Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 56
56 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988 -<« ' Qaorg Mallard og Jóhann Kjartans- son. mWK FOLK ■ BADMINTONSAMBAND ís- laads hefur ráðið tvo þjálfara. Georg Mallard sem mun sjá um þjálfum A-landsliðsins og Johann Kjartansson sem mun þjlfa ungl- ingalandlsiðið. Mallard er Hollend- ingur, en ættaður fra Asíu og hefur þjálfað hér á landi í rúmt ár. Jó- ' hann er hinsvegar úr Garðabænum og hefur verið einn af okkar sterk- ustu badmintonmönnum síðustu ár. ■ JOSIP Skoblar, sem var rek- inn frá Hamburger SV á dögunum, er byrjaður að þjálfa í heimalandi sínu - Júgóslavíu. Skoblar þjálfar Celik Zenica, sem er á botninum íjúgóslavnesku 1. deildarkeppninni. ■ DANSKI landsliðsmaðurinn í knattspymu Preber Elkjær Lars- en, sem leikur með Verona á Italiu, hefur fengið sterkan leik- 7 mann sér við hlið. Verona hefur fest kaup á argentinska landsliðs- manninum Claudio Paul Caniggia, sem er 20 ára. Verona borgaði Rivera Plate kr. 102 millj. fyrir Caniggia. Juventus og Roma höfðu einnig áhuga á þessum snjalla leikmanni, sem skrifaði undir fjög- urra ára samning við Verona. Þrír útlendingar eru nú hjá félaginu. Fyrir voru Elkjær og Thomas Berthold frá V-Þýskalandi. Allt bendir nú til að þrír útlendingar fái að leika með ítölsum 1. deildarliðum næsta keppnistímabil. ■ JAN Heintze, danski lands- liðsmaðurinn í knattspyrnu hjá Eindhoven í Hollandi, meiddist á fæti í æfingaleik í vikunni. Fyrst var talið að hann væri fótbrotinn. Annað kom í ljós á sjúkrahúsi. Heintze hafði tognað illa á fæti og verður hann frá keppni í fjórar vik- KÖRFUKNATTLEIKUR Mál ívars Websterfer fyrirdóm MÁL ívars Websters verður tekið fyrir í dómstól UMSK á næstunni. Málið hefur dregist nokkuð, nú er búið að dómtaka málið sem þýðir að dómurinn hefur samþykkt kæruna og tek- ur hana til meðferðar. Áður hafði kæru UBK verið vísað frá vegna formgalla, en nú hefur kæran verið samþykkt. Upptökin áttu sér stað í leik Hauka gegn Breiðbliki í Úrv- alsdeildinni í körfuknattleik 12. desember. Þá sló ívar Webster, leik- maður Hauka, Bjöm Hjörleifsson, leikmann Breiðbliks. Atvik þetta gerðist í leikhlé og átti sér nokkum aðdraganda. Höggið var þungt og Bjöm meiddist. Því var kallað var á lögregluna og hún tók skýrslu af atvikinu. Síðan þetta gerðist er liðinn mánuð- ur, en málið hefur ekki enn komið fyrir dóm. Það er þó útlit fyrir að dæmt verði í málinu 18. eða 20. janúar. Þar sem dómarar leiksins sáu ekki atvikið verður það lögregluskýrslan sem vegur þyngst. Haukar hafa einnig hafa sent inn myndbands- snældu úr leiknum þar sem viðskipti ívars og Bjöms í leiknum sjást. Þar sem að málið verður ekki tekið fyrir strax getur ívar leikið með Haukum gegn Þor í Úrvalsdeildinni 15. janúar. Hann lék með Haukum um síðustu helgi gegn Tindastól í Bikarkeppninni. „Við vonumst að sjálfsögðu til að dómurinn verði ekki of þungur. Þetta mál á sér nokkra forsögu og ég held að það væri ekki sann- gjamt að dæma bara eftir högg- inu,“ sagði Pálmar Sigurðsson, þjálfari Hauka í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Það kom upp svipað mál í 1. deild kvenna er ein stúlkan réðist á aðra. Það var kært, en of seint og var kæmnni var vísað frá. Það er í raun eina málið sem á sér hliðstæðu við þetta mál. Annars finnst mér að það hefði átt að vera búið að