Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988 Útsöluverð á soðn- ingu hækkar um 15% auk 10% söluskatts Hækkun á fiskmörkuðum aðalástæðan Verðlagsstofnun hefur heimilað 15% hækkun á útsöluverði á fiski og var hækkunin staðfest í verðlagsráði sl. mánudag. Þessi hækkun er aðallega til komin vegna hækkunar á fískverði á fisk- mörkuðum og er óviðkomandi 10% söluskattsálagningu á físk. Hafa þvi algengustu tegundir af fiski hækkað um 25% frá áramót- um. Guðmundur Sigurðsson deild- arstjóri hjá Verðlagsstofnun sagði við Morgunblaðið að fiskkaup- menn hefðu leitað til stofnunar- innar í desembermánuði og vildu fá verðbreytingu vegna verð- hækkana á fískmörkuðum en útsöluverð hafði síðast hækkað í júlí. Guðmundur sagði að kölluð hefðu verið inn gögn frá fískmörk- uðum og stærstu heildsölunum til að sjá í hveiju þessi breyting væri fólgin og þá hefði komið í ljós að innkaupsverð á físki hafði hækkað verulega. Því hefði verið leyfð hækkun á útsöluverði úr 240 í 276 krónur eða um 15%. Guð- mundur sagði að verðhækkun á mörkuðum hefði raunar verið meiri en sem nam 15% en með þessari ákvörðun hefði Verðlags- stofnun verið að veita ákveðið aðhald. Guðmundur sagði að aukin eft- irspum eriendis eftir fiski hefði átt sinn þátt í þessu. Jógúrt og ávaxtaskyr hækkaum 11-15% JÓGÚRT frá Mjólkursamsölunni hækkar um 11-15% vegna sölu- skattsálagningar, og ávaxta- og ijómaskyr einnig. Að sögn Vilhelms Andersens, fjármálastjóra Mjólkursamsölunnar, mun söluskatturinn kosta Mjólkursamsöluna um 480 miljjónir króna á þessu ári, en aukn- ar niðurgreiðslur munu einungis nema um 280 milljónum, og þvi þurfí að hækka ýmsar vörur til að mæta þeim kostnaðarauka. Venjulegt jógúrt mun hækka um 13,2-14,8%, og sunnudagsjógúrt um 11,5%. Venjulegt skyr hækkar ekki, samkvæmt ákvörðun ríkis- stjómarinnar, en bláberja- og jarðarbeijaskyr hækkar um 12,7%, og ijómaskyr um 15%. Að sögn Vilhelms er ástæðan fyrir þessum hækkunum sú að annað hráefni en mjólk, svo sem ávextir, hækka. Alls nemi kostnaðarauki Mjólkur- samsölunnar vegna söluskattsins um 200 milljónum króna, og hækk- unin hafí verið reiknuð út frá þeim forsendum að mæta þessum aukna kostnaði, en Mjólkursamsölunni sé ekki ætlað að sýna neinn hagnað. Vilhelm sagði aðspurður að sam- keppni við Baulu hf. ætti engan þátt í þessum verðbreytingum. Hækkanir Baulu á jógúrt eru hinar sömu og hjá MS. Verðlagsstofnun er eftirfarandi dæmi um verðmyndun á kótelettum fengið frá einni kjötvinnslustöð: Heildsöluverð á kjötinu var fyrir verðbreytingu 394,25 kr. kostnaður vegna vinnu, véla, umbúða o.fl. var kr. 56,25 og heildsöluverð var því samtals kr. 450,50. Smásöluverðið í dag 461,27 + 65,81 = 527,09. Eftir söluskattsbreytinguna er heildsöluverðið á kjöti kr. 315,85 en það hefur lækkað um 20% vegna niðurgreiðslna. Kostnaður er sá sami eða kr. 56,35 og heildsöluverð er því kr. 372,10. Við bætist 25% söluskattur á báða liðina og 17% smásöluálagning og þá verður kjöt- verðið