Tíminn - 12.04.1918, Side 8
— — Tíðarfar liefir verið mis-
jafnt. Lagðist veturinn óvenju
snemma að. Svo frostgrimdin í
janúar eins og um all land. Varð
frostið yfir 30° C. Lagði Hvítá
upp hjá Sámsslöðum. Var víða
kalt í húsum og frusu kartöfiur.
Torfbæirnir gömlu eru hlýrri. Mik-
ið niein hvað húsin eru köld, þar
eð innlendur eidiviður er ekki fyrir
liendi. Bíður rafmagnsins, og verð-
ur þá fyrsl verulega vistiegt í sveita-
bæjunum, er það lýsir og hitar
þá.
Umhleypinga mikla gerði á
eftir frostunum, en fjuir páskana
var um hálfsmán. tíma ágætis tíð.
Létti það á heyjum og kætti skap
bænda. Er þó hvergi talað um hey-
leysi.
Þriðjudaginn fyrir páska rauk á
með norðangarra og snjókomu.
Síðan hafa saint verið góð veður
öðruhvoru, en þó nokkur kuldi í
lofti. Vonandi batnar samt, þvi
helst myndu allir kjósa gott vor.
Oft er þörf, en nú er nauðsyn, að
skepnur gangi vel undan vetri.
Mikið í húfi, þar sem aðfiutningar
eru bæði litlir og illir. — —
— — Rætt er um stjórnmálin.
Eigi fá menn gjörla skilið til hvers
alþingi er kvatt saman. Ofbýður
mönnum — sein vonlegt er —
kostnaðurinn við þinghaldið, og
ekki vænst mikils í aðra hönd.
Hlýtur hér eitthvað að liggja bak
við, sem almenningi er huhð. Eng-
inn kýs þing sökum fánamálsins.
Lýkar mönnunum ágællega stefna
Tímans í því máli.
— Allir virða að vettugi hjal
ísafoldar (dagblöðin komá ekki;
þola eigi fjallaloftslag) um stjórn-
arskifti. Tekur enginn tillit til orða
hennar. »Öðruvísi mér áður brá«.
Er örgrant, að nokkur maður mæli
henni bót. Þetta er sama upptugg-
an, tuggin í hverju blaði og þynt
út í þynkunni allra hinna.
Helst vilja menn engin stjórnar-
skifti. Þjóðin er þreytt á hinum tíðu
breytingum. Og hún er þreytt á
tortryggnis-andróðri og ósannindum
blaðanna gegn þeim, er með sljórn-
ina fara. Menn hafa svo njargsinnis
rekið sig á, að alt er fært til verri
vegar bæði ilt og gott.
Og faa fýsir að fá »þá hvílu«,
að stýrinu, jafnvel þótt J. Porl.
* ' ■
mæli nu hið besta nieð B. Kr.
sem fjárinálaráðherra
— Hið unga stjórnmálablað,
Tíminn, vinnur sér hylli megin-
þorra manna. Er þess fastiega
vænst, að blaðið haldi æ áfram
að fást við hin miklu og erfiðu
viðfangsefni, er bíða þjóðarinnar á
öllum sviðuin, en sýni aftur mein-
senidum og rotum í þjóðlítinu
enga vægð. Flest blöð telja hvort
sem er skyldu sína að þegja, eða
þa að þau hafa enga manprænu
til að slinga á kýlunum. Slíkt er
voði fyrir land og lýð.
Borgfirdingur.
„Sharp
(sogpela-skilvinda)
hefir tvístuddan pela (skilkall)
og skilur jafn vel hvort snúið
er hart* eða hægt.
Allar s k i 1 v i n d u r, nema
„Sharplew4 skilja eftir
iy/i—\2l/i pund af smjöri í
meðal kýrnyt yfir árið ef
þeim er snúið lítið eitt of hægt.
Bæmlnr! Sjáið hag yð-
ar og kaupið eingöngu Sharples.
\
Tvær stærðir fyrirliggjandi og tiLsýnis,
Vottorð frá Rannsóknarstofunni fyrir hendi.
Bftt tirtjil
Allir árgangarnir ellefu
fást í Laufási og kosta 15 kr.
Suma árgangana er hægt
að fá sérstaka og kosta þeir
1 kr.
Gamlir skilvísir kaupend-
ur geta enn fengið flest blöð
til að bæta úr vöntunum,
en eru beðnir að segja tit
sem fyrst.
arnir báðir eiga aðalfiutningabát-
ana í lama sessi.
Skákþing hefir verið háð und-
anfarna daga hér í bænum. Sigur-
vegarinn er hinn sami og síðast-
liðið ár: Eggert Guðmundsson.
zJŒaupfálaa élorgfiréinga, tScrparnesi,
einkasalar í <Æýra~ o£ %Rorgarjfaréarsýslu.
