Helgarpósturinn - 07.05.1987, Qupperneq 38
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 8. maí
18.30 Nilli Hólmgeirsson.
18.55 Litlu Prúöuleikararnir.
19.15 Á döfinni.
19.25 Fróttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn.
20.00 Fréttir.
20.40 Rokkarnir. Hljómsveitin Fullt hús
gesta kynnt.
21.15 Mike Hammer.
22.05 Seinni fróttir.
22.15 Duldar hvatir (Freud) ★★★ Banda-
rísk bíómynd frá árinu 1963 s/h. Leik-
stjóri John Huston. Aðalhlutverk
Montgomery Clift, Susannah York,
Larry Parksog Susan Kohner. Myndin
lýsir þeim árum þegar Sigmund
Freud, sem nefndur hefur veriö faðir
sálfræðinnar, var að þreifa fyrir sér
með dáleiðslu og sálkönnun. Hann
finnur margt skylt meö sjálfum sér og
ungri stúlku sem hann stundar og
sannfærist um að sefasýki hennar eigi
sér orsakir í barnæsku hennar.
00.20 Dagskráriok.
Fimmtudagur 7. maí
5 17.00 Myndrokk.
§ 18.00 Knattspyrna.
19.00 Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.05 Opin lína.
20.25 Ljósbrot.
21.05 Morögáta.
§21.55 Af bæíborg.
§ 22.05 Blaö skilur bakka og egg (Raz-
or's Edge). ★ Bandarísk mynd frá ár-
inu 1984, byggð á sögu W. Somerset
Maugham. Þegar Larry Darrell snýr
aftur heim úr seinni heimsstyrjöldinni
bíður hans falleg stúlka og vellaunað
starf. En Larry getur ekki gleymt hörm-
ungum stríðsinsog honum finnst lífið
tilgangslaust. Hann yfirgefur fjöl-
skyldu sína og vini og leggur upp í
langa ferö í leit að sannleikanum. Að-
alhlutverk: Bill Murray, Theresa Russ-
el, Catherine Hicks. Leikstjórn: John
Byrum.
§ 00.10 Magnum Pl.
§ 00.55 Dagskrárlok.
Laugardagur 9. maí 1987
16.00 iþróttir.
17.30 Litli græni karlinn — lokaþáttur.
17.45 Garörækt. 2. Harðgerð sumarblóm.
18.15 Fróttir og veður.
19.00 Söngvakeppni sjónvarpsstööva í
Evrópu 1987. Bein útsending frá
Bruxelles þar sem þessi árlega keppni
er haldin í 32. sinn með þátttöku 22
þjóöa. íslendingar taka nú þátt í
keppninni öðru sinni með laginu
„Hægt og hljótt" eftir Valgeir Guð-
jónsson sem Halla Margrét Árnadóttir
syngur. Kolbrún Haröardóttir lýsir
keppninni sem verður útvarpað sam-
tímis.
21.55 Lottó.
22.00 Fyrirmyndarfaðir.
22.30 Taumleysi (Written on the Wind)
★★★ Bandarísk bíómynd frá árinu
1956. Leikstjóri Douglas Sirk. Aöal-
hlutverk Lauren Bacall, Rock Hudson,
Robert Stack og Dorothy Malone.
Einkaritari giftist vinnuveitanda sínum
sem er olíugreifi og þekktur glaum-
gosi. Hann er þó ekki eini svarti sauö-
urinn í fjölskyldunni eins og brúðurin
á eftir að kynnast.
00.15 Dagskrárlok.
Föstudagur 8. maí
§ 17.00 Kvöldfróttir (Newsat Eleven). ★★
Bandarísk sjónvarpsmynd frá árinu
1983. Leikstjóri og höfundur hand-
rits er Mike Robe. I kvöldfréttum
segir fréttamaður frá ástarsambandi
kennara og nemanda við gagn-
fræöaskóla, og verða úr þessu mikl-
ar fjölmiðladeilur. Aöalhlutverk:
Martin Sheen, Eric Ross og Barbara
Babcock.
§ 18.30 Myndrokk.
