flokknum. Greinin nefnist „Vargöld í Valhöll" og er eftir dr. Svan Krist- jánsson, sem telja verður einn helsta „sérfræðing landsins" í Sjálf- stæðisflokknum! Svanur rekur framboð Borgaraflokksins til djúp- stæðs klofnings innan Sjálfstæðis- flokksins allar götur frá 1970, eða sama ári og Albert Guðmundsson hóf göngu sína í pólitík fyrir alvöru. Svanur kemst að þeirri niðurstöðu að þessi áralangi klofningur og við- hald hans hafi lagt grundvöllinn að góðum árangri Borgaraflokksins og tryggt Alberti öruggt fylgi... l^£inkaviðtölin streyma inn ásíð- ur tímaritanna og er nú orðið svo, sjálfsagt sakir samkeppninnar í þessum geira fjölmiðlunar, að varla kemurnúúttímaritöðruvísi enþað státi að minnsta kosti af einu ítar- legu spjalli við heimsfrægan mann. Einna ríkast hefur Mannlíf gengið fram í þessu efni og gerir enn, því í næsta tölublaði þess, sem kemur út um helgina, mun vera að finna at- hyglisvert viðtal við breska leikar- ann Nigel Hawthorne sem íslend- ingar þekkja svo vel frá mánudags- kvöldunum í lífi sínu. Hann leikur sem kunnugt er ráðuneytisstjórann sir Humphrey í þeim dæmalaust dásamlegu gamanþáttum Já, for- sætisráðherra, sem eru eitt best heppnaða sjónvarpsefni Breta um langt árabil (og er þó af gæðunum að taka úr þeirri áttinni). Haw- thorne er einnig góðkunnur sviðs- leikari í landi hennar hátignar, eins og hann segir meðal annars frá í við- talinu við Mannlíf, sem Ásgeir Friðgeirsson, fréttaritari útvarps í London, tók fyrir Mannlíf ytra . . . A ^^^^ðdaendur danskrar dægur- tónlistar geta andað léttar. Þáttur- inn, sem sýndur var sl. sunnudag með Kim Larsen og Bellami verð- ur að öllum líkindum endursýndur fljótlega á kvölddagskrá Sjónvarps- ins. Sjónvarpið hefur a.m.k. tryggt sér rétt til endursýningar þáttar- ins . . . A næstunni verður gengið frá ráðningu stjórnmálaritstjóra Al- þýðublaðsins. Árni Gunnarsson var ábyrgur fyrir stjórnmálaskrifum blaðsins, en eftir að hann náði kjöri til Alþingis hefur hann ekki komið nærri blaðinu. Ingólfur Margeirs- son hefur séð um rekstur ritstjórnar um skeið ogskv. heimildumHP verð- ur gengið formlega frá ráðningu hans sem stjórnmálaritstjóra innan skamms. Er það flokksstjórn Al- þýðuflokks sem ræður ritstjóra. Fyr- irhuguð er 100% stækkun blaðsins í lok mánaðarins, þ.e. blaðið fer í átta síður daglega. Þykir mönnum að Ingólfi hafi tekist að hressa vel uppá blaðið, sem á sér merkilega sögu í blaðabransanum. . . OG HIN SÍGILDA FIMM GÖMSÆTIR SJÁVARRÉTTIR! þú valio um fimm gómsæt sjávar- rétti SKELJAGRATIN RÆKJUBÖKUR RÆKJURÚLLUR SJÁVARRÉTTUR MORNAY

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.