í smásölu það sama og í fyrra dæminu eða 461,27 kr. en kostnað- arliðurinn hækkar í kr. 82,27. Smásöluverð er því kr. 543,54 eða hækkun um 3%. ¥ * TOornunMa&ib VDDSKEFn ÆVINNUIÍF © Mikiú íhúfihjá Álafoasi í Moskvu 10 ntityóm luignaáur afrt'kstri Áivrrsins INNLENT Morgunblaðið/Sigurgeir Boðið i fiskinn á fyrsta markaðsdeginum i Vestmannaeyjum. Fiskmarkaður tekur til starfa í Eyjum Vestmannaeyjum FYRSTA uppboð á Fiskmark- aði Vestmannaeyja hf. var i gær. Boðin voru upp tæplega þrettán tonn af físki úr mb. Dala Rafni VE. Markaðurinn var gólf markaður og var verðið sem fékkst i lægri kantinnm. Um eitt hundrað manns, aðal- lega tengt útgerð og fiskvinnslu, var mætt á þetta fyrsta uppboð. Aðeins fimm buðu þó í fískinn, einkum fulltrúar hinna smærri fískverkenda. Skamma stund tók að bjóða upp og var ekki annað að sjá en að menn væru fljótir að átta sig þótt hratt væri upp boðið. Verðið sem fékkst í þessu fyrsta boði voru: karfí 22,50, keila 15,00, langa 21,00, ufsi 22,50 og þorskur 41,75. Finnur Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri, sagðist vera sæmilega ánægður með þennan fyrsta dag. Menn færu rólega af stað en þetta kæmi sígandi. Enn væri ýmislegt óljóst svo sem þróun verðs á gámafiski og einnig væri ekki Ijóst að hve miklu leyti togar- amir myndu landa á markaðinn. Finnur sagði að vel kæmi til greina að menn ofan af landi gætu boðið í fiskinn í Eyjum, bæði væri hugsanlegt að bátar lönduðu að einhveiju leyti t.d. í Þorlákshöfn og svo væri verið að athuga aðrar leiðir með flutning á fiski til lands. Fiskmarkaðurinn er eign 43 hluthafa og þar á meðal eru stóru fiskvinnslustöðvamar, margir út- gerðarmenn og einstaklingar. Starfsmenn verða tveir til að byija með. Bæði verður í gangi gólf- markaður og fíarskiptamarkaður. — Bjami Bankaráð Landsbankans: Verðhækkun á kótelettum: Niðurgreiðslur ná ekki til kostnaðarliðs VERÐHÆKKUN á kótelettum og lærissneiðum var ekki fyrirséð i útreikningum fjármálaráðuneytisins fyrir skattkerfisbreytingamar þar sem söluskattur á kindakjöt er niðurgreiddur. Samt sem áður hefur milli 3 og 4% hækkun orðið á þessum vörum. Samkvæmt upplýsingum frá var síðan u.þ.b. 17% hærra, eða Ráðning bankastjora að Ukindnm rædd í dag BANKARÁÐ Landsbanka íslands kemur saman til fundar árdegis í dag. Að sögn Kristins Finnbogasonar, formanns bankaráðs, mun ráðning nýs bankastjóra líklega verða á dagskrá fundarins, en í gærkvöldi lá ekki fyrir formleg ákvörðun þar að lútandi. Kristinn sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi að hann hefði rætt við bankaráðsmenn varðandi dagskrá fundarins og í ljósi þeirra viðræðna væri ýmislegt sem benti til að bankastjóraráðningin yrði tek- in til umræðu. „Mér sýnist að það sé ekkert því til fyrirstöðu að taka þetta mál fyrir. Það er nú ljóst að Tryggvi Pálsson gefur ekki kost á sér í þetta starf og því liggur að- eins ein tillaga fyrir varðandi ráðningu bankastjóra," sagði Krist- inn. Tveir varamenn