Morgunblaðið - 24.08.1999, Blaðsíða 1
189. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Tveir fórust er farþegaþota brotlenti í Hong Kong
Uppreisnartilraun múslíma í Dagestan
Flugmála-
yfirvöld
gagnrýnd
Hong Kong. AP.
SPURNINGAR vöknuðu í gær um
það hvers vegna reynt hefði verið að
lenda farþegaþotu taívanska flugfé-
lagsins China Airlines, sem brotlenti
á flugvellinum í Hong Kong á sunnu-
dagskvöld, í miðjum hitabeltisstormi
sem olli því að ferjur lágu í höfn og
strætisvagnaþjónusta lá niðri og
flestum þjóðvegum var lokað.
Tveir fórust er þotunni hvolfdi í
lendingu og í gær voru sextíu enn á
sjúkrahúsi, þar af átta alvarlega slas-
aðir. Af þeim 313 sem komust lífs af
sluppu 102 ómeiddir, 151 var fljótlega
leyft að fara heim af sjúkrahúsi.
Þotan var af gerðinni Boeing MI)-
11 og var að koma frá Bangkok. I
lendingunni á Chek Lap Kok flugvelli
í Hong Kong tók hún skyndilega
dýfu, hægri vængurinn rakst í flug-
brautina og þotan snerist og lenti á
hvolfi og kom upp eldur í henni.
Taívanskur maður og portúgölsk
kona fórust í slysinu. Flugmálayfir-
völd í Hong Kong sögðu í gær að
Chek Lap Kok hefði verið opinn á
sunnudagskvöldið, þrátt fyrir veðrið, í
samræmi við alþjóðlegar reglur. Það
væri flugfélaganna sjálfra að ákveða
hvort reynt væri að lenda.
Veðurviðvaranir sem ollu því að
margskonar þjónusta lá niðri í Hong
Kong þurfa „ekki að skipta neinu
máli um það hvort flugvélar geta lent
eða ekki“, að sögn yfirmanns flug-
málastjómar Hong Kong.
Rannsókn er hafin á orsökum
slyssins, og verða flugritar vélarinnar
sendir til Bretlands til athugunar.
Beinist rannsóknin meðal annars að
því hvort höggvindur og mikill hliðar-
vindur kunni að hafa haft áhrif. Þá er
talið mögulegt að misskilningur á
milli aðstoðarflugmannsins, sem er
taívanskur, og flugstjórans, sem er
ítali, kunni að hafa haft áhrif.
Reuters
Flak þotunnar rannsakað á flugvellinum í Hong Kong í gær.
Skæruliðar
sagðir farnir
Rússar segja átök enn standa yfir
Moskvu. Reuters.
UPPREISNARMENN múslima,
sem undanfarnar vikur hafa átt í
bardögum við rússneska hermenn í
fjöllum Kákasushéraðsins Da-
gestans, hafa að sögn sjálfskipaðra
talsmanna þeirra yfirgefið héraðið
og hætt hemaði þar í bili.
Talsmenn rússneska hersins
sögðu aftur á móti í gær að enn væri
setið um á að gizka 100 uppreisnar-
menn í fjallaþorpinu Tando í Bot-
likh-sýslu í Vestur-Dagestan, en
þorpið hefur haft mikla hernaðar-
lega þýðingu í átökum liðinna vikna.
í gærkvöldi tilkynnti innanríkis-
ráðuneyti Dagestans að sigur hefði
unnizt á uppreisnarmönnum í Tando,
en sú fullyrðing hafði ekki fengizt
staðfest. A sunnudag höfðu rúss-
neskir embættismenn fullyrt það
sama, sem svo var borið til baka.
Talsmaður uppreisnarmanna tjáði
Reuters í símtali frá Grosní, höfúð-
stað Tsjetsjníu, að liðsmenn þeirra í
Dagestan hefðu fengið um það skip-
un frá skæruliðaleiðtoganum Shamil
Basayev að hörfa frá Dagestan, og
hefðu þeir fylgt því kalli á undan-
förnum sólarhring.
