Tíminn - 17.06.1930, Page 3

Tíminn - 17.06.1930, Page 3
TIMINN ábuneytx §0l'anb0 1930 Trygovi pórhallsson, forsætisráSherra. Jónas Jónsson, dómsmálaráðherra. Einar Ámason, fjármálaráðherra. eigi ræður sanngirni slíkum áfellisdómum, meðan ekki er litið með fullum skilningi á hina breyttu aðstöðu. Jafnskjótt og verkamenn öðlast afstöðu hluthafans í at- vinnurekstri landsmanna munu kostir og dáð hins íslenzka kvnstofns fá að njóta sín til fulls. Talið er að sjómanna- stéttin íslenzka sé skipuð hinum ágætustu mönnum. Svo mun og vera um aðrar verklýðsstéttir landsmanna. — 0g þegar Islendingar bera gæfu til að fá atvinnumálum sínum rétta skipun, mun það koma á daginn, að Island byggir þjóð, sem getur tekið vexti og menningarþroska. IV. Öfgar samkeppninnar með háskalegri auðsöfnun á fáar hendur, hefir leitt til gagnstæðra öfga. Misbeiting einstaklingsframtaksins hefir svift mikinn þorra manna trú á það, að óheftu einstaklingsframtaki geti orðið beitt öðruvísi en til tjóns og þjáninga allri alþýðu manna. Rússneska b.vltingin er eitt hið stórfenglegasta öldu- brot á ströndum tímans, þar sem margþjáður og niður- bældur þjóðarvilji leitar sér útrásar með skefjalausum átökum. Engan skyldi furða á því, að vilji og skapfesta Rússa, sem hafa verið þjáðir undir oki margra alda harð- stjórnar, hefir brotist út með miklum öfgum. Skipulagsúrlausnir kommunismans miða til þess nð brjóta á bak aftur öfgar einstaklingshyggjunnar og stofna til almannaframtaks í stað eínstaklingsframtaks. Höfuðtakmark stefnunnar virðist vera fullkomið þjóðfé- lag, þar sem almenningsheill situr í fyrirrúmi og þar sem þegnarnir eru eins og sameigandi hjú á stóru heimili. Jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að eigi brysti einlægmi og' úrræðasnilli þeirra manna, sem fyrir beitast í slíkunr mál- um, stranda þessháttar tilraunir enn á ófullkomnu mann- eðli. Manneðlið er tregbreytilegt, svo að eigi fást minnstu umskifti með lagasetningum og skipulagsbyltingum. — Uppeldi og félagsþroskun er það eina, sem duga, mun til varanlegra breytinga á afstöðu einstaklingsins gagnvart alþjóð og afstöðu þjóðar gagnvart öllum þjóðum jarðar. Og þó mun sú breyting kosta aldabaráttu og ærið starf vitrustu manna og beztu. Reynslusannindin votta að kommunistamir rúss- nesku hverfa í íramkvæmdarháttum sínum frá ítrustu skipulagskröfum sínum til hófsamlegri hátta. Það er og sérstaklega markvert, að þjóðmálasveit verkalýðsins öll hefir klofnað í tvær andstæðar fylkingar, þar sem önnur fylkingin krefst bráðrar úrlausnar með málefnabyltingu og með ofbeldi, ef svo vill verkast (kommunistar eða bolsévíkar) en hin fylkingin, og sú langt um stærri, að- hyllist málefnaþróun og leitast við að þoka málurn fram til viðunandi úrlausnar með samstarfi þegnanna sjálfra og löggjafarumbótum. V. Eins og nú háttar til í atvinnumálum þjóðaxma tog- ast á gagnstæðar öfgar. Annarsvegar eru íhaldsmemr í þjóðskipulagseínum og atvinnumálum, sem leitast við að halda í óbreytta aðstöðu auðborgaranna, til fullra urnráða yfir veltufé og atvinnutækjum til eigin gróða fyrst og fremst og þar næst til almenningsgagns. Ilinsvegar eiu fylkingai- verkamanna, sem heimta full og óskoruð um- ráð almúgans yfir atvinnuvegunum og algerlegt niður- brot einstaklingsumráða og einstaklingsauðsöfnunar. Á milli þessara andstæðu öfga er staðfest mikið djúp, þar; sem árlega ferst óhemjumikið af orku hinna