Tíminn - 17.06.1930, Qupperneq 7

Tíminn - 17.06.1930, Qupperneq 7
TÍMINN h—coco i\=r<^ jt——coccTif=<:^c) \f^—c^> jF=^-|f—cocQ ] i g Kaupfélag Þingeyinéa í Húsavík Elzta samvínnufélag landsíns, stofnað 20. febrúar 1882 rekur samvinnuverzlun í Húsavík í tveimur deild- um: 1. Pöntun, þ. e. umboðsverzlun fyrir hvern ein- stakan félagsmann, og 2. Söludeild, þar sem seldar eru allskonar vörur, útlendar og innlendar, einnig ut- anfélagsmönnum. — Öll starfsemi félagsins er rekin með ótakmarkaðri samábyrgð allra félagsmannanna, sem nú eru 605 að tölu og skipa sér í sjálfstjómar- deildir, minnst 10 í deild. — Félagið er í Sambandi íslenzkra iSamvinnufélaga og átti frumkvæði að stofn un þess. Félagið útvegar félagsmönnum, bæði í umboðs- sölu (pöntun) og með útsölu (söludeild), allar þær vörur, áhöld og vélar, sem á heimsmarkaðinum eru boðnar, hverju nafni sem neínist, og selur — einung- is í umboði — fyrir félagsmenn, alla framleiðslu þeirra, bæði af landbúnaði, sjávarföngum og iðnaði. Árið 1929 útvegaði félagið aðkeyptar vörur fyr- ir rúmlega 700 þúsund krónur og seldi vörur fyrir tæplega 500 þús. kr. — Sjóðeignir félagsins eru: Sameignasjóðir um 101 þús. kr., séreignasjóðir um 272 þús. kr. og sparisjóður 162 þús. kr. Félagið rekur þrjú sláturhús og tvö fisksöltun- arhús og hefir útibú í Flatey á Skjálfanda. — Það rekur og ullarkembivélar með samvinnuskipulagi til Kaupfélagsbyygingar á Húsavíkj eins og þau líta út trá höfninni. Söludeildin. stuðnings heimilisiðnaði og sömuleiðis sparisjóðs- starfsemi. Félagið er að undirbúa byggingu frysti- húss til þess að frysta til útflutnings kjöt, sjávaraf- urðir, lax, silung o. fl. og sömuleiðis beitusíld. — Fé- lagið styður gistihússrekstur í einu af húsum sín- um, og er nú að hefja ákveðnar bifreiðaferðir um að- alvegi héraðsins. Það byggði —með þátttöku ann- ara — bókhlöðu úr steini yfir Alþýðubókasafn Þing- eyinga og styrkir safnið árlega með fjárframlagi. Það leitast þannig við, að vera félagsmönnum „allt í öllu“ og að afla jöfnum höndum mannbætanda skipulagslegt, siðlegt og fjárhagslegt öryggi og þro- un. I allri starfsemi sinni leggur félagið mikla áherzlu á það grundvallaratriði samvinnustefnunnar, að verð- reikna hverja vöru sem næst sannvirði og að halda starfsgreinum sínurn aðgreindum reikningslega. Þeir sem vilja njóta sannvirðis í verzlun og viðskiptum, geta hvergi fengið betri skipulegslega aðstöðu til þess en í Kaupfélagi Þingeyinga. Sínmefni félagsins er „Kaupfélag", og formaður og framkvæmdarstjóri þess er Sigurður S. Bjark- lind í Iiúsavík, en meðstjórnendur eru Jón Gauti Pétursson á Gautlöndum, Karl Kristjánsson í Ey- vík, Sigurður Jónsson á Arnarvatni og Árni Jónsson á Þverá. ---w ||=œs-]t-------(4? |F=H^ni------II--------------------CJCJ II—TÖCini--Cqfrrií=ra3-|F=-fafo IF Æ. burði, er Heimskringla Snorra Stuilusonar. Það er saga Noregs, og að nokkru leyti allra Norðurlanda, um rúm- lega 400 ára skeið, samin af þeirri skarpsk v ggni og snilii, að bókmenntii’ Evrópu eiga ekkert sambærilegt sagn- fræðirit frá nálægum öldum. Saga ísl. fornbókmennta er venjulega látin enda um 1400. Enginn skyldi þó ætla, að íslendingar hætti þá að vera skapandi bókmenntaþjóð. Fjarri fer því. En eftir miðbik 14. aldar verða ýmsar þær breytingar á bókmennt unum, sem réttlæta það, að setja kaflaskil í bókmennta- sögu vorri einhvern tíma um þetta leyti. Sagnaritunin deyr út; rímnakveðskapur hefst og erfir skáldamál drótt- kvæðanna. Helgikvæði með nýjum bragarháttum og dans- kvæði eftir erlendum fyrirmyndum verða algeng. Ný kyn- slóð með nýju viðhorfi og nýjum smekk er seazt til valda. Það er engum vafa bundið, að bókmenntir þær, sem nú hefir lauslega verið drepið á, hafa haft ómetanlegt gildi fyrir andlegt líf þjóðaiinnar. Þeim