19.05 Teiknimynd.
19.30 Fróttir.
20.00 Opin lína.
20.20 Klassapíur.
§ 20.45 Hasarleikur (Moonlighting).
§ 21.20 Æskuárin (Fast Times At Ridge-
mont High). ★★ Grínmynd frá árinu
1982, byggð á samnefndri bók sem
náði miklum vinsældum. Sagt er frá
nokkrum unglingum í menntaskóla,
vandamálum þeirra í samskiptum við
hitt kynið og öðrum vaxtarverkjum.
Tónlist ( myndinni er flutt af Jackson
Browne, The Go-Go's, Graham Nash,
Cars o.fl. Aðalhlutverk: Sean Penn,
Jennifer Jason Leigh, Judge Rein-
hold og Phoebe Cates. Leikstjóri er
Amy Heckerling.
§23.45 3 konur (3 Women) ★★★★
Bandarísk mynd frá árinu 1977.
Leikstjóri er Robert Altman og meö
aðalhlutverkin fara Sissy Spacek,
Shelley Duvall og Janice Rule. Sér-
kennileg, ung kona fær vinnu á
heimili fyrir aldraða. Hún myndar
fljótlega náið samband viö sam-
starfskonu sína sem lifir eftir for-
skriftum kvennablaða. Inn í mynd-
ina bætist dularfull listakona og
mynda þessar þrjár konur óvenjuleg
tengsl sín á milli.
§ 01.45 Sweeney.
§ 02.35 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 9. maí
§ 09.00-11.00 Teiknimyndir.
§ 11.00 Börn lögregluforingjans. •
§ 11.30 Fimmtán ára.
§ 12.00 Hlé.
§ 16.00 ÆttarveldiÖ (Dynasty).
§ 16.45 Myndrokk.
§ 17.05 Bíladella (Automania).
§ 17.30 NBA — körfuboltinn.
19.00 Teiknimynd.
19.30 Fróttir.
20.00 Allt er þegar þrennt er.
20.25 Undirheimar Miami (Miarni
Vice).
§ 21.15 Bráðum kemur betri tíö (We'll
Meet Again).
§ 22.15 Nútímasamband (Modern Rom-
ance) ★★ Bandarísk sjónvarps-
mynd frá 1980. Robert og Mary eiga
í ástarsambandi sem stundum hefur
verið lýst með oröunum „haltu mér,
slepptu mér". Aðalhlutverk: Albert
Brooks og Kathryn Harrold. Leik-
stjórn: Albert Brooks.
§ 23.45 Dreginn á tálar (Betrayed By Inno-
cence). Bandarísk mynd frá 1986.
Myndin fjallar um hjón sem vinna
bæði mikið og gefa sér ekki tíma til
að hlúa að ástinni í hjónabandinu.
Inn (líf þeirra kemur unglingsstúlka
sem táldregur eiginmanninn. Þegar
faðir stúlkunnar fréttir af sambandi
þeirra, ákærir hann manninn fyrir að
hafa mök við stúlku undir lögaldri.
Aðalhlutverk: Barry Bostwick, Lee
Purcell, Cristen Kauffman. Leik-
stjórn: Elliot Silverstein.
§ 01.25 Myndrokk.
§ 03.00 Dagskrárlok.
©
Fimmtudagur 7. maí
19.00 Kvöldfróttir. Daglegt mál.
19.45 At utan.
20.00 Leikrit: ,,Spor í sandi" eftir Lelde
Stumbre.
21.15 Gestur í útvarpssal.
21.30 Hamrahlíöarkórinn syngur lög
eftir Atla Heimi Sveinsson.
22.00 Fróttir.
22.20 Töframaöurinn frá Granada.
23.00 Túlkun í tónlist.
24.00 Fróttir.
MEÐMÆLI
Hvað getur maöur sagt? Þarf að benda
á Söngvakeppni Evrópu á ríkisrásar-
sjónvarpsstööinni? Halla og Valgeir
draumaprins? Ef þetta er um of er á
sama tíma Miami Vice hinum megin.
Góö kvennamynd á Stöö 2 föstudags-
kveldiö.
