Tíminn - 17.06.1930, Blaðsíða 28

Tíminn - 17.06.1930, Blaðsíða 28
TlMINN Ef yður vantar fólks- eða vöruflutn- ingabíl, þá athugið verð og gæði hinna nýju Ford bíla áður en þér festið kaup á öðrurn tegundum. Síðastliðið vor var eftirspurnin og saian á Ford bílum meir enn nokkuru sinni fyr, sannar það best hvaða álit menn hafa á þeim. Þér, sem eigið eftir að fá yður bíl, ættuð því að snúa yður til min og mun ég fúslega láta yður í té allar upplýsingar þeirn viðvíkjandi. Sveinn Egilsson Umboðsmaður Ford á Islandi. Laugaveg 105. Sími 976. Reykjavík. Sími 976. iiaíöi verið á landnámstíð. Og þó má með réttu taka enn dýpra í árinni, því aö ýrnsu ieyti hafa gæðr landsins þorr- .ö síðan á „Ingólfs dögum“. Skógurimr er eyddur. Lax- og siiungsveiði er mjög tii þuiöar gengin vegna ójafnra við- skipta mannanna við hina gjöí'uiu náttúru. Vöntun á hentugu og vaianiegu byggingarefni, steini og leir, sem um þúsundir ára hefir verið notað á megin- randi Norðurálfunnar, hefir átt sinn þátt í mótun íslenzks þjóöiífs. Það er enginn vafi á því, að saga steinsins, þótt kaidur sé og tilíinningalaus, hefir verið, og á þó öllu frem- ur eftir að verða, ííkur þáttui' í sögu menningarinnai. 1 elztu menningarlöndum heimsins er það fyrst og fremst steinninn, sem geymt hefir hin sýnilegu tákn þess bezta, sem þjóðirnar hafa skapað. Hagleikur og skáidgáía Forrrgrikkja eru mótuð i stein. Guðsþrá miðaldanna birt- ist nútíðarmanninum enn í dag í musterum katóisku kirkjunnar, í gotneskum bogiínum og himinháum súlum. Heilir borgahlutar, sem byggðir voru á siðaskiptatímun- um eru enn uppistandandi í IVLið- og Suður-Evrópu. En síðan dögum á Jóns Arasonar hafa allir mannabústaðir á íslandi verið endurnýjaöir 8 sinnum til jaínaðar, að minnsta kosti. Sýniíeg tákn íslenzkrar menningar eru þéss vegna undra fá þegar litið er til annara landa. Sögustaðir vorir frá fornöldmni eru snauðir að minnjum. Hundruð bæja í sveitum landsins hafa lagst í eyði án þess að þeirra sjái önnur merki en grasi gróna moldar- hauga, og víðast engin. 1 Skálholti, höfuðsetri íslenzkrar kirkju í hálfa áttundu öld, örlar ekki á rústurn hinna fornu dómkirkna. Hólakirkja, sem á íslenzkan mælikvarða er æfagömul, fyliir ekki enn tvær aldir. Ef íslendingar hefðu verið fluttir suður á Jótlandsheiðar í Móðuharðind- unum, eins og um var talað, myndu nú tæplega sjást þess merki, að landið hefði nokkurntíma verið byggt. Að móðurmálinu undanteknu, eiga Islendingar ekkert annað en það, sem í þeim sjálfum býr. III. Vísindamenn í bókmenntum og fornfræði leiða mörg- um getum að því, hvernig á því standi, að sagnaiitun náði skjótara og meira vexti á íslandi í fyrri daga en annars- staðar um Norðurlönd. En reynsla daglegs nútímalífs virðist fela í sér fullnægjandi skýringu þessa fyrirbrigðis og varpar jafnframt birtu yfir lundarfar og einkenni Is- lendingsins, eins og þau hafa verið fram á þennan dag. En séreinkenni íslenzku þjóðarinnar eru fyrst og fremst mótuð af kjörum hennar og stöðu landsins í heiminum. Landnámsmennirnir íslenzku komu utan úr hringiðu ver- aldarinnar, þar sem atburðir eru tíðir, og þar sem menn- irnir voru sjálfir efni í sögur í stað þess að segja sögur. Sjálfir voru þeir margir æfintýramenn, höfðu farið víða um lönd og auðgast að endurminningum. En líf Islend- ingsins heirna hefii' ávalt verið fábreytt, ekki síður í fornöld en á seinni tímum. Landið hefir frá upphafi legið yzt í Atlantshafi, í þúsund mílna fjarlægð frá hjarta ver- aldarinnar. Sveitirnar voru stjálbýlar frá upphafi, vet- urnir harðir og veðrasamir eins og nú. Einangrunin og fábreytni líísins hafa sett blæinn á lundarfar íslenzkrar alþýðu síðan fyrstu landnemarnir stigu fæti á land. En minning liðinna atburða er æfinlega voldugust í fásinninu. Öld