Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1987, Qupperneq 6
28
MÁNUDAGUR 16. FEBRÚAR 1987.
Iþróttir
iKi
i
Æ iii'
mMmmm.*
Pétur Guðitiundssonsem var á fösiudag seldur fiá LA Lakers til San Antonio Spui
| ' f ihiiíTMMÍBiSMfifiMByB^MMllÍlfififi^í
«» „Ég get ekki neitað því að þetta kom
I algerlega flatt upp á mig. Ég stóð í
■ þeirri meiningu að lið í NBA-deildinni
aj gætu alls ekki selt leikmenn sem væru
á sjúkralista eins og ég er. En úr því
sem komið er er ekkert annað að gera
en að reyna að standa sig í stykkinu
hjá San Antonio. Ég býst þó ekki við
að leika meira á þessu leiktímabili.
Ég stefni að því að jafna mig fúllkom-
lega af meiðslunum og fer til San
Antonio í haust,“ sagði Pétur Guð-
mundsson körfuknattleiksmaður í
samtali við DV í gær. Á föstudag var
Pétur seldur frá Los Angeles Lakers
til San Antonio Spurs sem einnig leik-
ur í NBA-deildinni. Þeir Pétur og
Frank Birkowski voru látnir til San
Antonio í skiptum fyrir hinn snjalla
Michael Thomson, en þess má geta
að Thomson þessi lék með Pétri þegar
hann var hjá Portland Trailblazers.
„Forráðamenn Lakers hafa beðið
lengi eftir því að ég gæti farið að leika
með liðinu eftir meiðslin en ég hef
ekki getað gefið þeim ákveðið svar,
ekki getað nefnt ákveðinn dag. Þolin-
mæði þeirra var því þrotin og það
spilaði einnig mikið inn í þetta að tveir
leikmenn sem verið hafa varamenn
fyrir Kareem Abdul Jabbar hafa ekki
staðið sig í stykkinu. Það verður hlut-
verk Thomsons að vera varamaður
fyrir Jabbar, allavega út þetta keppn-
istímabil. Thomson er mjög snjall
leikmaður, er 32 ára gamall og hefúr
verið með um milljón dollara í laun á
ári hjá San Antonio.“
að taka við af honum sem miðherji 2
númer eitt. Ef ég stend mig vel þá er |
alltaf möguleiki á því að komast aftur ■
að hjá einu af bestu liðunum og La- I
kers er þar með talið að sjálfoögðu.“
- Lítur þú á Jþessa sölu sem áfall
fyrir þig?
„Nei, þetta er ekkert áfall fyrir mig
þó þetta hafi komið mér mikið á óvart.
Ég fæ nú meira að spila en áður og
ég get þess vegna verið kominn aftur
til Lakers eftir skamman tíma. Þetta
er spuming um að standa sig á leik-
vellinum, ekkert annað. Það er einn
mjög Ijós punktur í þessu öllu saman.
Núna fæ ég kærkomið tækifæri til að
jafna mig algerlega af meiðslunum en
þarf ekki að vera að stressa mig á því
að komast í liðið hjá Lakers fyrir ein-
hvem ákveðinn tíma og kannski áður
en ég er raunverulega tilbúinn til
þess,“ sagði Pétur Guðmundsson.
-SK/Viku-mynd Valdís I
1