Föstudagur 8. maí
07.03 Morgunvaktin.
09.00 Fróttir.
09.05 Morgunstund barnanna: ,,Veröld-
in er alltaf ný" eftir Jóhönnu Á.
Steingrímsdóttur.
10.00 Fróttir.
10.30 Mór eru fornu minnin kær.
11.00 Fróttir.
11.05 Samhljómur.
12.20 Hádegisfréttir.
14.00 Miödegissagan.
14.30 Nýtt undir nálinni.
15.00 Fróttir.
15.10 Landpósturinn.
16.00 Fróttir.
16.05 Dagbókin.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.00 Fróttir.
17.05 Síödegistónleikar.
17.40 Torgiö — Viðburðir helgarinnar.
19.00 Kvöldfróttir.
20.00 Sónata í A-dúr op. 47 eftir Ludwig
van Beethoven.
20.40 Kvöldvaka.
21.35 Sígild dægurlög.
22.00 Fróttir.
22.20 Hljómplöturabb.
23.00 Andvaka.
24.00 Fróttir.
00.10 Næturstund í dúr og moll.
01.00 Dagskrárlok.
Laugardagur 9. maí
07.03 ,,Góðan dag, góöir hlustendur".
09.00 Fróttir.
09.30 í morgunmund.
10.00 Fróttir.
10.25 Óskalög sjúklinga.
11.00 Vísindaþátturinn.
11.40 Næst á dagskrá.
12.00 Hór og nú.
14.00 Sinna.
15.00 Tónspegill.
16.00 Fróttir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Ljóöatónleikar Peters Schreiers 1.
ágúst í fyrra.
18.00 fslenskt mál.
18.30 Kvöldfróttir.
19.00 Söngvakeppni sjónvarpsstööva í
Evrópu. Bein útsending frá Bruxelles
samtengd útsendingu Sjónvarpsins.
22.00 Fróttir.
22.20 Tónmál.
23.00 Harmoníkuþáttur.
23.30 Danslög.
24.00 Fróttir.
00.05 Miönæturtónleikar.
01.00 Dagskrárlok.
ár
Fimmtudagur 7. maí
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Vinsældalisti rásar 2.
20.30 í gestastofu.
22.05 Straumar.
23.00 Viö rúmstokkinn.
00.10 Næturútvarp.
02.00 Á frívaktinni.
Föstudagur 8. maí
00.10 Næturútvarp.
06.00 I bítið.
09.05 Morgunþáttur.
12.20 Hádegisfróttir.
12.45 Á milli mála.
16.05 Hringiöan.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Lög unga fólksins.
21.00 Merkisberar.
22.05 Fjörkippir.
23.00 Hin hliöin.
00.10 Næturútvarp.
Laugardagur 9. maí
01.00 Næturútvarp.
06.00 I bítiö.
09.03 Tíu dropar.
11.00 Lukkupotturinn.
12.45 Listapopp.
14.00 Poppgátan.
15.00 Við rásmarkið.
17.00 Savanna, Ríó og hin tríóin.
18.00 Fróttir á ensku.
18.10 Hitaö upp fyrir söngvakeppnina.
18.30 Kvöldfróttir.
18.45 Tilbrigöi.
20.00 Með sínu lagi.
21.00 Á mörkunum.
22.05 Snúningur.
00.05 Næturútvarp.
vö-y
WYL GJANÍ
Fimmtudagur 7. maí
19.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóa-
markaöi Bylgjunnar.
20.00 Jónína Leósdóttir á fimmtudegi.
21.30 Spurningaleikur Bylgjunnar.
23.00 Vökulok.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Föstudagur 8. maí
07.00 Á fætur með Sigurði G. Tómas-
syni.
09.00 Páll Þorsteinsson á léttum nót-
um.
12.00 Fróttir.
12.10 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á há-
degi.
14.00 Pótur Steinn á róttri bylgjulengd.
17.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykja-
vfk síðdegis.
19.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóa-
markaði Bylgjunnar.