Vatnsaflið vinnur fyrir Sími 404.
bændur landsins. Símnefni: Álafoss.
Klæðaverksmiðj an
„Álafoss"
hefir þá ánægju að geta tilkynt sínum heiðruðu viðskiftavinum,
að hún heldur áfram að vinna í fulliun gangi, og getur tekið
á móti afskaplega miklu af ull til vinnu í
lopa, plötu og1 band,
fyrir 1 æ g r i vinnulaun en tiltölulega nokkur önnur vinna fæst
unnin hér á landi.
ICæmiur! hað borgar sig eigi að nota handaflið til að
keinba. Látið ÁSaSo**» gera það — þér sparið stóríé með því.
Allar upplýsingar viðvíkjandi flutningum o. fl. fást hjá umboðs-
mönnum vorum.
Sendið því uli yðar strax til Afgroiöslii verkgntiðjniiiiar
á Laugaveg 34, Reykjavík.
Klæðaverksmiðjan „Álafoss“, Rvík. .
Krél tir
Tíðin. Kuldakast mikið gerði um
síðustu heigi og stórhríð á Norður
og Vesturlandi. Hafís urðu menn
varir við nyrðra en von er um
að ekki verði mikið úr því. Þýða
kom aftur urn miðja viku.
Bruni. Nýlega kviknaði í véla-
salnum í klæðaverksmiðjunni á
Álafossi. Tókst að slökkva eldinn
aður en hann magnaðist mjög.
Vélarnar skemdust ekki, en tjónið
mun þó hafa verið um 1000 kr.
Leikur orð á að bruni þessi sé
grunsamlegur og er verið að rann-
saka málið.
Manntjón og skipa. Hvert slysið
rekur nú annað við sjóinn. Róðr-
ar bátur með níu mönnum fórst í
Ólafsvík og komst enginn lífs af.
Tveir bátar fórust af Akranesi og
voru þrír menn á öðrum en tveir
á hinum og druknuðu allir.
Sveinbjörn Egilsson ritstjóri
»Ægis« \hefir vakið máls á miklu
þarfamálp sem er það að mótor-
bátar verði látnir fylgja róðrarbát-
unum á miðin. Gerir hann ljóslega
grein fyrir hve hættan er mikil nú
þar eð hverri fleytu er róið, en
menn, margir orðnir óvanir róðrar-
bálunum.
Breiðafjarðarbáturinn »Svanur«
strandaði á Grundarfirði síðastlið-
inn sunnudag. Mönnum var öllum
bjargað. Björgunarskipið Geir er
farið vestur, svo ekki er vonlaust
að bjargað verði. Er nú illa stalt
um skipakost hér um slóðir er fló-
Aðkomnmenn eru mjög inargir
nú í Reykjavík, auk þingmannanna.
Skipaferðir. » S t e r 1 i n g « er á
leiðinni að norðan og »Gullfoss«
bráðum væntanlegur frá Vestur-
heimi. »Lagarfoss« kom 10. þ.
m. að norðan. Meðal farþega var
Hallgrímur Kristinsson forstjóri
landsverzlunarinnar og margir
þingmenn. Skipið kom með kjöt
af höfnum nyrðra og fer ineð það
á næstunni til Noregs.
Alþingi var sett á ákveðnum degi
10. þ. in. kl. 2 e. h. Flutti sira
Eggerl Pálsson prédikun í dóm-
kirkjunni og var síðan gengið í
alþingishúsið. Var þingið sett en
kosninguin frestað. Eru allinargir
þingmenn ekki komnir enn til
bæjarins. Þeir Magnús Torfason,
Sigurður Stefánsson, Guðjón Guð-
laugsson, Hákon Kristófersson og
Halldór Steinsson, eru á leiðinni
að veslan með mótorbát. Mattliías
Ólafsson er sagður á leiðinni vest-
an um haf með Gullfossi. —
Ilannes Hafstein situr ekki þetla
þing vegna heilsubilunar. Kom
varamaður, Sigurjón bóndi Frið-
jónsson á Lillulaugum, í stað hans
með Lagarfossi og liggur það
undir úrskurði þingsins hvort hann
ekur sæti í þinginu.
Aðalfondur kaupféiags Eyfirð-
inga var haldinn á Akureyri dag-
ana 26. og 27. agríl. Lét þá Hall-
gríinur Krisíinsson af kaupfélags-
stjóraslöðunni, en við tók Sigurður
bróðir hans Var Hallgrímur gerð-
ur heiðursfélagi félagsins og sömu-
leiðis Guðmundur bóndi Guðmunds-
son á húfnavöllum, sem um langt
skeið liefir verið í stjórn félagsins,
en baðst nú undan kosningu. Verð-
ur síðar sagt nokkuð nánar frá
félaginu hér í blaðinu.
Ritstjóri: .
Trj'trgvi I’órliallsson
Laufási. Sími 91.
Preotstniðjan Gutenberg.