stríðandi aðila í úrslitalausu þrasi um dægui’málin, þar sem beitt er óvirkri andstöðu verkbamra og verkfalla, þar sem sveltitilraunir annars aðilans sigra í dag en hins á morgun og þar sem stefnir til aukinnar úifúðar, fjandskapar og jafnvel blóðsúthellinga án allrar vonar um varanlegar úr- lausnir á sjálfum vanda málsins. Skipulagsþrætur nútímans ei’U mestu vandamál þjóð- anna. I skipulagsnrálunum liggur sjálfur vandi sambúðar níanna á jörðunni. Er því mikil þörf á að ræða þessi mál með hófsemi og viðleitni til fræðslu og skilnings. En um fátt er síður rætt af stillingu en þau mál, sem eiga rætur sínar í sjálfri lífsbaráttunni. VI. Samvinnustefnan er risin af einlii merkustu tilraun mannanna, að fá sambúðarháttum sínum og viðskiftum réttlátt form. Hún er ekki fundin af neinum háspeking- um né pólitískum draumóramönnum, heldur af yfirlætis- lausum mannvini, sem starfaði rneðal vefaranna í Roeh- dale á Englandi. Kjarni stefnunnar er sóttur í sjálfa réttlætisvitund hinna óbreyttu verkamanna, sem strituðu fyrir lífi sínu og áttu kjör sín undir högg að sækja við atvinnuskipulag auðhyggjunnar. Innihald stefnunnar eru ekki þrotlausar kröfur og hávaði heldur félagslegt starf, sem miðar beint til þess að brjóta af almúganum fjötra vex-zlunaráþjánar og auðvaldsdrotnunai'. Samvinnusteínan er um það ólík Marxismanum, að hún byrjar ekki á þakinu, heldur á grunninum. Oddvitar hennar hafa ekki gefið út stefnuskrá né æsingarit um óra- fjai’lægt takmark, heldur hófust þeir handa um félagslegt samstarf til úrlausnar á þeim sára vanda, er þjakaði ]ifi mannanna í kringum þá. Upphaf stefnunnar er réttlætis- þrá góðia manna og takmark hennar er farsæld, þroski og samstai'f frjálsra atvinnuborgara í mannfélagi, sem er byggt réttlæti og bræðralagi. Upphaflegt starf samvinnusteínunnar hneig að því, að tryggja félögum sínum réttlát vex'zlunarviðskifti og sannvirði á vörum. Af þeim ástæðum líta margir svo á, að samvinnan sé ekki annað en ákveðið form á verzlunai*- félögum. En þessi misskilningur á fyrir sér að hverfa, þegar stefnan færist yfir á iðju manna og hverskonar atvinnustarfsemi þjóðanna. Verður síðar vikið að slíkri útfærslu stefnunnar, sem þegar er komin á daginn og fer sífelt í vöxt. En þessi rök staðreyndanna votta það, svo að eigi verður á móti mælt, að samvinnustefnan ber í sér hæfi- leikann til úrlausnar á sérhverjum skipulagsvanda. Um úrræði er hún hófsemisstefna, sem fer bil beggja á milli áðurnefndra öfga, leitast við að brúa djúpið á milli þeirra með félagslegum úrlausnuam á þeim málum er þi’ætum valda. Samvinnustefnan afneitar ekki einstaklingsframtak- inu heldur viðurkennir það sem frumhvöt í eðli maima, sem styðja beri til drengilegra athafna. En stefnan af- neitar algerlega og rís öndverð gegn misbeitingu hins frjálsa framtaks í óheftri samkeppni, þar sem valdi fjár- muna sé beitt til féflettingar og undirokunar alþýðu manna. Samvinnustefnan setur manninn sjálfan ofar fjár- munum hans. Þessvegna hafa allir samvinnumenn jafnan ályktunarrétt um málefni félaga sinna, — ríkir jafnt og fátækir. Auðvaldsskipulagið í atvinnurekstri þjóðanna leiðir til öreigamennsku mikils þorra mannkyns. Síðan fylkja öreigarnir sér til mótstöðu gegn atvinnurekendunum. Þannig elur hið ríkjanda skipulag sína eigin meinsemd í skauti sér. — Samvinnustefnan leitast við að nema burt þær ástæður, sem skapa þetta óheillaástand. Og úrræði stefnunnar