eftir öld hafa farmennirnir íslenzku lifað sömu söguna og sveitadrengurinn, sem í fyrsta sinni fær að fara með föður sínum í kaupstaðinn. Og jafnmargar aldir hefir hin heimsóvana íslenzka alþýða lifað upp hlut- skifti litlu systkinanna heima, sem með aðdáun í augum og sköpunarmátt ímyndunarinnar í hjarta, hlusta hug- fangin á frásögnina um framanda veruleika, sem í aug- um þeirra verður að æfintýri. Þannig hefir kynslóð eftir kynslóð fæðst og lifað, orðið að gráhærðum gamalmennum og horfið niður í moldina, án þess að skynja nema þytinn af stormi við- burðanna, brakið af vopnunum, ugginn af átökunum milli manna og þjóða, milli vakandi og deyjandi hugsjóna. Marteínn Eínarsson & Co. Pósthólf 256. Laugavegi 31, Reykjavík Símar: 315, 1495 Hvergi m e i r a úrval Kvenkápur. Alls konar álnavörur Fyrir hátíðina verður bezt að verzla hjá okkur Hattar, Húfur, Manchettskyrtur, Bindi, Karlm.peysur alsk. Leðurvörur, Regnhlffar, Ferðateppi, Gólfteppi, Renningar, Gardínutau, Borð oKDivanteppi Drengjaföt í úrvali. svo sem : Kjólatau, Fatatau, Léreft, Tvisttau Nærföt, Peysur, Sokkar fyrir karla, konur og börn. Regn- og rykfrakkar fyrir konur, karla og börn. Verð við allra hæfi. KARLMANNAFÖT altaf mörg hundruð settfjuúriiggjandi Mest og bezt úrval í borginni. — Þess vegna bezt að verzla hjá 0 1 yii pvni sss sss ir A, Einarsson & Funk Pósthússtræti 9 — Reykjavík. Símar: Skrifst. 982. Júlíus Schopka heima 1582. Símn. »Omega« Eldfæri: »JUNO«'eldavélar hvítemail. »Ilse«'Eldavélar, svart- Pípur frá 3'8—41/*”. svartar og galv., Krana, allar ar og grænar, »Husquarna«-Eldavélar svartar, »OR- tegundir, Baðker, Handlaugar úr »Fayance«, Eld- ANIER«'Ofna græn email., Ofnrör steypt og úr húsvaska, Handdælur, Gúmmíslöngur, »Britannia«', smíðajárni eldfastan stein og leir og margt fleira. »Narag«-, »Strebel«', »Camino«-, »Lollar«- og Byggínéarvörur: Vegg' og gólfflísar, Línóleum, Filtpappa, Látúns- Rafmagnsvörur bryddingar á borð, þröskulda og stíga, Loftventla allsk. til innlagninga. Rafmagnsmótora og Dynamóa. Hurðahantlföng allskonar, Hurðapumpur, Saum,' Skrár og lamir, Korkplötur, Hernklith-Bygg'inga- Vér útvegum allskonar vélar frá I. fl. verksmiðjum plötur, Asbest sementplötur, Asbest'Sement'Þak- hellur rauðar o. m. fl. í Þýzkalandi og Austurriki. Leííið tilboða hjá okkur. Vörur sendar hvert á land sem er gegn póstkröfu. i KÁ Miðstöðvar- ogVatnsleiðslutæki £ »Logana' Katla, og allt eini til miðstöðvarlagninga. ss í i ......................Ji \L2=3n IV. Vöxtur Reykjavíkur, eins og hann hefir orðið, gefur dálítið hugboð um þá reynslu, sem íslenzku þjóðarinnar bíður á næstu áratugum. Fram undir lok 18. aldar var Ileykjavík, elzta mannabyggð á Islandi, ekkert annað en venjulegur íslenzkur bóndabær, einn af mörgum, byggður úr grjóti og mold, sem hrundi einu sinni á mannsaldri. Hér er ekkert, sem minnir á hina löngu sögu Reykjavík- ur. Bærinn hefir vaxið upp sem verbúð á ströndinni. Hann er samsettur af ótal smábrotum, flestum eftir erlendum fyrirmyndum. I Reykjavík er ekkert íslenzkt nema endur- minningar fólksins. Islenzka þjóðin stendur á brún nýrrar aldar. Múr einangrunarinnar er rofinn. Öldur nýja tímans skella á sögueyjunni og verða ekki framar stöðvaðar. I þetta sinn brotna þær ekki á ströndinni eins og fyrir 20 árum. Þvert á móti stendur nú fyrir dyrum gjörbreyting á lifnaðar- háttum og atvinnu þjóðarinnar allrar. Gáfaður hugsjónamaður sagði fyrir ári síðan, að eng- inn maður hefði nokkurn tíma haft eins mikla ástæðu til að gleðjast yfir tilveru sinni, og íslendingurinn á tuttug- ustu öldinni. Gæfa núlifandi kynslóðar er, að vera borin til stórra verkefna. Ritstjóri: Gísli Guðmundsson Prentsmiðjan Acta h.f.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.