Tíminn - 23.12.1940, Síða 19
“
TÍMINN
19
Sjafnar tannkrem gerir
tennnrnar iiijalllavítai*
Eyðir tannsteini og himnumyndun. Hindrar skað-
lega sýrumyndun í munninum og varðveitir með því
tennurnar. Inniheldur alls engin skaðleg efni fyrir tenn-
urnar eða fœgiefni, sem rispa tannglerunginn. Hefir
þœgilegt og hressandi bragð.
Notið Sjafnar tannkrem kvölds og morguns.
NápnTerksmiðjan Sjöfn, Abnpeyrl
liafi setzt að þegar á su(nnudagskvöld,
meðan vindur var enn við útsuður. Má því
ætla, að þeir hafi tekið syðri leiðina um
sandinn. En er þeir komu vestur af vatna-
skilunum hafi veður og færi versnað svo
mjög, að þá hafi hrakið af leið og þrotið
gönguna þarna við ölduna, og horfir það
til líknsemdar, ef svo hefir verið. En vitan-
lega er þetta getgáta ein, og fullar sönnur
fást aldrei um þeirra endadægur.
En þú, vegfarandi, sem ferð um Fjalla-
baksveg, legðu krók á leið þína og komdu
við á nafnlausu öldunni suður af Kalda-
klofi. Þar hefir íslenzk alþýða skráð lítinn
þátt úr langri sögu sinni og staðfest hann
með dauða fjögurra ferðamanna. Þar und-
ir klappakastinu, lögðust þeir til hvílu hlið
við hlið, Árni gamli Jónsson og hann
Davíð litli frá Leiðvelli, sem gefið hafði
gullin sín áður en hann fór. Þar tróðu
þeir fönnina, Þorlákur og Jón i Gröf hjá
félögum sínum dauðum, líkt og Grímur
og Skarphéðinn brandana að Bergþórs-
hvoli. Hversu mundi þeim hafa verið inn-
anbrjósts þá öllum lengri nótt, og hvað
mundu þeir hafa ræðzt við, áður en Þor-
lákur andaðist og Jón Runólfsson, kempan,,
opnaði kutann sinn með stirðnuðum fingr-
um og settist að snæðingi aleinn í æðru-
lausri ró.
Og þarna lágu lík þeirra í algerðu
umkomuleysi og visnuðu líkt og vetrar-
sinan meðan missiri skiptust og ár leið
af ári.
Á öldunni sér enn fáein fúasprek
og, ef til vill, einnig smjörklessu undir
steini. Og fjallpunturinn, sem svignar í
jökulgustinum, hefir eitt sinn — eða ætt-
feður hans, sogið hinn dýra safa af meyru,
rotnandi mannaholdi.
Gleðilegf jól!
Lakk- og málningar-
verksmiðjan HARPA
GLEÐILEG JÓL!
(Ef
nagen
eyljaviiur
>♦♦♦♦♦♦
GLEÐILEG JÓL!
íshúsið Herðubreið
Fríkirkjuveg 7.
GLEÐILEG JÓL!
Dósaverksmiðjan H.F.
Eignizt Fegurð líisins