Tíminn - 23.12.1940, Síða 11

Tíminn - 23.12.1940, Síða 11
i 'ý{ j -ffi •••;' T í M I N N Rudyard Kipling: __ Sagan um PutUll Bh^^t Rudyard Kipling fæddist austur í Indlandi árið 1865. Faðir hans var enskur embættismaður í Bom- bay, maður mjög listrænn og hneigður til bók- menntastarfa. Rudyard Kipling var sendur til England sex ára gamall. Þar stundaði hann skólanám og gat sér góðan orðstír fyrir þekkingu og glöggan skilning á enskri bókmenntasögu, en þótti niður að sér í stærð- fræði og fornmálum. Á námsárunum dvaldi hann oft hjá móðursystur sinni, er gift var málara, og á heimili þeirra efldist mjög meðfædd hneigð hans til listrænna viðfangsefna. Seytján ára gamall hvarf hann austur til Ind- lands að nýju og gerðist blaðamaður í Lahore. En að fám árum liðnum fór hann til Allahabad og var blaðamaður þar í tvö ár, og er blað það, er hann vann þá að, einmitt nefnt sem stærsta blað Ind- lands í smásögunni, sem hér birtist í íslenzkri þýðingu. Á blaðamannsárum sínum birti Kipling fyrstu ljóð sín og sögur. En árin 1886 og 1887 komu fý'rstu bækur hans út. En þegar hann festi ekki lengur yndl við blaðamennsku austur í Indlandi, hóf hann ferða- lög mikil víða um heim, Kínaveldi, Japan, Norður- Ámeríku og England, og síðar vítt um lönd í Afríku, Asíu, Ástralíu og Ameríku. En þegar hlé var á ferða- lögum hans, hafði hann oftast búsetu í Sussex í Englandi. Hin næstu ár komu úr fjöldamargar bækur eftir Kipling, þar af ekki færri en níu smásagnasöfn á árunum 1880—1889. Flestar þessara bóka fjölluðu um Indland og indverskt þjóðlíf. Þær voru þrótt- miklar og með glæsibrag, slungnar dularfullri, austrænni kynngi, sem hertók hugi lesendanna. Síðar ritaði hann margar bækur, er báru hin sömu einkenni. Litlu siðar tók hann að skrifa dýrasögur frá Ind- landi, einkum úr frumskógunum. Upphaf þessa vax safn fornra, indverskra helgisagna, Hetoparesa, sem þykir eitt snilldarlegasta ritverk Kiplings. En víð- frægastar af þessum bókum hans eru The Jungle Book og Kim, sem að öðrum þræði er dýrasaga. En jafnframt er þó sú bók víðfeðm lýsing á Indlandi á vorum dögum, bæði indverskum þjóðháttum og menningu, dulspeki og trú, og þeim þáttum vest- ræns lífs og hugarfars, er þar hafa náð festu. Þótt Indlandssögur Kiplings séu frægastar, hefir hann einnig ritað sögur frá öðrum löndum og þjóð- um, sem Evrópubúum flestum eru lítt kunnar. Meðal þess eru sögur frá byggðum Eskimóa í ísbreiðum hinna norðlægustu landa og hafa. Þær sögur eru, á sama hátt og indlandssögumar, slungnar dular- sögnum þeirra þjóðflokka, er þær herma frá. í bókinni Captain Courageous, sem þýdd hefir ver- ið á ísienzku og heitir þar Sjómannalíf, tekur hann sér fyrir hendur að lýsa lífi og störfum fiskimanna á miðunum við Nýfundnaland. Þetta sýnir ofurlítið, hve vítt Kipling sótti efnið í sögur sínar. Kipling er einnig mikið ljóðskáld og eru til eftir hann margar ljóðabækur. Mjög mikið af kvæðunum eru hermannaljóð og stríðssöngvar. Þar kemur jafn- vel enn greinilegar fram heldur en í sögunum, sem eru þó margar þrungnar aðdáun á menningu hins hvíta manns og þeirri tækni, er hann á yfir að ráða, hvílíkur heimsveldissinni hann er. Og mörg kvæði hans eru hvatning til þjóðar hans, bein og óbein, um að byggja nýlendumar brezku og viðhalda. Frjálsiyndir gagnrýnendur og stjórnmálamenn hafa borið honum á brýn siðlausan blóðþorsta og skefjalausa drottnunargimi í túlkun hans á málstað heimsveldisins. En heimsveldisstefna hans hefir líka aðra bjartari hlið. Hann setur hinum hvíta manni hátt takmark, gerir til hans strangar kröfur um manndóm og mannlund. Látum þann uppskera, er sáð hefir, segir Kipling. Og: Látum alla skynja guðsótta vom á því, hve hér sé gott að lifa. Á styrjaldarárunum 1914—1918 ritaði Kipling hverja áróðursbókina á eftir annarri. Kipling hlaut bókmenntaverðlaun Nobels árið 1907. Hann var einnig heiðursdoktor ýmissa há- skóla, meðal annars Oxford-háskóla, háskólans í Cambridge og Sorbonne-háskóla í París. Rudyard Kipling dó fyrir fáum ámm. Það var eitt sinn maður nokkur, sem gerzt hafði æðsti ráðgjafi eins hinna hálf- sjálfstæðu, indversku furstadæma í. noTð- vesturhluta keisaradæmisins. Hann var Brahmaprestur og svo göfugrar stéttax, að hann var yfir allan stéttarþótta hafinn. Faðir hans hafði verið áhTifaríkur em- bættismaður í litglæstu, fjölsóttu, fomu Hindúamusteri. En Purun Dass skildi það þegar í æsku sinni, að