má fyrst og fremst þakka það, að Islendingar hættu aldrei að vera menningarþjóð, þó að lífsbarátta þeirra á hæstu fjórum öldum yrði stundum svo hörð, að furðu gegnir, að andleg starfsemi skyldi geta þrifizt við jafn hörmuleg skilyrði. Með bókmenntunum eignast íslendingar þegar á 12. öld sameiginlegt, þroskað ritmál, löngu á undan öðrum gennönskum þjóðum. Þetta er lykillinn til skilnings á bví merkilega fyrirbrigði, að íslenzkan hefir breytzt svo lítið fram til þessa dags, að hver íslendingur, sem kominn cr til vits og ára, les bókmenntir 12. og 13. aldar, án nokk- urrar verulegi'ar fyrirhafnar. Ilann verður sáralítið var þeii’ra breytinga, sem orðið hafa á framburði einstakra hljóða, því að fæstar þeirra eru táknaðar í ritmálinu. Það þarf vísindamann til að sjá nokkurn verulegan mun á „forníslenzku“ og „nýíslenzku", eins og það þarf vís- indamann til þess að sjá, að fornenska, fomþýzka og forn- danska séu skyld mál nútímatungum þessara þjóða. Svo stórum mun betur hefir íslenzkan varðveitt svip sinn en þessar tungur. En einmitt sökum þess áttu fombókmennt- irnar á öllum öldum greiðan aðgang að hugum lands- manna. Þær vom lesnar og afritaðar með óþreytandi elju, samhliða því sem þjóðin skapaði alltaf eitthvað nýtt, sem var við hennar hæfi á hverjum tíma. Fornbókmenntirnar eru alltaf undirstraumurinn í menntalífi þjóðarinnar. Stundum gætir hans meira, stund- um minna. Fyrst eftir siðaskiptin ætlar allt að drukkna í erlendum áhrifum. En innlend menning nær von bráðar yfirhöndinni. Annars hefði svo getað farið, að þráður ís- lenzkra mennta hefði slitnað. Á 17. öld og fyrri hluta hinnar 18. eru áhrif fomrit- anna á bókmenntimar mjög greinileg, t. d. hjá helztu skáldum þeirra tíma, Hallgrími Péturssyni, Stefáni Ólafs- syni, Gunnari Pálssyni og Eggert Ólafssyni, enda voru þessir menn allir mjög kunnir fornbókmenntum vorum. Aldrei hefir þó borið jafnmikið á áhrifum fomrit- anna á mál og menntir eins og á 19. öld. Ritmál lærðra manna, sem orðið hafði fyrir allverulegum erlendum á- hrifum, færist þá drjúgum nær fornmálinu og talmáli sveitanna, mest fyrir rómantísk áhrif og málvöndun Sveinbjarnar Egilssonar. Lærisveinar hans eru Fjölnis- menn, en þeir gerðu sér, sem kunnugt er, mikið far um að fegra og hreinsa ritmálið. Rómantíska stefnan, sem í byrjun aldariimar beindi hugum norrænna skálda til fortíðarinnar, mai’kar hér ekki viðlíka spor sem annarsstaðar. íslenzku skáldin höfðu jafnan staðið í sambandi við fornbókmenntirnar, og því varð hér ekki um jafnmikla nýjung að ræða sem erlendis. En samt er alimikill munur á viðhorfi Bjarna Inoraren- sens við fornbókmenntunum og viðhorfi skáldaima á und- an. Þau höfðu yfirleitt þegið mest frá dróttkvæðum, Bjarni þiggur frá Eddukvæðum. Gætii* þess bæði í formi, hugsun og máli, einkum í þeim kvæðum hans, sem talin eru fremst, erfiljóðum og ástakvæðum. Þá Jhefir Jónas Hallgrímsson eigi farið varhluta af áhrifum frá Eddukvæðum. Um það vitnar val bragar- hátta, málblær og efni margra fegurstu kvæða hans. Önnur höfuð ljóðskáld aldarinnai', þeir Matthías Joch- umsson, Grímur Thomsen og Stefán G. Stefánsson, eru mjög snortnir af fornbókmenntunum. öllum liggur þeim skáldamálið með allri fjölbreytni sinni létt á tungu, bæði eins og það hafði lifað í rímum og kvæðum öldum saman og líka sem bein lán frá dróttkvæðum og Eddukvæðum. Matthías notar ósjaldan forna hætti og á það þá til að kveða svo fornt, að minnstu munar, að verið gæti frá 10. eða 11. öld. Mörg yrkisefni velur hann úr fornritum vor- um, ýmist í einstök kvæði eða heildarverk eins og „Helga magra“ og „Grettisljóð“. I bragarháttum þeirra Gríms og Stefáns gætir fornra áhrifa minna, í blæ ljóðanna og efn- isvali engu síður. Þegar skáldsagnagerð eftir erlendri tízku hófst hér