Talsmaðurinn las upp skrifaða yf-
irlýsingu þess efnis að Basayev hefði
fyrirskipað liðsmönnum sínum að
„flytja sig um set“ frá Botlikh-hérað-
inu og hefja „nýjan áfanga“ í upp-
reisninni. Þess var í engu getið hvert
skæmliðamir hefðu farið.
„Rússar halda áfram að tilkynna
um átök í Botlikh-héraði, að því er
virðist án þess að hafa hugmynd um
að þar hefur í um það bil heilan dag
ekki verið einn einasti stríðsmaður
íslams,“ sagði talsmaðurinn.
Tala látinna af völdum jarðskjálftans í Tyrklandi komin yfír tólf þúsund
Fjölmiðlar krefjast afsagnar
heilbrigðismálaráðherrans
Istanbúl. AFP.
DAGBLÖÐ í Tyrklandi kröfðust í gær afsagnar
heilbrigðismálaráðherra landsins, Osmans Durm-
us, fyrir að hafa staðið illa að skipulagi björgunar-
starfa eftir jarðskjálftann og fyrir þjóðernislegar
yfirlýsingar hans um erlenda aðstoð. „Nú er nóg
komið. Þegiðu og farðu,“ sagði blaðið Radikal í
stórri fyrirsögn á forsíðu, og sagði að Durmus
væri „harðbrjósta og heimskur kynþáttahatari".
Bulent Ecevit forsætisráðherra og Devlet Ba-
hceli, aðstoðarforsætisráðhema og formaður
flokks Durmus, Þjóðarflokksins, sem er öfga-
hægriflokkur, „eru samsekir" láti þeir undir höfuð
leggjast að reka heilbrigðismálaráðherrann, sagði
dálkahöfundur Radikal.
Opinber tala yfir fjölda látinna var 12.134 í gær
og 33.384 em slasaðir. Sumir stjórnmálamenn og
björgunarliðar telja að allt að 40 þúsund hafi farist
í skjálftanum.
Hafnaði grískum blóðgjöfum
Dagblöð af öllum stjórnmálavængjum voru sam-
mála í gagnrýninni á heilbrigðismálaráðherrann
fyrir að hafa gert lítið úr þörfinni fyrir aðstoð á
jarðskjálftasvæðinu og hafnað boðum um aðstoð er-
lendra ríkja. Blöð og sjónvarpsstöðvar
greindu frá því að mikill fjöldi fólks
hefði hringt og lýst andúð sinni á yfir-
lýsingum Durmus og krafist afsagnar
hans.
Fregnir herma að Durmus hafi dreg-
ið í efa þörfina fyrir erlenda lækna,
lyfjabirgðir og bráðabirgðasjúkrahús á
jarðskjálftasvæðunum í Norðaustur-
Tyrklandi. Haft var eftir honum að
Tyrkjum myndi þykja betra að fá hjálp
hjá læknum sem væm úr sama menn-
ingarheimi og þeir sjálfir. Durmus ráð-
lagði forsætisráðherranum að hafna
boði Bandaríkjamanna um að senda
spítalaskip og sagði enga þörf fyrir þau.
Þá var hann sagður hafa hent gaman
að beiðni ítalskra lækna um útisalemi
og mun hafa sagt að nógu mörg salerni
væra í moskum á svæðinu. „Þeim finnst
En talsmaður rússneska varnar-
málaráðuneytisins í Makatsjkala,
höfuðstað Dagestans, sagði yfirlýs-
ingu skæraliðatalsmannsins „hel-
bera ófyrirgefanlega lygi“, sem ætl-
að væri að villa um fyrir fjölmiðlum.
Hann sagði að enn væra um 100
uppreisnarmenn múslíma umkringd-
ir í Tando.