22.00 Haraldur Gíslason.
03.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
Laugardagur 9. maí
08.00 Valdís Gunnarsdóttir.
12.00 Fróttir.
12.10 ÁsgeirTómasson á lóttum laugar-
degi.
15.00 Vinsældalisti Bylgjunnar.
17.00 Laugardagspopp á Bylgjunni með
Þorsteini Ásgeirssyni.
19.00 Rósa Guðbjartsdóttir.
21.00 Anna Þorláksdóttir í laugardags-
skapi.
23.00 Þorsteinn Ásgeirsson.
04.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
ÚTVARP
Meðfœrileikinn
Útvarpsstöðvunum fjölgar hægt og síg-
andi. Útvarp Norðurland fór í loftið nýver-
ið — og óska ég þeim norðanmönnum til
hamingju með þetta framtak til aukinnar
(og vonandi bættrar) fjölmiðiunar á Stór-
Akureyrarsvæðinu (sem er nýtt hugtak
sem ég læt hér flakka af landsbyggðarást
minni). Hljóðvarp Ólafs Laufdals, Þorgeirs
AsWaldssonar og félaga hefur svo göngu
sína innan tíðar á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu.
Fyrir eru útvarp ríkisins, Bylgjan og
Rúvak nyrðra, auk trúarstöðvarinnar Alfa
(sem ég hlusta sífelit meira á vegna ljúfrar
tónlistar og á allan hátt hentugs og við-
kunnanlegs undirspils í amstri hversdags-
ins. Framhaldsskólanemar hafa svo reynt
með sér Útrás með ágætum árangri. Því er
þetta upptalið að ég hefi undanfarna daga
— og eftir því sem fjölgun útvarpsstöðv-
anna hefur oftar borið á góma — leitt hug-
ann að því hverjir það verði sem hagnist
helst á þessari þróun í íslenskri fjölmiðlun.
Og niðurstaðan? Jú, eru það ekki blessuð
blöðin — lesmálið? Ég hygg svo. Yfirburðir
lesmálsins yfir rafvædda miðla þykja mér
verða æ meira áberandi eftir því sem öldur
Ijósvakans verðauppteknari. Það eru eink-
um tvenn rök sem vert er að staðnæmast
við, þessari skoðun til framdráttar. Annars
vegar heyrast mér nýju stöðvarnar helst
dafna á hraða og snerpu. Þær eru gjarnan
fyrri til og áhrifameiri en blöðin, en eftir
stendur með meira áberandi hætti en áður,
hvað lesmálið er ítarlegra og málefnalegra
en ljósvakamiðlarnir, sem oftast gára að-
eins yfirborð hlutanna.
Annar höfuðkostur pressunnar sem ég
hygg að fólk taki æ betur eftir sem rafmiðl-
unum fjölgar er að blöðin getur maður les-
ið hvenær sem er og hvar sem er, jafnvel
hvernig sem er. Rafmiðlarnir eru vitaskuld
ekki eins meðfærilegir og það sem ræður
kannski meiru um notkun þeirra: dagskrá
þeirra líður hjá, án þess að notandinn geti
nokkru breytt þar um. Það er ekki hann
sem ræður notkuninni, heldur er skammt-
urinn tæmdur oní hann. Menn fletta ein-
faldlega ekki fram og til baka í þessum
miðlum. Rafmiðlarnir negla menn.
Og auðvitað þolir nútímamaðurinn þetta
ekki. Hann vill vera frjáls, eins og dæmin
sanna. Hann hefur ímugust á því þegar
dagskrárliðir eru færðir til, þegar hann
missir af útvarpsfréttum og nær hann
gleymir veðurfréttum. Altso — hann þolir
ekki að sér sé stjórnað svona. En hvernig
bregðast rafmiðlarnir við þessum eðla
ókosti sínum? Höldum okkur við útvarp, af
því þetta heitir útvarpspistill. Hvernig losa
útvarpsstöðvar um dagskrá sína, sveigja
hana og kippa henni úr þeim geirnegldu
skorðum sínum, án þess þó að raska íhalds-
semi hlustandans sem vill þáttinn sinn á
réttum tíma?