á 19. öld með sögum Jóns Thoroddsens, gat sú byrjun orðið slíkt afbragð, sem raun bar vitni, sökum þess að hann fékk í hendur fulltamið ritmál. Hann stælir ekki fommálið, heldur ritar á máli samtíðarinnar sem ljóða- og sagnalestur hefur haldið auðugu og fögru. í stílnum gætir sumstaðar áhrifa frá íslendingasögum, einkum þar sem einhverju skoplegu er lýst. Annars skulu hér ekki rakin áhrif fornbókmenntanna á íslenzkt menntalíf á 19. og 20. öld. Það er hlutverk, sem enn hefur eigi verið leyst á vísindalegar. hátt, þar sem samfelld bókmemitasaga þessa tímabils er enn óskráð. Ilitt er óhætt að fullyrða, að fornbókmenntir vorar, saga og tunga hafa á þessum öldum átt drjúgan þátt í að knýja þjóðina fram til starfs og dáða á öllum sviðum. Margt hefir verið skrafað og skráð um það hér á landi, hvers virði fornbókmenntirnar hafa verið þessari þjóð, hinu hefir almenningur ef til vill ekki gert sér jafn- glögga grein fyrir, hvers virði þær hafa verið umheimin- um og hver sómi þeim er þar sýndur. Hér skai því drepið á nokkur atriði þess máls. Af hinni grísk-rómversku fommenntastefnu 15. og 16. aldar leiðir það, að fræðimenn Norðurlanda taka að grennslast eftir fortíð norrænna þjóða. í fyrstu eru vís- indi þessi harla ófullkomin, enda eru heimildir slitróttar. En kringum aldamótin 1600 fá þessar rannsóknir byr undir báða vængi. Þá koma út á latínu nokkur rit eftir Arngrím Jónsson lærða um íslenzka þjóðarhagi og menn- ingu. Voru sum deilurit til þess að hnekkja óhróðri, sem eriendir menn, er hér þóttust kunnugir, höfðu ritað um þjóðina, önnur voru bein fræðirit. Þessi rit opnuðu augu erlendra fræðimaima fyrir því, að hingað væri að leita heimldanna að viðburða- og menningarsögu Norðurlanda í fomöld. Nú hófst gríðarmikil eftirspum eftir islenzkum handritum og íslenzkum fræðimönnum, því að þeir voru hinir einu, sem gátu lesið handritin og skýrt. Töluverður rígui' og metingur var á milli Dana og Svía um pessi vís- indi og gekk jafnvel svo langt, að Svíar tóku 1658 ís- lenzkan skólasvein, Jón Rúgmann að nafni, sem var á leið til Kaupmannahafnai’, fluttu hann til Uppsala og létu hann vinna þar að þýðingum íslenzkra fornrita. Meira að segja háskólinn í París þóttist ekki geta setið alveg hjá sóma síns vegna og gerði tilraun til þess að ná í íslenzk- an fræðimann, Stefán Ólafsson skáld, er síðar varð prest- ur í Vallamesi. En hann vildi eigi gefa kost á sér og fórst það fyrir. Upp frá þessu má telja, að íslenzka og íslenzk fræði verði sérstök vísindagrein. Þau hafa breiðst út og nú er svo komið, að þau eru stunduð við alla helztu háskóla í germönskum löndum, bæði í Evrópu og Norður- Ameríku. Hin merkari fornrit vor hafa verið gefin út, hvað eftir annað, vísindalega með formálum og skýringum á ýmsum málum. Þau hafa verið þýdd á helztu menningarmál álf- unnar og aragrúi vísindamaima hefir varið æfi sinni til þess að túlka þau og meta. Áhrif norræmia fræða á bókmenntir germanskra þjóða verða langmest á 19. öld. Rómantíska stefnan í byrj- un aldarinnar beinir hugum skáldanna til liðinna tíma, og fornfræðaiðkanimar hafa búið henni svo í haginn, að skáldunum er kleift að kynnast helztu verkum íslenzkra fornbókmennta. Sá raunsæisblær, sem hvílir yfir norræn- um fornritum, hafði mjög holl áhrif á rómantíkina, sem í eðli sínu var hugsæis- og draumórastefna. Hann barg henni frá að hlaupa á Norðurlöndum slík gönuskeið, sem hún hafði farið í Þýzkalandi. Blómaskeið það, sem hefst í bókmenntum Noi'ðurlanda um þetta bil er mjög að þakka þessum áhrifum. í Danmörku má t. d. minna á þá öhlenschláger og Gruntvig, sem báðir voru mótaðir af norrænum fornbókmenntum og scttu viðfangsefni sín þangað. Um sænskar bókmenntir hefir merkur fræðimað-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.