Magomedali Magomedov, héraðs-
stjóri Dagestans, tjáði Borís Jeltsín
Rússlandsforseta á fundi í Kreml í
gær, að hann hefði varað við því að
von gæti verið á árás skæraliða frá
Tsjetsjníu áður en til þess kom hinn
7. ágúst sl. Þrátt fyrir það hefði her-
inn verið óviðbúinn. „Dagestan er
efst á dagskránni hjá okkur núna, þú
ættir að vita það,“ sagði Jeltsín Ma-
gomedov á fundinum, að sögn Inter-
fax-fréttastofunnar.
Góðar fréttir fyrir Pútín
Tilkynningin um að uppreisnar-
menn hefðu dregið sig í hlé kom degi
áður en frestur sá rann út, sem nýi
forsætisráðherrann í Kreml, Vla-
dimír Pútín, setti hernum til að
binda enda á uppreisnartilraunina,
og reynist átökum lokið í raun yrði
það talinn mikill pólitískur sigur fyr-
ir Pútín, sem áður starfaði sem
KGB-njósnari og Jeltsín hefur lýst
yfir að sé óskaarftaki sinn á forseta-
stóli.
í sjónvarpsviðtali í gær kvartaði
ráðherrann yfir því að hann hefði
verið misskilinn.
Fólk fínnst á lífi
Tyrkneskir og ísraelskir björg-
unarmenn fundu í gær fjögurra ára
dreng, Ismail Cimen, á lífi í húsa-
rústum í bænum Cinarcik, sex dög-
um eftir að jarðskjálftinn, sem
mældist 7,4 á Richter, reið yfir.
Faðir drengsins og tvær systur lét-
ust, en móðir hans komst lífs af. í
fyrrinótt fannst kona á lifi í rústum
í bænum.
Erlendir björgunarflokkar hættu
í gær störfum einn af öðrum og
•i n- ,AI’ byrjað var að hreinsa burt rústir
Ismail Cimen á húsa sem þegar hafði verið leitað í.
sjukrahus11 gær. Tyrkneskur hershöfðingi sagði að
þau vera óhrein. Á ég að fara og þvo þau sjálfur? leitar- og björgunarstörfum væri að mestu lokið.
Þið getið sjálf haldið þeim hreinum," var haft eftir Björgunarfólk hefur snúið sér að því að dreifa mat
honum. Þá er hann sagður hafa látið þau orð falla og setja upp tjöld fyrir um 200 þúsund manns sem
að hann vildi ekki blóðgjafir frá Grikklandi. misstu heimili sín í skjálftanum.
Lyf við
ofbeldi?
Lonrlon. AFP.
BRESKIR vísindamenn telja
mögulegt, að hægt verði að
stemma stigu við ofbeldi með
lyfjagjöf. Rannsakendur við
Birminghamháskóla greina frá
því í nýjasta hefti tímaritsins
The Neuroscientist að þeir hafi
borið kennsl á þrjú heilaboðefni
sem stjómi árásarhneigð.
Eitt taugaboðefnanna er talið
tengjast þunglyndi og kvíða-
köstum, og leiddu tilraunir í Ijós
að smáskammtar af þessu efni
drógu úr árásargirni í músum.
Tilraunir á músum hafa einnig
sýnt fram á að hin efnin þrjú
hafi áhrif á árásargirni. „Skila-
boðin era augljós. Við megum
ekki vanmeta líffræðilegar
ástæður árásargirni og andfé-
lagslegrar hegðunar,“ sagði
Thelma Lovick, sem stjórnaði
rannsókninni.
En Simon Wessely, prófessor
í geðlækningum við King’s Col-
lege-sjúkrahúsið í London, hafn-
aði forsendum rannsóknarinnar.
„Hugmyndin um að gefa lyf við
ofbeldi er fáránleg," sagði hann.
„Þetta er ekki líffræðilegt fyrir-
bæri á borð við flogaveiki eða
krabbamein. Þetta væri eins og
að gefa lyf við þjófnaði. Það er
ekkert vit í þessu.“