breytingatímar voru í nánd, og að sá, er vildi komast til mikilla metorða, varð að gerast vinur Englendinga og hegða sér þannig, að þeim væri það að skapi. Að hinu leytinu verður sérhver ind- verskur valdsmaður ávallt að gæta þess, að viðhalda trausti og áliti yfirboðara sinna. Þetta var ærið vandasamur leikur, en hinn hægláti, þöguli, ungi Brahma- prestur, sem öðlazt hafði prýðisgóða menntun að enskum hætti í háskólanum í Bombay, lék þenna leik af mikilli stað- festu, og fikraði sig upp valdastigann, þrep fyrir þrep, unz hann varð æðsti ráð- gjafi í heimalandi sínu. Þá var hann í raun og veru orðinn miklu voldugri maður en sjálfur ríkisprinsinn. Þegar gamli furstinn, sem hafði illan bifur á Englendingum og járnbrautum þeirra og símalínum, andaðist, var enginn í jafnmiklu dálæti hjá erfðaprinsinum, er verið hafði fóstraður upp af Englending- um, sem Purun Dass. í innilegri samvinnu — hann lét furstann ávallt hljóta allan 11 heiður af ávöxtum þess samstarfs — stofn- settu þeir tvo skóla fyrir ungar stúlkuT, löigðu vegi, komu upp rikislyfjabúðum, efndu til sýninga fyrir landbúnaðaryerk- %pri og gáfu út hagfræðiiegt ársrit um menningarlegar og verklegar framfarir í rikinu. Bæði Indlandsstjórnin og utan- ríkismálaráðherrann voru í sjöunda himni, Það voru mjög fá indversk fursta- dæmi, er tóku undandráttarlaust upp enska umbótaháttu, því að Indverjar treystu því ekki eins og Purun Dass tvímælalaust gerði, að allt, sem væri Englendingum nytsamt, gæti orðið til tvöfalt meiri hag- sældar fyrir Austurlandabúa. Æðsti ráð- gjafinn varð mikils metinn vinur varakon- unga, landstjóra, varalandstjóra, trúboðs- lækna, venjulegra kristniboða og bíræf- inna enskra riddaraliðsforingja, sem heimsóttu hann i því skyni að fara á dýra- veiðar á eignalendum ríkisins. Hann varð jafnvel vinur mikils fjölda af ferðalöngum, sem þveittust um Indland þvert og endi- langt hina svalari árstíma, og þóttust geta lagt ráð á, hvernig öllu skyldi hagað og stjórnað. Þegar Táðrúm gafst, úthJLutaði hann styrkjum til læknisfræðinema og verðlaunum fyrir iðnrekstur, allt að enskum hætti, eða hann ritaði greinar í „Frumherjann", stærsta dagblaðið á Indlandi, og skilgreindi starfsaðferðir og markmið herra síns. Að lokum tókst hann ferð á hendur til Englands, og varð við heimkomuna að gjalda prestunum óheyrilega miklar fjár- upphæðir, því að jafnvel svo tiginn maður sem Purun Dass glatar stéttargöfgi sinni, ef hann siglir yfir hið dökka haf. í Lund- dúnum hitti hann alla þá menn, er vert var að kynnast, og átti við þá samræður. Menn, sem þekktir voru um heim allan. Og hann veitti mörgu því athygli, sem hann innti aldrei einu orði að. Hann var gerður heiðursdoktor hinna virðulegustu háskóla, og hann flutti fyrirlestra og ræddi um þjóðfélagsumbætur Hindúa í áheym enskra hefðarkvenna í viðhafnarklæðum. Brátt var staðhæft um alla Lundúnaborg: „Þetta er sá dásamlegasti maður, sem við höfum nokkru sinni fyrir hitt, allt frá því við sáum dúklagt borð í fyrsta skipti!“ Þegar hann sneri heim til Indlands, var hann umvafinn hrósi. Sjálfur varakonung- urinn heimsótti hann til þess að sæma furstann æðsta stigi Indlandsstjömunnar, smeitta og setta skrautlegum demöntum og prýdda gullleggingum. Á þessari hátíðar- stundu var Purun Dass, við drynjandi fall- byssuskothríð, sæmdur heiðursmerki keis- aradæmisins og veitt yfirliðsforingjanafn- bót, svo að framvegis var hann skráður Sir Purun Dass K. C. I. E. í öllum hirð- mannatölum og árbókum ríkisins. í kvöldboði í hinni miklu tjaldbúð vara- konungsins reis hann á fætur, með ger- semarnar festar á brjóstið, og flutti ræðu. Fáir Englendingar hefðu svarað skálaræðu til konungs síns með meiri snilli. Hinn næsta mánuð, þegar hið venjulega, kæfandi mók, hafði færzt yfir bæinn að nýju, greip hann það til bragðs, sem engum Englendingi hefði nokkru sinni hvarflað í hug að gera. Hann varpaði frá sér öllu því, sem var af hinum hlutlæga heimi í þessarí jarðartilvist. Gimsteinum sett tignarmerki hans voru endursend Indlandsstjórninni, nýjum æðsta ráðgjafa var falið á hendur að annast málefni furstadæmisins, og allur embættismannaskarinn átti í hörðu um að hagfæra sér þá möguleika, sem voru til upphefðar. Prestarnir skildu, hvað gerzt hafði; alþýða manna gat sér til hins rétta. En Indland er eini staðurinn í öllum heim- 4*

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.