Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 9
Nýbýlavegi 12 • 200 Kópavogi • Sími 554 4433
Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16
Flauelsdragtir
Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222.
www.feminin.is
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Haustlínan
frá
komin
St. 42-60
NP
pelsar - stuttir og síðir
leðurjakkar - kápur
mokkajakkar - kápur
leðurpils
100% Cashmere fatnaður
Opnunartilboð
Pelsfóðursjakkar og -kápur
með 50% afslætti
Opnum eftir sumarlokun
Full búð af nýjum vörum
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Vattúlpur, dúnúlpur,
ullarúlpur og dúnkápur
Hattar, húfur og
kanínuskinn
Opið virka daga frá kl. 10-18
Opið laugardaga frá kl. 10-16
Nýjar vörur
Verð kr. 8.900
Námskeiðin eru að hefjast
Upplýsingar í síma 845 7835
Guðlaug, Ragnar og Páll
Bókband
Hallveigarstíg 1, s. 588 4848
Jakkar, buxur, peysur og bolir í miklu úrvali
Einnig rúskinnsjakkar og kuldastígvél
Sjón er sögu ríkari
MEÐ vistakstri má með góðu móti
draga úr eldsneytisnotkun öku-
tækja um 15–20% og munar víst um
minna á tímum síhækkandi elds-
neytisverðs.
Ökukennarafélag Íslands í sam-
vinnu við Hópbíla stóð fyrir sýni-
kennslu í vistakstri. Með tölvu, sem
tengd var við vél bílsins, var hægt
að sýna eldsneytiseyðsluna. Gunn-
laugur Norðquist Magneuson, bíl-
stjóri hjá Hópbílum, segir lygilegt
hversu mikið dró úr eyðslunni þeg-
ar hann fór eftir tilmælum öku-
kennarans Hrannar Bjargar Harð-
ardóttur sem leiddi hann í allan
sannleika um vistakstur. „Ef ein-
hver hefði sagt mér þetta hefði ég
haldið að hann væri að ljúga,“ sagði
hann. Þá stuðlar vistaksturinn líka
að umferðaröryggi því áhersla er
lögð á að hafa gott bil milli bíla.
Vistaksturinn var liður í sam-
gönguvikunni.
Morgunblaðið/Þorkell
Bílstjórinn Gunnlaugur Norðquist Magneuson og ökukennarinn Hrönn
Bjargar Harðardóttir.
Lygilegur sparnaður
með vistakstri
NEMENDUR í Menntaskólanum
við Sund hafa hafið undirskrifta-
söfnun til að mótmæla nýlegri
breytingu á gatnamótum Skeiðar-
vogs og Gnoðarvogs, en skólinn
stendur rétt við gatnamótin.
Gunnar Örn Indriðason, nemandi
í MS, segir að á gatnamótunum hafi
áður verið hringtorg og umferðin
gengið snurðulaust fyrir sig. Þegar
nemendur komu í skólann aftur í
haust var hringtorgið horfið og
komin umferðarljós í staðinn. Gunn-
ar segir að þar séu iðulega miklar
umferðarteppur eftir að ljósin
komu, og nemendur í MS séu ósáttir
við að ekki hafi verið haft samráð
við þá vegna þessara breytinga.
Gunnar hefur skrifað borgaryfir-
völdum bréf vegna málsins þar sem
hann spyr um ástæður þess að farið
var í framkvæmdina, kostnað við
hana og hvers vegna ekki var haft
samráð við nemendur MS.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, segir að mikið hafi verið
kvartað yfir hraðakstri í Skeiðar-
vogi og því hafi sú tillaga komið
fram að setja umferðarljós í stað
hringtorgsins til að hægja á umferð-
inni. Árni segir þetta hafa verið
kynnt vel í hverfinu og nú sé búið að
framkvæma þessar breytingar.
„Það kemur mér auðvitað dálítið á
óvart að síðan skuli koma upp radd-
ir í hverfinu, því það hefur nú sjald-
an verið viðhaft jafn mikið samráð
og var með Skeiðarvoginn. Þannig
að þetta er eitthvað sem ég verð að
skoða með þeim,“ segir Árni.
Hann segir að bent hafi verið á
uppsöfnun á milli nýju ljósanna og
Suðurlandsbrautar og það verði
skoðað í framhaldinu hvort hún
verði til vandræða. Það sé þá frekar
auðvelt að greiða úr því, en það
þurfi að koma í ljós hver þörfin er í
vetur.
Nemendur
mótmæla brott-
hvarfi hringtorgs
JÓN Víðir Steindórs-
son verkstjóri er lát-
inn, 64 ára að aldri.
Jón fæddist á Teigi á
Seltjarnarnesi 15.
júní 1940, en foreldr-
ar hans voru hjónin
Oddný Hjartardóttir
húsfreyja og Stein-
dór Kristinn Ingi-
mundarson verk-
stjóri.
Jón Víðir ólst upp
á Teigi á Seltjarnar-
nesi en flutti til
Hafnarfjarðar árið
1967 og bjó þar alla
tíð síðan. Hann hóf ungur störf við
fiskverkun og sjómennsku. Hann
var lengi verkstjóri hjá Loftorku í
Hafnarfirði. Hann starfaði hjá
Garðabæ frá 1993, en
síðustu árin vann hann
við Hofsstaðaskóla og í
haust hóf hann störf við
nýju íþróttamiðstöðina í
Garðabæ.
Eftirlifandi eiginkona
Jóns Víðis er Rannveig
S. Guðmundsdóttir. Þau
eignuðust fjögur börn,
en fyrir átti Jón Víðir
eina dóttur.
Útför Jóns Víðis verð-
ur gerð frá Hafnarfjarð-
arkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Vegna mistaka birtist
auglýsing um jarðarförina ekki í
sunnudagsblaðinu eins og ráð var
fyrir gert. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Andlát
JÓN VÍÐIR
STEINDÓRSSON