Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.01.1988, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 1988 fólk f fréttum Morgunblaðið/Sverrir. „Það fer um það bil einn mánuður i að búa til hveija brúðu,“ sagði Jón. Á myndinni er hann að vinna við gerð brúðu af Séra Sigvalda. Brúðuleikhús Jón E. Guðmundsson. í fanginu heldur hann á Hjálmari tudda. Jón E. Guðmundsson, fyrrver- andi myndmenntarkennari, hefur rekið Brúðuleikhús íslands í 33. ár. Þessa dagana er hann að undirbúa uppsetningu á verkinu „Maður og kona“ eftir Jón Thor- oddsen, en til stendur að sýna það á Listahátíð í sumar. Jón vinnur nú við að búa til brúður fyrir þessa sýningu. „Ég ætla nú ekki að sýna verkið í heild sinni, heldur vel ég. úr ákveðna kafla sem henta vel fyrir sýningu af þessu tagi. Ég nota sjö brúður í sýningunni, nota helstu persónumar og þar fer mikið fyrir þeim Séra Sigvalda og Hjálmari tudda,“ sagði Jón. Aðspurður sagði sýningar af þessu tagi krefjast mikils undirbúnings. „Venjulega fer um það bil einn mánuður í að gera hverja brúðu. Maður býr til hveija brúðu með tilliti til þeirra kúnsta sem hún á að leika. Ég fæst mest við strengja- brúður því notkun þeirra er kref- jandi. Þannig er ekki víst fyrirfram að hún „standi sig“ og þá verð ég að taka hana í sundur, beyta henni og setja hana saman upp á nýtt. Þetta er líkt og með leikstjóm þar sem stýra þarf lifandi leikurum“. Jón fékkst við kennslu í mynd- mennt um áraraðir, en lét af föstum störfum 1983 og helgaði sig þá öðru fremur Brúðuleikhúsi íslands, en það starfrækir hann í bílskúr við Flyðrugranda sem breytt hefur verið í lítið leikhús. Ekki em haldnar reglulegar sýn- ingar. Jón sagðist ekki auglýsá starfsemina, hann sýndi mest fyrir áhugamanneskjur og skóla. Svo skemmtilega vill til að hann vinnur nú einnig að því að setja upp leikri- tið „Hans og Gréta“, en það sýndi hann síðast á fyrsta starfsári leik- hússins, eða fyrir 33. ámm síðan. Þá sá Ævar Kvaran um uppsetn- inguna, Erlingur Gíslason aðstoð- aði, og Baldur Georgsson skemmti í híéum. Jón var spurður að því hve margar sýningar hann hefði set upp í gegn- um tíðina. „Ansi mörg. Ætli ég hafi ekki sett upp 15-16 leikgerðir, auk annars konar sýninga. Margar þessara sýninga fór ég með um allt landið, í alla bæi og þorp. Ég fékk leyfi hjá Thorbjöm Egner til að sýna „Dýrin í Hálsaskógi", en hann var mikill áhugamaður um brúðuleik- hús, og sennilega sýndi ég það um -eitt hundrað sinnum. Flestar sýn- ingar vom þó á „Kardimommu- bænum“, en sýningamar á því verki vom um eitt hundrað og tutt- ugu,“ sagði Jón E. Guðmundsson. Morgunblaðið/Sverrir. f vetur hefur Jón verið með sýningu sem byggist á frásögnum, dansi, söng og hljóðfæraleik. Af skrifum áhorfenda í gestabók Jóns má ráða að sýningar hans hafi vakið mikla lukku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.