Helgarpósturinn - 10.12.1987, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 10.12.1987, Blaðsíða 9
bokaiol VIODÍS GRÍMSDCrrriR - -- 'f--. % Kaldaljós: Vigdís Grímsdóttir Vigdís Grímsdóttir er að góðu kunn sem höfundur smásagnasafnanna Tíu myndir úr lífi þínu og Eldur og regn. I skáldsögunni Kaldaljós sækir hún efnivið sinn öðrum þræði til sannsögulegra atburða - m.a. ógæfu er eitt sinn reið yfir íslenskt sjávar- pláss - auk þess sem þjóðsagan og ævintýrið eru henni óþrjótandi uppspretta. jggjj ISSM ___________________ Babelshús: P. C. Jersild Djörf, berorð lýsing á lífinu í risastóru, nýtísku sjúkrahúsi. Fylgst er með hrakning- um sjúklings milli hinna ýmsu deilda stofnun- arinnar, þar sem allt er svo sérhæft að starfs- menn og sjúklingar skilja tæplega mál hvers annars. Bókin hefur orðið metsölubók víða um lönd. Höfundurinn er læknir að mennt og tvímælalaust í hópi bestu rithöfunda Norðurlanda. Þýðandinn, Þórarinn Guðna- son læknir, nýtur mikillar virðingar sem snjall og vandvirkur þýðandi. —WlMHIE Mandela Brot af sálu minni: Winnie Mandela Winnie Mandela er heimsfræg fyrir baráttu sína gegn kynþáttamisrétti. Hún er ásamt eiginmanni sínum, Nelson Mandela, sem set- ið hefur rúman aldarfjórðung í fangelsi, eins konar tákn baráttunnar fyrir auknum rétt- indum blökkumanna í Suður-Afríku. í bók- inni ræðir þýsk blaðakona, Anne Benjamin frá tímaritinu Der Spiegel við Winnie. Sterk áhrifamikil lýsing á lífi þessarar miklu bar- áttukonu. asaga: Alþýðubandalagið Óskar Guðmundsson Bókin fjallar um þróun Alþýðubandalagsins frá kommúnisma til kratisma. Meira er fjall- að um ákveðna menn og málefni en hug- myndafræðilegan grunn flokksins. Frásögnin hefst við stofnun Kommúnistaflokksins en lýkur þ. 9. nóvember 1987. (íN,l I’V.SSON Sambúð manns og sjávar: Gísli Pálsson Efni þessarar bókar varðar okkur öll af þeirri einföldu ástæðu að fáar þjóðir eru eins háð- ar fiskveiðum og (slendingar. Leitað er svara við spurningum svo sem hvaða augum líta sjómenn starf sitt? Fjölskylduná? Hvernig er framleiðslunni í landi og verkaskiptingu kynjanna háttað? Einnig er fjallað um lands- kunna aflaskipstjóra. Gísli Pálsson vinnur hér brautryðjendastarf og hefur til virðingar þá atvinnugrein sem (slendingar byggja tilveru sína á. Leggur og skel: Jónas Hallgrímsson Þetta rómantíska ævintýri um hverfular ástir leggjar og skeljar skrifaði Jónas Hallgrímsson á síðasta æviári sínu í Kaupmannahöfn eftir að hafa lesið Kærestefolkene eftir H. C. Andersen. Útlit (bókarinnar og myndskreytingu annaðist Gunnar J. Straumland. - - .:HÍSS&SStSSm Nýtt og betra: Ólafur Stephensen Handbók um auglýsingar fyrir stjórnendur fyrirtækja, um samskipti við auglýsingastof- ur o.fl. Hann er ábyrgur fyrir mörgum af athyglisverðustu auglýsingum okkar undanfarin ár - og jafnframt þeim umdeildustu. REGNBOGABÆKUR: PARADfS SKOTIO A FREST JOHN MORHMER Paradís skotið á frest: John Mortimer Sagan fjallar um líf breskrar fjölskyldu frá stríðslokum til samtímans. Hún greinir frá brostnum vonum fólks um þá glæstu framtíð sem sögð var í sjónmáli eftir stríð. Bráðfyndin en jafnframt alvarleg lýsing á lífi fólks. Sagan hefur verið kvikmynduð fyrir sjónvarp og verður sýnd hjá RUV í janúar 1988. NJOSHJUU AFLIfl OGSÁL John Le Carré Njósnari af lífi og sál: John Le Carré Spennusaga um hinn fullkomna njósnara sem dag einn hverfur sporlaust. Sagan fjallar um hvarf hans og leiðir lesandann inn í ótrú- legan heim njósnanna af meira innsæi og skilningi en gengur og gerist um flestar sög- ur af þessu tagi. M.ö.o. hin fullkomna njósnasaga. Svartáfwítu HELGARPÓSTURINN B-9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.