Ég veit ekki alveg — en hef samt smá til-
lögu... Hún er einfaldlega fólgin í því að
endurtaka og endurflytja dagskrárliði oftar
og betur en mér heyrist vera gert. Hlust-
endur missa af ótrúlega stórum þætti af
vönduðu og merkilegu dagskrárefni af því
þeir höfðu ekki tíma til að hlusta þegar efn-
ið var sent út. Snjöllum bútum úr viðtölum,
hluta erinda, skemmtilegum stemmning-
um og brotum úr þáttum er vel hægt að
skjóta inn á milli atriða, án þess að raska
dagskránni. Það er ekki nauðsynlegt að
endurtaka heila þætti, þá efni er á annað
borð sent aftur út í loftið.
SJÓNVARP
eftir Helga Mó Arthursson
Fantasía í frændgarði
Tvær danskar sjónvarpsútsendingar
settu svip á dagskrá Sjónvarpsins í vikunni.
Ögmundur Jónasson var með þátt um hús-
tökumenn í Kaupmannahöfn s.l. mánudag
og síðdegis á sunnudag var þáttur frá
danska sjónvarpinu um Kim Larsen í
Tívolí.
Þáttur Ögmundar var um fantasíuna og
frelsið. Hann var um atvinnuleysi og afleið-
ingar þess, en umfram allt um umburðar-
lyndi eða skort á því, allt eftir því hvernig
menn líta á það. Hann fjallaði um neyslu-
þjóðfélag og það, að eiga þess kost að
skapa sér lífsskilyrði á eigin forsendum ut-
an gfansveraldarinnar. Heimur hústöku-
manna er annar heimur. Ekki ýkja fjarlæg-
ur í tíma og rúmi, og enda þótt hann sé
ekki til hér er hann áhugaverður. Óðurinn
til fantasíunnar, boðskapur Eriks Clausen
sem lesinn var upp í þættinum kom
skemmtilega þvert á þá hugsun sem ríkj-
andi er hér og ég fór að velta því fyrir mér
hvernig gæti staðið á því að mörg sjónar-
miðanna sem þarna komu fram rúmast svo
illa í íslenskri menningu eða veruleika.
Þáttur Ögmundar var vandaður, þáttur
af þeirri gerð sem sæmir Sjónvarpinu.
Hann veitti okkur innsýn í annan öðru vísi
heim. Inn í danska veröld.
Og síðan er það Kim Larsen.
Þar sáum við líka annan heim. Framandi
fyrir utanaðkomandi, einlægan og athygl-
isverðan. Við sáum Larsen, þennan hrjúfa
— sumir myndu segja grófa — vísnarokk-
ara flytja nokkur lög af plötunni Forklædt
som voksen. Og auðvitað fór hann á kost-
um um sviðið. Og allt galleríið með honum.
Erik, áðurnefndur, Clausen, Leif Sylvester
og vinirnir. Sannkölluð ánægjustund fyrir
framan tækið.
Og svo er það slagarakeppni evrópsku
sjónvarpsstöðvanna. Kvöldið sem við sá-
um Kim Larsen trylla um sviðið í Tívolí var
fréttaþáttur um það sem hæst ber í ís-
lensku menningarlífi nú, slagarakeppnina í
Belgíu. Islenskir stuðmenn á leið til Brúss-
el. Og mér datt sem snöggvast í hug, að hér
lenti allt i hrammi hagsmuna og auglýs-
enda, enda væntanlega fáir sem geta tekið
undir með Kim Larsen þar sem hann kyrj-
ar: Vi er dem de andre ikke maa lege
med/vi der det daarlige selskab/vi har en
svag karakter og en billig fantasi /der er da
godt at vi blev födt/för aborten blev fri.. .
Annars þótti mér skondið, en skiljanlegt,
að Sjónvarpið skyldi ekki merkja sér hús-
næðisþátt Ögmundar, eins og allt sem
stofnunin sendir frá sér nú. Kannski efni og
efnistök rúmist ekki innan þess ramma
sem stofnunin setur sér.
38 HELGARPÓSTURINN