munu sitja fundinn, þau Jón Þorgilsson og Árdís Þórðardóttir, sem koma í stað Péturs Sigurðssónar, sem er í leyfí og Áma Vilhjálmssonar, sem hefiir sagt sig úr ráðinu. Stjóm Félags starfsmanna Landsbanka íslands sendi bréf til bankaráðs •í gær þar sem „hörmuð em pólitísk afskipti af ráðningu bankastjóra Landsbankans og skor- að er á bankaráð að láta fagleg sjónarmið og hag bankans sitja i fyrirrúmi við ráðningu banka- stjóra," eins og það er orðað í bréfínu. Hollustuvemd ríkisins: Leitað að banvæn- um sýklum í ostum HOLLUSTUVERND ríkisins byrjar að öllum líkindum í lok næstu viku að rannsaka hvort sýkillinn Listeria monocitogenis leynist í íslenskum ostum, að sögn Guðlaugs Hannessonar, forstöðumanns rannsóknarstofu stofnunarinnar. Sýkillinn hefur fundist í ysta lagi nokkurra svissneskra, franskra og danskra mjúkosta og valdið dauða 31 manns i Sviss frá árinu 1983. Víða raf- magnslaust fyriraustan Egilsstöðum. RAFMAGN fór af öllu Fljótsdals- héraði laust fyrir klukkan 20 I gærkvðldi og víðar á Austur- landi. Staurar eru brotnir í Hjaltastaðaþinghá og Helgu- staðahreppi. Um miðjan dag á þriðjudag gekk á með norðaustan bleytuhríð sem jókst til muna I gær og hlóðst vem- leg ísing á allar raflínur svo að þær ýmist sliguðust eða slógu út. Fjall- vegir á Austurlandi era nú ófærir og þungfært er orðið á Héraði. Allt flug til Egilsstaða lá niðri í gær. — Björn „Við höfúm verið að bíða eftir ræktunaræti frá Bretlandi en að öllum líkindum ættum við að geta hafið rannsóknina í lok næstu BLAO B Viðbúnaður vegna lendingar VIÐBÚNAÐUR var á Reykjavíkurfíugvelli í gær- kvöldi vegna lendingar litillar farþegaflugvélar frá Flugfé- lagi Norðurlands, sem var að koma úr Grænlandsflugi. Vélin lenti hins vegar heilu á höldnu og engan sakaði. Að sögn varðstjóra í Flugtum- inum var um öryggisráðstöfun að ræða, þar sem vélin hafði drepið á öðmm mótor skammt norð- vestur af Keflavík. Flugmaðurinn taldi enga hættu á ferðum, en til vonar og vara var slökkvilið og sjúkrabíll í viðbragðsstöðu. viku,“ sagði Guðlaugur. „Við byq- um trúlega á því að rannsaka svokallaða mjúkosta ei^sýkillinn hefur aðallega fundist í Jþeim er- lendis. Erlendis em sumir ostar unnir úr ógerilsneyddri mjólk og það liggur ekki Ijóst fyrir hvort sýkillinn er eingöngu í þeim. Hins vegar er öll mjólk gerilsneydd hér. Líklega tekur það okkur a.m.k. mánuð að fá einhveijar niðurstöður en umfang rannsóknanna ræðst af þeim. Ég reikna með því að við vinn- um þetta í samráði við rannsóknar- stofu Osta- og smjörsölunnar," sagði Guðlaugur. Þrír sviptir ökuréttindum ÞRÍR ökumenn voru sviptir ökuréttíndum fyrir of hraðan akstur I gærkvöldi. Einn var kærður fyrir 130 kíló- metra hraða á Kleppsvegi, annar fyrir 114 á Kringlumýrarbraut og sá þriðji fyrir 104 kílómetra hraða á Kleppsvegi. Alls kærðu lögreglumenn rúm- lega 30 manns fyrir hraðakstur fi-á klukkan átta og til miðnættis f gærkvöldi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.