er það, að vinna gegn öreiga- mennskunni á þann hátt. að styðja atvinnusjálf- stæði borgaranna. Framtíðarþjóðfélag samvinnurík- isins eru fylkingar sjálfbjarga atvinnuborgara til sjáv- ar og sveita, sem standa saman til varnar eigin réttind- um og farsæld, jafnframt farsæld og réttindum hvor annars. VII. Að lokum skal ég leyfa mér að taka saman stutt yf- irlit um þróun samvinnustefnunnar hér á landi. Eins og flestum mun kunnugt hóíst steínan með stofnun Kaup- félags Þingeyinga árið 1882. Breiddist hreyfingin fljótt til næstu héraða fyrir atbeina Þingeyinga. Upphafsmaður stefnunnar er talinn vera Jakob Hálfdánarson bóndi á Grímsstöðum við Mývatn, sem gekk frá orfinu, til þess-að stofna verzlunaifélag bænda og rísa gegn okri hinnar dönsku selstöðuverzlunar í héraðinu. Hreyfingin reisti bændur af knjám frá búðarborði danskra selstöðuverzl- ana og er í sjálfu sér eigi ómerkari viðburður í viðreisn- arsögu landsins, heldur en mótmæli Jóns Sigurðssonar og annara fundarmanna á þjóðfundinum í Reykjavík 1851. Hugsjónin átti séi' í öndverðu marga örugga og at- hafnasama fylgismenn í Þingeyjarsýslu og er vert að geta manna eins og Péturs á Gautlöndum, bræðra hans Steingríms og Jóns, Benedikts á Auðnum, Sigurðar í Yzta- felli, Jóns í Múla, séra Benedikts í Múla og margra fleiri. Merkastir oddvitar samvinnumálanna á landi hér, aðrir en þeir, sem nú voru taldir, hafa verið þeir Torfi í Ólafs- dal, Hallgrímur Kristinsson, Sigurður Kristinsson, Jónas Jónsson frá Iiriflu og margir fleiri. Auk hins merkilega upphafs síns, hefir samvinnu- stefnan átt nokkur merk þróunartímabil. Má þar nefna Vesturlandstímabilið, þar sem Torfi í Ólafsdal gerðist oddviti fyrir sterkri hreyfingu, eyfirska tímabilið, þar sem Hallgrímur Kristinsson hefur á loft merki nýrrar, öflugrar sóknar, sem gagntekur hugi manna um land alt, orkai’ nýj um vexti og stofnun hins öfluga sambands fé- laganna. Hér á landi, eins og í nágramialöndunum, tók sam- vinnustefnan verzlunarmálin fyrst til úrlausnar. Þau mál snerta hvers manns hag og eru helzt viðráðanleg efna- litlum borgurum. En með vaxandi bolmagni og vaxandi skilningi á skipulagsúrlausnum samviimustefnunnar fær- ast athafnir hennar yfir á framleiðslusviðið. Fyrir löngu hafa kaupfélög landsmanna hafizt handa um aukna vöru- yöndun, sem er einn merkasti þáttui' framleiðslustarfsins. Á síðustu árum hefir stefnan fært út kvíarnar og tekið virkan þátt í skipulagsúrlausnum atvinnubragðanna. Má þar nefna vinnzlu úr afurðum sauðfjár, mj ólkurvinnziu- búin norðanlands og sunnan, „Samvinnufélag Isfirðinga" og fleira. Hér skal staðar nema. Ég* hefi í undanförnum línum viljað gera lesendum Tímans ljóst, að samvinnustefnan or þjóðmálastefna, sem ber í eðli sínu vænlegustu úrlausnina á sárustu vandamálum manna. Meginkenning heimar er í stuttu máli þessi: Ekki yfirtroðslur samkeppninnar, heldur sannvirði og réttlát skifti; ekki öreigar, heldur sjálfstæðir atvinnu- borgarar í félagsfylkingum samvinnumanna; ekki sundur- þykkt mannfélag með gagnstríðandi öfgum, heldur bróð- urlegar úrlausnir vandamálanna með samstarfi borgar- anna frá grunni, þar sem hver og einn ber úr býtum rétta hlutdeild eftir atorku sinni og manntaki, en heldur ekki meira. Með vaxanda skilningi mannanna á því, að þeir eru bræður en ekki féndur birtir stöðugt af dögun sam- vinnuríkisins á jörðunni.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.