ganga frá þessu fyrir löngu. Það er til skammar að láta þetta dragast svona og láta alla bíða í óvissu", sagði Pálmar að lokum. HANDBOLTI / AFMÆLISMOT KA KA-menn sigurvegarar Um helgina fór fram hand- knattleiksmót á Akureyri sem KA hélt í tilefni 60 ára af- mælis síns. Liðin sem mættu til leiks voru gest- FráReyni gjafamir KA, Þór Eiríkssyni og Breiðablik. áAkureyrí Leikin var tvöföld umferð og var það afmælisbamið sem stóð uppi sem sigurvegari í lokin — vann alla sína leiki. Úrslit í einstaka leikjum á mótinu urðu sem hér segir: KA-Þór..............20:15 Þór-UBK.............21:31 KA-UBK..............35:26 Þór-UBK.............27:20 KA-Þór..............30:18 KA-UBK..............35:26 Upphaflega stóð til að landsliðs íslands skipað leikmönnum 21 árs og yngri tæki þátt í mótinu, en HSI afboðaði komu liðsins á föstu- dagskvöld, hálfum sólarhring áður en mótið hófst. Fannst Akur- eyringum það lúaleg framkomu af hálfu HSÍ. MorgunblaÖið/BAR íwar Webster sést hér í leik með Haukum. Hann á yfír höfði sér þungan dóm. KNATTSPYRNA EM 1992 íSví- þjóð eða Spáni? Spánveijar og Svíar hafa sent inn umsókn til Knattspymusamband Evrópu, um að fá að halda úrslitakeppni Evrópukeppni landsliðs 1992. Sovétmenn hafa hætt við að sækja um að halda keppnina. Svíar taka það fram í umsókn sinni að nokkrir leikir í keppninni, ef þeir fá að halda hana, fari fram í Kaupmannahöfn í Danmörku. Þijátíu og fjórar þjóðir af 35 sem eru í UEFA hafa tilkynnt þátttöku í Evrópukeppninni. Smáríkið San Marino á Ítalíu hefur sent inn þátt- tökutilkynningu. Aðeins Liechtenstein hefur ekki tilkynnt um þátttöku. AMERÍSKAR ÍÞRÓTTIR Kuldaboli setur strik í reikninginn Washington og Minnesota-vinna óvænt á útivelli ur. I UPPSELT er á opnunarleik EM í knattspymu - leik V-Þýska- lands og Ítalíu. Strax eftir að búið var að draga í riðla, urðu símalínur rauðglóandi og miðar pantaðir. Þá seldist einnig upp á úrslitaleikinn, sem verður í Múnchen. Fáir miðar eru eftir á leiki V-Þýskalands gegn Danmörku og Spáni. Forráða- menn keppninnar sögðu í gær að enn væri til hellingur af mið- um á hina ellefu leikina í EM. ■ MARTINA Navratilova ein besta tenniskona heims ætlar ekki að taka þátt í Ólympíuleikunum í Seoul í september. Hún segir að Ólympíuleikarnir falli illa inní skipulagið og hún leggi meiri áherslu á Grand Prix mótin. Navr- atilova sem er 32 ára segist hinsvegar ætla að taka þátt I Olympiuleikunum 1992 í Barcel- ona. Chris Evert mun heldur ekki taka þaft í Olympíuleikunum í Seoul og heldur ekki Frakkinn Yannick Noah . Hann sagði: „Mér Ok-finnst ekki að atvinnumenn eigi að taka þátt í Olympíuleikum. Við æfum alla daga, þénum vel og erum þekktir. Olympíuleikar eru hins- vegar fyrir áhugamenn sem leggja sig alla fram við að koma ser á framfæri og leikamir em þeirra stærsta von. Ég var valinn í lið Frakka en það hvarlaði aldrei að mér að fara.“ ÞAÐ fór eins og marga grunaði íátta liða úrslitum NFL-deildar- innar í ameríska fótboltanum um helgina. Þrátt fyrir að hei- maliðin væru talin sigurstrang- legri í öllum fjórum leikjunum komust aðeins tvö þeirra í und- anúrslit. I„Amerísku“-deildinni léku Cle- veland Browns og Indianapolis Colts í nístingskulda í Cleveland á laugardag. Eftir jafnan fyrri hálf- leik var stáðan Gunnar 14:14, en Cleveland /algeirsson tók leikinn í sínar skrifar hendur í síðari hálf- leik og Bemie Kosar, kastari liðsins, stjómaði sínum mönnum af miklu öryggi. Lokatölur urðu 38:21 fyrir Cleve- land. Á sunnudag léku Denver Broncos og Houston Oilers á Mile High Stad- ium í Denver. Broncos tóku leikinn strax í sínar hendur, stálu boltanum tvisvar af Houston í fyrsta leikhluta og skoruðu. Eftir það var sigur Denver aldrei í hættu og úrslitin urðu 34:10 fyrir Denver. Það verða því Denver og Cleveland sem mætast í úrslitum í amerísku deildinni um næstu helgi. Er víst að leikmenn Cleveland brenna í skinninu að fá tækifæri að spila við lið Denver. í fyrra léku sömu lið til úrslita í deildinni og þá vann Denver. Eru því eflaust margirleik- manna Cleveland í hefndarhug essa dagana. „National“-deildinni fékk San Fransiskó 49ers lið Minnesota Vik- ings í heimsókn á laugardag. Var lið San Fransiskó talið sigurstrang- legast af öllum þeim átta liðum sem léku um helgina. En eins og sannir víkingar voru liðsmenn Minnesota ekki á þeim buxunum að láta slá sig út úr keppninni. Eftir jafnan fyrsta leikhluta var staðan 3:3. Þá gerði Minnesota út um leikinn með 17 stigum í röð og eftir það áttu 49ers sér ekki viðreisnar von. Meira að segja tók þjálfari San Fransiskó það til bragðs að skipta Joe Mont- ana, stjómanda liðsins, útaf og setja varamann hans, Steve Young, inná. Undir hans stjóm skoraði liðið fljót- lega tvö snertimörk, en það var þá orðið of seint til að ráða úrslitum. Minnesota sigraði því mjög óvænt 36:24. Seinni leikurinn í „National“-deild- inni var á sunnudag í Chicago. Þar tóku heimamenn á móti Washing- ton Redskins og var þessi leikur mest spennandi af öllum leikjum helgarinnar. Það var 11 stiga frost í byijun leiksins og töluverður strekkingur á Soldier Field leik- vanginum í Chicago. Leikmönnum Chicago gekk betur að aðlagast þessum kulda og komust í 14:0, en „Rauðskinnamir“ frá höfuðborg- inni tóku sig til og jöfnuðu fyrir hálfleik. í upphafi síðari hálfleiks náði Chicago Bears 17:14 forystu með snertimarki, en þá tók vörn Washington sig til og stöðvaði allar tilraunir sóknarliðs Chicago það sem eftir lifði leiksins. Á meðan skoruðu sóknarleikmenn liðsins þó eitt snertimark og sigraði því Was- hington 21:17. Það verða því Washington og Min- nesota sem leika til úrslita í „National“-deildinni. Fer sá leikur fram í Washington. Cleveland og Washington eru talin líklegri til að sigra um næstu helgi, en það kom vel fram um helgina að allt getur gerst í þessari úrslita- keppni. Sigurvegararnir um næstu helgi keppa síðan í „Super Bowl“ þann 31. janúar nk. í San Diego. NBA-deildin Eftir góða sigra í Detroit og Ind- iana hafa Los Angeles Lakers nú unnið 14 leiki í röð og eru með besta árangurinn í NBA-deildinni, 25 sigrar og 6 töp. í Austurdeild- inni hefur Atlanta Hawks gengið best, er með 24 sigra og 8 töp, en næst kemur Boston með 21 sigur og 10 töp. Hjá Lakers hefur Byron Scott stað- ið sig vel að undanförnu, en bæði Larry Bird og Kevin McHale hafa átt góða leiki með Boston að und- anförnu. Þess má geta að stjömu- leikurinn í NBA-deildinni fer fram þann 7. febrúar í Chicago og hefur Michael Jordan fengið langflest at- kvæði í kosningu áhorfenda til þessa. Það eru áhorfendur á leikjum deildarinnar sem kjósa byijunarlið í báðum deildum, en síðan ákveða þjálfarar hvaða aðrir leikmenn kom- ast í lið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.